Þjóðviljinn - 23.08.1956, Síða 1

Þjóðviljinn - 23.08.1956, Síða 1
Lokað fyrir olíuna í Saudi Arabíu ef Egyptar verða beittir valdi Vesturveldin geta enga von gert sér um aS fariS verSi aS tillögum þeirra um lausn Súezdeilunnar Hugsjónir staðíestar lciðari á 4. síðte ' Stórtjón í fléði í Týrotdal Þyrilvængjur voru í gær nofa aðar við björgunarstarf í ðajj einum í Týrol, þar sem miki® flóð varð i fyrrakvöld, þegaíf stífla efst í dalnum brast. Vatnið fossaði niður í dalin@ og reif með sér hús og önnuw mannvirki. Vitað er um 6 menni sem hafa drukknað, en margrai annarra er saknað. Vatnið sumstaðar tveggja m djúpt ogl allt samband við aðra hluta Týr-> óls er rofið. Öli uppskera dr la- bænda fór forgörðum i fióðimi4 Lundúnaráð’stefnunni um Súezdeiluna lýkur að öllum®’ líkindum í dag. Deilan virðist engu nær lausn sinni nú en fyrir ráðstefnuna, þó er taliö aö hún hafi dregið úr líkum á því, að vesturveldin, og þá fyrst og fremst Frakk- land og Bretland, geri alvöru úr hótunum sínum um að íara með stríði á hendur Egyptum. Frétzt hefur, að Saud konungur Arabíu ætli sér að vara Bandaríkin við afleiðingum valdbeitingar og hóta því að lokað verði fyrir olíu í landi hans, ef tilraun verður gerð til hennar. Tveir fundir voru haldnir á ráðstefnunni í gær. Á þeim fyrri var enn rætt um þær tvennar tillögur sem bornar hafa verið fram til lausnar deilunni, þær sem vesturveldin báru fram og studdar eru af miklum meiri- hluta fulltrúanna — 17 af 22 ■— og hinar sem Indland bar tfram og studdar eru af Sovét- ríkjunum, Indónesíu og Ceylon. I tillögum vesturveldanna er gert ráð fyrir að alþjóðleg nefnd taki við stjóm skurðar- ins af hinu þjóðnýtta Súez- skurðarfélagi, en í indversku tillögunum að alþjóðleg nefnd verði hinu egypzka félagi til ráðuneytis í sambandi við rekst- ur skurðarins. Fulltríii Spánar, markgreif- inn af Santa Cruz, hafði í fyrra- dag borið fram tillögu um að skurðinum yrði stjómað af eg- ypskri nefnd, sem önnur ríki tækju þátt í, en hún fékk ekki góðar undirtektir. Hvemig boðum verði komið til Egypta Að umræðum um tillögurnar loknum var Ijóst að ekki myndi takast neitt samkomulag um málamiðlun milli meiiihlutans og minnihlutans á ráðstefnunni, og var þá ekki annað eftir en að ganga frá því, á hvem liátt stjóm Egyptalands yrði látin vita um, hvað hefði verið rætt og ákveðið á ráðstefnunni. Lloyd, utanríkisráðherra Bret- lands, lagði til að egypzku etjóminni yrðu sendar allar fundargerðir ráðstefnunnar, svo að hún gæti gert sér sfem bezta grein fyrir afstöðu fulltrúa hinna ýmsu landa. Tillögur höfðu komið fram fyrr um daginn um skipun nefndar sem skyldi leggja nið- urstöðun ráðstefnunnar fyrir stjórn Egyptalands og hafði fulltrúi Nýja. Sjálands að sögn lagt til að í henni ættu sæti full- trúar frá Bandaríkjunum, Sví- þjóð, Abessirpu, írans og Ástr- alíu. ' Minnihlutinn mótmælir Þessi fimm ríki em öll fylgj- andi tillögum vesturveldan .a og mótmælti fulltrúi Sovéti íkj- anna, Sépiloff utanríkisráð- herra, því að minnihlutinn væri sniðgenginn og undir það tóku aðrir fulltrúar lu ns, utanríkis- ráðherrar Indlands, Indónesíu og Ceylons. Menon, fulltrúi Indlands, fór fram á, að ráðstefnan yrði framlengd þangað til í dag, þar sem hann ætti von á skila- boðum frá stjórn sinni. Flestir fulltrúanna höfðu látið í ljós eindregna ósk um að ljúka ráð- stefnunni í gær, en fallizt var á framlenginguna. Dulles, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði við blaða- i menn eftir að sú ákvörðun hafði | verið tekin, að honum myndi ekki koma á óvart þótt enn yrði reynt „að draga ráðstefn- una á langinn" þegar fundur verður haldinn í dag. Framhald á 8. síðu ðttast m bandaríska sprengju- flugvél með 2ja manna áköfn Fór frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Prest- vtkur en kefur ekki fundizt þrátt fyrir mikla leit Qttazt er um. bandaríska sprengjuflugvél af gerðinni B 26 sem fór frá Keflavík til Prestvíkur í fyrrinótt og hef- ur ekki komið fram. Flugvél þessi var eign franska flughersins og var verið að flytja hana til Frakklands, ásamt ann- arri flugvél af sömu gerð. Lögðu flugvélamar af stað frá Kefla- víkurflugvelli kl. 3 í fyrrinótt og ætluðu að lenda í Prestvík, en aðeins önnur flugvélin lenti þar. Til hinnar hefur ekkert spurzt, þrátt fyrir að margar flugvélar hafi leitað hennar. í flugvélinni var tveggja manna áhöfn. Eisenhoioer og Nixon Bnenhower 09 NIx- Qn verðcs í frctmboði Stasseti lét í gær af andstöðu siimi gegn endudramboðl Nixons varaiorseta Búizt var við, að þing repúblikanaflokksins bandaríska, sem haldið er í San Francisco, myndi í gærkvöld kjósa þá Eisehhower og Nixon einróma til að vera í framboði fyrir flokkinn við forsetakosningarnar í nóvember. Eisenhower forseti kom til San % Francisco í gær, einurn degi fyrr en til stóð. Strax eftir komuna þangað veitti hann blaðamönn- um viðtal og gat þá skýrt þeim frá því, að Harold Stassen, sem hefur beitt sér mest gegn því að Richard Nixon varaforseti yrði aftur í framboði til þess embætt- is við kosningamar í haust, hefði tilkynnt sér, að hann hefði látið af andstöðu sinni gegn Nixon. Hordsng býð- ur sakarupp- giof Harding landstjórí Breta á Kýpur hefur heitið skæruliðum EOKA griðum ef þeir leggja nið- ur vopn innan þriggja vikna. Verður þeim gefinn kostur á að flytjast til Grikklands og verða þeim þá gefnar upp allar sakir; þeir sem kjósa að vera kyrrir á Kýpur verða hins vegar sóttir til saka fyrir meiri háttar afbrot. Nehru heimsækir Saud konung Tilkynnt var í Nýju Delhi i gær að Nehru forsætisráðherra myndi í næsta mánuði heim- sækja Saud konung Saudi-Ara- bíu. Talið er víst að Súezmálið verði rætt á fundum þeirra. Stassen hafðj enn í gærmorg- un verið eindréginn andstæð- ingur Nixons og hafði þá farið fram á að mega ávarpa flokks- þingið í San Francisco, áður en bornar juúu fram uppástungur um varaforsetaefni. Stassen eí sjálfur ekki fulltrúi á þinginu, og hafði því orðið að biðja um sérsíakt leýíí til þess að úvarpa það. TiJkynning Eisenhovvers forseta kom því algerlega á óvart, 03 um leið var það víst, að Nixon mýndi verða fyrir valinu seirí varaforsetaefni. Eisenhower for- seti sagðist sjálfur geta sætt sig við hímn, en hann áliti að þing- ið ætti eitt að segja til um livesl yrði fyrir valinu. Upphaflega var ætlunin a® kosning frambjóðenda færi írar«| i dag, en talið var sennilegt a<8 henni yrði lokið í gærkvöldb þar sem \ekkert annað liggufi fyrir þinginu. Vorosjiloff rifjar upp gamlar minningar í jiinghúsi Finna Finnsk lýðræðisstjórn nátengd rússn.eskaj byltingunni, segir þingforseti Vorosjiloff marskálkur, forseti Sovétríkjanna, kom ft gær í heimsókn í finnska þingið og var fagnað vel. Forseti þingsins, Sukselainen, formaður Bændafloksins, bauð Vorosjiloff velkominn og sagði að það væri þingheimi sérstök á- nægja, að hann skyldi koma í heimsókn í það hús, sem væri tákn finnskrar lýðræðisstjómar. Sukselainen minnti á að Finn- ar hefðu fengið eigið þing eftir hina miklu byltingartilraun árið 1905 og finnskt lýðræðisstjórnar- far væri i nánum tengslum við hina rússnesku byltingarhreyf- ingu. í svarræðu sinni nefndi Vor- osjiloff, að hann hefði einmitt komið til Finnlands árið 1905 og hefði erindi hans verið að kaupa þar sænsk vopn, sem siðar voru notuð í byltingunni 1917. Vorosjiloff heimsótti einnig f gær Fagerholm forsætisráðherra! og ræddu þeir um hina síbsúi- andi sarnbúð ríkjanna tvegja. Haft er eftir góðum finnsk- um heimildum, að heimsókní Vorosjiloffs muni leiða til auk- inna viðskipta miili Finrí.í.ndsi og Sovétríkjanna og er be~t. á; það, að í föruneyti hans er mv a. Varaksín, pappírs- og trjá-t vöru iðnaðarráðherra. Talið er sennilegt að þegar Vorosjiloff heldur heimciðisi muni hann hafa með sér boði handa þeim Búlganin og Krú- stjoff að heimsækja Finnlandl þegar þeir koma til Norðurianöéi á næsta ári.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.