Þjóðviljinn - 31.08.1956, Síða 3
Föstudagur 31. águst 1956 r— ÞJÓÐVILJINN (3
ÍÞ1
RITSTJÚRI: FRÍMANN HELGASON
Fyrri dagur Reykjavíkurmótsins:
6 rnenn hlaupa 800 m undir 2 mín
útum, nýr „16 metra maður" í kúlu
ÍR 46 stig eftir daginn, I(R 21, Ármann 19
Reykjavíkurmeistaramótið í
frjálsum íþróttum, byrjaði á
miðvikudagskvöld. Veður var
ákjósanlegasta, logn og fremur
hlýtt í veðri, svo allar aðstæð-
ur voru til að góður árangur
næðist. Þó ný íslenzk met væru
ekki sett, þá verður ekki annað
sagt en mjög góður árangur
hafi náðst í mörgum greinum og
að þessi fyrsti dagur keppn-
innar hafi verið viðburðaríkur.
800 m hlaupið var frá upp-
hafi mjög skemmtilegt, enda
voru þar samankomnir allir
beztu hlauparar okkar að Sig-
urði Guðnasyni undanteknum
sem kaus heldur að hlaupa
5000 m sem voru þetta sama
kvöld.
Svavar Markússon tók þegar
i upphafi forustuna í hlaupinu,
en Þórir Þorsteinsson sleppti
honum ekki frá sér og bjó sýni-
lega yfir því að leggja allt í
endasprettinn, enda var hrað-
inn mikill, og þar kom að þeg-
ar aðeins voru 60—70 m að
marki tók Þórir að greikka
sporið sem Svavar gerði líka,
en hiim ágæti Svavar varð að
gefa eftir fyrir Þóri og Itom
aðeins 2/10 á eftir í mark.
Það skemmtilega skeði að allir
sex keppendurnir hlupu undir
tveim sek. Slíkt mun aldrei
hafa komið fyrir á móti hér
fyrr. Haukur Böðvai’sson úr ÍR
varð þriðji og mun hann aldrei
fyrr hafa hlaupið þessa vega-
lengd á stórmóti, enda er hann
tiltölulega nýr hlaupari. Þessi
árangur hans, 1.57,8, gefur til
kynna að þar sé á ferðinni
mjög efnilegur hlaupari. Það
var líka gaman að sjá Dagbjart
Stígsson hlaupa á ágætum
tíma, en hann meiddi sig á fæti
í vor. Hinir tveir sem hlupu
undir tveim mínútum voru:
Kristleifur Guðbjörnsson og
Sigurður Gíslason sem báðir
hlupu á 1,59.4.
Guð'mundur Heimannsson var
sýnilega vel fyrir kallaður í
keppni þessari. Náði hann því
að kasta yfir 16 m, en það
hefur engum Islendingi tekizt
öðrum en Húseby, og fékk Guð-
mundur mikið lófaklapp hjá á-
horfendum.
Skúli Thorarensen varð ann-
. ar með 15.19 m kast. Skúla
hefur ekki farið nóg fram í
sumar, en með góðri æfingu
ætti hann að geta nálgazt 16
m áður en mörg ár eru liðin.
Húseby er öruggur með sína
15 m og varð þriðji. Köst Guð-
mundar voru: 15.34 — 15.97
— 15.26 — 16.15 — 15.19 —
15.57.
í 5000 m hlaupinu leit lengi
svo út sem metinu yrði hætt.
Þeir Sigurður Guðnason og
Kristján Jóhannsson „drógu“
hvorn annan áfram, og skiptust
lengi vel á um leiða hlaupið.
Það var þó Sigurður sem tók
meir forustuna er líða tók á
hlaupið, en bilið milli þeirra
var lítið. Þegar eftir voru um
það bil þrjú hundruð metrar
greikkaði Sigurður sporið, og
fékk Kristján ekki við ráðið,
og dró sundur með þeim allt
í mark og þó gerði hann góða
tilraun til þess að halda í við
Sigurð. Endasprettur Sigurðar
var mjög góður og það Ieit ekki
út fyrir að hann væri líkt því
„búinn“, eins og það er kallað,
og eins og aðstæður voru og
með þeirri keppni sem hann
hafði af Kristjáni hefði hann
sennilega getað hlaupið undir
metinu ef hann hefði byrjað
sprettinn fyrr, en það hefði
hann bersýnilega þolað. Þriðji
maðurinn í keppnmni var Haf-
steinn Sveinsson, en hann
blandaði sér aldrei inní keppni
þeirra Sigurðar og Kristjáns.
Gylfi Gunnarsson vann spjót-
kastið, og hefur hann þó ekki
æft mikið undanfarið. Er á-
nægjulegt að sjá íjylfa aftur
með í keppni, og er hann lík-
legur arftaki Jóels, sem að
þessu sinni var ekki meðal
keppenda og mun hyggja á
hvíld eftir glæsilegan feril sem
spjótkastari.
Það var líka skemmtilegt að
fá langstökk yfir 7 m, en það
gerði Vilhjálmur Einarsson,
stöklc 7,06, og Einar Frí-
mannsson vantaði áðeins 10
cm til þess að ná 7 m.
í hástökkinu var keppnin
jöfn og hörð og það er ekki fyrr
en í síðustu tilraun sem Sig-
urði Lárussyni tekst að fara
yfir 1.80, en næstu þrír menn
voru með 1.75 m.
Árangur Hilmars á 200 m
var líka athyglisverður og
sannar ágæti hans og öryggi
sem spretthlaupara, og þó
hafði hann ekki harða keppni
af næsta manni.
Úrslifc í einsfcökum greinum:
400 m hlaup:
1 Daníel Halldórsson IR 58,2
2 Björgvin Hólm 62,1
3 Hjörl. Bergsveinss. Á 64.4
4 Heiðar Georgsson ÍR 64.6
200 m hlaup:
1 Hilmar Þorbjörnsson Á 21,9
2 Daníel Halldórsson ÍR 23.0
3 Tómas Lárusson KR 23.4
800 m hlaup:
1 Þórir Þorsteinsson Á í.54.2
2 Svavar Markússon KR 1.54.4
3 Haukur Böðvarsson ÍR 1.57.8
4 Dagb. Stigsson Á 1.58.8
Langstökk:
1 Vilhjálmur Einarsson ÍR 7.06
2 Einar FrímannssonKR 6.90
3 Helgi Björnsson ÍR 6.56
4 Valbjörn Þorláksson ÍR 6.29
5000 m hlaup:
1 Sig. Guðnason ÍR 15.11.2
2 Kristj. Jóhannsson ÍR 15.18.2
3 Hafsteinn Sveins. KR 16.86.8
Spjótkasfc:
1 Gylfi Gunnarsson ÍR 55.88
2 Björgvin Hólm ÍR 51.98
3 Valbjörn Þorláksson ÍR 51.89
4 Pétur Rögnvaldss. KR 50.62
Kúluvarp:
1 Guðm. Hermannss. KR 16.15
2 Skúli Thorarensen ÍR 15.19
3 Gunnar Huseby KR 15.09
4 Hallgr. Jónsson Á 13.78
Hásfcökk:
1 Sigurður Lárusson Á 1.80
2 Jón Pétursson KR 1.75
3 Heiðar Georgsson ÍR 1.75
4 Vilhj. Einarsson ÍR 1.75
NÍK0MNAR
poplinblússur
í ýmsum litum.
QULLFOjSjS
★ í dag er föstudaguriiui 31. ág-
úst. FauJinus. — 244. dagur ársins.
— Tungl í hásuðri ki. 9.19. — Ár-
degisliáflasði kl. 1.33. Síðdegishá-
flæði klukkan 14.16.
Föstudagur 3J. ágúst.
Fastir liðir eins
og venjulega. Kl.
19.30 Tónleikar: —
Harmonikulög. pl.
20.30 Um víða ver-
öld. — Ævar Kvaran leikari flyt-
ur þáttinn. 20.55 Einleikur á
píanó: Snjólaug Sigurðsson leik-
ur. a) Intermezzo, Capriccio og
Ballata í g-moll eftir Brahms. b)
Fantasía op. 49. eftir Chopin.
21.15 Upplestur: Kvæði eftir Jakob
Jóhannesson Smára (Kárl Guð-
mundsson leikari). 21.30 Islenzk
tónlist pl.: Kvartett .í G-dúr eftir
Ölaf Þorgrimsson (Útvarpskvart-
ettinn leikur). 21.45 NáttúrJegir
hlutir (Guðm. Þorláksson). 22.00
Fréttir og veðurfr. Kvæði kvölds-
ins. 22.10 Brúðuheimilið, saga eft-
i:; »Augpst. Strindberg; III. sögulok
(Helgi Hjörvar). 22.30 Létt lög
pl.: a) Franskir listamenn syngja
og leika. bj Xavier Cugat og
hljómsveit hans leika. 23.00 Dag-
skrárlok.
MilIiXandaflug
Hekla er væntan-
. leg kl. 9 frá N.Y.
Fer Itl. 10.30 til
. Osló og Stafang-
urs. Saga er væntanleg seint í
kvöld frá Lúxemborg og Gauta-
boi’g; fer eftir skamma viðdvöi
til N.Y. Sólfaxi fer til Glasgow
og London kl, 8 í dag. Flugvélin
er væntanleg’ aftur til Rvíkur
kl. 23.45 í kvöld. Flugvélin fer til
Kaupmannaíiafnar og Hamborgar
kl. 8.30 í fyrramálið.
Innanlandsflug
í dag er ráðgert að fljúga til Ak-
ureyrar 3 fei’ðir, Egilsstaða, Fag-
urhólsmýrar, Flateyrar, Hólmar-
víkui’, Hoi'nafjarðar, Isafjarðar,
Kirkjubæjarklausturs, Vestmanna-
eyja 2 ferðir og Þingeyrar. Á
morgun er ráðgert að fljúga til
Akureyrar 3 ferðir, Blönduóss,
Egilsstaða, Isafjarðar, Sauðár-
króks, Siglufjarðar, Skógasands, -
Vestmannaeyja 2 ferðir og Þórs-
hafnai’.
Slúpaútgerð í’ikisins.
Hekia er í Gautaborg á leið til
Kristiansand. Esja er á Vestfjörð-
um á suðurleið. Herðubreið fer
frá Rvík í dag austur um land
til Raufai-hafnar. Skjaldbreið er
á Húnaflóa á leið til Rvíkui'.
Þyrill er í Hamborg. Skaftfelling-
ur fer fi'á Rvík í kvöld til Vest-
mannaeyja.
Skipadeild SÍS
Hvassafell er í Sölvesborg. Arnar-
fell fer í dag frá Helsingl'ors til
Stettin. Jökulfell er í Hamborg.
Disarfell er í Fraserburgh. Litla-
fell er í oliuflutningum í Faxa- 1
flóa. Helgafell fór i gær frá
Haugasunds til Faxaflóahafna.
Peka fór 29. þm frá Stettin til
Sauðárkróks, Ingólfsf jarðar og’
Box-ðeyrar.
Eimskip
Brúarfoss átti að fara frá Lon.«
don í gær áleiðis til Rvikur. Del ti«
foss kom til Rvíkur 26. þm frá
Hull. Fjallfoss fór frá Rvík sl-
mánudag- áleiðis til Hull, Rott' i’« .
dam og Hamborgax'. Goðafoss fór
frá Rvík i fyrradag áleiðis til
Stokkhólms, Riga, Ventspils, Hr. n«
ina, Leningrad og K-hafnar. GrlÞI
foss kom til Rvíkur í gærmo-g«
un frá Leith og Kaupmannahö n,
Lagai-foss fór frá N.Y. sJ. méru-.
dag áleiðis til Rvíkur. Reyk ;a-
foss fór frá Akranesi í fyrraöag.
til Isafjarðar, Akureyrar, Hú ••a«
víkur og Siglufjarðai'. Tröllaf >s3
fór frá Hamborg sl. mánudag á«
leiðis til Rvikur. Tungufoss fór
frá Siglufirði í fyrrakvöld áleiðia
til Lysekil og Gautaborgar.
Frá Vlnnuveltenda-
sanibandi Islands
Samkvæmt gildandi kaup- og kjarasamningum
við verkalý'ðsfélögin hefur Vinnuveitendasamband
íslands sent félagsmönnum sínum kaupgjaldskrá
yfir tímabiliö 1. september til 30. nóvember, sem
gerir ráö fyrir 6 stiga hækkun á kaupgjaldsvísi-
tölunni. Vegna kaupbindingarráöstafana ríkis-
stjórnarinnar er felast í bráöabii’göalögum útgefn-
um 28. þ.m., gengur þessi nýútsenda kaupskrá
sambandsins ekki í gildi.
Ber félagsmörinum til 31. desember n.k. aö
greiða kaup skv. kaupskrá þeirri, er gilti fyrir
tímabiliö frá 1. júní til 31. ágúst.
Vinnuveitendasambanð íslands
Aðstoðarlæknissfaða:
Staöa aöstoöarlæknis viö barnadeild Landspítal-
ans er laus til umsóknar frá 1. janúar næstkom-'
andi.
Launakjör samkvæmt launalögum. Umsóknir
með upplýsingum um aldur, námsferil og fyrri
störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna fyrir 1,
október næstkomandi.
Skzifstofa líkisspítalanna
J^jj§{jg95S5S5Sj»*SBSSSSESS3S8SSSSSaSSSSSSaSSSSSSSBBBSSS'SstS2S2S4íia9 í 9HBSSasaSHSlSSSSSBSSSSHSSSÍSS5SSSSS3BS3BS5SBS9S-SÍSasSBSSSS«SSSSSSS*BaaS5aSSaS?SBSSSSS5aaiiaS?SSB5 9