Þjóðviljinn - 31.08.1956, Síða 8

Þjóðviljinn - 31.08.1956, Síða 8
Met í fólksflutningum Flugfélags íslands: Yfir 10 þús. farþegar á innisilinds leiðum Flugfélagsins í ágústmanu Einn daginn náði farþegatalan 866 Flugfélag' íslands flutti í fyrramorgun 10 þúsundasta farþegann, sem feröast á innanlandsleiöum félagsins í ágústmánuði. Farþeginn var Kristín Jóns- dóttir, og kom hún til Reykja- víkur með Gunnfaxa frá Akur- eyri, þar sem hún hefur dvalið að undanförnu í sumarleyfi sínu. Þegar Kristín sté út úr flugvélinni á Reykjavíkurflug- velli, var henni færð að gjöf frá F.í. Helena Rubinstein snyrtivörutaska til minningar um ferðina, en auk þess var henni tilkynnt, að hún ferðað- ist sem gestur félagsins að norðan. Carðaverðlaun í Hafnarfirði Fegrunarfélag Hafnartjarðar hefur veitt hjónunum Margrétu Auðunsdóttur og Oddi Hannes- syni Hellisgötu 1 verðlaun fyr ir fegursta skrúðgarð í bænum á þessu sumri. Hverfisviðurkenningu hlutu: í suðurbæ: garðurinn að Ölduslóð 10, eigendur hjónin Guðfinna Pétursdóttir og Jón Egilsson. I miðbæ: garðurinn að Urðarstíg 3, eigendur hjón- in María Albertsdóttir og Kristinn Magnússon. I vestur- bæ: garðurinn að Skúlaskeiði 4, eigandi Jón Lárusson. Olíufélagið hlaut verðlaun' sem fyrirtæki eru veitt fyrir snyrtilegt útlit og góða um- gengni á athafnasvæði. í dómnefndinni voru Sverrir Magnússon lyfsali og garð yrkjumennirnir Theódór Hall- dórsson og Jónas Sig. .Jónsson. Þess eru ekki dæmi í sögu Flugfélags íslands, að flugvél- ar þess hafi fyrr flutt jafn marga farþega á innanlands- leiðum á einum mánuði og nú í ágúst. Hefur farþegatalan 1 numið hátt á fjórða hundrað til jafnaðar dag hvern allan mánuðinn. Hinn 3. ágúst náðu flutningarnir hámarki sínu, en þann dag flutti F.í. 866 far- þega hér innanlands. HJ6ÐVIUINN Föstudagur 31. ágiist 1956 — 21. árgangur — 197. tölublað Sölumíðstöðin er stærsti innflytj- adi fisks fii Bandarikjanna Sölumiöstöð hraöfrystihúsanna er stærsti einstaki fisk- innflytjandinn til Bandaríkjanna, og' veitir það henni góöa aöstööu í hinni höröu samkeppni á þeim markaði. Enn ekki nema fjórði hluti til upp í sölusamninga um frysta síld Búiö er nú að selja 4300 smálestir af freðsíid af þessa j árs framleiðslu. Upp í þetta er þó enn aöeins búiö aö frysta um 1100 smálestir af Faxasíld. Hefui síldarafli veriö mjög tregur aö undanfömu. Þeir sem kaupa freðsíldina eru Pólverjar, 2500 smálestir og Tékkar, 1800 smálestir. Þeir fyrrnefndu hafa keypt íslenzka freðsíld um margra ára skeið. En í Tékkóslóvakíu er tiltölu- lega nýr markaður fyrir ís- lenzka freðsíld. Hófu þeir að kaupa hana á s.l. ári. Er nú líklegt að búið sé að tryggja síldinni þar öruggan markað. Bæði í Póllandi og Tékkó- slóvakíu er síldin matreidd þannigað hún er reykt úr frostinu. Þess skal getið að lokum, að Valur tapaði Meistaraflokkur Vals hefur verið í keppnisferð í Þýzka- landi. Fyrsta leik sínum, er var í Hamborg, tapaði Valur með 6:4 og leik í neðra Saxlandi tapaði hann með 10:0. Þriðji og síðasti leikur Vals í þessari Þýzkalandsför fer fram í kvöld. --:----%-------------— Franskar hersveitir sendar til Kýpur Fundurinn á mánudag undirbúínn í gæi’ komu til Kýpur fyrstu frönsku hersveitirnar sem Frakkar og Bretar hafa oröiö ásáttir um aö senda þangaö. Láta Frakkar í veðri vaka að tilgangurinn með liðsflutningum þessum sé sá einn að verja franska hagsmuni ef svo kynni að fara að ástandið við Súez- slcurð versni. Bandaríkin ekki með í ráðum. Utanríkisráðuneytið i Was- hington tilkynnti í gær að bandarísku stjórninni hafi verið tilkynnt um liðsflutninga þessa, einungis stuttu áður en opinber tilkynning var gefin út um þá Hefur Bandraíkjastjórn tekið Engar hindranir Utanríkisráðuneyti Banda- ríkjanna tilkynnti í gær að það muni ekkki hindra að bandarískir borgarar taki að sér stöður við Súezskurðinn. Stefna Bandaríkjanna sé að halda Súezskurðinum opnum fyrir sigtingar. þessu heldur kuldalega. Full- trúi utanríkisráðuneytis Banda- ríkjanna neitaði í gær að segja nokkuð um liðsflutningana, en ráðuneytið hefur þó skýrt frá að ihvorki Bretar né Frakkar hafi ráðfært sig við Bandaríkja- stjóm um þá. Viðræður í Kaíró. Nasser, forseti Egyptalands, átti í gær 3 fundi með Krishna Menon, fulltrúa Indlands á Lundúnaráðstefnunni. Þá fundi sátu og utanríkisráðerra Eg- ypta og Alí Sabrí, sem var á- heyrnarfulltrúi Nassres á Limd- únaráðstefnunni. Nasser ræddi og í gær við sendiherra Banda- ríkjanna í Washington,; Henry Byroade. Munu þeir hafa rætt um fund Nassers og fimmríkja- nefndarinnar á mánudag. Nefnd in lauk í gær umræðum til und- irbúnings undir fundinn. Hún flýgur frá Lundúnum til Kaíró á sunnudag. ; líklegt er, að hægt muni að selja verulegt viðbótannagn af frystri síld. Kvikmynd írá íslandi Framhald af 1. síðu að þarlendis. Mun þessi þáttur einn hafa verið góð auglýsing í Tékkóslóvakíu fyrir íslenzkar framleiðsluvörur. Má geta þess, að sjónvarp er nú orðið mjög útbreitt í Prag og öðrum borg- um landsins. Mesta auglýsing íslenzkrar vöru. Eftir um 10 daga verður til- búin til sýningar kvikmynd sú sem Josef Cepelák tók hér á landi í ferðinni. Verður það löng kvikmynd, sem sýnir iand og þjóð og að sjálfsögðu er þar lögð áherzla á sjávarútveg ís- lendinga og framleiösluvörarn- ar sem þeir selja til Tékkósló- vakíu. Kvikmynd þessi verður sýnd í 500 kvikmyndahúsum víðs- vegar í Tékkóslóvakíu og er vafasamt að útflutningsfram- leiðsla íslendinga hafi nokkni sinni fengið þvilíka auglýsingu og kynningu í nokkra við- skiptalanda sinna. (Frá Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna). í frétt frá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna segir að aðeins vanti herzlumarkið til þess að framleiðsla S.H. verði alþjóðar- þekkt í Bandaríkjunum. I frétt- inni segir m.a. eftirfarandi: T\i> vörumerki. Framleiðslan S.H. er seld í Bandaríkjunum undir tveimur vörumerkjum, „Iceiandic", sem bvrjað var að nota 1946 og ,,Fresher“, sem sala hófst á 1947. Það er skriístofa S.H. í Bandaríkjunum, er gengur und- ir heitinu Coldwater Seafood í Chrysler-byggingunm í New York, sem annast dreifingu fisksins. Hefur félagið birgða- stöðvar á mörgum stöðum og hefur sölukerfið sííellt farið vaxandi á síðustu árum með fjölgandi viðskiptamönnum. Mtinu umboðsmenn félagsins nú vera nálægt 1000. —■ Fyrstu ár- in gekk salan á framleiðslu Sölumiðstöðvarinnar fremur erfiðlega. Ómerktur fiskkur. Samtímis sölu á vörumerkt- um fiski hefur Sölumiðstöðin árlega flutt út nokkuð af ó- merktum blokkfiski. Ýmis bandarísk fiskvinnslu- og fisk- sölufyrirtæki hafa keypt þenn- an ómerkta fisk og selt hann síðan undir sínu nafni. Þessar sölur hafa komið sér vel hverju sinni, en vart hefur verið á þær að treysta, því að kaupendurnir gátu að sjálfsögðu hvenær sem var og eftir eigin geðþótta hætt kaupum á íslenzkum fiski og snúið sér il Kanada, Noregs eða Danmerkur. Hefur þessa t.d. mikið gætt i sambandi við ,,fish- sticks" iðnaðinn, sein orsakaði eitt ár stórfelldan útflutning á blokkfiski' til bandarískra fisk- vinnsluf j'rirt.æk ja. Egyptar leita hafnsögumanna til siglinga á Súezskurði Egypzka sendiráöiö' í Lundúnum tilkynnti i gær aö þaö heföi sent blööum þar í borg auglýsingar þar sem leitaö er eftir hafnsögumönnum við Súezskuröinn. í mismunandi stærðum. Sölumiðstöðin sglur flestar fisktegundir i merktum umbúð- rnn til Bandaríkjanna. Þar koma að sjálfsögðu efst á blaði þorskur, ýsa og karfi. 1 Banda- ríkjunum er markaður fyrir all- an þann steinbít, er hér veið- ist. Einnig er seld þangað hrað- fryst lúða, stórlúða, humar og rækjur. Fiskpakkarnir eru í ýmsum stærðum. T.d. 15 punda pökk- um, sem ætlaðir eru fyrir mat- sölustaði, mötuneyti, sjúkra- hús o.s.frv. 1 þeim pökkum eru t.d. flök af stórum þorski. — Þá koma 5 punda pakkar, sem ætlaðir em m.á. stórum fjöl- skyldum og loks 1 punds pakk- ar, er njóta nú síaukinna vin- sælda. Fiskbitasala. Nýjasta skrefið í sölumálum S.H. í Bandaríkjunum er, að hún hefur komið sér upp að- stöðu í bænum Nanticoke í Pennsylvaniu til farmleiðslu a fish-sticks, þ.e. steiktir fisk- bitar. Framleiðslu þessari stjórnar Guðni Gunnarsson, ungur fiskiðnfræðingur, sem hlotið hefur menntun í Kanda. Þarna á að vera hægt að fram- leiða allt upp i 3000 smálestir af fish-sticks á ári. Enn er framleiðslan þó ekkí orðin svo mikil. Viðræður um loít- ferðasamning Síðdegis í gær hófust í Kaup- mannahöfn viðræður milli full- trúa Vestur-Þýzkalands og Danmerkur, Noregs og Svíþjóð- ar um loftferðasamning milli landanna. Á fundinum í gær gerði H.C. Hansen, foi'sætisráð- herra Dana, grein fyrir sjónar- miðum Norðurlanda og fulltrú- ar Noregs og Svíþjóðar fluttu. ávörp. Samgöngumálaráðherra Vestur-Þýzkalands, dr. Hans Seebohm, flutti einnig ræðu. Auglýsingar sama efnis munu birtast á næstunni i blöðum í Svíþjóð, Bandaríkjunum, Frakk landi, Noregi og fleiri löndum. 1 auglýsingu sem eygypzka sendiráðið í Lundúnum hefur birt í blaðinu New York Journ- al of Commerce segir að hafn- sögumenn muni fá í kaup allt að 500 sterlingspund í kaup á mánuði. I auglýsingum þéssum er ósk- að eftir hafnsögumönnum sem séu yngri en 40 ára, hafi 10 ára starfsreynslu sem skipstjórnar- menn og kunni ensku eða frönsku. Sendiráð Egypta í iBonn til- kynnti í gær, að meir en 300 hafnsögumenn frá ýmsum lönd- um hafi snúið sér til sendiráðs- ins og sótt um stöður við Súez- skurðinn. Menn þessir séu frá AuLsur-Þýzkalandi, Sviþjóð, Noregi, Frakklandi og Eng- landi auk Vestur-Þýzkalands. 1 tilkynningu sendiráðsins segir að margir umsækjendanna séu roiðubúnir að segja núvernadi stöðum sínum upp þegar í stað. Stjórn sambands hafnsögu- manna í V-Þýzkalandi tilkynnti í gær að tilhæfulausar væru fregnir um að hafnsögumenn sem starfa við Kielarskurðinn hafi fengið stöður við Súez- skurðinn. Egypzka sendiráðið í Moskva tilkynnti í gær að allmargir sovézkir hafnsögumenn hafi gefið sig fram og séu reiðubún- ir að taka til,-stai'fa við Súez- skurðinn. Fundur í Atlanzráði Ráð Norður-Atlanzhafs- bandalagsins kemur saman til fundar í París næstkomandi miðvikudag. UtanríkisráðheiTa Bretlands, Selwyn Lloyd, mun flytja ráðinu skýrslu um Súez- málið á fundi þessum, en að- almálið á dagskrá hans er ein- mitt það mál. Þess er vænzt að á þessum fundi muni þau ríki, er aðild eiga að Norður-Atlanz- hafsbandalaginu og ekki tóku þátt í Súezráðstefnunni í Lund- únum, láta í ljós afstöðu sína tH súezmálsins á þessum fundi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.