Þjóðviljinn - 10.10.1956, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 10.10.1956, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 10. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (7 ¥ a Strada, vegurinn: hvar byrjar hann? enginn veit ■—, hvar endar hann? hver veit hvar hann endar. Þegar ég hitti Fellini í Róm síðasta sumar spurði hann mig hvort einhver kvikmynda hans hefði verið sýnd á Íslandi. Ég blygðaðist mín fyrir, að þurfa að neita því. En nú er sú fyrsta komin hingað: La Strada á Bæjarbíó. Ég er sannfærður um að Fellini er í tölu mestu film- ara heimsins og hef sjaldan haft meiri ánægju af að mæla með kvikmynd heldur en La Strada. La Strada er kvikmynd eftir mikið skáld og þetta skáld kann svo fullkomlega á tæki sitt að hvergi riðlast heildin, rásin truflast aldrei af neinum mishljómi. Yfir myndinni er djúp og sorgleg fegurð. Stund- um er það fegurð þrekksins sem þjóðskáld eldri kynslóðar Stein- grímur Thorsteinsson orti um £ sinni lýrisku og smásmugu- legu kattþrifni. Hann var að átelja þá sem gengu framhjá einhverju og einhverju blómi til að dásama þrekkínn. En hamn óraði ekki fyrir því að jafnvel fyndist fegurð í þrekknum. Það vissi Stephan G. betur, hann þekkti „gimstein þann sem gló- ir í mannsorpinu“. Enda lifir Stephan G. Fellini er bæði skáld og mik- íll kvikmyndasnillingur. En hann er líka mikil manneskja. Mannúð hans er djúp og sárs- aukafull og skyggn. Fellini fellur ekki í freistni þá sem felst í einstökum list- brögðum, þau leiðá hann aldrei af veginum. Hann beitir tækni sinni í þjónustu listheildarinn- ar og skáldsýnarinnar af svo miklu öryggi að hvergi hrökkva einstakar mjmdir (shot) í for- kláraðri og einangraðri fegurð út úr myndrásinni. Allt þjónar heildinni. Vald Fellini yfir leikurunum er með fádæmum. Enda virð- ist mér maðurinn sjálfur vera gæddur afar miklum persónu- töfrum. (kannski mætti ég nefna í leiðinni að viðtal við Fellini kemur í næsta hefti Birtings sem er verið að prenta. Þar er kvikmyndafer- ill Fellini rakinn ofurlítið). Giulietta Masina sem leikur Gelsominu er eiginkona Fell- ini. Aður hafði hún aðeins far- íð með smáhlutverk svo sem í Róm ’51 eftir Rossellini (Bæj- arbíó). En í La Strada kemur hún öllum heiminum á óvart. Hin umkomulausa manneskja hefur eignast nýjan sendifull- trúa og túlkara, enginn gleymir Gelsominu. Kannski er aðeins hægt að leika svona einu sinni á ævi sinni, kannski er þetta lífsrullan líkt og fyrir Falc- onetti í mynd Dreyers um Jó- hönnu af Örk? Ekki þori ég að gizka á slíkt. En þvílíkur leikur sést ekki oft, næstum aldrei. Zampano kraftasýningarmað- ur á torgum, manndýrið er leikinn af amerískum kvik- myndaleikara Antony Quinn, fæsta hefði grunað hann ætti það til sem hann sýnir þarna, líklega hefur hann aldrei fyrr ið sérstaklega fyrir hann. Svo er þó ekki. Og hinn þriðji að- alleikarinn er Richard Basehart, amerískur líka, sem rífur sig upp úr flatneskjulegri rútínu í hlutverki II Matto loftfim- leikatrúðsins. Þetta fólk orkar svo sterkt á okkur, það geng- ur inn í okkur og lifir þar. Sjálfur Chaplin kemur í hug- ann. Samanburður við hann myndi drepa flesta, — sjaldn- ast kæmi hann til greina. En Gelsomina þolir hann, saman- burð við þennan yfirskalasnill- ing filmunnar. Svo mikil er Masina í leik sínum, svo full- komin, hún kiknar ekki undir samanburðinum þótt manni detti Chaplin í hug. Hver og einn má skilja La THOR VILHJÁLMSSON: fengið tækifæri að sýna leik- gáfu sína, löngum hefur hann verið í lítilfjörlegum smáhlut- verkum. En Fellini er kjamsæ- ismaður, hann er líka töfrari: undir stjórn hans leikur Antony Quinn aflraunatrúðinn Zampano þannig að manni dett- ur í hug að hlutverkið sé sam- II Matto (Ricliard Basehart) leikur á dvergfiðlu sína. Strada með sínum hætti, ótal merkingar geta menn dundað við að lesa úr ýmsum þáttum myndarinnar, líkingar og ann- að. En list Fellini er innar, dýpri öllum einföldum skýr- ingatilraunum: það er svo mik- ið af lífinu sjálfu, hvað þýðir þetta hjá mönnum þegar þeir eru að tala um lífið sjálft? List Fellini er margslungin. Munið þið eftir brúðkaupsþætt-^ inum: variasjónir við sama tema: Brúðkaup. Zampano með hrottaskap sinn og kvenskass- ið seiga og grófa sem étur eins og hross svo það er sem mað- ur finni hvernig tennurnar merja fæðuna líkt og stálhvoft- ar. Og svo Gelsomina og fávit- inn einangraði hvernig þau mætast á einu eterísku augna- bliki: þar er sálin, hjá þessum tveimur vanvitugu verum. En hitt fólkið eins og skepnur allt í kring. Veltist eins og dýr um vellina. Önnur variasjón við tema: trúðleikararnir og áhrif þeirra á Gelsominu. Fyrsta (Vivace): þegar hljóðfæraleikararnir þrír koma gangandi í röð og blésu fáránlegar trillur og hrifu Gelsominu með sér, hún skokk- ar valsandi á eftir þeim, hug- fangin. Annað (Largo): kirkju- Giulietta Masina sem Gelsomina ög Anthony Quinn í hlutverld Zampano. irnár sem líða hægt og þung- lámalega fyrir hin kyrru heill- uðu; andlit manngrúans og í baksýn hjólhestaauglýsingar á húsveggjum og viva il papa. Og trm hrifst Gelsomina. Þriðja: línudansarinn yfir höfði borg- arniúgans að kvöldi, hann sit- ur við borð sitt og étur spag- etti meðan fingurgómar ljós- kastaranna þreifa á honum — Zampano sýnir lýðmn afl sitt. og enn heillast Gelsomina. Eru þetta hugleiðingar um hina auðteknu bráð? og er það bara Gelsomina? eða við öll? mann- ! eskjan í umkomuleysi sínu. Stundum er myndin svo hríf- andi að það er eins og hlusta á músik eftir Corelli, maður óskar því linni ekki. Myndatak- an hefur aldrei neinn sýndar- mennskublæ en býr yfir varan- legri fegurð, samofin efninu og verður ekki frá því greind. Svo sem þegar Gelsomina sit- ur í hvítri birtu vetrarins und- ir vegg, skaflar í baksýn, hún situr í skugganum og yljar sér við þá fölu geisla sólar sem falla alls ekki á hana. Þetta er saga Gelsominu. Og þetta er tækni Fellini fínleg og við- kvæm, höfðar - til næmustu tauga. Þessi kvikmynd hvarflar milli misturveraldar draumsins og naktasta og hlífðarlausasta veruleika. í hrottaskap dýrsins leynist hinn veiki púlssláttur manneskjunnar sem er svo brothætt, sem er svo stérk og er svo veik, svo veik. Fellini samdi lengi kvik- myndahandrit fyrir ýmsa höf- unda og mest fyrir Rossellini. Það má líka lesa handrit það sem hann skrifaði sjálfur að La Strada sem bókmenntir. En hvergi verður kvikmynd hans þó of bókmenntaleg, hún er fyrst og fremst kvikmynd. Hann hikar heldur ekki við að breyta frá handritinu að hætti neorealista. Þessari kvikmynd lýkur á því að við sjáum Zampano í sandinum á strönd hins svarta sjávar þegar hann verður manneskja: öskrandi í sandin- um eins og sært dýr í gildru, kjökrandi í sandinum: aleihn maður um nótt. Aleinn. Saga Álfs Utangarðs, Gróða- vegurinn, er nýkomin át í fyrravetur birtist hér í blaðinu framhaldssagan Gróðaveg- urinn, eftir höfund er dulnefndi sig Á'f Utangarðs. Sagan er nú nýkomin út lijá Bókaútgáfunni Kiii, og er hún 194 blaðsíður í allstóru broti. Fyrir nokkrum árum birti Þjóðviljinn framhaldssöguna Bóridann í Bráðagerði; og er ó- hætt að 'segja að það sé einhver vinsælasta framhaldssaga sem blaðið hefur birt. Höfundur nefndi sig Álf Utangarðs, og er Gróðavegurinn beint framhald Bóndans. Margar getgátur voru þá uppi um það hver höfundur- inn væri; en hann hefur ekki enh " gért hið rétta nafn sitt skrúðgangan með helgimynd- heyfinkuhhúgt, og munu fáir vita hver hann er. Aðalpersónurnar í Gróðavegin- um eru Jón bóndi í Bráðagerði, Jónsi sonur hans og stúlkan Úr- súla, sem kom við sögu í síðasta kafla Bóndans. Fer hún með Jóni bónda heim í Bráðagerði, trú- lofast Jónsa syni hans og rýfur heitin aftur. Þá koma verndarar vorir mjög við sögu, en þeir hafa sezt að í Vegleysusveit og gert sig heimakomna í túninu á Framhald á 10. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.