Þjóðviljinn - 20.10.1956, Síða 7

Þjóðviljinn - 20.10.1956, Síða 7
Laugardagur 20. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN (7 Þá má að visu benda á, að Alþingi ber nú að kjósa nýja landskjörstjóm. Það ber að gera þegar eftir hverjar al- mennar alþingiskosningar og það mun vera eitt fyrsta verk, sem liggur fyrir þessu þingi, þegar það tekur nú loks tíl starfa. En ný lands- kjörstjóm er ekki kosin til þess að fjalla um kosningar, sem þegar hafa farið fram. Hún er kosin til þess að fjalla um þær kosningar, sem fara fram hér á eftir. Og ég get ekki með neinu móti séð, að nýkosin landskjörstjórn gæti fjallað um úthlutun uppbót- arþingsæta í síðustu kosning- bréfa eigi að hafa að lög- um, en ekki getur vérið vafi á því, að þar beri að fara að núgildandi kosningalögum, enda í þeim ákvæði um það, hvað gera skuli, ef kosning þingmanns er ógilt af ein- hverjum ástæðum. En það er mín skoðun, að það sé ekki úthlutun uppbótarsætanna í sjálfu sér, sem sé varhuga- verð, eða misfellur í því sam- bandi, heldur séu það fram- boðslistar flokkanna, sem mis- fellur voru á, en þeir voru grundvöllur, sem lagður var fyrir kjósendur í kosningun- um. M. a. fjallaði landskjör- stjórn um meinta galla á það, ef það væri niðurstaðan, að nýjar almennar kosningar ættu að fara fram innan mán- aðar? Eg veit, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem bera skyn á þetta mál, vita vel, að það er ekkert áhlaupaverk að setja ákvæði í kosninga- lög, sem komi með öllu í veg fyrir alla misnotkun með kosningabandalögum, einkum meðan núverandi ákvæði stjórnarskrárinnar eru í gildi. Það má minna á, að þing- menn Sjálfstæðisflokksins voru að því er virtist alveg á móti því fyrir tveimur ár- um rúmlega, að löggjöf yrði sett um kosningabandalög. FINNBOGI RÚTUR VALDIMARSSON: KTORBRÉFAMÁL1Ð um, sem hún var alls ekki kosin til þess að stjórna eða hafa eftirlit með. Eg hlýt því að komast að þeirri niður- stöðu, að ef hin umdeildu fjögur kjörbréf væru ógilt, þá væri það líklegast, ef ekki alveg víst, að Mn fjögur upp- foótarþingsæti yrðu að standa auð og óskipuð út þetta kjör- tímabil. Sjálfstæðismenn geta sagt sína skoðun á því, hvort þeim þyki líklegt, að hæsta- réttardómari Jón Ásbjörns- son og lögfræðingar Fram- sóknarflokksins skipti nú um skoðun og. úthluti þessum fjórum þingsætum eftir öðr- um reglum heldur en þeir telja réttar. Að vísu má benda á það, að Alþingi getur breytt kosn- ingalögunum, sett inn í þau ákvæði um kosningabandalög, t. d. bannað það, að einn eða fleirí flokkar geri með sér alger kosningabandalög eins og Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn gerðu fyrir síðustu kosningar, eða að þegar flokkar gera með sér slík alger kosningabanda- lög, þá beri að viðhafa þá reglu við úthlutun uppbótar- þingsæta að leggja saman at- kvæðatölur flokkanna og út- hluta síðan uppbótarþingsæt- um samkvæmt því, eða jafn- vel að í slíku tilfelli væri þeim skylt að hafa aðeins einn landslista í kjöri. Allt þetta er hugsanlegt. En það hygg ég að allir viðurkenni, að slíkar breytingar á kosn- ingaiögum eða ný kosninga- lög, sem sett yrðu nú, gætu ekki verkað aftur fyrir sig og haft áhrif til ógildingar á úrskurði landskjörstjórnar frá 28. maí 1956. Það er því mín niðurstaða, að með ógild- ingu kjörbréfanna einni sam- an geti Alþingi ekkert áunn- ið. Með því ráði, að Alþingi aðeins ógilti kjörbréfin, gæti það komið í ljós, að það hefði ekki fullt og óskorað vald í þessu máli og Alþingi sýndi þá vanmátt sinn og jafnvel gerði sig hlægilegt. f Eg veit nú ekki að hvaða r niðurstöðu lögfræðingar Sjálf- 1 stæðisflokksins komast um þ"ð ?fni. hvr>ða pf'^’ðmgar ó- giidlng hinna umdeildu kjör- framboðslista í tveimur kjör- dæmum, lista Alþýðuflokks- ins í Reykjavík og á lista Framsóknarflokksins í Árnes- sýslu. Formaður landskjör- stjórnar, Jón Ásbjörnsson, gerði tillögu um það, að þess- ir framboðslistar væru ekki teknir til greina óbreyttir, en sú tillaga var felld, og réði þar úrslitum atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, hæsta- réttarlögmannsins Einars Baldvins Guðmundssonar. Varð því skoðun hæstaréttar- dómarans undir í því máli, og framboðslistarnir í þessum kjördæmum, þar sem kosið er hlutfallskosningu, teknir til greina óbreyttir. Eg hefði talið, að ef kæra lægi fyrir um þetta atriði, þá væri ekki vafi á hvernig með skyldi fara. Það yrði að kjósa upp í þessum kjördæmum. >En það er mjög nærri mér að hall- ast að því að ef ógilda heri kjörbréf hinna landskjörnu þingmanna sé það vegna mis- fellna, sem voru á landslist- um Alþýðuflokksins og Fram- sóknarflokksins, og þykir mér líklegast, að ef fallizt yrði á þá skoðun, væri ekki nema ein lausn til, samkvæmt ákvæðum gildandi kosninga- laga, en það væri að láta nýj- ar kosningar fara fram. Sýn- ist mér þá að líklegt væri að þær ættu að fara fram eftir ákvæðum, að mig minnir, 135. greinar kosningalaganna, innan mánaðar frá því að ó- gilding kjörbréfanna ætti sér stað. En þá kemur spurning, sem að mínu viti heggur nokkuð nærri kjarna málsins: Hvernig ætti þá að tryggja það, að sömu misfellur gætu ekki átt sér stað aftur í þeim kosningum, sem færu fram eftir svo skamman tíma samkvæmt ákvæðum kosningalaga? Eg get ekki betur séð en að það hljóti að vera aðalatriði þessa máls af hálfu þeirra, sem telja að misfellur hafi verið á síðustu kosningum vegna kosninga- bandalags Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins og úr- skurðar landskjörstjórnar um það, að slíkar misfellur geti ekUt endttHelíið sig. En livernig ætti. að tyrirbyggja A. m. k. man ég það, að þeir réðust af miklu offorsi á móti frumvarpi, sem kom fram hér á Alþingi um kosningabanda- lög. En þó að Sjálfstæðis- flokkurinn leggi nú mikla á- herzlu á þær misfellur, sem voru í síðustu kosningum, þá er ég ekki alveg viss um að hann sé reiðubúinn til þess að setja breytingar á kosn- því er snertir úthlutun upp- bótarsæta, án þess að hafa slík kosningabandalög alger, meira að segja án þess að láta nokkuð yfir því, að um nokkurt kosningabandalag sé að ræða. Þetta er staðreynd og verður staðreynd meðan núgildandi stjórnarskrá er í gildi eg ákvæði hennar og kosningalaga um uppbótar- sætin óbreytt. Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa ekki enn séð neitt athugavert við kosn- ingabandalag Sjálfstæðis- flokksins og Bændaflokksins og ég vil nú bæta við Naz- ista 1937. Þeir sjá þess vegna væntaniega ekkert athugavert við nein kosningabandalög, sem eru gerð í þeim tilgangi að ná meiri hluta hér á AI- þingi, þó að ekki standi meiri hluti kjósenda á bak við. En það er í mínum augum höf- uðatriði þessa máls, og skipu- lag þessara mála. Eða hef ég ef til vill Sjálfstæðisflokkinn fyrir rangri sök í þessu efni? Viðurkennir Sjálfstæðisflokk- urinn nú, að það eigi að ganga svo frá kosningalögum, að útilokað sé að flokkur eða flokkar, sem ekki hafa meiri hluta kjósenda á bak við sig, geti fengið meiri liluta á Al- þingi og þar með óskoraðan rétt til þess að stjórna land- inu? Eg spyr þingmenn Sjálf- stæðisflokksins: Er Sjálfstæð- isflokkurinn reiðubúinn til þess að setja nú í dag kosn- r Síðari hluti af ræðu Finnboga Rúts Valdimarssonar á Alþingi V. ingalögum, setja ný kosn- ingalög, sem fyrirbyggi með öllu, að hægt sé að koma við nokkurri misnotkun í kosn- ingum með kosningabandalög- um. 1 öllum málflutningi sínum um þetta mál hefur hann lagt höfuðáherzlu á það at- riði, að kosningabandalag Al- þýðuflokksins og Framsókn- arflokksins í vor hafi verið algert. Því til samanburðar tekur hann svo kosninga- bandalag Sjálfstæðisflokksins og Bændaflokksins 1937, sem bent hefur verið á, og telur að það hafi verið fullkom- lega löglegt af þeirri einni ástæðu, að það var ekki al- gert í öllum kjördæmum landsins. M. ö. o. mér virðist að Sjálfstæðisflokkurinn sé aðeins á móti því að flokkar geti gert með sér alger kosn- ingabandalög. Nú held ég að öllum sé það alveg ljóst, að það var engin nauðsyn fyrir Alþýðuflokkinn og Fram- sóknarflokkinn í síðustu kosningum að hafa kosninga- bandalag sitt algert, meira að segja mætti fremur segja, að það hafi verið alveg ó- þarfi, og ég hygg að for- ustumenn þessara flokka sjái það nú. Þeir hefðu getað náð sama árangri, sömu misnotk- un á kosningalögunum, þó að þeir hefðu alls ekki haft kosningabandalag sitt algert, og jafnvel meiri árangri. Eg veit að nú sjá allir að það er hægt að gera kösn- ingabandalög í þeim tilganui að hafa ranglega liag af, að ingalög og gera þær breyt- ingar um leið á stjórnarskrá, sem vitanlega gætu ekki gengið í gildi jafn snemma og kosningalög, að útilokað sé að einn flokkur eða flokkar geti fengið óskoraðan meiri hluta á Alþingi, ef þeir hafa ekki á bak við sig meiri hluta kjósenda ? Þetta er spurningin. Þetta er aðalatriði máisins. Og ég býð eftir svari þingmanna Sjálfstæðisflokksins um þetta atriði. Það hefur verið rætt mikið, með og móti, um úrskurð landskjörstjórnar. Eg get nú ekki séð að þingmenn Sjálf- stæðisflokksins hafi í raun og veru lagt neina höfuðáherzlu á það að færa óyggjandi rök fyrir því að úrskurðurinn sé rangur, en ég vil segja í stuttu máli mína skoðun á því, hvers vegna hann er rangur. Eg vil játa það, að frá hreinu þröngu lögfræðilegu sjónarmiði, er úrskurðurinn studdur mjög sterkum rökum af hæstaréttardómara Jóni Ásbjörnssyni, í greinargerð hans, en það er mín skoðun að það megi ekki beita þrengsta lögfræðilegum skiln- ingi, þegar um er að ræða þýðingarmestu stjórnskipun- armál, eins og þetta. Eg vil benda á, að í Banda- ríkjunum, því landi, sem talið er mikið lýðræðisland, í því landi í heiminum, þar sem skrífuð stjórnarskrá er mest í he’ðri höfð og álitinn he'g- ur dómur, syo mjög að sum- um þykir það liggja nærri nokkurs konar afguðadýrkun, þar er dómstóll til þess að skera úr um hvað sé stjórn- skipunarlög og hvað ekki. Sá dómstóll hefur haft géysi- mikla þýðingu í pólitísku lífi Bandaríkjanna, en því hefur verið lýst yfir margsinnis af mjcg virtum og viðurkennd- um dómendum í þessum æðstarétti Bandaríkjanna, að þegar þeir kveði upp úrskurði sína um stjórnskipunaratriði þar, þá hafi þeir það sér í húga sem meginreglu, hvað stjórnarskrárgjafinn, jafnvel menn, sem lifðu fyrir alit að 200 árum, hefðu hugsáð um það tilfelli, sem dómstóllinn er spurður um. Það er auð- vitað regla um alla lögskýr- ingu að leita að því, hvað' fyrir löggjafanum vakti. Það væri hægt að fjalla eins um stjórnarskrá okkar að þessu leyti og ákvæðin í henni um uppbótarsætin, sem voru stofnuð með stjórnar- skrárbreytingum og kosninga- lögum, sem gengið var frá á Alþingi 1933. Það er hægt að grennslast eftir um það, hvað fyrir löggjafanum vakti. >Eg tel, að í umræðu hér á Al- þingi um þessi atriði megi finna ummæli, er sýni, að lög- gjafinn hafi með sto'nun upp- bótarsætanna ekki aðeins haft í huga jöfnun milli þ:ng- flokka, heldur það höfuðat- riði að tryggja að meiri hluti á Alþingi væri jafnan í sem fyllstu samræmi við meiri hluta þjóðarinnar, ekki aðeins að þingmannatala flokka hér á Alþingi væri, eins og segir í stjórnarskránni, í sem fyllstu samræmi við atkvEeða- tölu þeirra, heldur miklu fremur hitt að meiri hlutinn hér á Alþingi væri ekki í ó- samræmi við meiri hluta kjós- enda. Eg vil benda á, að það má finna ummæli eftir tvo menn, sem áttu sæti í þeim nefnd- um sem undirbjuggu stjórn- arskrá og kosningalög 1933, sam sýna þetta. Eg vil þar til nefna fjármálaráðherra, Eystein Jónsson og VOraund Jónsson, sem átti sæti í landskjörstjórn, og hefur átt það held ég alla tíð ’ síðan núverandi skipun uppbótar- sæta var tekin upp Báðir þessir menn létu orð fr"a á þá leið í umræðum um stjórn- arskrá og kosningalög, sér- staklega uppbótarsætin, að þau væru til þess sett að tryggja, að meiri hluti á Al- þingi væri jafnan í sem fyllstu samræmi við meiri hluta þjóðarinnar. tírskurðuT meiri liluta landskjörstjórnar er að mínu áliti rangur, vegna þess eins að hann gat ieitt til þess að Alþingi íslendinga yrði svo skipað vegna úthlut- unar uppbótarþingsætanna, að meiri hluti á Alþingi væri í engu samræmi við meiri hiuta þjóðarinnar, að meiri hlnta á Alþingi hefðu tveir flokkar, þeir flokkar sem kosn’nga- bandalagið gerðu, sem ekki liefðu ef til vill nema þriðjung kjósenda að baki sér. Það er frá þessu sjónarmiði, sem ég tel úrskurðinn rangan. Þessi árangur í kosningun- um hefði verið í fullri and- stæðu við yfirlýstan tilgang stjórnarskrárgjafans, og tii- Framhald á. §. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.