Þjóðviljinn - 20.10.1956, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.10.1956, Blaðsíða 12
Krústjoff og aðrir sovézkir ;ar óvænt til Varsjár HióÐViymM Laugardagur 20. október 1956 — 21. árgangur — 240. tölublað Gomulka var i gœr aftur tekinn i miS- jórn Sameiningarflokks verkamanna í>að hefur vakiö mikla athygli, að nokkrir helztu ráðamenn Sovétríkjanna komu 1 gær í óvænta heimsókn til Varsjár, þar sem fundur miðstjórnar Sameiningar- fíokks verkamanna stendur nú yfir. Það varð fyrst kunnugt um fjarveru Krústjoífs frá Moskva, þeg.vr menn veittu því athygli, að hann var ekki viðstaddur unc'.irr’tun hins nýja samnings xrjtil ' Sovétríkjanna og Japans í Kroml í gær. Sk'mmu síðar skýrði franska fréttastofan AF'P frá því, að hann væri kominn til Varsjár, og enn síð- ar barst sú fregn frá fréttarit- ara Reuters í Varsjá, að ýmsir he'zfu ráðamenn Sovétríkj- anna liefðu .verið í för með honum. Voru nefndir aðstoðar- forsætisráðherrarnir þrír Molo- tofMikojan og Kaganovitsj og ■■f rhersliöfðingi Sovétríkj- ama, Konéf ' marskálkur, sem einnig er yfirhershöfðingi Var- sj'.rbandalagsins. m framkvæmdastjóri miðstjórnar- innar og aðstoðarforsætisráð- herra fyrst eftir stríð, en var Framhald á 5. síðu Engin opinber tilkynning var gefin út um þessa ferð þeirra í gær og ekkert vitað um erindi þeirra annað en það, að þeir fóru strax frá flugvellinum til aðalstöðva Sameiningarflokks verkamanna í Varsjá, en mið- stjórn flokksins kom þar sam- an á fund í gærmorgun. Gomulka aftur tekinn í miðstjórnina Fyrsta verk miðstjórnarinn- ar í gær var að samþykkja að veita fjórum fyrrverandi full- trúum aftur sæti í henni. Þeim var á sínum tíma öllum vikið úr flokknum fyrir svik við stefnu hans. Helztur þessara manna er Wladyslaw Gomulka, sem var 60. og 61. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Kjarnorku og kvenhylli annað kvöld, og er það 60. sýning leiksins. Á miðvikudaginn í næstu viku er liðið rétt ár frá frumsýningu hins vinsæla gam- anleiks, og verður þá 61. sýn- ing hans í Iðnó. En svo fer sýningum að fækka. SEskulýðssendinefndin frá Sovétríkjunum; myndin var tekin í gær. Frá vinstri: Boris Ponomaréff, Valentina Javkina, Igor Konstantinoff, Antonína Ratsjkova, Jurij Kotkoff og Boris Netsjaéff. (Ljósm. Sig. Guð'm). maima æskulýílssenWnd frá íjisnmn bni feipl í fyrrad. licmur í boði Alþjóðasamvirniuitefndar íslenzkrar æsku Æskulýössendinefnd frá Sovétríkjanna kom hingað til Reykjavíkur í fyrradag í boði Alþjóöasamvinnunefndar íslenzkrar æsku. í nefndiiini eru tvær stúlkur og fjórir piltar; munu þau dveljast hér á landi um hálfsmánaðar- skeið. Sýningu Nínu að Ijúka Sýningu Nínu Tryggvadóttur á glermósaík í sal á 3. hæð Landsbókasafnsins lýkur kl. 10 annaðkvöld. Sýningin hefur verið vel sótt, og hafa sýning- argestir sýnt mikinn áhuga á þessari listnýung. En nú eru sem sagt að verða síðustu for- vöð að sjá sýninguna. Hún er opin í dag og á morgun kl. 1—10 síðdegis (og hún er í Safnhúsinu við Hverfisgötu, en ekki í Listasafninu við Hring- braut). Formaðdr sendinefndarinnar er Borís Netsjaéff, einn af forustu- mönnum æskulýðssamtaka í Arkangelsk-héraði. Stúlkurnar heita Antonina Ratsjkova, kenn- ari frá Moskva, og Valentina Javkina, fiskiðnfræðingur frá Murmansk. Aðrir nefndar- menn eru Jurij Kotkoff, stærð- fræðingur við miðskóla í borg- inni Molotoff í Úral-héraði, Igor Konstantinoff frá Staiingrad og Boris Ponomaréff frá Moskva. Endurgjald Rússlandsferðar Rússarnir koma hingað á veg- um Alþjóðasamvinnunefndar ís- lenzkrar æsku eins og fyrr seg- ir, en að henni standa 4 félaga- samtök: Æskulýðsfylkingin, — samband ungra sósíalista, Iðn- nemasamband íslands, Félag rót- tækra stúdenta og Málfundafé- lag ungra Dagsbrúnarmanma. Formaður Alþjóðasamvinnu- nefndarinnar er Guðmundur Magnússon verkfræðingur og kynnti hann hina erlendu gesti fyrir blaðamönnum í gær. Guð- mundur sagði að á V. heimsrrtóti æskunnar í Varsjá í fyrrasum- ar hefðu farið fram viðræður milli fulltrúa Alþjóðasamvinnu nefndarinnar og heildarsamtaka Framhald á 3. siðu Hundrað ár í Vesturheimi Kvikmyndin sýnd í Reykjavík Litkvikmyndin Hundrað ár í Vesturheimi, er Finnbogi Guð- mundsson hefur sýnt víða um land að undanförnu, verður sýnd í Gamlabiói í Reykjavík í kvöld og annaðkvöld, kl. 7 bæði kvöldin. Kvikmyndin f jallar svo sem kunnugt er um byggðir íslendinga vestan hafs og var tekin í tilefni af því að í fyrra voru liðin hundrað ár frá upp- hafi vesturferða Islendinga á 19. öld. Úr vinnustofu Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Fjörutíu ár á listamannsbraut Guðmundur Einarsson opnar í dag sýn- ingu á málverkum og höggmyndum sínum í dag kl. 2 e.h. opnar Guðmundur Einarsson frá Miðdal sýningu í vinnustofu sinni á Skólavörðustíg 43. Sýning þessi er í tilefni þess að í dag fyrir 40 árum hóf Guð- mundur listamannsferil sinn. Á sýningu Guðmundar eru samtals 37 vatnslitamyndir, nýj- ar, er ekki hafa verið sýndar áður, og nokkur ný málverk og auk eldri mynda eru 5 ný mynd- höggvaraverk. Eru það högg- myndin Hafmey, mynd af Páli Einarssyni, Kristjáni Skagfjörð og Bjarna Brekkmann, og hin fimmta er mynd af ísl. haferni, gerð fyrir Þingeyingafélagið. Hæsti bátariitn með 300 tnnnur Sandgerði. Frá frétta- ritara Þjóðviljans. Hingað komu í dag 11 bátar með samtals um 960 tunnur. Hæsti báturinn, Hrönn, fékk 280—300 tunnur, næsthæsti báturinn '142 tunnur. Afli bát- anna var þó mjög misjafn, því einn bátanna fékk aðeins 6 tunnur. Samningar Sovétríkjanna og Japans undirritaðir Samið um stjórnmálasamband, upptöku Japans í SÞ, heimsendingu stríðsíanga í gær voru undirritaöir í Moskva samningar sem binda endi á hiö formlega stríðsástand milli Sovétríkjanna og Japans, sem ríkt hefur frá lokum síðari heimsstyrjaldar- innar. Forsætisráðherrarnir Búlgan- in og Hatojama undirrit- uðu sameiginlega tilkynningu stjórna sinna í Kreml í gær og er þar lýst yfir, að Sovétríkin hafi fallizt á að skila Japan aft- ur tveim Kúrileyja, sem þau haft á valdi sínu síðan stríði lauk, þegar formlegur friðar- samningur milli ríkjanna hafi verið undirritaður. Þá hafa Sovétríkin lofað að senda heim alla þá japanska hermenn, sem enn afplána refs- ingar fyrir stríðsglæpi í Sovét- ríkjunum. Sovétstjórnin heitir því að styðja aðild Japans að SÞ og bæði ríkin hafa skuld- bundið sig til að hlutast á eng- an hátt til um innanlandsmál hvors annars. Þá er skýrt frá Framhald á 5. siðu Hefur þú útvegað Þjóðviljanum nýja áskrifendur? Sýning þessi er sem fyrr seg- ir opnuð í tilefni af 40 ára af- mæli Guðmundar frá Miðdal á listamannabrautinni. 19. okt fyr- ir 40 árum kom hann tiL Reykja- víkur og kveðst þá hafa verið með 45 kr. í vasanum og hóf listnám. Peninganesti þetta fékk hann, segir hann fyrir teikningu af togara og út á það hóf hann teikninám hjá Stefáni Einarssyni og meðferð lita hjá Þórarni B. Þorlákssyni, — en þá var eng- inn myndlistarskóli starfandi í Reykjavík til þess að taka við unglingum sem haldnir voru löngun til þess að tjá sig í lin- um og litum. í tilefni af 40 ára afmælinu hefur Guðmundur látið ljós- prenta í Lithoprenti 9 radering- ar er hann gerði á yngri árum af gömlum bæjum, og uppsátr- um — að ógleymdri myndinni af hinum aldna fræðaþul, en eft- irspurn eftir þessum radering- um hans hefur yerið mjög mikil. Sýning Guðmundar er opnuð sem fyrr segir kl. 2 e.h. í dag í vinnustofu hans á Skólavörðu- stíg 43 (inni á lóðinni), hún verður opnuð án allra hátiðleg- heita, engir boðsgestir og getur hver sém vill farið þangað strax kl. 2 í dag. Kirkj ufuitdur liefst í dag Hinn almenni kirkjufundur verður settur kl. 2 síðdegis í dag í húsi KFUM. Að setningar- athöfninni lokinni flytur Gisli Sveinsson framsöguerindi sem hann nefnir: Hver á að kosta kirkjubyggingar ísl. þjóðkirkj- unnar? Síðar um daginn flytja þeir séra Lárus Halldórsson og dr. med. Árni Árnason fram- söguerindi um safnaðarstarfsemi og sálgæzlu. Umræður verða um bæði þessi mál og þeim vísað til nefnda. Kl. 9 í kvöld verða ýms mál rædd.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.