Þjóðviljinn - 26.10.1956, Page 1

Þjóðviljinn - 26.10.1956, Page 1
 Föstudagar 26. október 1956 — 21. árgangur — 245. töíublað Lé!eg sífdveiðs Til Sandgerðis komu D bát*< ar í gær með 213 tunnur sam« tals, og voru tveir bátanna með meir en helming þess afla. Afli Grindavíkurbáta var sáralitill. Bátarnir munu ekkí hafa farið á veiðar i gærkvöldi. Samningar nm brottf lntning sovézka hersi ns frá Ungverjalandi hefjast innan skamms iV/if/i/ forsætisráðherra og Katlar. hinn ni)i framkeœmdastjóri Yerkamannaflokk sins. skígrðu frá þessu í ávörpum í ga*r intt flllir nrmrpisnflrmprm í ITnrfvnrifllflnHi TmfSn pnn plrlí-i Iprrt nirS- Enda þótt allir uppreisnarmenn í Ungverjalandi hefðu enn ekki lagt nið- ur vopn þegar síðast fréttist í gærkvöld, var ekki lengur talinn neinn vafi á því, að uppreisnin yrði bæld niður. Tvennt gerðist í Ungverjalandi í gær, sem vakti mikla athygli: Imre Nagy, hinn nýi forsætisráðherra landsins, tilkynnti, að stjórn hans myndi hefja samninga um brottflutning alls sovézka hersins úr landinu, um leið og frið- ur væri kominn á, og framkvæmdanefnd Verkamannaflokksins vék Ernö Gerö úr starfi framkvæmdastióra og fól það í staðinn Janos Kadar, er dæmdur var í fangelsi árið 1951, en veitt uppreisn æru fyrir skömmu. Um hádegið í gær var lesin í Búdapestútvarpið tilkynning frá framkvæmdanefnd Verka- mannaflokksins um að Gerö hefði verið leystur frá starfi " framkvæmdastjóra flokksins, en Kadar skipaður i það i staðinn. Samherji Rakosis. Gerö, sem hefur verið einn af helztu leiðtogum flokksins um langt árabil, tók við fram- kvæmdastjórastarfinu í júlí í sumar, þegar Matyas Rakosi var neyddur til að láta af því. Gerö hefur jafnan verið talinn náinn samstarfsmaður Rakosis, og þeir sem vildu að algerlega væri skipt um stjórn og stefnu flokksins voru óánægðir með að hann skyldi gerður eftirmaður hans. Janos Kadar var innanríkis- ráðherra um tíma eftir styrjöld- iná, en lét af því embætti árið 1951 og var sama ár handtekinn og dæmdur fyrir svik við stefnu flokksins. Honum var nýlega veitt uppreisn æru og hann tek- inn í flokkinn aftur. Hann var skipaður einn af riturum flokks- ins í sumar, þegar Gerö tók við framkvæmdastjórastarfinu. Samningar um brott- flutning hersins. U. þ. b. þrem tímum eftir að þessi tilkynning hefði verið les- in í útvarpið, flutti Nagy forsæt- isráðherra ávarp til þjóðarinnar. Hann skýrði frá því, að liann hefði farið fram á það við sovét- stjórnina að allur sovézki her- inn í Ungverjalandi yrði flutt- ur á brott úr landinu. Hann sagði að sainskipti rík.janna væru nú á grundvelli algerðs jafnréttis og fullveldis og samn- ingarnir um brottflutning hers- ins, þegar friður væri kominn á, myndu einnig verða á þeim grundvelli. Nagy skoraði á uppreisnar- menn að leggja niður vopn. Bar- átta þeirra væri vonlaus og myndi aðeins hafa í för með sér blóðsúthellingar. Ilann hét þeim, að enginn yrði dæmdur í þunga refsingu fyrir þátttöku í upp- reisninni, enda þótt uppgjafar- fresturinn væri löngu liðinn. Stjórnin myndi um leið og friður væri kominn á í landinu leggja fyrir þing og þjóð áætlun um umbætur á öllum sviðum þjóð- lífsins. Hinn nýi framkvæmdastjóri Verkamannaflokksins, Janos Kadar, flutti ávarp í útvarpið skömrnu eftir að Nagy lauk máli sínu. Hann sagði einnig, að samningar um brottflutning sov- ézka liersins yrðu hafnir um leið og friður væri kominn á, og sagði að hin nýja forysta flokks og stjórnar myndi telja það höf- uðverkefni sitt að auka lýðræði á öllum sviðum. Um sjöleytið í gærkvöld mátti ráða það af tilkynningum Búda- pestútvarpsins að enn væri bar- izt á stöku stað í höfuðborginni. Þó má telja víst, að uppreisnin hafi þrátt fyrir það verið bæld niður. Engar fréttir bárust í gær af Framhald á 5. síðu. Allt nú með kyrrnm kjörum í Póllcmdi Þingkosningum verður írestað um einn mánuð, fara fram í miðjum janúar Allt er nú aftur meö kyrrum kjörum í Póllandi. Ljóst er að pólska þjóöin treystir því aö hin nýja forysta Verkamannaflokksins muni standa viö gefin loforð um aö bæta fyrir mistök fortíöarinnar. Pólska fréttastofan PAP til- kynnti í gær, að allt væri nú komið aftur í eðlilegt horf í Póllandi, og ekki fréttist af neinum fundahöldum eða öðrum fréttnæmum atburðum þar í gær. Vinna er ^ftur hafin af fullum krafti í verksmiðjum og öðrum vinnustöðvum og fyrir- lestrar í háskólum, sem fallið höfðu niður síðustu daga, voru með eðlilegum hætti í gær. Sovézku hersveitirnar sem Framhald á 5. síðu. Nagy bað ekki um aðstoð sovézka hersins. Stokkhólmsútvarpið skýrði frá því í gærkvöld, að samkvæmt „opinberri tilkynningu sem bor- izt hefði til London“, hefði á- kvörðunin um að láta sovézkar hersveitir taka þátt í að bæla niður uppreisnina ekki verið tek- in af Nagy, heldur af hinum af- setta framkvæmdastjóra Verka- mannaflokksins, Gerö. Bent er á það, að sovézku hersveitirnar hafi verið lagðar af stað til höf- uðborgarinnar snemma í fyrra- morgun, litlu áður en Nagy tók við embætti forsætisráðherra. I*að þykir sennilegt að þessi ákvörðun liafi verið mjög van- liugsuð og óeirðirnar hafi magn- azt um allan helming, þegar liin- ir sovézku hermenn skárust í leikinn. Hvað sem því líður þá bendir ákvörðun hinnar nýju forystu um að krefjast brott- flutnings sovézka liersins ein- dregið til þess, að hún telji ekki, að hún þurfi á aðstoð hans að halda. Það fylgdi fréttinni, sem Stokkhólmsútvarpið hafði frá London, að þar væri talið að miklar líkur væru á, að sov- ézki herinn yrði fluttur frá Ung- verjalandi. Túnis og Marokkó að ganga í lið með Serkjum í Alsír HarSur bardagi milli herliSa Frakka og Túnisbúa á landamœrum Túnis og Alsir f allri Noröur-Afríku magnast fjandskapurinn í garö Frakka meö hverjum degi og íbúar og leiötogar Marokkó og Túnis viröast nú staöráðnir í aö veita Alsírmönnum allan hugsanlegan stuöning í baráttu þeirra gegn Frökk- um. Habib Bourguiha, forsætis- ráðherra Túnis, tilkynnti þing- inu í Túnis í gær, að bardagi geisaði á landamærum Túnis og Alsír milli sveita úr Túnis- her og franskra hersveita, sem reynt hefðu að ryðjast inn fyr- ir landamærin frá Alsír. Hefði stjórnin skipað hernum að veita viðnám. Við höfum gefið fyrirmæli um að barizt skuli til síðasta manns, sagði Bourguiba. Túnis er nú sjálfstætt ríki og við munum verja sjálfstæði okkar. Þingið samþykkti einróma á- lyktun þar sem krafizt var að franski herinn í landinu yrði þegar fluttur á brott og lýst var yfir fullri samstöðu með þjóð Alsír í baráttu hennar fyr- ir sjálfstæði sínu. Fjandskapur í garð Frakka. Fjandskapur í garð Frakka hefur magnazt mjög í Túnis og Marokkó síðan þeir handtóku á mánudaginn fimm leiðtoga frelsishreyfingar Alsírmanna, sem voru á leið frá Rabat, þar sem þeir höfðu rætt við Mar- okkósoldán, til Túnisborgar, þar sem ætlunin var að þeir ræddu við Bourguiba forsætis- ráðherra. Marokkósoldán ætl- aði einnig að taka þátt í þeim viðræðum og var ætlunin að reyna að finna leið, sem allir gætu sætt sig við, til að binda endi á stríðið í Alsír. Handtaka alsírsku leiðtoganna hefur nú bundið endi á allar vonir manna í Túnis og Marokkó um hægt sé að semja við frönr stjórnina um lausn Alsirm ins. Óeirðir í Marokkó. I Marokkó hefur fjandsl urinn í garð Frakka ors; mikil mannvíg síðustu dag fyrradag voru 32 Evrópur drepnir í landinu og í hér; umhverfis bæinn Mekn norðurhluta landsins, sk- frá alsírsku landamær leituðu franskir lögreglur. gær að 20 frönskum fjöb um, sem óttazt er að hafi dfepnar. Kveikt var í bi' um þeirra í fyrradag og b) þeir til kaldra kola. -ð i .s- r 7 dföQfö L Ennþá eru miklir sölumöguleikar eftir í ó mælishappdrættinu. — Allir verða að vr með í lokasprettinum. — Verum öll samtak þessa fáu daga sem eftir eru. Gerið skil íyrir selda happdrættismiða

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.