Þjóðviljinn - 26.10.1956, Side 12

Þjóðviljinn - 26.10.1956, Side 12
Bamavemdardagurmn er á morgun lllftPWI H^i N bá cæImæs- !?Ariiaí70T«Hay|pla(rsíS fp fil Istarfa við kennslu afbrigðilegra Wr Þá saísiar Barnaverndariélagið íé til margháffaðrar starísemi sinnar Barnaverndardagurinn er á morgun, fyrsta vetrardag, og selja þá barnaverndarfélögin, en þau eru 10 talsins á landinu, bók og merki til ágóða fyrir barnaverndarstarf- semi. Dr. Matthías Jónasson, aðal- forgöngumaður þessa starfs, sagði í viðtali við biaðamenn í gær að barnaverndarfélögin reyndu á hverjum stað að hrinda í framkvæmd þvi sem mest að- kallandi væri, en vegna fjár- skorts félaganna yrðu fram- kvæmdiinar oft ekki í hlutfaþi við verkefnin eða þörfina. V í Skálatúnsheimilið Earnaverndarféiagið á Akur- evri kom þannig á fót leikskóla, er bað starfrækti s.l. vetur. Var mikil aðsókn að honum og verð- ur beirri starfsemi haldið áfram. I A ýmsum öðrum stöðum beita félögin sér fyrir gerð leikvalla og gæzlu barna. Reykjavíkur- félagið hefur ekki talið brýnasta þörf hér að styrkja dagheimili, en bað hefur styrkt barnaheimili það er templarar hafa komið á fót í Skálatúni. Heimili þetta er fyrir vanþroska börn. Hefur barnaverndarfélagið lagt til rúm- föt, ennfremur húsgögn í dag- stofu barnanna, svo og kostað til náms forstöðukonu heimilis- ins, Guðrúnu Hermannsdóttur. Hefur félagið þannig lagt til Skilatúnsheimilisins um 100 þús. kr. Að finna efnilegt ungt fólk Dr. Matthías kvað Reykjavík- urféiagið einkum hafa lagt á- herzlu á það að finna efnilegt ungt fólk, sem þó hefði nokkra reynslu í uppeldismálum og fá það til að læra einhverja kennsluaðferð sem þörf er á við afbrigðileg börn. *Hefur félagið styrkt þá til slíks náms. Nokkr- ir þeirra eru komnir heim frá námi og hafa tekið til starfa. Einn þeirra er Björn Gestsson, er nú hefur tekið við stjórn fá- vitahælisins í Kópavogi. Hann nam í Danmörku og Sviss. Þá er annar kennari, Magnús Magnús- son nýkommn heim frá tveggja ára námi erlendis og tekinn til starfa við kennslu afbrigðilegra barna. Ennfremur Björn Guð- mundsson, talkennari, er kennir málblestum bömum. Félagið hefur einnig styrkt til náms Guðrúnu Jónsdóttur sem nú er að læra störf heimilisráðu- nauts í Svíþjóð. Hver vill gefa sig fram? Við höfum mikinn hug á að fá efnilegan kennara til að læra að kenna orðblindum börnum, þ. e. börnum sem gengur illa að læra lestur vegna þess að þau sjá orð- myndirnar allt öðru vísi en aðr- ir, en slík börn geta verið flug- gáfuð og eðlileg að öðru leyti. sagði dr. Matthías Jónasson í gær. Föstudagur 26. október 1956 — 21. árgangur — 245. tölublað Tryggt verði að skipasmíðastöov- arnar hafi ávallt næg verkefni IÖnþingið hélt áfram í gær og gerði samþykktir um innflutning vélbáta og bátavéla, einnig um húsnæöis- þörf iðnaöarins. Allsherjarnefnd fór á fund þeirra ráðherranna Gylfa Þ. Gíslasonar, Eysteins Jónssonar og Lúðvíks Jósefssonar og flutti fyrir þeim helztu vanda- mál skipasmíðaiðnaðarins, og eftir að hafa hlustað á vilja þeirra um að þessi mál mættu ekki lengur við svo búið standa og þau myndu verða leyst á þessu þingi, um leið og efna- hagsmálin yrðu leyst í heild, leggur aílsherjarnefnd til eft- irfarandi: „18. Iðnþing íslendinga sam- þykkir að fela Landssambands- stjórn að vera vel á verði um þessi mál og koma á framfæri við ríkisstjóm, Alþingi og inn- flutningsyfirvöld eftirfarandi atriðum: Loftleiðir h.f. hefja Bret- landsflug að nýju Sl. laugardag 20. þ.m., hófu Loftleiöir aö nýju áætlun- arflugferöir milli Skotlands og íslands, og lenti fyrsta flugvél félagsins á Renfrew-flugvellinum, sem er í ná- grenni Glasgow, laust fyrir kl. 3 sl. laugardag. I flugvél þessari, sem kom frá Stafangri var stjórn Loft- leiða og nokkrir starfsmenn félagsins, en fyrir á flugvellin- um voru um 100 gestir, sem boðið hafði verið í þessu til- efni. Sigurður Helgason vara- fcrmaður stjórnar Loftleiða hafði orð fyrir íslendingunum en af hálfu heimamanna töl- uðu þeir Sir Patric Dollan og Allan Maclean, borgarstjóri í| Paisley. Báðir fögnuðu þeirj hinum nýju áætlunarflugferð- j um Loftleiða og töldu einkumí þýðingarmikið, að með þeimí yrði farþegum geíinn kostur á ódýrum og hentugum ferðum milli Renfrew og New York. Eftir rúmlega tveggja stunda viðdvöl var haldið til Reykja- víkhr og var hvert sæti skip- að í flugvélinni. Fyrsta ferðin héðan frá Reykjavík til Glasgow var far- in í gær, og eftirleiðis mun áætlunarferðum til og frá Glasgow haldið uppi á sömu dögum, frá Glasgow til Reykja- víkur á laugardögum, en til Glasgow frá Reykjavík á 1. Innflutningur vélbáta verði ekki leyfður örar en það, að ávallt verði tryggt að allar skipasmiðastöðv- ar hafi nægileg verkefni við nýsmíðar þegar ekki er viðgerðarvinna. 2. Endurgreiddir verði áfram allir tollar og söluskattur og ennfremur bátagjald- eyrir og framleiðslusjóðs- gjald af öllu efni, vélum og tækjum til vélbáta, sem smíðaðir eru innan- lands. 3. Sömu endurgreiðslur verði af vélum til endurnýjun- ar í eldri vélbáta enda sé vinnan framkvæmd innan- lands. 4. Gerðar verði ráðstafanir til að þær skipasmíða- stöðvar, sem hafa með höndum nýsmíði vélbáta, geti fengið lánsfé, sem nægi til að ljúka smíðinni á eigin reikning og stöðv- arnar fái það fé með sömu vaxtakjörum og Fisk- veiðasjóður lánar til fiski- skipa.“ Síðdegis í gær sátu þingfull- trúar boð borgarstjórans í Reykjavik. Einn Flugbjörgnnarsveitarmaður sést hér æfa sig í að bjarga slösuðiun manni upp úr klettagjá. Félagar lians draga bæði hann og hinn slasaða upp, hann gætir þess að kari'an sláist ekki við bergið. — Sjá 3. síðu. Norrænn dagur næsta þríðjudag Það er þriðji norræni kynningardagurinn AÖ tilhlutun Norrænu félaganna veröur n.k. þriðjudag- ur hátíölegur haldinn sem norrænn dagur. Fyrsti „norræni dagurinn“ var haldinn 27. október 1936 og þá ákveðið að halda slíkan dag fimmta hvert ár, en á stríðsárunum féll slíkt niður og var ekki upptekið aftur fyrr en 1951. Megintilgangur norræna dagsins er að vekja og auka áhuga almennings á Norður- löndum á víðtæku samstarfi norrænu frændþjóðanna, og þá ekki einungis á sviði menning- armála heldur einnig á sviði efnahags- og stjórnmála. Að kvöldi 29. október flytja þjóðhöfðingjar allra Norður- landa ávörp í útvarp. Verða þau flutt samtímis frá útvarps- stöðvum allra Norðurlandanna. Á þriðjudagskvöldið tala for- menn norrænu félaganna í út- Við Sögu, flugvél Loftleiða, á Renfrew-flug velli 22. þ.m. — Fremst á myndinni sést Allan Mclean, borgarstjóri í Paisley og sinn til hvorrar handar honum þeir Alfreð Elíasson framkvœmdastjóri Loftleiða og Kristján Guðlaugsson form. stjórnar þess vörp landa sinna. — Þess hef- ur einnig verið óskað að dags- ins verði minnzt í skólum. Þá verður einnig gefið út norrænt frímerki þennan dag. Norræn tíðindi munu koma út. Norræna félagið hér efnir til hátíðahalda í Sjálfstæðis- húsinu. Þar les danska leik- konan Ellen Malberg upp Ijóð, og fleiri frændþjóðamenn munu væntanlega koma þar fram. Félagsdeildir Norræna fé- lagsins hér á landi eru nú 8 talsins og sagði framkv.stj. þess, Magnús Gíslason, í við- tali við blaðamenn að undir- búin væri stofnun deilda á 4 stöðum til viðbótar. Munu deildir þessar minnast norræna dagsins, hver á sínum stað. Var að élöglegum vaiðum 29 mílur innan landhslgi 1 fyrrinótt stóð Sæbjörg vb. Maí GK 48 að ólöglegum drag- nótaveiðum í Faxaflóa, um 20 mílur innan við fiskveiða.tak- mörkin. Játaði skipstjórinn þegar brot sitt. Sæbjörg fylgdi bátnum til Keflavíkur, þar sem mál skipstjórans var rannsakað í gær og dæmt. Glimuœfing- ar hafnar Glímuæfingar Ungmennafélags Reykjavikur eru nú hafnar og fara þær fram þriðjudága og föstudaga i Miðbæjarbarna- skólanum og hefjast kl. 8 síðdeg- is. Nýir þátttakendur eru vel- komnir á æfingarnar, og gefi þeir sig þá fram á æfingarstað.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.