Þjóðviljinn - 13.11.1956, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 13. nóvember 1956
JÓLAKERTI — SKRAUTKERTI — BLÓMAKERTI
Tékknesku kertin eru komin. — Takmarkaöar birgðir.
Pétur Pétursson, heildverzlun,
Hafnarstræti 4 — Sími 1219 og 82062.
Prasad Acharya forscetisráðherra Nepals, fjallaríkisins í
Himálaja, hefur heimsótt Peking og átt þar viðræður við
forustumenn Kína, en Nepal og Kína eru nágrannaríki.
Að viðrœðunum loknum undirrituðu Prasad Acharya og
Sjú Enlœ, forsœtis- og utanríkisráðherra Kína, vináttu-
sáttmála milli ríkjanna. Myndin var tekin af Prasad
Acharya þegar hann kom til Peking ásamt konu sinni
(til hœgri). Til vinstri er Sjú Enlœ.
HJálp berst til Búdapest
Þinghald Asíu- og
Afríkuríkja rætt
F^reSisráðherrar Indlands,
Indónesíu, Burma og Ceylon eru
komnir saman til fundar í Nýju
Delhi til að ræða, hvort efnt
skuli til nýrrar ráðstefnu Asíu-
Og Afríkurikja til að ræða árás
Bretlands og Frakklands á Eg-
yptaland. Stjórn Indónesíu er
fylgjandi þvi að slík ráðstefna
sé haldin en Indlandsstjórn er
sögð hallast að því að ekki sé
ástæða til að taka málið upp
á öðrum vettvangi en innan SÞ
að svo stöddu.
12 sinniim fyrir
fullu leikhúsi
Þjóðleikhúsið hefur nú sýnt
leikritið Tehús ágústmánans
eftir John Patrick 12 sinnum
og alltaf fyrir fullu húsi.
Framhald af 1. síðu.
isins og samningar yrðu hafnir
um brottför sovézka hersins
strax og kyrrð væri komin á í
landinu.
Hammarskjiild skipar
nefnd
Frá því var skýrt í útvarpinu
í Búdapest að stjórn Kadars
væri að athuga, hvort hún ætti
að veita viðtöku nefnd frá SÞ,
en þing SÞ hafði lýst sig fylgj-
andi þvi að nefnd á vegum sam-
takanna kynnti sér ástandið í
Ungverjalandi. Dag Hammar-
skjöld, framkvæmdastjóri SÞ,
skýrði frá því í gær að hann
hefði af þessu tilefni beðið
nokkra menn að taka sæti i
nefnd sem send yrði til Ung-
verjalands ef stjómin þar sam-
þykkti. Þá kvaðst Hammarskjöld
vonast til að hann gæti komið
við í Ungverjalandi í bakaleið-
inni úr heimsókninni til Kairó.
Nagy í sendiráði
Júgóslavíu?
Erlendir fréttamenn í Búda-
pest sögðu í gær, að þar gengi
sú saga að Imre Nagy, fyrrver-
andi forsætisráðherra, væri í
sendiráði Júgóslaviu, þar sem
hann og ýmsir ráðherrar hana
hefðu leitað hælis þegar mesl
var barizt í borginni. Fréttamenn
þessir segja einnig, að í gær
hafi verið dreift í Búdapest flug- .
miðum, þar sem krafizt sé að
Nagy taki aftur við völdum. Þá
segjast þeir hafa heyrt að
Krústjoff, Súsloff og Mikojan
hafi komið til Búdapest frá
Moskva og átt viðræður við Kad-
ar og nánustu samstarfsmenn
hans, en vita engar sönnur á
því.
Austurrískur sósíaldemókrata-
þingmaður, Strasser, sem kom
frá Búdapest í gær, sagði frétta-
mönnum í Vínarborg að meðal
Ungverja ríkti hatur á Rússum,
beizkja í garð Vesturveldanna
og tortrýggni í garð stjórnar
Kadars.
A sævarslóðum og landleiðum
Eftir Óskar Jónsson
HÖFUNDUR þessarar bókar hefur stundað margvísleg störf um ævina, ferðazt mikið bæði innan
lands og utan og komið víða við. — í bókinni segir hann frá því, sem fyrir hann hefur borið við
störf og í ferðalögum, lýsir útróðrum á áraskipum og vélbátum, störfum á innlendum og erlendum
togurum, ferðum um óbyggðir íslands og skemmtiferðum um mörg framandi lönd. — Hann hefur
verið sjómaður og verzlunarmaður, í opinberum störfum og m.a. átt sæti í Nýbyggingaráði, sem
hafði meiri og örlagaríkari áhrif á hag og afkomu þjóöarinnar, en jafnvel nokkur önnur stofnun,
sem starfað hefur. — Segir hann í löngum kafla frá störfum sínum og félaga sinna þar. — Þá er
og í bókinni mjög athyglisverður kafli með dulrænum frásögnum. — Hér er um athyglisverða
bók að ræöa. Höfundurinn gerir ekki kröfur til þess að á hann sé litiö sem rithöfund, en stíll hans
og frásagnarmáti er lipur og aölaðandi — athyglinni er haldiö vakandi frá byrjun til enda.
Á SÆVARSLÓÐUM OG LANDLEIÐUM er 224 blaðsíður að stærð og piýdd mörgiun myndum.
Bókautgáfan Barðinn
iþróttir
Framhald af 9. síðu
stund í Honolulu og mönnum
gefið tækifæri til að æfa og
hreyfa sig. Á öðrum stöðum var
viðdvölin styttri en þó var hún
notuð til þess að „jogga“ svo-
lítið.
í vélarnar var raðað eftir
þeirri reglu að þeir sem áttu að
keppa fyrst fóru með fyrstu vél-
unum, en t. d. skyttur, sem
keppa eiga seint á leikjunum
fóru með þeirri síðustu.
Það er gert ráð fyrir að síð-
asta vélin komi til Melbourne á
föstudag. Hóparnir sameinuðust í
Stokkhólmi.
Þessi samvinna ber vott um
góða norræna samvinnu, þar sem
fer saman skilningur allra á að
leysa þetta mál á sem ódýrastan
hátt og eðlilegastan fyrir alla
aðila.
ÚtbreiSiS
Þjóðviljann