Þjóðviljinn - 25.11.1956, Side 3
Sunnndagur 25. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Áki Jakobsson fiytnr tillögu um stjórn
arslit og birtir hana í Morgunblaðinu!
Hefur fengiS fynrheit um framboS á
vegum ihaldsins i nœsfu kosningum
í gær birti Morgunblaöið viðtal við Áka. Jakobsson,
einn af þingmönnum Alþýðuflokksins. Þax skýrir Áki aö-
almálgagni íhaldsins frá því að „hann hefói fyrir skömmu
lagt fram fillögu um það í þingflokki Alþýftuflofeksins, að mið-
stjórn flokksins beindi því til forsætisráðherra, að stjórnar-
saihstarfi við kommúnista skuli slitið og ráðhemim þeirra veitt
lausn frá embætti.“ Fer Morgunblaðiö síðan fögrum orðum
um „kjark“ Áka, „manndóm“ og „innræti“.
Alþýðusambandsþingið
Framhald af 1. síðu.
rannsóknum verði haldið áfram
og þær auknar,
Hagkvæmaii rekstur.
Að unnið verði að hagkvæm-
ari rekstri útgerðarinnar með
samkomulagi félaga útgerðar-
manna og sjómanna, m. a. með
samningum um hámark beitu-
eyðslu í hvern róður, hámark
línulengdar, hámarksfjöfda neta
i einu í sjó, hámarks vélastærð.
Verðlaun fyrir góða umgengni
um báta og veiðarfæri, verðlaun
fyrir góða meðferð á afla o. fl.
Útflutningsverðgildi
aukið.
Að unnið verði að aukinni fjöl-
breytni í meðferð og verkun
sjávaraflans með það fyrir aug-
um að auka sem mest verðgildi
framleiðslunnar til útflutnings,
og sjávarafurðir verði í sem
minnsta mæli fluttar út óunnar.
Beituverð hækki ekki.
Að stjórnarvöldin setji skorðut
við þvi að beituverð hækki frá
því sem gilti á s.l. vertíð, taki
það til verðlags á síld, krabba
og loðnu.“
Lágmarksslysabætur.
Þjóðviljinn birti í fyrradag
fyrrihluta ályktunar þeirrar er
Alþýðusambandsþing samþykkti
einróma í sjávarútvegsmálum.
Þau mistök áttu sér stað að síð-
asta málsgreinin var sett eins og
hún var i uppkasti. Rétt er hún
eins og hún var endanlega sam-
þykkt þannig:
„Að slysabætur sjómanna
verði hækkaðar svo í það
minnsta, að hver einstaklingur,
sem fyrir slysum verður, fái
greitt kaup sem svarar átta
stunda viimu í þrjá mánuði."
Á sævarslóðum og landleiðum
Á sœvarslóðuvi og landleiðum nefnist nýútkomin bók
eftir Óskar Jónsson forstjóra. Eins og nafnið bendir tii
segir þar frá ýmsu sem á daga höfundar hefur drifið.
Þessi frásögn Morgunblaðs-
ins þykir að vonum miklum
tíðindum sæta, ekki aðeins til-
löguflutningur Áka, heldur og
ekki síður hitt að hann skuli
hlaupa með innri mál Alþýðu-
flokksins beina leið til íhalds-
ins. Er þar um að ræða mjög
alvarlegt brot á starfsreglum
Alþýðuflokksins.
Gerði allt sem hann gat
til að hindra inyndun
vinstri stjórnar.
Hins vegar kemur kunnugum
ekki á óvart hið nána sam-
band Áka Jakobssonar við í-
haldið; hann hefur nú um
lagt skeið stefnt að því að
verða hlutgengur í Sjálfstæðis-
flokknum. Hann hefði á s. 1.
sumri orðið í framboði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn á Siglu-
firði, ef sá flokkur hefði ekki
haft þar þingmann fyrir og
ekki talið sig hafa tök á að
kasta honum fyrir borð. Eftir
að Áki var orðinn þingmaður
Alþýðuflokks og Framsóknar á
Siglufirði gerði hann allt sem
hann gat til að koma í veg
fyrir myndun vinstri stjórnar;
reyndi hann m.a. að fá Alþýðu-
flokkinn til að setja þau skil-
yrði fyrir stjórnarmyndun að
ekki gæti af henni orðið. Var
það síðasta tilraunin að Áki
fékk Stefán Jóhann til að
flytja þá tillögu á sameigin-
legum fundi miðstjórnar og
þingflokks Alþýðuflokksins að
Áki Jakobsson yrði ráðherra —
en sú tillaga var felld með
miklum atkvæðamun.
Býðst framboð hjá íhaklinu
Eftir að vinstri stjórn var
mynduð hefur Áki Jakobsson
gert allt sem hann hefur megn-
að til að torvelda störf hennar.
Hefur hann haft hið nánasta
samband við Bjarna Benedikts-
son og gefið honum nákvæmar
skýrslur um allt sem gerzt hef-
ur hjá stjórnarflokkunum og
Áki hefur fengið vitneskju um.
Eftir hina miklu heimsatburði
síðustu vikurnar hefur Áki far-
ið líamförum til þess að reyna
að sundra stjórninni og nær
Sýningu Gerðar
lýkur í kvöld
Höggmynda- og málverka-
sýningu þeirra Gerðar Helga-
dóttur og André Enard í
Bogasal Þjóðminjasafnsins lýk-
ur kl. 10 í kvöld (opnað kl.
2). Sýningin hefur þá staðið
röska viku, og nokkrar myndir
hafa selzt. I dag eru sem sagt
síðustu forvöð að sjá sýning-
una. '
sú tilraun hámarki með tillögu
þeirri sem hann skýrði Morg-
unblaðinu frá i gær.
Þjóðviljinn hefur öruggar
heimildir fyrir því að Sjálf-
Fréttaritari Bjarna Ben.
í Alþýðuflokknum
stæðistlofekurinn hefur að
launum heitið Áfea Jakobs-
syni fulíum stuðningi á.
stjónunálasviðinu. Hefur
Áki Ioforð um það að hann
eigi kost á. að verða fram-
bjóðandii Sjálfstæðistlokks-
ins á Siglufirði í næstu
kosningum, hvort sem þess-
ar sundlrungartjlraunir hans
bera ávöxt eða ekki. Er tal-
fyrir A-Þjóðverj-
ana annaðkvöld
Sundmenni þeir, sem hér hafa
dvalizt að undanförnu frá A-
Þýzkalandi, hafa keppt í Rvík j
og Keflavik og keppa á Akra-
nesi í dag kL 2.
Eru þeir hér í boði Ármanns,
og hefur heimsókn þessi heppn-
azt með afbrigðum vel.
Sundmennirnir fara héðan á
miðvikudagsmorgun, og verður
efnt til kveðjusundmóts í Sund-
höllinni fyrir þá annað kvöld kl.
8.30. Þar verður keppt í þessum
greinum: 4x100 m fjórsundi
karla. 200 m skriðsundi karla,
50 m bringusundi karla, 50 m
flugsundi karla, 200 m skriðsundi
kvenna, 50 m bringusundi
kvenna, 100 m skriðsundi
drengja, 100 m bringusundi
drengja, 50 m skriðsundi telpna
og 200 m baksundi karia.
Auk þessarar keppni mun
þarna fara íram all nýstárleg
keppni í náttfataboðsundi. Að
beiðni Ármanns hefur L. í. Ú.
lánað gúmmibjörgunarbát, sem
vakið hefur mikla athygli, og
verður báturinn sýndur og hvern-
ig hann er notaður.
ið fullvfst að Áfei velji þenn-
an kost, þar sem hann telur
það ótrygga aðstöðu að eiga
þingmennsku sína undir
tveimur flokkum, sem engan
veginn er víst að starfi sam-
an í næstu kosningum.
Vill afhenda íhaldinu forustuna
Ekki er að efa að Alþýðu-
flokksfólki finnst það fróðlegt
að fá fregnir um innri mál
Alþýðuflokksins í aðalmál-
gagni íhaldsins. Það er ekki
síður lærdómsríkt fyrir Alþýðu-
flokksmenn að fá órækar sann-
anir fyrir því að í þingmanna-
liði flokksins er maður sem op-
inskátt gengur erinda Sjálf-
stæðisflokksins og flytur til-
lögur B'jarna Benediktssonar í
þingflokki Alþýðuflokksins. Til-
laga Áka Jakobssonar um
stjórnarslit felur að sjálfsögðu
í sér að allri vinstri stefnu í
íslenzkum þjóðmálum verði
kastað á glæ og í staðinn fái
íhaldið forustu í landinu á nýj-
an leik. Þótt klíka Áka Jak-
obssonar og Stefáns Jóhanns
þrái slíka þróun, eru Alþýðu-
flokkskjósendur um allt land
eflaust annari'ar skoðunar.
Fjóra báta rak
Framhald af 1. síðu.
og var enginn maður um borð
í þeim. Einn bátinn Snæfell,
rak á land við Norðurgarðinn
og náðist hann aftur á flot í
gærmorgun. Hina bátana fjóra
rak út úr höfninni og upp í
fjöru skammt frá Kirkjusandi.
Bátarnir voru Erna RE 15, um
100 lestir að stærð, Vaðgeir
RE 344 um 60 lestir, og tveir
minni bátar: Freyja RE 99 og
Unnur.
Erna og Freyja lentu í fjör-
unni beint framundan þar sem
var bátasmíðastöð Landssmiðj-
unnar, en Unnur undan Fúlu-
tjörn. Fjaran er á þessum slóð-
um slétt og sendin og munu
bátarnir því -óskemmdir. Vb.
Vaðgeir lenti hinsvegar vestar
í fjörunni og hefur brotnað þar
talsvert á klettum.
Fyrsti hluti bókarinnar nefn
| ist Bernskuminningar og segir
þar frá æskustöðvum höfundar
á Vestfjörðum, atvinnuháttum
og lífskjörum um síðustu alda-
mót. Ennfremur segir hann frá
skólagöngu sinni. Þá er kafli
um sjómennsku höfundar á
róðrarbátum, skútum og togur-
um, innlendum og erlendum.
Næsti kafli bókarinnar ne.fn-
ist Ferðasöguþættir. Hefst hann
á Rússlandsför á vegum síldar-
útvegsnefndar árið 1936, síðar
segir frá fjölmörgum leiðum
um Vesturevrópu. Einnig segir
nokkuð frá óbyggðareisum höf-
undar hér heima á íslandi..
Næstsíðasti kafli bókarinnar
heitir I opinberum störfum.
Þar segir frá störfum höfundar
í sildarútvegsnefnd og fleiri op-
inberum störfum, en þó aðal-
lega frá nýbyggingarráði og
störfum þess, en þar starfaði
hann nær frá því nýbyggingar-
ráð tók til starfa og þar til
stjórn Stefáns Jóhanns, flokks-
bróður höfundar, tók við og
lagði það niður. Þetta mun
vera eitt hið fyrsta, ef ekki hið
fyrsta, sem skrifað er frá sögu-
legu sjónarmiði um nýsköpun-
arstefnuna, en það var einmitt
nýbyggingarráð er bar hita og
þunga dagsins við þá nýsköpua
Óskar Jónsson
atvinnulífsins er þjóðin hefur
búið að og lifað af til þessa.
Margur mun því vilja lesa þess-
ar „innanhússupplýsingar“ una
störf nýbyggingarráðs.
Lokakafli bókarinnar heitir
Dularfullir atburðir. Er hana
stytztur, aðeins tæpar 12 blað-
síður, en dulsagnasafnarar
þurfa vitanlega að bæta honuna
í safn sitt.
Nokltrar myndir prýða bók-
ina. Hún er 224 bls., prentuð í
Odda. Utgefandi Barðinn. Frá-
gangur er góður.
Sósíalistar í
Reykjavík
vinsamlega komið í skrif-
stofu Sósíalistafélagsins í
Tjarnargötu 20 og greiðið
félagsgjöld ykkar.
hvað sem vera skal. Til hliðar
við hana á myndinni mótar
fyrir karlmanni.
Þr jár nýjar bækur frá Leiftri
Blaðinu hafa borizt 3 nýjar bækur frá Leiftri, þessar:
Sagnablöð hin nýju, eftir Jóh. Örn Jónsson; Römm er
sú taug, skáldsaga eftir Guðrúnu frá Lundi; Ásdís í Vík,
skáldsaga eftir Dagbjörtu Dagsdóttur.
Höfundur Sagnablaða hinna
nýju er aldraður bóndi norður í
Hörgárdal, er lengi hefur skráð
hjá sér munnmælasögur,
drauma, og sagnir samtíðar-
manna. Er þetta efni bókarinn-
ar, auk frásagna af mönnum
og málefnum á fyrri tið; en
fleira mun liann eiga i fórum
sínum. Sögumenn hans eru
flestir Norðlendingar, úr Eyja-
firði og Skagafirði, og virðist
bókin flytja drjúgan fróðleik.
Hún er 279 blaðsíður á lengd.
Saga Guðrúnar frá Lundi,
Römm er sú taug, er framhald
Tengdadótturinnar sem kom út
í fyrra; en ekki sést í fljótu
bragði hvort verkinu lýkur með
þessu bindi, sem er á 4. hundr-
að blaðsíður. Guðrún frá Lundi
er víst vinsælasti rithöfundur
þjóðarinnar um þessar mundir;
og eru sælir þeir höfundar sem
ekki þarf að reka áróður fyrir.
Dagbjört Dagsdóttir, sem hef-
ur skrifað Ásdísi í Vík, er víst
dulnefni; og mætti fréttamaður
ekki ljóstra upp nafni höfund-
ar, þótt hann vissi það. Sagan
er 215 blaðsíður, og á kápu-
siðu er mynd sem bendir til að
aðalpersónan sé glæsistúlka
mikil sem ekki láti bjóða sér