Þjóðviljinn - 29.11.1956, Blaðsíða 3
Finvmtudagur 29. nóvtmber 1956 ÞJÓÐVILJINN — (3
.Veðráttan í haust
t haust hafa verið hlýindi
mikil miðað við árstíma. Snjó-
föl hefur varla sézt í byggð og
mjög lítið snjóað í fjöll. í októ-
ber var vegurinn um Oddsskarð
tvívegis ruddur óg var um lít-
inn snjó að ræða í bæði skipti.
Sleiíarlag á
samgöngum
Enda þótt bærinn hafi verið
í sambandi við akvegakerfið í
allt haust, að undanskildum ör-
fáum dögum, eru þó samgöngu-
málin fyrir neðan allar hellur.
Áætlunarferðir voru með öllu
félldar niður um mánaðamótin
september og október og eru
bæjarbúar, sem vonlegt er,
mjög óánægðir yfir því. Þetta
atferli eykur enn á erfiðleika
bæjarbúa til að nota Egils-
staðaflugvöll, þar sem þeir
komast ekki þangað eða þaðan,
jiema taka leigubíl, og ef einn
maður er á ferð þýðir það ná-
lægt því tvöföldun á fargjald-
inu frá Reykjavík.
Samgöngur á sjó eru líka
alltof stopular. Þó er sýnilegt
að Skipaútgerðin gerir sitt
bezta, en hefur ekki möguleika
til að halda uppi nægilega ör-
um samgöngum á meðan Esja
er biluð.
Sjúkrahúslæknir
ráðinn
Elías Eyvindsson, sem starf-
að hefur sem svæfingalæknir á
L-andsspítalanum og auk þess
verið aðstoðarlæknir við hand-
lækningadeild hans, hefur verið
ráðinn ■ yfirlæknir hins nýja
sjúkrahúss. Er hann fluttur
hingað með fjölskyldu sína og
opnaði almenna lækningastofu
í gær. Hinsvegar má gera ráð
fyrir því, að starfræksla sjúkra-
hússins hefjist ekki fyrr en um
'hátíðar, því eftir er að leggja
eíðustu hönd á ýmislegt varð-
andi bygginguna og undirbún-
ing rekstrarins.
Flotinn stækkar
Nýlega var hleypt af stokk-
unum í skipasmíðastöð Drátt-
arbrautar h.f., nýjum fiskibáti.
Heitir hann Jón Ben og eru
einkennisstafir hans NK 71.
Báturinn er 24 lestir að stærð
með 170 ha Buda-dísilvél. Hann
er vel búinn að öryggis- og
siglingatækjum, hefur Atlas-
Brezkar kvik-
mvndir í Tjarnar-
tóói á laugardag-
inn
Brezka sendiráðið efnir til
kvikmyndasýningar í Tjarnar-
bíói n.k. laugardág kl. 2 síð-
degis. Sýndar verða nokkrar
stuttar myndir. Ein er frá hin-
um frægu Derbyveðreiðum, önn-
ur af úrslitaleik bikarkeppn-
innar ensku í vor milli knatt-
spyrnufélaganna WBA og
Preston, þá er mynd frá Farn-
borough-flugsýningunni á sl.
hausti, tvær stuttar myndir um
lax- og silungsveiðar, fyndin
teiknimynd og loks mynd af
hersýningu. — Aðgangur að
kvikmyndasýningu þessari er
ókeypis.
Fréttnbréf úr Nes
kflnpstað
dýptarmæli, fisksjá og gúm-
björgunarbát. Eigandi bátsins
er nýstofnað hlutafélag, sem
nefnist Stapi og er Fiskvinnslu-
stöð Sammvinnufélags útgerð-
armanna aðalhluthafi. Yfir-
smiður var Sverrir Gunnarsson,
sem einnig teiknaði bátinn.
Skipstjóri verður Rafn Einars-
son. Báturinn kostaði rúmar
600 þús. kr.
I skipasmiðastöð Dráttar-
brautar er hafin smíði annars
báts af sömu stærð og Jón Ben.
Eigendur hans verða Flosi og
Hörður Bjarnasynir, sjómenn.
Smíði 60 lesta báts er komin
á góðan rekspöl hjá þessari
sömu skipasmiðastöð. Eigend-
ur hans verða Kristinn Mar-
teinsson, skipstjóri, Pétur Sig-
urðsson stýrimaður og Páll
Þorsteinsson verkamaður.
Þá er hafin i skipasmíðastöð
Marsellusar Bernharðssonar á
Isafirði smíði 55 lesta báts fyr-
ir feðgana Guðlaug Ásgeirsson
stýrimann og Ásgeir Bergsson
sjómann.
Aíhendingu togarans
seinkar
Upphaflega átti nýi togarinn
að afhendast 1. október, en
vegna mistaka við smíði gírs í
aðalvél hefur afhendingunni
seinkað og mun slcipið ekki af-
hendast fyrr en í árslok.
Fyrirhuguð bygging
gagníræðaskóla
Bæjarstjórn áformar að hef ja
á næsta ári byggingu gagn-
fræðaskóla. Var húsameistari
frá húsameistara ríkisins stadd-
ur hér fyrir skömmu til að
undirbúa teikningar og kostn-
aðaráætlanir. Er þeirra von
innan fárra vikna.
Núverandi húsnæði gagn-
fræðaskólans er allsendis ófull-
nægjandi fyrir þá starfsemi,
sem þar fer fram.
■
Undirbúin bygging
síldarverksmiðju
Á vegum Samvinnufélags út-
gerðarmanna fer nú fram at-
hugun á möguleikum til að
reisa hér síldarverksmiðju, sem
jafnframt á að vera fiskimjöls-
verksmiðja, Er nú unnið að
teikningum og kostnaðaráætlun
verksmiðju, sem unnið geti úr
800—1000 málum síldar á sól-
arhring. Samvinnufélagið mun
beita sér fyrir byggingu verk-
smiðjunnar, annaðhvort reisa
hana sjálft, eða gangast fyrir
stofnun félagsskapar, er tæki
það að sér.
Bygging síldaybræðslu hér er
brýn nauðsyn, kannski fyrst og
fremst vegna þess, að síldar-
söltun er afar erfið á meðan
ekki er fyrir hendi bræðsla til
8 bœkur nýkomnar út hjó
ísofoldarprentsmiðju
Nýlega era komnar út 8 bækur frá ísafoldarprent-
smiðju, þar á meðal tvö bindi í ritsafni Nonna, sagan
Hanna Dóra eftir Stefán Jónsson, og skáldsagan Rauðu
regnhlífaxnar eftir Kelvin Lindemann.
Hér er um að ræða 7. og 12.
bindið í ritsafni Nonna. Hið
fyrra segir frá æsku hans i út-
löndum og nefnist: Hvemig
Nonni varð hamingjusamur, og
er það 129 bls. Freysteinn
Gunnarsson hefur þýtt bókina,
en Halldór Pétursson teiknaði
myndir. Hitt bindið nefnist
Nonni i Japan, og er framhald
þess bindis er út kom í fyrra
og segir frá ferð höfundar um-
hverfis jörðina. Þetta bindi er
219 bls., þýtt af Freysteini,
en Halldór teiknaði nokkrar
myndir i það.
Saga Stefáns Jónssonar,
Hanna Dóra, er 183 bls. í 38
köflum, og er 21. bók höfundar.
Þetta ,,er saga lítillar stúlku á
aldrinum 12—13 ára“ segir á
kápusíðu. Ekki er að efa að
sagan er mörgum kostum búin;
nafn höfundar er trygging fyr-
ir því.
Rauðu regnhlífarnar er 173
bls., Hersteinn Pálsson þýddi.
Saga þessi vakti mikið umtal i
Danmörku fyrir nokkmm ár-
um, einkum vegna þess að
menn voni nokkum veginn á
einu máli um ágæti sögunnar,
en höfundur leyndi nafn: sínu;
og voru margir nefndir scm lík-
legir höfundar. Þá hefur Eirík-
ur Hreinn Finnbogason þýtt
eina af hinum fjölmörgu frá-
sögnum af Ugluspegli. Utgáfa
ísafoldarprentsmiðju á frásögn-
unum er 106 bls. prýdd nokkr-
um teikningum. Lesendur Þjóð-
viljans eru góðvinir Ugluspeg-
ils síðan við birtum myndasög-
una um hann.
Þá er sagan Hafdis og Heið-
ar, eftir Hugrúnu. Hún er 127
bls.; er þetta 2. bindið um þau
og nefnist í undirfyrirsögn Haf-
dis finnur hamingjuna.
Loks er Draugaskipið.og önn-
ur ævintýri úr ævintýrum
Hauffs, með teikningum eftir
þýzkan teiknara. Þessi bók er
150 bls., en þýðanda er ekki
getið. Ennfremur sagan Árni
og Berit, eftir Anton Mohr, og
segir frá ævintýraför um Afr-
íku. Stefán Jónsson námsstjóri
þýddi söguna, sem er 247 bls.
með nokkmm teikningum.
Sósíalistar í
Reykjavík
Unsamlega komið í skrif-
stofu Sósíalistafélagsins i
Tjarnargötu 20 og greiðið
félagsgjöld ykkar.
að taka við ósöltunarhæfri sild
og síld, sem ekki verður komizt
yfir að salta. Fiskimjölsverk-
smiðjan hér er líka fulllítil.
Þess er og að gæta, að árlega
nú um langt árabil hefur verið
tilfinnanlegur skortur síldar-
verksmiðja á Austurlandi og
gæti 1000 mála verksmiðja hér
og fyrirhuguð stækkun bræðsl-
unnar á Seyðisfirði bætt þar
mjög úr skák.
Fólksílótti úr
Mjóafirði
Á undanförnum árum liefur
fólki fækkað mjög i Mjóafirði.
Fyrir fjórum árum munu hafa
verið yfir 160 manns búsettir í
Mjóafirði, en um næstu áramót
verða þeir varla yfir 50. Er
ekki annað sýnna en að Mjóa-
fjörður muni á skömmum tíma
eyðast að mannabyggð. Stór-
býlið Fjörður fór alveg í eyði
í haust. Fólkið hefur ýmist
flutt hingað til bæjarins eða
suður.
Um mannfjölda í
í Neskaupstað
Héðan úr bænum hefur á und-
anförnum árUm líka flutt margt
manna og fólksfjöldi árum sam-
an staðið í stað þrátt fyrir all-
mikinn- innflutning fólks og
verulegan mismun fæddra og
dáinna. Árið 1955 fluttust héð-
an um 100 manns, en um 80
fluttu hingað. I ár er líklegt að
héðan flytjist yfir 60 manns,
en rúmlega 50 hingað. Mismun-
ur lifandi fæddra og látinna er
óvanalega lítill, þar sem óvenju-
margt fólk hefur látizt. Hafa
15 manns dáið það sem af er
árinu, flest gamalt fólk, og er
það rúmlega 1% íbúanna. Það
má því ætla að mannfjöldi
standi enn nokkurn veginn í
stað. Hinsvegar má sjá þess
nokkur merki, að meira jafn-
vægi sé að komast á í þessum
efnum.
íþróttavöllur
I haust hefur verið unnið að
áframhaldandi framkvæmdum
við íþróttavöll. Er nú verið að
ljúka við þann áfanga, sem ætl-
að var að ná á þessu ári. AU-
mikið verk, einkum snyddu-
hleðsla, er þó eftir, en vonir
standa til að hægt verði að
ljúka verkinu að fullu á næsta
---------------------------
Flugmenn njóti
sama réttar og
sjómenn
Á 25. þingi Alþýðusambands
íslands var eftirfarandi álykt-
un samþykkt:
„Tuttugasta og fimmta þing
Alþýðusambands fslands skorar
á ríkisstjqrnina að beita sér fyr-
ir því, að áhafnir flugvéla i
millilandaflugi njóti sömu gjald-
eyrisfríðinda og farmenn kaup-
skipaflotans, þ.e. 30% af laun-
um“.
ári og gjörbreytist þá til battt-
aðar aðstaða æskulýðsins til að
stunda útiíþróttir. Óleyst et
hinsvegar það verkefni, að
skapa inniíþróttum sambærileg
skilyrði.
■ I:
Félagsheimili N
Þessa dagana er verið að
ljúka þeim byggingarfram-
kvæmdum, sem áformaðar von*
á þessu ári. Er þá búið að
steypa upp eina hæð og loft f
það. Mun það sem búið er hafa
kostað fast að hálfri milljón
króna. — Á næsta ári er mark-
ið að koma byggingunni undir
þak. Ekki hefur enn verið á-
ætlað hvað það muni kosta, en
ekki er ósennilegt að það verðí
kringum 800 þús. kr.
Endurvarpsstöð í
Norðfirði
Eins og kunnugt er, eru út-
varpshlustunarskilyrði á Aust*
urlandi oft mjög slæm á haust-
in og vetrum, vegna truflana
erlendra stöðva. Nokkuð er
þetta þó misjafnt og fer sýni-
lega eftir veðri. Þegar hlust-
unarskilyrði almennt eru verst,
njótum við íslenzka útvarpsins
bezt. Þetta kann að hljóma sem
öfugmæli, en við höfum tekið
^ramhald á 8. síðu.
Öruggan samastað
fyrir söguleg gögn
verkalýðssam-
takanna
Alþýðusambandsþingið sam-
þykkti einróma eftirfarandi:
„Þingið samþykkir að skora á
sambandsstjórn að hlutast til
um að komið verði upp sem allra
fyrst öruggum samastað fyrir
söguleg gögn verkalýðssamtak-
anna, svo sem fundargerðarbæk-
ur félaga, blöð, bréf, kjarasamn-
inga o.þ.u.l., ekki aðeins í þeim
tilgangi að tryggja sem bezt
varðveizlu sögulegra verðmæta,
heldur einnig til þess að þeir
sem leita þurfa sögulegra heim-
ilda í þessum plöggum eigi greið-
an aðgang að þeim“.
Flutningsmenn tillögunnar voru
þeir nafnarnir Jón Rafnsson og
Jón Sigurðsson.
Framkvæmd jafn-
réttisákvæða
verði rannsakað
Á 25. þingi Alþýðusambanda
Islands var eftirfarandi álykt-
un samþykkt:
„Tuttugasta og fimmta þing
Alþýðusambands íslands skorar
á ríkisstjórnina að láta rannsaka
hvernig jafnréttisákvæði laga um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna ríkisins eru fram-
kvæmd, og láta fram fara endur-
skoðun á þeim störfum hjá ríki
og bæjarfélögum, sem hingað
til hafa verið vanmetin til launa
með tilliti til þess að þau hafa
verið talin kvennastörf, svo sem
störf ljósmæðra, talsímakvenna,
hjúkrunarkvenna, vélritara o.fl.
Þingið væntir þess, að atliugun
þessi verði framkvæmd aí kon-
um og körlum og leitað áli's Al-
þýðusambands íslands, Kven-
réttindafélags íslands og Earida-
lags starfsmanna ríkis o: bæja
með val kvenna í nefndina'