Þjóðviljinn - 05.01.1957, Qupperneq 3
Laugardagur 5. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN (3
Brunatryggingaíðgjaldíð hefur lækkað
úr 10-11 í 1,83 af þúsundi á 40 árum
Hinn 1. janúar voru /#ð/n 40 ár frá jbW
Brunabótaféiag Islands tók til starfa
Hinn 1. janúar sl. voru liðin 40 ár frá því Brunabótafélag
íslands tók til starfa. Félagið er elzta alinnlenda tryggingafé-
Jagið og jafnframt stærsta brunatryggingafélag landsins, og
hefur unnið brautryðjendastörf í eldsvoðatrvggingum og bruna-
Vörnum hér á landi.
Frá stofnun hefur Brunabótafélag Islands greitt í tjónbætur
til vátryggjenda samtals rúmlega 32 millj. króna og lán félags-
ins til bæjar- og sveitarfélaga eru nú að eftirstöðvum tæpar
22 milljónir. Hefur lánum þessum að meginhluta verið varið til
byggingu vatnsveitna og slökkvitækjakaupa.
I tilefni 40 ára afmælisins hef-
ur Brunabótafélagið gefið út
myndarlegt afmælisrit. Þar rit-
ar forstjóri félagsins Stefán Jóh.
Stefánsson formálsorð, lýst er
aðdraganda og stofnun félagsins,
starfssviði þess og þróun, rakin
eru áhrif og árangur af félags-
starfinu í 40 ár. Þá ritar Geir G.
Zoega, fyrrverandi vegamála-
stjóri, um þátt BrunabótafélagST
ins í brunavörnum, birtar eru
kveðjur frá endurtryggjendum
íélagsins og raddir og álit all-
margra manna á félaginu. Verð-
ur hér á eftir drepið á helztu at-
riðin í starfssögu Brunabótafé-
Jags Islands, eins og hún ér rak-
in í fyrrgreindu afmælisriti.
* Andstaða erlendra
tryggingafélaga
Árið 1915 markar tímamót í
islenzkum tryggingamálum, því
að þá voru sett lög um Bruna-
bótafélag íslands. Þar var á-
kveðið að landsstjórnin gengist
fyrir að stofnað yrði félag, er
tæki að sér brunatryggingar á
húseignum á íslandi utan
Reykjavíkur. Skyldi landssjóður
ábyrgjast allt að 800 þús. kr. af
skuldbindingum félagsins, en fé-
lagið tryggja húseignir í kaup-
stöðum utan Reykjavíkur gegn
eldsvoða, svo og í kauptúnum
með* 3Q0 íbúa eða fleiri.
í ársbyrjun 1916 var Sveini
Björnssyni síðar forseta falið að
koma Brunabótafélagi íslands á
stofn og veita því forstöðu. Varð
hann þvi einnig fyrsti forstjóri
þess og gegndi því starfi til 31
júlí 1920. Það reyndist livorki
vandalaust né auðvelt, að
tryggja stofnun og öruggan
rekstur félagsins, því að er
Sveinn leitaði eftir endurtrygg-
ingum fyrir það erlendis, bund-
ust dönsk og sænsk vátrygg-
ingafélög samtökum um að neita
því um þær. Mun erlendu félög-
unum hafa fundizt þau missa
allstóran spón úr aski sínum, ef
íslenzkt félag tæki að sér frum-
tryggingar á íslandi, enda liöfðu
þau til þess tíma tckið 10—11
af þúsundi í iðgjöld af flestum
vátryggðum húsuin utan Reykja-
víkur. Samningar tókust þó um
síðir við vátryggingafélagið
Storebrand í Osló uju að það
tæki að sér endurtryggingu fyrir
Brunabótafélagið. Voru fullnað-
arsamningar um þetta undirrit-
aðir í Osló í maí 1916, en ekkert
mátti láta uppi um þá fyrr en
Brunabótafélagið tæki til starfa.
Þegar Sveinn Björnsson hafði
lokið þessum erindum á Norður-
löndum og var kominn til ís-
lands aftur. var honum ljóst að
Brunabótafélag íslands gæti
ekki tekið til starfa fyrr en 1.
janúar 1917. En 17. júní 1916
birti hann tilkynningu um að á-
kvæði laganna um félagið skyldu
fyrst um sinn ná til brunatrygg-
inga á húsum í 21 tilgreindum
kaupstað og kauptúni utan
Reykjavíkur.
* 90°// af brunatrygg-
ingum fasteigna utan
Reykjavíkur
í upphafi var ákveðið að
Brunabótafélagi íslands skyldi
stjórna forstjóri skipaður af ráð-
af æði mörgum sveitahreppum
enda verið ósleitilega að því : „
unnið af öðru gagnkvæmu trygg-
ingaféiagi. Þó eru allir kaupstað-
ir landsins utan Reykjavíkur,
svo að segja öll kauptún þess
og meirihluti allra sveitalireppa
áfram í Brunabótafélagi íslands,
sem hefur nú hartnær 90% af
öllum brunatryggingum fast-
eigna utan Reykjavikur.
Önnur meginbreyting var gerð
á starfssviði Brunabótafélagsins
með lögunum frá 1955. Nú er
félaginu heimilt að brunatryggja
allt lausafé án nokkurra tak-
markana, og ennfremur að taka
að sér rekstur nýrra tryggingar-
greina. Hefur félagið því alveg
óbundnar hendur og heimild til
þess að snúa sér að hverskonar
vátryggingastarfsemi. Félagið
hefur þegar tekið nokkuð af á-
byrgðartryggingum, vélatrygg-
ingum, ferða- og slysatrygging-
um, flutningatryggingum og
rekstursstöðvunartrygingum.
Einn af slökkviliðsbílunum, sem byggt var yfir á verk-
stœði brunavarnaeftirlitsins í Hafnarfirði.
LokunarÉími
mjólkurbiiða
Lokunartimi mjólkurbúða
breytist nú í janúarbyrjun
þannig, að þær verða opnar
ttl KL. 2 Á LAUGARDÖG-
UM til 1. október n.k.
Sveinn Björnsson
fyrsti forstjóri Brunabóta-
félags íslands.
herra, og allt frá stofnun félags-
ins til 1955 var skylt að tryggja
allar fasteignir utan Reykjavik-
ur hjá félaginu. Með lögum frá
23. marz 1955 var skipulagshátt-
um og verksviði Brunabótafé-
lagsins breytt verulega. Voru þá
settar ákveðnar takmarkanir á
einkarétti félagsins til þess að
tryggja allar húseignir landsins
utan Reykjavíkur, þannig að nú
geta þæjar- og sveitarstjórnir
ákveðið eftir vissum reglum að
hlutaðeigandi bæjar- og sveitar-
félög segi sig úr Brunabótafé-
laginu og losni þar með bæði
við skyldur og réttindi sem eru
samfara aðild að því. En leita
verða þau bæjar- eða sveitar-
félög þá til annarra vátrygginga-
félaga um brunatryggingar.
Hefur heimild þessi verið notuð
* Iðgjöld lækkuð til
mikilla muna
Brunatrygging fasteigna hefur
frá upphafi verið höfuðverkefni
Brunabótafélagsins og með
stórauknum byggingum um land
allt, bæði á íbúðarhúsum, verk-
smiðjum og iðjuverum, verzlun-
ar- og samkomuhúsum, hafa
þessar tryggingar vaxið stórum.
Hafa váti'yggingaupphæðir fast-
eigna vaxið á síðustu 25 árum
(1931—1956) úr 51% milljón í
3 milljarða og rúma 566 millj-
ónir króna.
Á fyrsta starfsári Bruna-
bótafélagsins eru iðgjöld að-
eins rúm 80 þús. kr., en á
síðasta reikning'sári tæpar
sex milljónir. Þess er áður
getið, að af húsum utan
Reykjavíkur, sem tryggð voru
lijá dönskum vátryggingafé-
lögum, þurfti að greiða allt
að 10 af þúsundi vátrygg-
ingarverðsins og jafnvel tölu-
vert meira. Brunabótafélag-
inu tókst þegar í upphafi að
lækka þessi iðgjöld mikið og
á siðasta aldarfjórðungi hef-
ur meðaliðgjald af vátrygg-
ingarupphæðum fasteigna
lækkað úr 5.19 af þúsundi í
1.83 af þúsundi.
* Lán til sveitarfélaga
Það ræður af líkum, að Bruna-
bótafélagið hefur á undanförn-
um 40 ára starfstíma sínum innt
af höndum mjög háar og miklar
bótagreiðslur til þeirra, sem
orðið hafa fyrir brunatjóni.
Nema þær samtals rúmlega 32
milljónum króna, Á síðasta
reikningsári námu þær um 4%
mjllj. kr. eða milli 70 og 80%
af brúttóiðgjöldunum.
Brunabótafélagið hefur keppt
að því að safna varasjóðum og
orðið allvel ágengt. f upphafi
gekk söfnunin hægt af eðlilegum
ástæðum, vegna lítilla og fá-
breyttra viðskipta, en eftir því
sem lengur hefur liðið og starf-
rækslan færzt út hafa varasjóð-
irnir aukizt og nema þeir nú
rúmlega 26 milljónum króna.
Þessir varasjóðir veita félaginu
fullkomið fjárhagslegt öryggi og
gera það að verkum, að unnt
er að veita lán víða um landið
til brunavarna og vatnsveitna,
auk þess sem vextirnir af sjóð-
um þessurn standa vel undir
kostnaði við rekstur félagsins.
Við ráðstöfun á lánum úr vara-
sjóðum félagsins hefur verið
fylgt þeirri meginreglu að dreifa
lánsfénu um landið, og hefur
félagið þannig stutt að nauðsyn-
legum framkvæmdum. Lán til
bæjar- og sveitarfélaga eru nú
að eftirstöðvuni tæpar 22 millj.
króna og að meginhluta vatns-
veitu- og slökkvitækjalán.
* Brautryðjendastarf í
brunavörnum
Brunabótafélag íslands hefur,
eins og fyrr var sagt, átt drýgst-
an þátt í umbótum þeim, sem
orðið hafa í brunavarnamálum
utan Reykjavíkur síðustu ára-
tugina. Hefur félagið, sérstak-
lega frá 1936, stutt kaupstaði og
kauptún mjög til þess að koma
á skipulegum brunavörnum und-
jr umsjón brunavarnaeítirlitsins,
sem komið var á fót 1929 að til-
hlutan félagsins. Veitti félagið
allmörgum sveitarfélögum lán til
að kaupa slökkvitæki með hag-
kvæmum kjörum, þannig að
vextir og afborganir voru
greiddar með bókfærðum af-
slætti á iðgjöldum allra hús-
eigna. Er fram leið og kostnað-
ur við útvegun slökkvitækja óx
mjög var sú breyting gerð, að
sveitarsjóðirnir tóku að sér
greiðslu vaxta og afborgana, en
húseigendum var veittur afslátt-
ur á iðgjöldum, venjulega 15—
20%, er ákveðinn var með tilliti
til ástands brunavarna á hverj-
um stað. Síðan 1929 hefur félag-
ið á þennan hátt veitt sem lán
samtals rúmlega 5,8 millj. kr.
þar af rúmar 5 millj. á síðustu
10 árum.
Árið 1946 festi Brunabótafé-
lagið kaup á húseign í Hafnar-
firði og lét gerða á henni ýmsar
breytingar og umbætur til að
koma þar fyrir birgðastöð fyrir
slökkvitæki og verkstæði til að
smíða ýmis slík tæki. Hafa sam-
tals verið smíðuð eða innflutt
brunavarnatæki að verðmæti
tæplega 5,9 millj. kr., en til
þessa hefur verið smíðuð yfir-
bygging með öllu tilheyrandi á
21 slökkvibifreið af þeim 26
sem nú eru í notkun utan
Reykjavíkur, en 3 eru í smíðum.
* Stjóm og forstjórar
Frá stofnun Brunabótafélagsins
til vors 1955 var engin sérstök
stjórn valin fyrir félagið, en
með lögum nr. 9 frá 1955 var
ákveðið að öll bæjarfélög utan
Reykjavíkur og öll sýslufélög
landsins skyldu eftir hver.iar
reglulegar bæjarstjórnar- og
sýslunefndarkosningar tilnefna
einn mann hvert, og annan til
vara, í fulltrúaráð félagsins.
Skyldi það koma saman til að-
alfundar fjórða hvert ár, en
aukafundar þegar þörf kretði.
Aðalfundur kýs þriggja manna
framkvæmdastjórn félagsins og
skipa hana Jón Sólnes banka-
fulltrúi Akureyri formaður, Emil
Jónsson vitamálastjóri Hafnar-
firði varaformaður og Jón Stein-
grímsson sýslumaður Borgarnesi
ritari.
Forstjórar félagsins hafa verið
sex frá stofnun: Sveinn Björns-
son 1. jan. 1916—31. júlí 1920,
Guðm. Ólafsson 1. ágúst 1920—
31. ágúst 1922, Gunnar Egilson
1. sept. 1922—25. maí 1925, Árni
Jónsson frá Múla 26. maí 1925—
30. sept. 1928, Halldór Stefáns-
son 1. okt. 1928—31. maí 1945
og Stefán Jóh. Stefánsson frá 1.
júni 1945 og síðan. Sigurjón Jó-
hannsson skrifstofustjóri gegndi
þó forstjórastörfum í ráðherra-
tíð Stefáns 1947—1949.
FILMÍA hefur
svningar aftur
Sýningar Filmíu hafa legið
niðri vegna, hátíðanna, en hefj-
ast aftur í dag. Þá verður
sýnd sænska myndin I biðsal
dauðans eftir samnefndri sögu
Svens Stolpe. Höfundur mynd-
arinnar er Hasse Ekman og
leikur hann sjálfur annað aðal-
hlutverkið. Hitt leikur Viveca
Lindfors.
Ætlunin hafði verið að sýna
ensku myndina Oliver Twist,
en hún komst ekki til landsins
í tæka tíð. Sýningin í dag hefst
kl. 3, en önnur sýnirig verðus
á morgun kl. 1.
Laugavegi 36 — Sími 82209
Fjölbreytt úrval af
steinhringum. — Póstsenéum
Sósíalistar í
Reykjavík
vinsamlega komlð í skrif-
stofu Sósíalistafélagsins f
Tjamargötu 20 og greiðif
félagsgjöld ykkar.