Þjóðviljinn - 05.01.1957, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.01.1957, Blaðsíða 5
Laugardagur 5. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Skákbréf frá Framhald af 4. síðu. hjá Penrose og Alexander, og hefur Penrose bætt aðstöðu sína. Klukkan er nú 18 eftir ensk- um tíma. Keppendur hafa teflt í 4 stundir og eiga nú klukku- stund eftir, þangað til skákir verða settar í bið. Horfumar hjá Friðrik eru nú betri held- ur en áðan, en staðan er samt mjög erfið. Toran var að gefast upp fyr- ir Clarke. Hafði Clarke beðið með fráskákina þar til hún reyndist alveg banvæn. Gligoric hefur unnið peð, en vafasamt er hvort hann heldur því. Rétt í þessu semja þeir jafntefli Penrose og Alexander. Hefur Alexander peð yfir í iokastöðunni, en Penrose hafði náð gagnsókn. Friðrik og Larsen hafa nú leikið 24 leikjum og eiga því eftirr 16 í tilskildum umhugs- artíma. Larsen á aðeins 10 mínútur, Friðrik 17. Friðrik hefur nú náð gagnsókn og rænt peði. Má Larsen fara að gæta sín. GÍigoric á 9 mínútur fyrir 20 leiki, og staðan er ennþá flókin hjá honum. Ikæruliðar i Ungverja- lattdi Fréttaritari United Press í Búdapest hefur það eftir blaði þar í borg, að sveitir vopnaðra manna hafizt enn við í skógum á þrem stöðum í Ungverjalandi, nálægt borgunum Miskolc og Pecs og við Balátonvatn. Ann- að blað skýrir frá því að lög- reglan hafi nýlega fundið mikl ar vopnabirgðir hjá Karaluka vestarlega í landinu. Pravda, málgagn Kommún istaflokks Sovétríkjanna, ræðir 5 gær feril þeirra Rakosis og Gerös í Ungverjalandi, og segir að þau sýni, hve háskalegt sé að láta sér lífs- kjör almennings í léttu rúmi Jiggja og hafa að engu sér- einkenni þjóða. -<s> Israelsher Ji’ramh. af 1. síðu niður í Súezskurð. Við það opn- aðist leið til sjávar fyrir 13 skip, sem króuð hafa verið inni síðan Bretar og Frakkar réðust á Egyptaland. Er búizt við að þau haldi norður til Port Said í dag. Stjóm Egyptalands afnam í gær ritskoðun á símskeytum, sem sett var fyrir tveim mánuð- um leið og árás Breta og Frakka hófst. Fjórir menn úr sænska flokkn- um í liði SÞ særðust dálítið í gær, þegar bíll þeirra lenti á jarðsprengju. Ræða herkostnað- inn í Þýzkalandi Stjórnir Bretlands og Vest- nr-Þýzkalands hefja í næsta mánuði viðræður um þátttöku Vestur-Þýzkalands í greiðslu kostnaðar af setu 80.000 manna brezks liðs í Vestur-Þýzka- landi. Friðrik á nú 10 mínútur fyr- 14 leiki, Larsen 8. Friðrik á mann í uppnámi, bjargar hon- um og styrkir stöðu sína um leið. Virðist hann munu halda þrem peðum fyrir skiptamun- inn; og þar sem kóngsstaða h'ans er næsta örugg, ætti hann nú að hafa vinningslíkur. Larsen fórnar peði til þess að opna fleiri línur til sóknar. Keppendur leika hratt. Friðrik nær drottningauppskiptum og á nú 5 peð á borði, Larsen 2. Auk þess hefur Friðrik hrók, biskup og riddara, en Larsen tvo hróka og riddara. Þeír eiga nú 6 leiki eftir. Larsen hefur 2 mínútur, Frið- rik fjórar. Larsen fer í ridd- arakaup. Verða nú harðar sviptíngar, þótt staðan sé ekki ýkja flókin. Skyndilega er Friðrik kominn með tvö sam- stæð frípeð. Auk þess hefur harm þriðja frípeðið á B-lín- unni. Þeir hafa nú lokið 40 leikjum og ætti Friðrik að geta unnið biðskákina. Gligoric og Horseman tefla nú hraðskák. Virðist sem Horseman ætli að sigla skipi sínu heilu í höfn, en einmitt þegar brotsjóum tímahraksins er að linna, fellur maður fyrir borð. Klukkan 9 um kvöldið, er barið á dyr númer 37, á hótel Chatsworth, þar sem við Frið- rik búum nú í skjóli frá haf- golunni. Inn stígur Larsen, tek- ur í höndina á Friðriki og gef- ur biðskákina. „Eg lék Hfl í biðleik og var að hugsa um að sprikla eitthvað með h4, en þú leikur bara Kg6 og síðan He8. Þá er öllu lokið.“ Þannig lýkur þessari erfiðu skák. Staðan eftir 2. umferð: vinn. 1. Friðrik 2 2. —3. Gligoric og O’Kelly Wh. 4.—7. Szabo, Larsen, Alex- ander og Clarke 1 8.—9. Penrose og Horseman V2 10. Toran 0 Skákín: Friðrik—Penrose: 1. d4—Rf6 2. c4—e6 3. Rc3— Bb4 4. e3—c5 5. Rf3—Rc6 6. Bd3—0-0 7. 0-0—Bxb3 8. bxc3 —d6 9. Rd2—e5 10. Rb3—He8 11. f3—b6 12. e4—Rhö 13. g3 —Bh3 14. Hf2—g6 15 d5—Rb8 16. a4—a5 17 Bh6—Rd7 18. Dd2—Rg7 19. g4—Rf8 20. Khl —Í5 21. gxf5—Ha7 22. Hgl —gxf5 23. exf5—Kh8 24. Bg5 —Dc8 25. BÍ6—Bxf5 26. Dh6 —He7 27. Hg2 Gefið. Mikill fjöldi vísindamanna frá mörgum pjóðum, örezkir, bandarískir. norskir, sovézkir o.fl., vinna nú að fjölpættum rannsóknum á suðursJcauts- landinu og eru pœr páttur í hinu alpjóðlega samstarfi „jaröeðlisfrœðiárs- ins“, sem reyndar á ekki að hefjast fyrr en um mitt petta ár. Myndin sýnir nokkra pátttakendur í brezka leiðangrinum, sem mun leggja leiö sína yfir pvert suðurskautslandið, við brottförina frá Lo^idon. Skipið sem flytur pá suöur á bóginn er danskt, Magga Dan. Ný stjórn í Japan táliit-mutiu taka upp hfytieysisstefnu ■ Þau öfl í stjórnarflokknum sem eru á móti fylgispekt v/S USA urÖu ofan á Stjórnarskipti sem urðu í Japan skömmu fyrir áramót eru talin munu auka líkur á sjálfstæÖTi japanskri utan- ríkisstefnu meö áherzlu á vinsamlega sambúS viö Kína og Sovétríkin. 18. desember sl. var Japan tekið í Sameinuðu þjóðirnar og var það gert með samhljóða atkvæðum allra aðildarríkja. Upptaka Japans í SÞ var bein afleiðing af samningi þess og Sovétríkjanna um að taka upp eðlilegt stjórnmálasamband, en hann var gerður 19. október. Vinstri flokkarnir í Japan, og þar er einkum um að ræða hinn sameinaða sósíalistaflokk, hafa lengi barizt fyrir því að Japan taki upp sjálfstæða ut- HANDRIÐ anríkisstefnu, hætti fj’lgispekt- inni við Bandaríkin og hefji viðskipti við Kína og Sovét- ríkin. Margt bendir til að þessari stefnu liafi að undanförnu vax- ið fylgi innan hins íhaldssama stjórnarflokks, Frjálslynda lýð- ræðisflokksins, en athyglisverð- ar breytingar hafa nýlega átt sér stað innan hans og stjórn- arforystu hans. Nýr forsætisráðherra Hatojama forsætisráðherra hafði talið það eitt helzta verk- efni stjórnar sinnar að koma á eðlilegri sambúð við Sovétríkin. Eftir að samningar þess efnis . höfðu verið undirritaðir í Smíðum og_ setjum upp j|Moskva j október, var ljóst að L n vwl m A >v«i Ac4-/\A'nn i*IroT-lo ! hann myndi vilja draga sig 1 handrið, miðstöðvarkatla og framkvæmum hvers konar nýsmíði og viðgerðir JÁRNSMIÐJAN að Bjargi við Sundlaugaveg ■■«■■■■■■■■«■•■•■> Verzlunarfyrirtœki í Reykjavík óska. eftii’ vönum og traustum manni, sem getur tekiö aö sér stjórn á matvörubúö. Tilboö sendist í pósthólf 361 fyrir 10. þ.m. hlé, enda orðinn aldraður mað- ur, 73 ára. Um miðjan desember var síð- an haldið sérstakt þing Frjáls- lynda lýðræðisflokksins til að velja eftirmann Hatojama. Þar urðu einkum átök milli tveggja fylkinga. Þeir leiðtogar flokks- ins sem vilja hafa sem nánasta samvinnu við Bandaríkin studdu framkvæmdastjóra flokksins Nobosuke Kishi, en fylgismenn sjálfstæðari stefnu í utanríkis- málum studdu Tanzo Ishibashi, f.yrrv. verzlunarmálaráðherra. Niðurstaða þessara átaka varð sú, að sá síðarnefndi vann nauman sigur, var kosinn eftir- maður Hatojama í embætti for- sætisráðherra með 258 atkvæð um gegn 251. Aukin verzlun við Kína Bandarísk blöð hafa ekki leynt vonbrigðum sinum með þessa niðui'stöðu átakanna inn- an stjórnarflokksins, sem ræð ur yfir 299 fulltrúum af 467 á japanska þinginu. Þau ganga þess ekki dulin að eftir þessa breytingu muni reynast erfitt að knýja Japani til að fylgja boði Bandaríkjanna í einu og öllu. Ishibashi hefur nefnilega get- ið sér orð fyrir að vera ein- dreginn andstæðingur þeirrar stefnu Bandaríkjanna að banna viðskipti við Kína, hann telur Japönum lífsnauðsyn að auka þessi viðskipti sem áður fyrr voru svo mikilvæg japönskn efnahagslífi. Hann hefur einnig krafizt þess að endurskoðaðir verði hernaðarsamningar Japw ans og Bandaríkjanna með það fyrir augum að Japanir takí smám saman einir við öllura vörnum landsins. Samvinna við önnur Asiuriki j Valdataka Ishibashi og þeirra; afla í japanska stjórnarflokkll- um sem honum fylgja að mál- um þýðir því spor í áttina til aukinnar samvinnu ríkja Asíu og mun að líkindum verða til þess að styrkja mjög þá lúut- leysisstefnu þeirra sem setur æ meir svip sinn á stjómmál heimsins. Eisenhower Framh. af 1. síðu það væri ekki rétt að Banda- ríkin ætluðu á ný að bjóða Egyptum fé til að kosta stór- virkjun Nílar við Assvan. 1 gær kom upp sá kvittur í Washington, að ríkisstjórnin hefði til athugunar áætlun um að bjóða bandaríska fjárhags- aðstoð til að gernýta Níl frá upptökum til ósa. Væri rætt um að bjóða öllum ríkjum sem land eiga að fljótinu aðild að slíkri áætlun sem hefði að markmiði að beina athygli þjóð- anna frá pólitískri togstreitu að atvinnuframkvæmdum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.