Þjóðviljinn - 05.01.1957, Qupperneq 7
Laugardagur 5. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (7
SKORDYB
hugsa ekki
'jHr Saml hdur frægur dýrairæS
ingur lagt lil að samfélar
mauranF.a yrði haft að fyrii'
mynd að samfélagi manna.
^ Samt kami g@ifungurinn að út-
vega afk©manda sínum ríku-
legt forðabúr. -
'ic Samt verða til hermaurar og
vinnumaurar í fermífasamfé-
lagi í nákvæmu samræmi við
þarfir samfélagsins.
Termítabúin rísa á sléttum Mið-Afríku
eins og myndarlegustu hólar.
Tarantúlan hefst við í
djúpum, pípulaga göngum
og kemur ekki upp til
veíða nema í náttmyrkri.
’ Langt er sSðan dýrafræðing-
ar ályktúðu að dýr hugsi ekki,
og þá að sjálfsögðu ekki þau
þeirra er . teljast til skordýr-
anna. IJm þetta mun ekki
framar deilt. Samt verða menn
áskynja, einnig meðal skor-
dýra, at.hafna og breytni, sem
freistandi er að telja afleið-
ingu hugsunar. En áður en
lengra er haldið, er ástæða til
að leggja áherzlu á þetta:
Þau hugsa ekki.
★ SNIIXI GEITUNGSINS OG
FÉLAGSKENND MAUBA
Hve'rnig má það vera, að
hinn fallegi en hræðilegi geit-
ungur finnur einmitt þá teg-
und kóngulóarinnar taran-
túlu, sem hann kýs sér, lamar
hana með eitri og festir síðan
egg sitt á afturhluta hennar,
en með því tryggir hann af-
spring sínum forðabúr sem
ekkert getur rotnað í, þar til
loks ekkert er eftir nema kit-
ín-grindin ?
Hverhig má það verða að
mauramir.. sem raunar eru
fremur frumstæð dýr, lifa í
marggreindu samfélagi, 100—
15000 dýr, og viðhafa fjöl-
breytilegustu hegðun?
Hvemig má það verða, að
flest þeirra 20000 eggja, sem
frjósöm termítadrottning get-
ur átt á sólarhring, skuli
verða að mismunandi stéttum,
t.d. hermaurar og vinnumaur-
ar, enda þótt ekki sé um
neinskonar „þjálfun“ að ræða?
Og meira að segja vaxa
nokkrum þeirra kynfæri, ef
drottningin deyr, andstætt
ölluirf „systkinum" þeirra, og
verða svonefndir uppbótar-
framleiðendur nýrra kyn-
slóða?
Um þessi mál og mörg önn-
ur, undursamleg efnaskipti
kólibrífuglanna, um getu eyði-
merkurrottunnar að vera án
vatns, um ferðaskyn fuglanna
og „ratsjá“, um mál býflugn-
anna, er fjallað í fallegri og
spennandi bók, greinasafni úr
handaríska tímaritinu Scienti-
fic American, sem nýlega kom
út á dönsku með heitinu
„Undraheimur dýranna" (Dyr-
enes forunderlige verden).
Þar segir einn . fremsti
kóngulóasérfræðingur heims-
ins, Alexander Petrunkenvitch
prófessor við Yale-háskólann,
frá hinum sögulega fundi geit-
ungsins og tarantúlunnar.
Flestar tarantúlutégundim-
ar hafast við í hitabeltislönd-
um. Þær eiga sér bú í djúp-
um neðanjarðargöngum og
koma ekki upp á yfirhorðið
nema í myrkri. Sjón þeirra er
svo dauf áð þær sjá einungis
hluti á hreyfingu og breyt-
ingar á birtu.
Hinsvegar hafa þær, eins og
allar loðnar kóngulóartegund-
ir, næmt snertiskyn og hefur
verið fundið með tilraunum í
rannsóknarstofum að taran-
túlan greinir milli þrennskon-
ar snertingar. Við þrýsting á
sjálfan kroppinn færir kóngu-
lóin sig lítið eitt, en komi
þrýstingurinn ofan að, veldur
hann varnarsvcrun, hún rís
þá upp á afturfæturna og opn-
ar ógnandi skoltana. Verði
hár fyrir snertingu, t.d. lítils
skordýrs, og sé kóngulóin
svöng, ræðst hún á það. Sé
hún hins vegar södd, veldur
snertingin ekki öðru en því að
hún hristir hlutaðeigandi lim.
Á fótunum hefur hún einnig
mjög smáger hár. Verði þau
fyrir andblæ, flytur dýrið sig
úr stað.
En allt þetta varnarkerfi er
ónýtt, þegar geitungurinn fer
á veiðar eftir forðabúri handa
lirfu sinni. Kóngulóin reynir
að bjarga sér með eðlisbundn-
um varnaraðferðum, en geit-
ungurinn virðist fara að öllu
með gát.
★ í GRÖFINNI — LÖMUÐ
EN EKKI DAUB
Geitungurinn er furðulega
nákvæmur í vali fórnardýr-
anna. Hver geitungategund á
sér sína sérstöku tarantúlu-
tegund og ræðst aldrei á dýr
annarrar tegundar. Þegar geit-
ungurinn finnur bráð, rann-
sakar hann hana gaumgæfi-
lega með fálmurunum. Hann
skriður yfir kóngulóna og
undir hana, án þess að hún
snúist til vamar, þótt undar-
legt megi virðast. Loks er
geitungurinn ánægður með
bráðina, og tekur þá að grafa
gröf kóngulóarinnar. Hann
grefur sig 20—25 cm niður.
Öðm hvom rekur hann haus-
inn upp úr til að sjá hvort
kóngulóin bíður enn! .
Lok þessa leiks eru hin
grimmilegustu. Geitungurinn
ræðst á kóngulóna til að.
Er geitungurinn hefur
lamað kóngulóna og verpt
á líkama hennar dregur
hann bráð sína í gröf, og
þar étur geitungslirfa sig
inn í kóngulóna.
stinga hana eiturbroddi á þeim
eina stað sem þess er kostur,
á mótum fótanna og kropps-
ins. Kóngulóin reynir að verj-
ast, en geitungurinn sækir á
og tekst að lokum það sem
hann ætlar sér. Nærri sam-
stundis veltur kóngulóin á
bakið, hjarta hennar hættir að
slá, en þó er hún ekki dauð.
Geitungurinn drggur nú
kóngulóna með miklum erfið-
ismunum niður í tilbúna gröf-
ina. Stundum dvélst honum
þar aðeins nokkrar mínútur,
stundum klukkutímum saman.
Enginn veit hvað hann að-
hefst, auk þess að verpa eggi
sínu og festa það með lím-
kenndum vökva við bakhluta
kóngulóarinnar. Þegar hann
loks kemur upp, fyllir hann
gröfina mold og grasi og
stappar rækilega niður. Það á
að ganga svo frá gröfinni að
enginn svangur flakkari ræni
hann árangri erfiðis síns.
Geitungurinn á ekki nema fá
egg. Handa hverju eggi þarf
hann eina tarantúlu, og það
einkennilega er að kóngulóin
virðist haga sér furðu óskyn-
samlega en geitungurinn virð-
ist vita fullvel hvað hann
ætlar sér. Að tarantúlumar
skuli samt sem áður ekki
deyja út, er því að þakka að
kvendýrið á 200—400 egg
hverju sinni. Og sleppi hún
við geitunginn getur hún hæg-
lega átt nokkur þúsund af-
komenda.
★ LYKTIN VÍSAR FYLK-
INGUNNI LEID
Maurar em fjölskipaðasta,
elzta og útbreiddasta dýra-
tegund jarðar. Til em um
3500 maurategundir. Vitað er
að fyrir 65 milljónum ára
skriðu maurar um jörðina, og
í dag hafast þeir við hvar-
vetna nema þar sem kaldast
er. f áðurnefndri bók segir
bandaríski dýrafræðingurinn
T. C. Schneirla og ritstjóri
Scientif'o American, Gerard
Piel frá skemmtilegustu
maurategundinni, hinum svo-
nefnda hermaur.
Þeir félagar hafa einkum
athugað hvað það er sem
komi maurunum af stað í
ferðir sínar, en þá fara þeir
í miklum fylkingum langar
leiðir, og hvíla sig öðru hvoru.
Hlýtur skipulagning þjóðfé-
lags þeirra að vekja aðdáun
kunnugra, því svissneski nátt-
úrufræðingurinn Auguste For-
el lagði til að Þjóðabanda-
lagið sáluga tæki maurana til
fyrirmyndar við skipulagningu
heimsins!
Talið er að það sé vaxtar-
þörf ungmauranna. vinnu-
fólksins tilvonandi, sem valdi
Framhald á 10. síðu.
Tarantúla-kónguló hefur hamskipti. Þó hún sé ófrýnileg í framan (efst til
hægri) er tarantúlan hœttulaus mönnum. Myndin í horninu til vinstri
sýnir eiturtönnina sem hún notar til að drepa bráð.
*
*