Þjóðviljinn - 05.01.1957, Blaðsíða 8
I
'g^':— ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 5. janúar 1957
í
JP
ÞJÓDLEIKHÚSID
Ferðin til tunglsins
barnaleikrit eftii Bassewitz
Þýðandi: Stefán Jónsson
Leikstjóri: Hildur Kalman
Músík eftir Schamalstieh
Hljómsveitarstjóri:
Dr. Urbancic
Frumsýning
laugardag 5. jan kl. 15
Næsta sýning þriðjudag
kl. 18.00.
Töfraflautan
ópera eftii Mozart
sýning sunnudag kl. 20.00
AðgÖngumiðasalan opin frá
ki. 13.15 til 20. Tekið á móti
pöntunum. Sími 8-2345, tvær
línur.
Pantanir sækist daginn fyrir
sýningardag, annars seldar
öðrum.
Sími 1475
Morgunn lífsins
eftir Kristmann Guðmuiids-
son. Þýzk kvikmynd með ísl.
skýringartexta. Aðalhlutverk:
Wilhclm Borchert
Heidemarie Hatheyer
Sýnd kl. 5 7 og 9.
Sími 1544
Desirée
Glæsileg og íburðarmikil
amerísk stórniynd tekin í De
Lux-litum og Cinemascope.
Sagan um Desirée hefur
komið út í ísl. þýðingu og ver-
ið lesin sem útvarpssaga:
Aðalhlutverk:
Marlon Branðo
Jean Simmons
Michael Rennie
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Sími 1334
Ríkhaiður Ljóns-
hjarta og kiossfar-
arnir
(ICing Richard and the
Crusaders)
Mjög spennandi’ og stórfeng-
leg, ný, amerísk stórmynd i
litum, byggð á hinni frægu
sögu „The Talisman" eftir
Sir Walter Scott
Myndin er sýnd í
CinemaScopC
Aðalhlutverk:
George Sanders,
Virginia Mávo,
Rex Harrison,
Laurence Harvey.
Bönnuð börnum
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sími 6444
Captain Lightfoot
Efnismikil og spennandi ný
amerísk stórmynd í litum
Rock Hudson
Barbara Rush
Symd í dag kl. 5. 7 og 9
Sími 81936
Héðan til eilífðar
(From Here to Eternity)
Stórbrotin amerísk stór-
mynd eftir samnefndri skáld-
sögu James Jones ,,From
Here to Eternity“. Valin bezta
mynd ársins 1953. Hefur hlot-
•ið 8 heiðursverðlaun, fyrir:
Að vera bezta kvikmynd árs-
insi Bezta leik í kvenauka-
hlutverki. Bezta leik í karl-
aukahiutverki, Bezta leik-
stjóm, Bezta kvikmyndahand-
rit. Bezta Ijósmyndun. Bezta
samsetningu. Beztan hljóm.
Burt Lancaster. Montgomery
Clift. Deborah Kerr. Donna
Reed. Frank Sinatra. Ernest
Borgine.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.15.
Bönnuð innan 14 ára.
m r •'l'l "
l npolibio
Sími 1182
MÁRTY
Myndin hlaut eftirtalin
OSCAR-verðlaun árið 1955:
1. Sem bezta mynd ársins.
2. Ernest Borgnine fyrir bezta
leik ársins í aðalhlutverki.
3. Delbert Mann fyrir beztu
leikstjórn ársins.
4. Paddy. Chayefsky fyrir
bezta kvikmyndahandrit
órsins.
MARTY er fyrsta ameríska
myndin, sem hlotið hefur 1.
verðlaun (Grand Prix) á
kvikmyndahátíðinni í Cannes.
MARTY hlaut Bambi-verð-
launin í Þýzkalandi, sem bezta
ameríska myndin sýnd þar
árið 1955.
MARTY hlaut Bodil-verð.
launin í Danmörku, sem bezta
ameríska myndin sýnd þar
árið 1955.
Sýnd kl 5 7 og 9.
Sími 6485
(The Court Jester)
Heimsfræg ný amerísk gam-
anmynd.
Aðalhlutverk:
Danny Kay.
Þetta er myndin, sem kvik-
myndaunnendur hafa beðið
eftir.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
MUMIÐ
Kaffisölnna í Hafnarstr. 16
Það er aldrei að vita
Gamanleikur eftir Bernard
Shaw.
Sýning sunnudagskvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
4—7 í dag og eftir kl. 2 á
morgun. Simi 3191.
Síðasta sinn.
Horfinn heimur
ítölsk verðlaunamynd í Cin-
ema-scope og með segultón.
Fyrsta sinn að slik mynd er
sýnd hér á landi. Myndin er
í Ferraniacolor, og öll atriði
myndarinnar. eru ekta.
Sýnd kl. 7 og 9.
KÁTI KALLI
Þýzk barnamynd. Sagan hef-
ur komið út á íslenzku.
Sýnd kl. 5
Hafnarfjarðarbíé
Sími 9249
Norðurlanda-frumsýning á
ítölsku stórmyndinni
Bannfæiðar konur
(Donne Proibite)
Ný áhrifamikil ítölsk stór-
mynd.
Aðalhlutverk leika:
Linda Damell
Anthony Quinn
Giulietta Masina þekkt úr
„La Strada“.
Sýnd kl. 7 og 9.
Danskur texti
Bönnuð börnum
Drottnari Indlands
(Chandra Lekha)
Fræg indversk stórmynd,
sem Indverjar hafa sjálfir
stjórnað og tekið og kostuðu
til of fjár. Myndin hefur
allstaðar vakið mikla eftir-
tekt og hefur hún verið
sýnd óslitið á annað ár í
sama kvikmyndahúsi í New
York.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Danskur skýringartexti.
Næst-síðasta sinn.
Boðskapurforseta
HAPNflRFlRÐJ
Sími 9184
Framhald af 6. síðu.
sögu eða hag þjóðarinnar á
yfirstandandi tíma, menningu
hennar, þjóðleg afrek, alþjóð-
lega aðstöðu, o.s.frv., o.s.frv.
Fyrir mitt leyti saknaði ég
í þessari ræðu forsétans já-
kvæðra ummæla um þá miklu
stefnubreytingu sem varð í
stjórnmálum landsins við
myndun núverandi ríkisstjórn-
ar, þar sem allar vinnandi
stéttir landsins taka höndum
saman um viðreisn atvinnu-
veganna. Afstöðu til herset-
unnar hef ég áður nefnt.
Einnig þótti mér sæta mikilli
furðu að forsetinn skyldi ekki
minnast sérstaklega á hina
sögulegu opinberu heimsókn
dönsku konungshjónanna á s.
1. ári, Friðriks níunda og Ingi-
ríðar drottningar, því að sá
atburður táknaði að lokið var
öllum kala Dana í okkar garð
vegna hinnar ósmekklegu og
ögrandi framkomu nokkurra
íslenzkra stjómmálamanna á
meðan Danmörk var hersetin.
Þesskonar gleymska má ekki
eiga sér stað. ■ Þessvegna var
jafnvel ennþá óafsakanlegra
að afgreiða hið blóðuga her-
veldi Hitlers og þýzka fas-
ismans með lélegri og ótíma-
bærri fyndni, því að vitaskuld
em okkur öllum í fersku
minni þær búsifjar sem hin
danska bræðraþjóð vafð að
þola af völdum Þjóðverja á
stríðsárunum, eins og aðrar
vinaþjóðir okkar í Evrópu
sem margar hverjar bera ekki
þann dag í dag sitt barr eftir
allar þær hörmungar, eyði-
leggingu og áþján, og lifa enn
í stöðugum ótta við hina
þýzku hernaðarvél. Þessi um-
mæli forsetans voru því ó-
heppilegri þar sem heimurinn
var einmitt að enda við að
fá þá vitneskju að afráðið
mundi vera að fela þýzkum
hershöfðingja yfirstjórn alls
herafla Norðuratlantshafs-
bandalagsins á meginlandi
Evrópu (Miðevrópu), með
öðrum orðum: Þýzkur fasisti
undir stjórn þýzka herfor-
ingjaráðsins með vetnis-
sprengjuna að vopni á að
gæta friðar og lýðræðis á
þessum slóðum, þar á meðal
í okkar nafni.
Loks tel ég óviðeigandi að
eigi skyldi í áramótaboð-
skapnum vera minnzt á fyrir-
hugaðar opinberar heimsókn-
ir þjóðhöfðingja Finna og
Svía hingað til lands á þessu
ári og þeim fágnað. I sam-
bandi við heimsókn Svíakon-
ungs voru furðulega niðrandi
og ósmekkleg ummæli forset-
ans um hlutleysi þjóða í hern-
aði. Hlutleysið hefur verið
skjöldur og skjól Svía og
Svisslendinga í meira en heila
öld, og er yfírlýst framtíðar-
stefna þeirra og margra ann-
arra ríkja, þar á meðal stór-
veldis á borð við Indland.
Hlutleysi Islands í hernaði er
og hefur verið óskadraumur
allra heiðvirðra íslendinga,
hvar í flokki sem þeir standa.
Þetta tómlæti gagnvart
bræðraþjóðum okkar á Norð-
urlöndum og þögnin um þær
í ræðunni samfara lofgerð um
hernaðarbandalag við hin
vestrænu nýlendu- og hernað-
arstórveldi verður skoðað sem
yfirlýsing forsetans um það
að í rauninni eigum við ís-
lendingar ekkert vantalað við
Norðurlönd framar. 'Þessi
framkoma er sem betur fer
ékki rétt mynd af þjóðarvilj-
anum.
í sjálfu sér gefur þessi ný-
ársboðskapur forsetans tilefni
til miklu fleiri athugasemda
og hugleiðinga, en þar eð þau
atriði snerta yfirleitt okkur
Islendinga eina, læt ég hér
staðar numið að sinni.
Mig langar til að biðja yð-
ur, herra forsætisráðherra,
að svara þessum spumingum:
1. Hver samdi áramótaræðu
forsetans ?
2. Við hvað er átt með hin-
um tilvitnuðu ummælum hér
að framan, að stjómarskiptin
hafi orkað tvímælis?
3. Hvað olli hinni hljóðbæru
þögn ræðunnar um Norður-
lönd?
4. Var ræðan borin undir
ráðuneyti yðar?
5. Fékk forsetinn lieimild
ríkisstjórnarinnar til þess að
flytja ræðu sína í þeirri mynd
sem hún birtist?
Eg leyfi mér að vænta þess
að þér birtið heiðrað svar yð-
ar við þessum spuraingum í
dagblöðunum og ríkisútvarp-
inu, svo að almenningi gefist
kostur á að átta sig á málinu.
Að svo mæltu vil ég óska
ráðuneyti yðar og yður per-
sónulega gæfu og gengis &
hinu nýbyrjaða ári og mikils
árangurs um framgang þeirr-
ar jákvæðu stefnu sem stjóm-
in hét að efla í utanríkis- og
innanlandsmálum á þessu
kjörtímabili.
Reykjavík, 3. janúar 1957.
Virðingarfýllst,
Þorvaldur Þórarinssoiiíi.
TILKYNNIHG
Nr. 3/1957.
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið að inn-
lendar framleiðsluvörur, sem ekki er auglýst sér-
stakt hámarksverö á, megi hækka í heildsölu um
2,83%, þar sem það á viö vegna hækkunar opin-
berra gjalda við stofnun útflutningssjóðs. Smásölu
verð sömu vara má þó ekki hækka frá því sem
verið hefur. Hinsvegar nær tilkynning verölags-
stjóra nr. 1 frá 2. jan. 1957 um lækkun á smá-
söluverði vegna afnáms söluskatts ekki til þessara
vara.
Reykjavík, 4. jan. 1957.
Verðlagssljéziiui.
r