Þjóðviljinn - 05.01.1957, Síða 11
Laugardagur 5. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (11
76. cLagw
Leonard Wilby var aftur farinn að titra, og hann
stóð sig að því að stara á gljáandi yfirborð harðviðar-
bakkans tímunum saman, eins og hann gæti fært
honum einhvern frið. En bakkinn hafði ekkert að veita
honum. Ekkert svar var skrifað á hann, engar talnaraðir
sem veittu honum ákúrur og sýndu honum hans eigin
mistök.
Hann leit aftur í flugskýrslu sína og reyndi að finna
ellefu glataðar mínútur. Hann togaði í undirhökuna á
sér og reyndi að einbeita huganum að hinni einföldu
stærðfræði tveggja síðustu vindmælinga sinna. Mismun-
urinn á áætlaðri stöðu hans sjálfs í loftinu og stöðunni
sem loftsiglingafræöingur björgunarvélarinnar mældi,
var ofboðslegur. Ellefu mínútum vestar .... ellefu mín-
útum fjær ströndinni, ellefu mínútum áém gátu gilt
muninn á því að skríða þakksamlega upp í rúmið til
Susie, eða sjá Susie ef til vill aldrei framar. Sennilega
yrði vínlykt af henni, það var það venjulega, og ef til
vill þrjózkaðist hún við að vakna, en hún væri þar,
hlý og mjúk, áþekkust lítilli telpu sem svaf eftir erfiðan
leik. En þessar ellefu mínútur? Sullivan heimtaði skýr-
ingu á þeim — án tafar, eins og hann hafði fullan rétt
til. Hann varð aö fá að vita hvort loftsiglingafræöingur
björgunarflugvélarinnar hafði rétt fyrir sér, eð'a hvort
Leonard Wilby, sem hann lagði allt sitt traust á, hafði
á réttu að standa.
„Leonard! Svona nú, lagsi! Hvernig liggur í því?
Tíminn er dýrmætur“.
„Andartak stjóri. Ég er enn að athuga þetta“.
Tíminn var dýrmætur. Tíminn var bókstaflega að
fara til ónýtis. Heilar ellefu mínútur voru horfnar, guf-
aöar upp í tómið mikla, og maðurinn sem varð að
finna þær og raða þeim inn á næstu tímatöflu, skalf
eins og flogaveikisjúklingur. Ef þú getur fundið þessar<$>
mínútur, hverfur skjálftinn. Þú endurheimtir sjálfs-
traust. þitt, gamli minn, og flýttu þér því að finna þær.
Hættu þessum skjálfta. Reyndu að finna mínúturnar og
Susie. Mínútur, mínútur .... hver er með mínúturnar?
Susie er með mínúturnar og hún hefur tyllt þeim á
endann á tannstönglinum í Martiniglasinu sínu. Susie,
fáðu mér mínúturnar. Ég þarfnast þeirra undir eins.
„Svona nú, Lennie. Á hverju stendur?11
„Ég er alveg að koma“.
„Flýttu þér“.
Átti hann að flýta hugsunum sem þutu nú þegar
gegnum heilann með svo miklum hraða, að hann gat
ekki annað en setið álengdar og horft. á þær þjóta
framhjá? Þú ert ekki meö réttu ráði, flugstjóri. Þú
þolir ekki þessa áreynslu. Loftsiglingafræði byggist á
nákvæmni og varfærni og flýtir kernur ekki til greina.
Þú verður að muna að ég hef ratað skekkjulaust yfir
höfin undir stjörnunum árum saman, og mér getur
ekki skjátlazt — ekki núna, þegar ellefu mínúturnar
eru okkur svo dýrmætar. Þaö er hinn loftsiglingafræð-
ingurinn sem gerir skyssu. Hann er sennilega lítt. reynd-
ur maður. Hann hefur sennilega verið ónákvæmur í út-
reikningum sínum, því að hvað varðar hann um ellefu
mínútur? Hann gæti verið ellefu mínútum eldri án þess
að finna vitund til þess. í augum hans gætu ellefu
mínútur aldrei virzt sem ellefu ár. Honum stæði á sama
um þær, enda hefði hann enga Susie að hverfa heim til.
,,Ó, guð minn góður! Guö minn almáttugur".
Leonard lokaði augunum og oröin liðu af vörum
hans í hásu hvísli. Því að hann var búinn að finna
skekkju sína, og honum ofbauð hve ofsaleg hún var.
Hann hafðí gert dálítiö sem ekki var hægt að skýra
.... sem var alveg ótrúlegt. Það var skjálftanum aj>
kenna. Hann hlaut að hafa kippt heilataugunum úr
sambandi,- lamað þær svo aö honum hafði sézt yfir
það sem lá í augum uppi. Nú var auðvelt að horfa til
baka og skilja til fulls hvenær og hvernig skyssan
hafði oröið. Aðeins óttasleginn maöur gat gert sig sekan
um annað eins glapræði. Aðeins maöur sem var skelf-
ingu lostinn og treysti í blindni á bjargræði annars
manns gat framið þvílíka skyssu.
Þegar eldurinn blossaði upp og logarnir stóðu út úr
hreyflinum hlaut óttinn aö hafa gripið hann og lamaö
heila hans. Og orö flugmannanna og áhyggjur þeirra
yfir flugi vélarinnar höfðu riðið baggamuninn. Leonard
Wilby, þrautreyndur loftsiglingafræðingur, viðurkennd-
ur af stjórn og flugfélagi, hafði gert þá barnalegu villu
að gleyma aö breyta mílum á klukkustund í hnúta!
Árum saman hafði hann lesiö hraða vélarinnar af
mælinum fyrir ofan vinnuborö sitt. Hann sýndi sjó-
mílur, eða hnúta í samræmi við heimskortin. En flug-
hraði flugmanna var reiknaður í mílum á klukkustund
eins og vera bar. Á þessu var reginmunur. Hnútur var
hér um bil einn og einn firnmti úr mílu. Og í þessu
tilfelli hafði munurinn orðið ellefu ómetanlegar mínút-
ur. Leonard mundi þetta glögglega núna. Hann hafði
spurt Sullivan um hraöann í stað þess aö lesa hann
af sínum eigin mæli. Sullivan hafði horft á mælaborðiö
og kallað upp tölur — einn þrjátíu og tvo og einn
þrjátíu og sex. Hann talaði í mílum á klukkustund og
Leonard hlustaöi í hnútum. Og án þess að hugsa haföi
hann skrifaö tölurnar inn á skýrslu sína. Þegar hann
bar þær síðar saman við miðun sína gáfu þær von um
að þeir kæmust fyrr til strandar — ellefu mínútum
fyrr en raun var á.
Stjóri?“ Skjálftinn hafði horfið allt í einu og nú var
Leonard fullkomlega rólegur. Hugur hans var skýr og
sér til undrunar fann hann aö hann var ekki lengur
hræddur. Hann reis upp og togaöi buxurnar upp fyrir
ístruna „Stjóri, geturðu komið hingað andartak?“
Hann vissi hvað hann ætlaði að segja og að sumu leyti
yröi honum léttir að því að viðurkenna afglöp sín.
Sullivan kom í skyndi og laut fram á loftsiglinga-
borðið. „Jæja?“
„Ég hef slæmar fréttir“. Leonard kyngdi munnvatni
og horfði á áhyggjusvipinn verða þyngri í augum Sulli-
vans. „Hinn loftsiglingafræðingurinn hefur rétt fyrir
sér. Ég gerði barnalega skyssu. Þú getur bætt ellefu
mínútum við leiðina sem eftir er“.
„Ellefu mínútum . .. . “ Sullivan hristi höfuðið vantrú-
aður. „Ertu viss?“
„Já, ég er það núna. Ég hlýt að hafa verið alveg frá
mér. Mér þykir það leitt, stjóri. Ég var víst svona
hræddur .... “
Sullivan leit ekki upp úr kortinu. Beinin í kjálkum
hans gengu hægt fram og aftur, og andartak vissi
Leonard varla hvort hann hafði skiliö það sem hann
umjsiectis
simiKmaíaau6(m
Minningarkortin eru til sölu
í skrifstofu Sósíalistaflokks-
ins, Tjarnarg. 20; afgreiðslu
Þjóðviljans; Bókabúð Kron;
Bókabúð Máls og menning-
ar, Skólavörðustíg 21; og í
Bókaverzlun Þorv. Bjarna-
sonar í Hafnarfirði.
ÚtbreiSiS
ÞjóSviljann
:*
iL_~_
uanoss
fer frá Reykjavik laugardagi;®
5. þ.m. til
AKUREYRAR.
H.F. EIMSKIPAFELAG
ÍSLANDS.
Ryk og óhreinindi í
Sú var tiðin að klæðskerar
vöruðu viðskiptavini sína við
því að láta hreinsa dýru fötin
sín á þennan „nýmóðins hátt“,
eða réttara sagt með kemiskri
hreinsun. Nú á dögum er fólki
ráðlagt að láta hreinsa fötin
sín einu sinni eða tvisvar á ári
og efnalaugarnar ráðleggja
jafnvel að láta hreinsa þau einu
sinni í mánuði.
1 sambandi við þetta gefur
blaðið Fionette þær upplýsing-
ar að á 4-—5 mánuðum safnist
um það bil 50 g af óhreinindum
í fötin. Það er talsvert magn
(sjá myndina) þegar tekið er
tillit til þess að fita og ryk
vegur ekki sérlega mikið.
Þetta þarf þó ekki að valda
fólki áhyggjum, því að talið er
að hægt sé að fjarlægja 95% af
þvi ryki sem safnast í fötin.
Þau 5% sem eftir eru hafa ver-
ið svo lengi að enginn kostur er
að ná þeim burt.
Vitaskuld hafa föt ekki gott
af þvi að þau séu hreinsuð einu
sinni í mánuði, en það gefur
auga leið að því óhreinni sem
föt eða frakki verða, því fyrir-
hafnarmeira er að hreinsa það
og hreinsunin styttir lífdaga
fatanna. Það væri því skynsam-
legt að finna hinn gullna með-
alveg, sem miðaður væri við
þær kröfjúr sem gerðar eru til
fatnaðar óg sömuleiðis með-
ferðina sem fötin verða fyrir
að jafnaði.
Sítt hár og snoturt
hálsmál
Síða liárið er að fá yfirhönd-
ina og það er nú sýnt í mörguni
skemmtilegum hárgreiðslum.
Hér er ein slík. Háiið er greitt
slétt aftur öðrum megiii en i
hinni hliðinni er liður fram á
ennið. Að neðan vefst hárið
laust upp. Takið líka eftir háls-
málinu á kjólmim, sem er frem-
ur flegið bogahálsmál, en fyllt
upp með klút úr sama efni og
kjóllinn.
Útgetandi: Saroelnlnsiarflokkur alljýðu — SósíaUstaflokkurinn. — Rttstjórar: Magnús Kiartan«"-a
OB|J'OWbÍí7*ÍK|W (áb.), Sisiiröur Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón BJarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigur-
Jónsson, Bjarnl Benediktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. —
Auglýsingastjórl: Jónsteinn Haraldsson. — RitstJórn. afgreiðsl a. auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 í3
línur). — Askriftarverð ki\ 25 á mánuði í ReykJ.ayík og nágren ni; kr. $2 anr'-'^taðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsmiðha
ÞJóðvilJam h.f