Þjóðviljinn - 10.02.1957, Page 5
Sunnudagur 10. febrúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Krabhameirtsvaldur
inrt í sigaretlureyk
TaliB tiltölulega auSvelf aÖ sia hann úr
Einn af vísindamönnum Curie stofnunarinnar í París
tiefur einangraö úr sígaretturéyk efni sem reyndist valda
krabbameini í músum á skömmum tíma.
Fyrir nokkrum árum komust
læknar að þeirri niðurstöðu, að
staðtölurannsóknir sýni að
mönnum sem reykja mikið síga-
rettur sé margfalt hættara við
krabbameini í lungum en þeim
sem ekki reykja. Síðari rann-
sóknir af þessu tagi hafa allar
borið að sama brunni. Hættan á
lungnakrabba er því meiri því
meira sem reykt er.
Leit aá krabbavaldi
Eftir var að finna, hvaða efni
I sígarettureyknum ylli krabba-
meini. Vísindamenn víða um
lönd hafa leitað þess. Það kom
S ljós, að ef tjöru úr sígarettu-
reyk var roðið á skinnið' á mús-
um fengu sumar þeirra krabba-
mein. Ekki hefur verið vitað,
hvaða efni í t.iörunni væri
krabbavaldurinn.
í síðustu viku gaf franska
vísindaakademían svo út skýrslu
lim starf dr. Nguven-Phoc Buu
Hoi, sem er ættaður frá Viet
Nam og stjómar rannsóknadeiid
Curie stofnunarinnar í París.
Dr. Buu Hoi hefur unnið lengi
að rannsóknum á tóbaksreyk.
Hann einangraði tugi efna án
þess að tilraunir gæfu til
kynna að þau hefðu nokkra
krabbavaldandi eiginíeika.
Myndast við brunann
Loks kom röðin að efni sem;
ber efnafræðiheitið 3-4-9-10 dib-
enzpyren. Það myndast þegar
sígaretta brennur. Dr. Buu Hai
vann nokkuð magn af þessu efni
úr síkarettureyk og sprautaði
því í 4000 mýs. Skammturinn
sem hver fékk var hálft milli-
gramm, einn tvöþúsundasti hluti
áf grammi.
Eftír 42 daga fór krabbamein
að koma í ljós hjá sumum til-
raunamúsunum. Eftir þvi sem
tíminn léið sýktust fleiri og
fleiri, og nú er svo komið að
allar hafa fengið krabbamein.
að þótt efni reynist valda
krabbameini i músum sé ekki
þar með sannað að það valdi
krabbameini í mönnum.
Dr. Buu Hoi er 41 árs gamall.
Hann er kominn af ætt Annams-
keisara, sem réðu Viet Nam áð-
ur en Frakkar lögðu landið und-
ir sig.
Söngfólk
SÖNGFÉLAG VERKALÝÐSSAMTAKANNA
í Reykjavík vantar söngfólk nú þegar.
Söngstjórinn er til yiö'tals í samkomusal
Eddúhússins við' Lindargötu á morgun,
mánudag kl. 8 e.h.
S.V.I.R.
Símavændi í
Finnlandi
Lögreglan. í Abo í Finnlandi
hefur komið upp um vandlega
skipulagt kerfi símavændis eft-
ir bandarískum fyrirmyndum.
Hjón, sem bæði eru stúdentar
við háskólann í Abo, veittu
fyrirtækinu forstöðu.
Sex stúlkur, þar af fjórar
innan við tvítugt, afgreiddu
pantanir viðskiptavina. Þær
reyndust flestar vera frá vel
stæðum heimilum. Miðstöð
kerfisins var í afskekktu húsi
með tveim símúm. Venjulega
vont stúlkurnar sóttar í bílum,
en stundum fóru þær lika fót-
gangandi þangað sem þeirra
var óskað. Símavændið var svo
alþekkt að símanúmer mið-
stöðvarinnar voru krotuð á
þiijur í flestum almennings-
símaklefum borgarinnar. Lög-
reglan telur að starfsemin sé
búin að standa í tæpt ár.
Herútgjöld
skorin niður
„iíernaðaraðgerð fallöxi“
nefiia Frakkar í spaugi nýjustu
sparhaðaráætlun Pauls Rama-
diers fjármálaráðherra, sem
boðar að nú verði einskis látið
ófreistað til að lækka greiðslu-
hallann á fjárlögunum".
Áætlaður halli nemur billjón
franka og Ramadier gerir sér
vonir um að geta lækkað þá
tölu um fjórðung, eða 250
milljarða. Eftirlit með skatt-
framtölum verður hert um all-
an helming og hörðustu á-
kvæðum laganna beitt misk-
unnarlaust gegn skattsvikurura.
Hernaðarútgjöld verða skorin
niður um tíunda hluta og ráðu-
nautum sem ekki fjalla um her-
mál hefur verið skipað að
lækka útgjöld sín um 150 millj-
arða franka.
Þéttist og verður eftir
Vitaeskjan um sambandið
milli sígarettureykinga og.
lungnakrabba hefur ekki megn-
að að draga verulega úr síga-
rettureykingum. Það er ljóst að
fólk v411 heldur taka á sig á-
hættu en hætta að reykja.
Læknar, sem víða um lönd hafa
þungar áhyggjur af ört hækk-!
andi tölu lungnakrabbasjúklinga
hafa því bundið vonir um sjúk-
dómsvamir á þessu sviði við
að hefðist upp á krabbaváldin-
um og hægt reyndist að forða
því að reykingamenn önduðu
honum að sér, annað hvort með
því að nema efnið brott úr
sjálfu tóbakinu eða reyknum.
Dr. Buu Hoi segist sannfærður
um að auðvelt sé að ná krabba-
valdinum sem hann fann úr
sígarettureyknum. Strax og reyk-
urinn kólni þéttist það og verði
fljótandi. Enginn vandi eigj að
vera að setja á sígarettur síur,
sem kæli reykinn svo að krabba-
valdurínn verði eftir.
Ekki er ljóst af fréttum þeim
sem borizt hafa af rannsóknum
dr. Buu Hoi, hvort hann telur
útilokað að fleiri krabbavaldar
en 3-4-9-10 cUbenzpyren leynitt
í sígarettureyk.
Sígarettuframleiðendur, sem j
frá upphafi hafa reynt að gera í
sem rniunst úr aðvörunum lækna
við sígarettureykingum, segja
um þessar síðustu upplýsingar,
^nezviðræðnr
í New York
Pulltrúar Breta og Frakka
hjá SÞ hafa undanfarna dag
rætt við Hammarskjöld fram-
kvæmdastjóra og farið þess á
leit að hænn beiti sér fyrir að
aftur verði teknir upp samn-
ingar um framtíðarstjórn Súez-
skurðar. Þeir samningar voru
komnir vel á veg þegar Bretar
og Frakkar hófu styrjöld sína
gegn Egyptum, iBúizt er við að
siglingar um skurðinn geti haf-
izt í nœsta mánuði.
SÓSÍALISTAFELAG REYKJAVIKUR
Æ.F.R.
KVENFÉLAG SÓSÍALISTA
ÁRSHÁTÍÐ SÓSÍALISTA-
FÉLAGANNA I REYKJAVÍK
veröur haldin aö Hótel Borg,
miövikudaginn 13 febrúar, klukkan 9 e.h.
Húsiö opnaö kl. 8.30.
SKEMMTIATRDÐI:
1. Ávarp
2. Einsöngur.
Frú Hanna Bjaraadóttír,
óperusöngkona.
3. Upplestur.
Þórbergur Þópðarson,
rithöfundur.
4. Gamanþáttur.
Hjálmar Gíslason skemmtir
5. Dans.
Jón Múli Árnason kynnir skemmtiatriðm.
Aögöngumiðar seldir í skrifstofum Æ.F.R.
og Sósíalistafélags Reykjavíkur í Tjarnargötu 20.
Símar 7510 og 7513.
Neindirnar
STRAKAR!
Davy Crockett ær
í bæinn!
Nú er annað bindið af‘sögunni um Davy Croc-
kett komið út. Þar heldur' áfram áð segja frá
uppvaxtarárum Davys og því þegar hann fer
í fyrsta skipti að heiman sem aðstoðarmaður
við relcstur nautahjarðar um langan veg. Eins
og nærri má geta gerist margt í þessari ferð:
átök við nautaþjófa, úlfa, birni og magt
fleira. Eftir að Dav.v kemur heim aftur, byrj-
ar hann að ganga í skóla, en skólagangan
verður stutt: hann lendir í útistöðum við
kennarann og einn skólafélaga sinn og hættir
að lokum að sækja skólann. Þessu reiðist fað-
ir hans og ætlar að refsa honum, en þá
strýkur Davy að heiman.
DAVY CR0CKETT
s t r ý k u r
er annað bindið af sögunni um Davy Crockett.
Fyrsta bindið fæst enn í bókaverzlunum.