Þjóðviljinn - 24.02.1957, Qupperneq 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Smmudagur 24. febráar 1957
. J.C.KIein
Framhald af 6. síðu.
þroskaár, og hann hefur sjálf-
ur vaxið með henni sem
sjómaður flytur hann af
dönskum skipum yfir á fyrsta
^ millilandaskipið, sem íslend-
ingar eignast, og sezt hér að.
Hann er starfsmaður mikill
og strangur við sjálfan sig,
en réttlátur húsbóndi, heiðar-
legur, áreiðanlegur ' og vin-
fastur. Hann er fyrir löngu
farinn að heilsu sökum erfið-
is, þótt fáir sjái honum
bregða.
Sá, sem þetta, ritar, var ift
á unglingsárunum heimagang-
ur hjá Klein og stundum
jafnvel í fóstri. Það var á
svonefndum kreppuárum, þeg-
ar víða var þröngt í búi, og
setinn Svarvaðardalur uppi
á lofti á Baldursgötu 14 þeg-
ar við vorum þar fimm strák-
ar allir á svipuðu reki. Þar
átti ég vandalaus innhlaup,
hvernig sem á stóð, allt til
stúdentsprófs, en reikningarn-
ir voru víst aldrei nákvæm-
lega upp gerðir. Björn sálugi
Guðfinnsson var þar einnig
tíður gestur. Við höfðum eng-
in áhrif á málfar Kleins, en af
honum fræddist ég um ýmis-
legt gott og miður heilbrigt í
fari Islendinga. Hann héfur
meiri trú á þessu landi en
margur Islendingur og sam-
grónari því en svo, að hann
stundi utanfarir.
Fyrri konu hans sá ég
aldrei, en frú Sylvía, var sér-
stÖk ágætismanneskja, sem
fórnaði sér algjörlega fyrir
vösólfana, sem settu oft allt
á annan endann á Baldurs-
götu 14. Það var víða knappt
í þá daga, og frú Sylvía var
ávallt ein með heimilið, sætti
allar sennur og batt um sár-
in.
I styrjaldarlok 1945 hlaut
J. C. Klein Frelsisorðuna
dönsku (Frihedsmedalien)
fyrir aðstoð við danska sjó-
menn á stríðsárunum, og
1956 hafði Friðrik konungur
með sér riddaramerki Danne-
brogsorðunnar handa honum,
þegar hann kom í heimsókn.
Þær kveðjur hefur hann feng-
ið frá ættlandi sínu, en við
Islendingar hrósum happi yfir
því að hafa fengið að njóta
starfskrafta hans, okkur
munar um mannsliðið. Hér á
Klein langan og erilsaman
starfsdag að baki, og ég óska
honum allra heilla í ellinni.
Björn Þorsteinsson.
Fylgið ykkur nm A-listann
r
Tilboð óskast
Tilboð óskast í að byggja skólahús við Réttar-
holtsveg fyrir Reykjavíkurbæ. Útboðslýsingu og
teikningar má vitja til fimmtudags 28. febr. n.k.
á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, Vonarstræti 8,
gegn kr. 200,00 skilatryggingu.
Fræoslustjórixm í Reykjavxk.
*
Karimannabomsur
með spennu komnar
H £ C T 0 R. Laugaveg 11
SKÚBÚÐIN, Spítalastíg 10
Framhald af 7. síðu.
Dagsbrúnarkosningum" bætti
hann við.
Ég innti hann ekkj frekar
eftir því, við hvaða pilta hann
átti, því ég vissi ástæðuna fyr-
ir því að Morgunblaðsklíkan
fór nú ekki á stúfana í Dags-
brún: Sjálfstæðisverkamenn í
Dagsbrún vita nú flestir orðið
að í Sjálfstæðisflokknum ríkir
fullkomið alræði stóratvinnu-
rekenda og auðkýfinga, sem
halda úti Morgunblaðinu og
Vísi og að aukin áhrif þeirra
í verkalýðssamtökunum þýðir
aukinn gróða þeirra á kostnað
verkamanna.
Sjálfur er ég þeirrar skoðun-
ar, að þótt verkamaður eða
verkakona telji sig á svipaðri^
skoðun og atvinnurekandinn
um skipulagsform þjóðfélags
og hafi jafnvel skráð nafn sitt
í sama stjórnmálaflokk, þurfi
hann eða hún ekki að láta at-
vinnurekandann segja sér fyrir
verkum í stéttarfélagi sínu;
þar eru afskipti atvinnurek-
andans hrcin árás á andlegt
sjálfstæði verkamannsins og
persónuleg lítilsvirðing í hans
garð.
Annað mál er það, að til eru
verkamenn, hvort sem þeii eru
í Sjálfstæðisflokknum eða ekki,
sem láta fjárplógsmenn ýmist
lokka sig með fögrum loforð-
um eða blöð þeirra blekkja
sig með rógi um forystumenn
verkalýðssamtakanna til að
reka erindi atvinnurekenda
þar. Þetta sannast bezt á fram-
boði stóriðnrekenda í Iðju fé-
lagi verksmiðjufólks nú.
Ég þekki að vísu ekki per:
sónulega fólk það sem látið
hefur atvinnurekendur raða á
B-listann, þetta fólk kynnir sig
sjálft með sálufélagi sínu við
Morgunblaðið, skiptir ekki
máli hvar það telur sig í
flokki. Um Guðjón, formanns-
efni atvinnurekenda í Iðju, veit
ég það, að hann byggir ekki
afkomuvonir sínar á gengi
verkalýðssamtakanna sem aðr-
ir Iðjufélagar; hann hefur jafn-
an verið opinskár andstæðing-
ur allrar launabaráttu og geng-
islækkunarunnandi.
Persónulega þekki ég fæst
af A-Iista fólkinu, þótt ég viti
hins vegar að flest af því eru
þekktir starfandi Iðjufélagar
um margra ára skeið. En Björn
Bjarnason þekki ég persónu-
lega sem góðan dreng og dug-
andi mann fyrir félag sitt. þótt
ég sé honum ekki sammála í
pólitík. Og ég mun treysta hon-
um í félagsmálum svo lengi
sem hann er skammaður og
ofsóttur í blöðum verkalýðs-
andstæðinga,
Við Iðjufélaga almennt vil
ég segja þetta: Varið ykkur á
verkfærum kauplækkunar- og
dýrtíðaraflanna í félaginu. Lát-
ið ekki Morgunblaðsliðið draga
ykkur í flokksdilk. Standið
saman í stéttarfélagi ykkar
eins og félagsþroskuðu verka-
fólki sæmir, hvar í flokki sem
þið eruð. Fylkið ykkur um A-
listann, hvað sem burgeisar
segja.
Með Dagsbrúnarkveðju
Verkamaður.
STEIHPtíRsl'
Fjölbreytt úrval af
TRÚLOFUNARHRENGIR
STEINHRINGUM
18 og 14 karata.
— Póstsendum —
LYKILLINN
aO auknum viðskiptum et
auglýsing í Þjóöviljanum.
íþróttir
Framhald af 9. síðu.
þeir höfðu áttað sig til fulls á
þeirri staðreynd, að Karl var
nær óvirkur í þessum leik.
Lögðu þeir þá megináherzlu á
„línuspil“ sem og gaf góðan.
árangur. Beztir í liði KR voru
þeir Steinmann, Bergur og
Guðjón.
Mörk KR skoruðu: Stein-
mann 10, Reynir 5, Hörður 3,
Bergur 1, Karl 1 og Þorbjörn 1.
Lið Ármanns átti all góðan.
leik, einkum í fyrri hálfleik.
Eiga þeir góða skotmenn, og
varnarleikur þeirra var ágætur
meðan úthaldið var fyrir hendi,
en hinsvegar er sóknarleikur
þeirra oft mjög þunglamalegur.
Beztir í liði Ármanns voru þeir
Snorri, Jón Erlendss. og
Hannes. Mörk Ármanns skor-
uðu: Snorri 6, Hannes 3, Jón
Erlendss. 2, Jón G. Jónsson 1
og Stefán 1.
Dómari var Valur Benedikts-
son og gerði hann því starfi
sæmileg skil.
Einnig fór fram leikur í 3.
fl. karla A milli Fram og
Þróttar og sigraði Fram náum-
lega 15 gegn 14. Dómari í
þeim leik var Sigríður Lúthers-
dóttir og er ástæða til að bjóða
svo ,,vinsælu“ dómarastarfa,
þar sem hún mun vera önnur
stúlkan í röðinni, er dæmir leik
í opinberu handknattleiksmóti í
Hálogalandi.
Cr
tTSALA
KARLMANNAFÖT kr. 785,00 r- kr. 985,00.
DRENGJAFÖT frá kr. 485,00.
ÚLTIMA h.f.
Laugaveg 20.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
síðustu námskeið vetrarins
hefjast miðvikudaginn 27. febrúar næstkomandi
í Skátaheimilinu. — Gömlu dansarnir, byrjendur
kl. 8. — íslenzkir dansar og fl. kl. 9. — ÞjóÖdaas-
ar framhaldsflokkur kl. 10.
Innritun á sama stað.
STJÓRNIN.
SÆKUR
hverfæ;
Ein af annarri hverfa nú bækurnar úr
umferð, því síðustu eintökin eru seld
þessa dagana í Listamannaskálanum.
Opið mánudag og þriðjudag frá kl. 9—6.
Sölunefnd bóksalafélags Islands