Þjóðviljinn - 03.04.1957, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 03.04.1957, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 3. apríl 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (T Það mun hafa verið um miðjan ágústmánuð sl. sum- ar, að Kristinn E. And- résson hringdi til mín og tjáði mér, að nú lægi fyrir bóð um að senda 5 manna bændasendinefnd til Sovétríkj- anna, á vegum MÍR. Bauð hahn mér að vera einn þátt- takandinn, sagði einnig að Búnaðarfélagi íslands mund verða boðið að velja tvo menn sem mér fannst æskilegt. Hin ir tveir væru ekki valdir enr ■þá. Auðvitað tók ég boðinu með mestu þökkum. Síðar réðist mannavalið þannig, að frá Búnaðarfélaginu varð Þorsteinn Sigurðsson bóndi é Vatnsleysu, formaður þess, op Haraldur Árnason verkfæra ráðunautur, en hinir urðu aut mín Kristófer Grímsson ráðu- nautur Búnaðarsambands Kjalarnesþings og Þórarinn Haraldsson bóndi í Laufási í Kelduhverfi. Allt voru þetta hinir ágætustu félagar, og mun mér verða ógleymanlegt þetta ferðalag með þeim foæði vegna þeirrar gestrisni, er við nutum og góðrar fyrir- greiðslu við að kynna okkur það sem við oskuðum helzt, af því sem tíminn leyfði og fcök voru á, og einnig vegna samverunnar með þessum ! ferðafélögum, er ég hafði lítið eða ekkert kynnzt áður, en 1 «rðum þegar í stað allir eins I og um gamlan kunningjahóp ' væri að ræða. Eftir nokkurra daga venju- legan undirbúning lögðum við af stað sunnudaginn 2. sept- ember með flugvél til Hafn- ar. Flugum í glaða sólskini fyrir ofan öll ský. Komið við S Osló og stanzað klukkutíma á Fornebyflugvelli, en ekki tími til að fara inn í borg- ina. Síðan var haldið beint til Hafnar, komið þangað í rökkrinu. Fengum við strax ágæt hótelherbergi, en lítill tími var til að skoða þá fal- legu borg, því næsta dag um hádegi var aftur lagt af stað til Helsinki í Finnlandi, er vera skyldi næsti næturstaður. Ekki var heldur mikill tími til að skoða höfuðborg Finn- lands, því enn skyldi lagt af stað um hádegi næsta dag og þá með járnbrautarlest áleið- is til Moskvu. Þó gengum við út bæði um kvöldið og morg- uninn til að skoða borgina eftir því sem tími vannst til, en það varð að nægja, þótt lítið væri. Flótti — Matur — Amerískur jass Gosbrunnur á torgi samyrkjubúanna á landbúnaðarsýningunni í Moskva. Bakatil sjást sýningarhallir Úrals, Austursíberíu og Úsbekistan. ákváðum við að fá okkur mið- degisverð á járnbrautarhótel- inu meðan lestin stæði við. Við okkur blasti allstór bygg- ing og fórum við Haraldur að leita að matsal. Brátt hitt- um við á sal einn allmikinn þar, sem dúkuð voru borð, með drifhvítum dúkum, upp- standandi „serviéttum" og þremur eða fjórum vínglösum við hvern disk. Á leiðinni höfðum við fengið að vita, að í lestinni með okkur væri hinn rússneski íþróttaflokkur, sem var að koma frá London, og nokkuð var umtalaður á þess- um tíma. Við Haraldur álykt- uðum í snatri að þarna hlyti þessu fólki að vera búin mót- tökuveizla og við værum að gera veizluspj'U og yrðum að hypja okkur hið skjótasta burtu. Það gerðum við lika, fundum hina og sögðum okk- ar farir ekki sléttar. En Vatnsleysubóndinn var ekkert á því að gefast upp. Hann lagði af stað, náði fljótlega í einn boldangskvenmann og tókst að gera henni skiljan- legt að hann væri svangur. Hún hafði engar vöflur á því, heldur tók bara trausta taki í hans hægri handlegg og aðir að gera matnum skil, var allt í einu opnað útvarpstæki og yfir okkur flæddi sá glymjandi hávaði af amerísk- um jass, að við urðum bók- staflega að kalla hver í ann- ars eyru ef nokkurt orð átti arlega vel við alla jasshljóm- list. En hin ágæta unga frú, sem síðar varð túlkur okkar sagði okkur að stutt væri síð- an jassinn hefði haldið þangað innreið sína, en vinsældir hans væru vaxandi hjá unga fólk- Ásmunaur Sigurðsson: Bændaíör til Sovétríkjanna að heyrast sögðum. Þó steinn vinur „ja, ef ég á an ófögnuð, þann tíma, að vera hér af því sem við heyrði ég að Þor- minn stundi upp að hlusta á þenn- við hverja máltíð sem við eigum í Sovétríkjunum, Járnbrautarferð er fremur tilbreytingarlítið ferðalag, og svo fannst okkur hér, öllum eins að ég held. Þó sáum við nokkuð af hinum miklu skóg- nm Finnlands og nokkrar ræktaðar akurspildur, þar sem bændabýli stóðu eða rjóður með smá þorpum. Það sem einna helzt vakti eftirtekt mína, þar sem landið er fram- ræst, voru hinar örmjóu skák- ir milli skurðanna, og litlir skui'ðir. Sennilega er eðli jarð- vegsins ástæðan til þessa, a. m. k. virtist okkur sem heppi- legra væri að hafa skurðina dýpri og spildux-nar breiðari en Finnar gera. I' Þegar til Viborgar kom, sem var fyrsta aðaljámbraut- ai'stöðin austan landamæranna Gosbrunnur sá sem nefndur uppljómaður teymdi hann með sér að hin- um sömu dyi’um, sem við Haraldur höfðum flúið frá, og lét hann skilja að væri hann svangur, þá ætti hann að fara þar inn. Þar með var málið upplýst. Matinn fengum við en létum ógert að panta í glösin. En þegar við vorum ný'byrj- er „vinátta sovétpjóðanna“, að kvöldlagi. þá verð ég vitlaus.“ Og sjálf- ur verð ég að viðurkenna að ég hugsaði a. m. k. mjög hið sama, þótt ég segði það ekki. En sem betur fór þá slupp- um við báðir við þau ömur- legu öi’lög, að verða vitlausir af amerískum jassi þai’na aust- ur í Sovétríkjunum, því eft- ir þetta sluppum við blessun- inu. En þetta var nú útúr- dúr. # Koman til Moskvu Var þá haldið áfram til Leningrad og þar farið í næt- urlest áfram til Moskvu. Eftir nokkurra klukkustunda svefn vöknuðum við í glaðasólskini komnir Iangt inn á hinar víð- lendu rússnesku sléttur. Ekið var um skóga með nokknim rjóðnim og mannabústöðum sumstaðar fram með braut- inni. Hvort þar bjuggu ein- hverskonar eftirlitsmenn braut arinnar skal ekki fullyrt, en þykir þö sennileg. Þegar kom austur á hinar skóglausu sléttur jókst byggð- in. Og Mukkan eitt renndi lestin inn á aðaljárnbrautar- stöðina í Moskvu. Þar voru fyrir tveír fulltrúar frá land- búnaðarráðuneytinu, en í þess boði vorum við þarna komnir. Með þeim. var ung kona, er vera skyldi túlkur okkar. Þau fylgdu okkur þegar á hótel, og eftir að við höfðum borð- að var haldið á fund I. full- trúa í landbúnaðarráðuneyt- inu. Þar var ráðgast um hvernig dvöl okkar skyldi hagað, og vorum við m. a. spurðir hvers við óskuðum helzt- Við svöruðum því til að við vildum kynnast land- búnaði Sovétríkjanna og öðru þyí sem mest væri um vert, í menningar og þjóðlífi þeirra, eftir því sem tök væru á mið- að við þann stutta tíma sena við höfðum til umráða. Mér var það fyllilega ljóst, og,' sennilega okkur öllum, að sá tími var allt of stuttur til þess að skyggnast nema ör- skammt iim í þjóðlíf og menn- ingarlíf, og það mundi reyna allmjög á heilbrigða dóm- greind að meta það, sem okk- ur ynnist tími til að sjá, eink- um þar sem við vorum komn- ir inn í þjóðlíf, sem ekki að- eins byggir á öðru hagkerfir en við, heldur einnig mjög. ólíkri þjóðmenningu, siðum og erfðavenjum, sem rnn alda- skeið hafa mótazt af þeim skilyrðum sem iöndin og aðr- ar aðstæður hafá borið. Þama var strax ákveðið að eyða því sem eftir var dags- ins í bílferð um borgina, og byrja næsta dag með því að; skoða landbúnaðarsýninguna frægu, en jafnframt skyldf gerð frekari áætlun um ferða- lagið framvegis. Allir höfum- við óskað eftir að fara suður til Kákasus og skyldi áætlun- in jafnframt miðuð við það« Landbúnaðarsýningin * Sýning þessi er, að því er ég hygg, einstök sinnar teg- undar þótt víða væri um ver- öldina leitað. I raun- og vení má teljast ógei’legt að gefa. það fullkomna lýsingu með; orðum að lesandi fái full- komna hugmynd um það sem. þar er til staðar. Góðar ljós- mýndir geta nokkuð bætt úr,, en fullkomin kvikmynd í lit- um er þó hið eina sem nægit* til að gefa skýra hugmynd, bæði um útlit og fjölbreytnf. Hún er staðsett á svæði í út- jaðri Moskvuborgar, og er svæðið 207 ha. að stærð. JlS þríðja hundrað byggingar standa á þessu svæði og erut að vísu misjafnar að stærS en flestar stórar á okkar mælikvarða. I raun og ven* er þarna sérstaklega skipu.- lögð lítil borg, að því er mér virtist mjög vel bæði frá list- rænu og hagrænu sjónarmiðf miðað við tilgang sýningarimi- ar. Auk bygginganna er þar, fyrirkomið blómareitum, gos- brunnum, minnismerkjum og Iíkneskjum, sem allt er látið- mynda eina samræmda heild. Þá er sérstakur jurtagarður með hinum fjölbreyttustu jurtategundum. Enn fremur allstór auð svæði eða torg og tjarnir og smá stöðuvötn meil fiskum í. Byrjað hafði verið á bygg- ingu sýningarinnar 1939. Þegar Sovétríkin lentu I styrjöldinni féll byggingar- starfsemin niður og hófst ekki aftur fyrr en 1950. FullgerS var hún svo 1954 og hefur verið opin síðan, ár hvert frá 1. apríl til 1. nóvember. Þar sem hér er um að ræða heild- arsýningu fyrir landbúnaðinn- í Sovétríkjunum með sínu.fjöl- breytta landslagi og löftslagf og náttúruskilyrðum hvera konar, má nokkuð auðveldlega gera sér í hugarlund hvorfc ekki hafi verið æði margt að skoða. Enda fór svo fyrir okk- ur að þeir fáu dagar sem vi5 höfðum þar til umráða ent- ust illa til að skoða allt sem við vildum. Framhald á 10. siðu. ■y*

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.