Þjóðviljinn - 03.04.1957, Blaðsíða 12
Hlutleysi Þýzkalands myndi binda endi IUÚÐVILIIN
á sovézka hersetu í A-Evrópulöndum
Miðvikudagur 3. apríl 1957 — 22. árgangur — 78. tölublað'
Ef Þýzkaland sameinaöist og yröi friösamt og hlut-
laust ríki, væri ekki lengur nein þörf fyrir Varsjár-
fjandalagiö og sovézka hersetu í öörum ríkjum Austur-
Evrópu, sagöi Josef Cyrankiewicz, forsætisráðherra Pól-
fands, við fréttamenn í indversku borginni Kalkútta í
igær.
Cyrankiewicz er á ferðalagi
íim Asíu og hefur dvalið undan-
íarna daga í Indlandi og meðal
Æðsta róðið
kallað saman
Æiðsta ráðið, þing Sovétríkj-
anna, hefur verið kvatt saman
lúl fundar í Moskva 6. maí.
Ráðið sat á fundi í febrúar, og
er óvenjulegt að það komi sam-
an tvisvar á misseri.
Fréttamenn í Moskva segja,
að þar sé talið að sovétstjóm-
in vilji hraða sem mest fram-
Scvæmd ýmissa skipulagsbreyt-
inga í atvinnulífinu, sem á-
kveðnar vora í vetur. Miða þær
að því að dreifa stjórninni á
ýmsum atvinnugreinum til
margra aðila. Meðal annars á
«ð leggja niður byggingamála-
-ráðuneytið og ráðuneyti létt-
iðnaðarins í Moskva og fela
verkefni þeirra stjórnum hvers
sambandslýðfeldis um sig.
Leikflokkur M.A.
heimsækir Sigl-
firðinga
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Siglufirði.
Leikflokkur Menntaskólans á
'Akureyri kom hingað og sýndi
leikinn Enaras Montanus. Voru
4 sýningar á leiknum og allar
ágætlega sóttar og þótti mönn-
um þetta hin skemmtilegasta
heimsókn.
Olíuþöií 95% íullnægt
Olíuþörf Vestur-Evrópu verður
fullnægt að 95 hundraðshlutum
á öðrum ársfjórðungi þessa árs,
segir oiíunefnd Efnahagssam-
vinnustofnunarinnar í París.
annars rætt við Nehru forsætis-
ráðherra.
Fréttamenhimir spurðu hann,
hvort aðild Póllands að Var-
sjárbandalaginu og dvöl sov-
ézkra hersveita í landinu hefði
borið á góma í viðræðum þeirra
Nehrus.
Cyrankiewicz svaraði spum-
ingunni ekki beint, en sagði að
ástæðan fyrjr tilveru Varsjár-
bandalagsins væri úr sögunni,
ef Þýzkaland sameinaðist og
yrði friðsamt ríki, sem stæði
utan ailra hemaðarbandalaga.
Hann kvað Pólverja hlynnta
sameiningu Þýzkalands, að því
tilskildu að það yrði friðsamt
og hlutlaust ríki, sem ekki ógn-
aði Póllandi með hernaðarstefnu.
Um sovézku hersveitirnar í
Póllandi sagði Cyrankiewicz, að
þær væru þar fyrst og fremst
til að verja núverandi landa-
mæri Póllands og Þýzkalands.
Bók um Þor-
vald Skúlason
Helgafell hefur sem kunnugt
er hafið útgáfu smábóka um
íslenzka myndlistarmenn og
verk þeirra. Nýlega er komin
út bók um Þórvald Skúlason og
er Valtýr Pétursson höfundur
hennar, er ritgerð hans á ís-
Ienzku og útdráttur á ensku.
í bókinni eru myndir af 13
listaverkum Þorvalds, ein þeirra
í litum.
Sýningu Eggerts
lýkur um helgina
Málverkasýningu Eggerts
Guðmundssonar í Þjóðminja-
safninu lýkur um helgina. Sýn-
ingin hefur verið mjög vel sótt
og eru flestar þær myndir seld-
ar sem era til sölu.
itrekuð spurning í til-
efni ramakveins
Það voru heldur en ekki rekin upp ramaltvein í tveim
dagblöðum í gær út af frásögn Þjóðviljans af „hátíð-
inni“ í Golfskálanum aðfaranótt 30. marz s.l., og þótti
engum mikið um Morgunblaðið, málgagn Bjarna Ben.
Aðalveinið var þó í Alþýðublaðinu, blaði Guðmundar í.
Guðmundssonar og skal ósagt látið að nokkurt blað hafi
nokkra sinn rembzt eins átakanlega við að hvítþvo
elsku Kanann. Ætti það hér eftir ekki að vefjast fyrir
neinum hvar óðfúsustu verjendur hernámsspillingar-
innar er að finna.
Hér skal ekki eytt orðum að þeirri barnslegu firru
að smyglað vín hætti að vera smyglað vín við það eitt
að Alþýðublaðið segi að það hafi ekki verið smyglað!
Hinsvegar skal ítrekuð spurningin til Guðmundar 1. Guð-
mundssonar utanríkisráðherra hvernig það hneyksli geti
gerzt að bandarískir hernámsmenn af Keflavíkurflug-
velli fjölmenni til næturdvalar og smyglvínspartía hér í
Reykjavík, eins og þegar slík „menning" blómstraði
mest í ráðherratíð Bjarna Ben.
Pólverjar teldu öryggi sínu stafa
veruleg ógn af endurhervæddu
Þýzkalandi. Annars væri það um
sovézku hersveitirnar í Póllandi
að segja, að þær væru ekki ýkja
fjölmennar og tryggt væri með
samningum, að dvöl þeirra skerti
í engu fullveldi Póllands.
Skærnliðar i
sókit í Alsír
Skæruher sjálfstæðishreyf-
ingar Alsírbúa virðist liafa haf-
ið sókn um vestanvert landið,
segir fréttaritari frönsku frétta-
stofunnar AFP í Algeirsborg.
Hann skýrir frá árásum á 23
búgarða Frakka og tvær járn-
brautarlestir á þessurn slóðum
síðustu þjá daga. Franska her-
stjómin segir, að menn hennar
hafi fellt 70 Serki síðasta sól-
arhring.
z'----------------------■>,
Kvenfálag
sésíalista
Kvenfélag sósialista held-
ur félagsfund fimmtudag-
inn 4. apríl n.k. kl. 8,30 í
Tjarnargötu 20.
Dagskrá:
Gunnar Jóliannsson
alþingismaður flyt-
ur erindi um stjórn-
málaviðhorfið.
Kaffidryldcja.
Konur fjölmennið og
niætið stundvíslega.
Miimingarathöfn
nm Þorstein
Jóhannsson
Frá frétfcaritara Þjóðviljans.
Siglufirði.
í gær fór fram í Siglufjarð-
arkirkju miningaratliöfn um
Þorstein Jóhannsson stýri-
mann, er tók út af togaranuni
Úramisi 22. febrúar s.l.
Þorsteinn heitinn var mikill
efnismaður, en hann var tæp-
Iega þrítugur þegar hann
drukknaði. Hami var sonur
hjónanna Herdísar Þorsteins-
dóttur frá Vík í Haganesvík
og Jóhanns P. Jónssonar, kaup-
manns hér í bæ.
Þótt afll sé stundum tregur er ærið að starfa við veiðarfærin. — þesæ
Ir sjómenn eru að vinna við net sin við bryggju hér í Reykjavík.
Dulles hótar Egyptalandi
efnahagsþvmgunimi
Dulles, utanríkisráölierra Bandaríkjanna, lét í gær
crö liggja að því, að Vesturveldin kynnu að beita Egypta-
iand efnahagslegum þvingunarráöstöfunum til að hafa
frarn vilja sinn um fyrirkomulag siglinga um Súez-
skurð.
Ráðherrann sagði frétta-
mönnum, að Bandaríkjastjóra
biði nú eftir svari Egypta við
athugasemdum sínum við regl-
ur þeirra um siglingar um
Súezskurð. BandaríkjEistjóra
teldi, að ekki þyrfti að gera
ýkja miklar breytingar á eg-
ypzku reglunum til að sam-
ræma þær sjónarmiðum Vestur-
veldanna.
Þótt Bandarikjastjórn álíti
egypzku skiglingareglurnar ó-
aðgengilegar, þýðir það ekki að
hún muni beita Egyptaland
hemaðarógnunum né gerast að-
ili að samtökum um að nota
ekki Súezskurð, sagði Dulles.
Hinsvegar sagðist liann ekki
vilja fortaka, að Bandaríkin
taki þátt í efnahagslegum
þvingunum, sem miði að því að
knýja Egypta til að láta að
H&fliði með 200 lestir
Togariim Hafliði kom til
Siglufjarðar í gærmorgun með
um 200 lestir af fiski og fór
aflinn til herzlu og frystingar.
vilja Vesturveldanna. Kvaðst
Dulles telja eðlilegast, að Ev-
rópuríkin, sem ættu mest undir
siglingum um Súezskurð, ættu
frumkvæði að slíkum aðgerð-
um.
i Vantar röska unglinga
tii blaðburðar við
Óðinsgötu og í Laugarás
L 1 ' X * I * *
I Þjoðviljinn
Skólavörðtustíg 12
■ Afgreiðslan. — Sími 7500.
Brezka kirkjuráðið átelur til-
raunir með k| arnorkuvopn
Brezka kirkjuráðið samþykkti í gær aö lýsa yfir van-
þóknun sinni á ákvörðun brezku stjórnarinnar aö gera
tilraunir meö vetnissprengjur á Jólaeyju í Kyrrahafi.
Kirkjuráðið skipa fulltrúar
mótmælendakirknanna í Bret-
landi.
Á fundi ráðsins í gær var sam-
þykkt tillága, þar sem segir að
ráðið harmi það að brezka
stjórnin skuli vera staðráðin í
að halda fast við fyrri ákvörð-
un sína um að sprengja vetnis-
sprengjur í tilraunaskyni í vor.
Tillagan var samþykkt með 39
atkvæðum gegn 22.
Dr. Fisher, erkibiskup af
Kantaraborg, Iagðist gegn sam-
þykkt tillögunnar. Að atkvæða-
greiðslunni lokinni sagði hann,
að öllum megi vera ljóst af at-
kvæðatölunum, að skoðanir hafi
verið mjög skiptar í ráðinu um
tillöguna, sem að sínum dómi
muni ekki koma neinu góðu til
leiðar. (
Brezkum blöðum verður tíð-
rætt um yfirlýsingu Macmillans
forsætisráðherra á þingi í fyrra-
dag um vetnissprengjutilraunini-
ar. Segir Manchester Guardian,
að eini ljósgeislinn í málinu sé,
að í orðum Macmillans hafi
ekki falizt alveg eins þvert nei
við þeim möguleika að semja um
að hætta tilraunum með kjarn-
orkuvopn og í tilkynningunni
um fund þeirra Eisenhowers á
Bermúdaeyjum. Forsætisráð-
herrann virðist ekki gera sér
ljóst, hversu miklu erfiðara
verður að semja um stöðvun
kjarnorkusprenginga eftir að
brezku sprengjurnar hafa verið
sprengdar, segir blaðið.