Þjóðviljinn - 09.05.1957, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 09.05.1957, Blaðsíða 9
ÍÞRÓTTIR krrSTJÓRi. FRtMANN HELGASON Sundmeistaramót íslands: setti nýtt íslenzkt met í metra skriðsundi karla Guðmundur Gíslason bætti enn tvö drengjamet Síðari dagur sundmeistara- mótsins var skemmtilegur og mörg keppnin jöfn og tvisýn. Þegar i iyrsta sundinu voru úr- slitirs óviss en þar áttust við þeir Guðmundur Gíslason og 'Pétur Kristjánsson. Guðmundur tók nærri strax forustuna og dró heldur í sund- ur með þeim xyrstu 75 m, en undir 'iokin dró Pétur heldur á hann en það dugði ekki, Guð- mund.ur kom í mark 1,7 sek. á undan á nýju drengjameti, eh Pétur á metið og meistaratitil- ínn frá í fyrra. Á 400 m skriðsundi karla var Helgi Sigurðsson i sérflokki og synti aíla þá leið án keppni að kalla má, þar sem hann var .vneira en 50 m á undan keppi- nautum sínum. í 100 m baksundi var keppn- án ahhörð, en Guðmundur sig'r- aði þó örugglega. Félagi hans Ólafur Guðmundsson varð ann- ar, er. i fyrra varð hann meist- L BJWvJíM ” •S'”-' í síðustu leiðinni að séð varð hvor mundi sigra. Til að byrja með vb.ru þeir þrír mikið til jafnir, en þriðji maður var hinn ungi og efnilegi Ármenningur Einar Kristinsson. Lokaátökin urðu þó milli Sigurðar og Torfa. Torfi var oftast heldur á undan en það mátti varla á milli sjá, svo jafnir voru þeir. Nú gat Sig- urður ekki notið þess að synda í kafi, en það hefur verið hans sterka hlið undanfarið. Það er ekki fyrr en á síðustu leiðinni sem Torfi nær örugglega forust- unni. í f.vrra synti Sigurður þessa vegalengd á 2,47,5. Þrír fyrstu menn riðilsins syntu allir undir 3 mín og Val- garður Egilsson frá HSÞ synti einnig undir 3 mín. og munaði aðeins 1/10 á honum og Einari. Á siðasta sundi kvöldsins settu Ægismenn íslandsmet á 4x200 m skriðsundi. I sveitinni voru: Ari Guðmundsson, Guðjóíi Sigur- björnsson og Magnús Guðmunds- son sem allir syntu á 2,31,2, en síðasti jnaður var Helgi Sigurðs- son sem synti á ca. 2.19.0. Það er næsta athyglisvert að Ármann skuli geta sent tvær | sveitir í 3x50 m þrísund, er hin félögin senda enga sveit. f A- sveitinni sem vann voru: Hjörný Friðriksdóttirj Margrét Ólafs- dóttir og Ágústa Þorsteinsdóttir. 50 m skriðsund telpna synti Agústa Þorsteinsdóttir á aðeins 1/10 lakari tíma en met hennar er. Úrslit urðu þessi: (Meistari sá sem fyrstur er nefndur). Fimmtudagur 9. maí 1957 — ÞJÖÐVIUINN — (9 ORÐSENDING frá Bólsturgerðinni Áður en þér festið kaup á liúsgögnum þá kynnið ykkur okkar nýja afboi’gunarfyrirkomulag, sem gerir öllum mögulegt að eignast húsgögn. Bólsturgerðin Bautarholti 22 — Sími 80388. !■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■>■■« Ágústa Þorsteinsdóttir ari. Að þessu sinni var hann þó á nærri 2 sek. betri tíma. Jón Helgason frá Akranesi var nokkuð frá sínu gamla meti, en hann var í þriðja sæti. Viðureign þeirra Sigurðar og Torfa Tómassonar í 200 m bringusundi var mjög ,,spenn- jandi" og það varð ekki fyrr en Argentína vann Suður- Ameríku keppnina 6:0 Bandaríkin og Mexíkó léku fyrir rt.okkru síðan fyrsta leik sinn í undankeppni undir Heimsrneistarakeppnina í knatt- spyrnu, og fóru leikar þannig að Mexíkó vann með 6 mörkurn gegn engu, Settu Mexíkanar þrjú mörk í hvonxm hálfleik. Sennilega er keppni landanna í Suður-Ameríku í knattspyrnu, ein sög'ulegasta keppnin sem frani fer í heiminum árlega. Tveim leikjum varð ekki lokið. Annar þeirra var milli Uruguay og Chile. Eftir 43 mín. leik æddu áhorfendur inn á völlinn og ætl- uðu að fjarlægja nokkra af leik- mönnum Uruguay af vellinum, en leikar stóðu þá 2 : 0 fyrir Uruguay. Frá því segir, að leik- menn hafi þá gefið áhangendum sínurn merki um að nú væri hjálp frá þeirra hendi nauðsyn- leg. Brasilía — Perú leikurinn var stöðvaður þegar 15 mín. voru eftir af leiktíma. Þá æddi fólkið inn á völlinn og' ætlaði að x’áðast á dómarann. Báðir þessir leikir voru dæmd- ir þeim liðunum sem höfðu betri markatölu, þegar þeim lauk, þar sem mótherjamir áttu sök á stöðvuninni. Argentína hafði mikla yfir- burði í öllu því, er að leikni og listum knattspyrnunnar laut. Klukkutíma áður en úrslita' leikurinn átti að hefjast ákvað allt liðið að gera verkfall, ef stjórn sambandsins féllist ekki á að hækka greiðslur fyrir unna leiki úr 600 kr. (ísl.) í 2400.00 og fyrir að vinna þessa meist- arakeppni úr kr. 4500.00 í kr. 18000.00. Eftir heitar umræður féllst sambandið á að greiða þeim það sem þeir fóni fi-am á. Úrslit urðu: Argentína 6 5 0 1 25- 6 10 Brasilía 6 4 0 2 23- 9 8 Uruguay 6 4 0 2 15-12 8 Peru 6 4 0 2 12- 9 8 Kolombía 6 2 0 4 10-25 4 Chile 6 114 9-17 3 Ecuador 6 0 1 5 7-23 1 Þýzkar HÁRÞURRKUR Véla- og raiiækjaverzlunin h.i. Bankastræti 10, sími 5896. — I Keflavík, Hafnarg. 28. Guðmundur Gíslason 100 m flugsund karla: 1 Guðm. Gíslason ÍR 1.12.5 2 Pétur Kristjánsson Á 1.14.9 3 Gylfi Guðmundsson ÍR 1.21.9 400 m skriðsund karla: 1 Ilelgi Sigurðsson Æ 4.58.5 ■ 2 Magnús Guðmundss. Æ 5.43.7 ■ 3 Guðjón Sigurbjörnss. Æ 5.51.5 ; 100 m. baksund karla: 1 Guðm. Gíslason ÍR 1.13.1 \ 2 Ólafur Guðmundss. ÍR 1.15.5 • 3 Jón Helgason ÍA 1.18.0 ■ ■ ■ ■ ■ 200 m bringusund karla 1 Torfi Tómasson Æ 2.55.7 \ 2 Sig. Sigurðsson ÍA 2.56.5 j 3 Einar Kristinsson Á 2.59.4 jj m m m 100 m skriðsimd kveuna’ 1 Ágústa Þorsteinsd. Æ 30.9 í 2 Sigríður Sigurbjömsd. Æ 1.20.6 : 3 Hjörný Friðriksd, Á 1.26.3 : ■ ■ ■ 50 m skriðsund telpna 1 Ágústa Þorsteinsd. Á 39.9 ; 2 Sigríður Sigurbjömsd. Æ 33.4 ; 3 Vigdís Sigurðard. Á 39.0 ; ■ m 1500 m ski’iðsund karla: 1 Heigi Sigurðsson Æ 20.35.0 • 2 Guðm. Gíslason ÍR 22.20.3 ■ 3 Magnús Guðmundss. Æ 23.53.3 ■ 1 FLESTUM STÓRB0RGUM, viö heztu gatnamót og á fjölförnum strætum fylgist SOLARI-klukkan með tímanum og birtir vegfarendum viku- dag, klukkustund og mínútur. FIMMTUDÁGUR 49 Klukkan sýnir á ljósan hátt hvað tím- anum líður og birtir auk þess auglýsing- ar frá ýmsum fyrirtækjum. Hver auglýsing birtist 20; sinnum á klukkustund. í Reykjavík er SOLARI-klukka á Söluturninúm við Arnarhól. heir sem eiga leið um Hvezíisgötu vita hvað tímanum líður. !■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ —■■■■■■■■■■■■■»■■■»■■■■■■■•—■■■■■■■■■■.. ...... Ný sending HOLLENZKAR SUMARKÁPLR Glæsilegt úrval ER0S Hafnai’stræti 4, sími 3350 TIL LEIGU 2 stórar samliggjandi stofur í nýju húsi. Aðgangur að baði og eldhúsi. Upplýsingar í síma 82929, kl. 3—8 í dag.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.