Þjóðviljinn - 15.05.1957, Side 3
- Miðvikudagur 15. mai 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3
90 nemendur í Eiðaskóla
Alþýðuskólanum á Eiðum var slitið sunnud. 28. apríl
að viöstöddu fjölmenni, enda var veður og færð sem bezt
veröur á kosið um þetta leyti. Um 90 nemendur sóttu
skólann í vetur.
Nýir flúgstjórar hjá Flug-
félagi Islands
Aö undanförnu hafa nokkrir flugmenn Flugfélags ís-
lands öðlazt réttindi til flugstjórnar á Skymaster- og
Douglas D.C. 3 flugvélum félagsins.
Skólaslitin hófust með guðs-
þjónustu, er sóknarpresturinn
séra Einar Þór Þorsteinsson
flutti. Kór nemenda söng við
guðsþjónustuna. — Þá flutti
skólastjórinn, Þórarinn Þórar-
insson, skýrslu um starf skól-
ans á liðnum vetri, skýrði frá
óthlutun styrkja og verðlauna
og árangri prófa í yngri og
eldri deild skólans. Prófum
framhaldsdeilda lýkur ekki
fyrr en í maí.
1 byrjun skólaárs voru skrá-
settir röslcir 90 nemendur í
skólanum og skiptust þeir
þannig milli deilda: Yngri-
deild 31 nem., eldri deild 27,
gagnfræða- og miðskóladeild 27
og þaraf 16 í verknámsdeild og
landsprófsdeild 8 nemendur.
Námstilhögun var svipuð og
undanfarna vetur. Söng- og
tónfræði var nú í fyrsta skipti
gerð prófskyld í deildum al-
þýðuskólanns.
Heilsufar nemenda var með
afbrigðum gott. Nemendur
þyngdust að meðaltali um 4,7
kg. yfir veturinn. Dvalarkostn-
aður allur í þá 6 mánuði er
alþýðuskólinn starfar varð tæp-
ar 5000 kr. fyrir pilta en tæp-
ar 4500 fyrir stúlkur. Mjólkur-
neyzla á hvern nemanda var
um iy2 lítri á dag. Hæstu eink-
unnir á prófi hlutu þessir
nemendur: I yngri deild í bók-
legum greinum, Jón Sigur-
björnsson frá Geitdal í Skrið-
dal 8,96, 2. Erlingur Runólfs-
son frá Stöðvarfirði 8,73, 3.
Kristþór Kristjánsson frá
Stöðvarfirði 8,72. I verklegum
greinum: 1. Hrefna Kristbergs-
dóttir frá Laug í Biskupst.
7,88, 2. og 3. Kolbrún Zóphón-
íasdóttir frá Blönduósi og Sig-
riður Sigurbjörnsdóttir frá
Hafursá 7,88. í eldri deild hlutu
þessir nemendur hæstar eink-
unnir. Bóklegar greinar: 1.
Steingrimur Bragason, Egilsst.
8,98, 2. Jón Þórarinn Jónsson,
Smáragrund í Jökuldal 8,89 og
3. Ásta Magnúsdóttir frá
Hólmatungu í Jökulsárhlíð
8,51. 1 verklegum greinum: 1.
Díana Helgadóttir frá Ytri-
Tjömum í Eyjafirði 8,86, 2.
Ingibjörg Þórarinsdóttir Eið-
um 8,84, 3. Stefanía Stefáns-
dóttir, Egilsstöðum 8,54. Prúð-
mennskuviðurkenningu þá er
stúlkur veita hlaut að þessu
sinni Guttormur Sigfússon,
Krossi í Fellum.
Að afloknum skólaslitum fór
fram fimleikasýning pilta undir
stjóm fimleikakennara skólans,
Bjöms Magnússonar, og sýnd
var handavinna nemenda í 4
Undirbúa hátíða-
höldin 17. júní
Á fundi sínum 10. þ.m. skip-
aði bæjarráð eftirtalda menn í
undirbúningsnefnd hátíðahald-
anna 17. júní n.k.: Þór Sandholt,
skólastjóra , formann nefndar-
innar; Böðvar Pétursson ,verzl-
unarmann; Pétur Sæmundsen,
viðskiptafræðing, og Björn Vil-
mundarson, fulltrúa. íþrótta-
bandalagið skipar menn til við-
bótar í nefndina eins og að
venju.
kennslustofum. Lauslegt mat á
smíðisgripum verknámsdeildar
pilta sem em 9 að tölu er milli
50 og 60 þús. kr. Um kvöldið
var almenn samkoma í verk-
námsdeild skólans er býr nú
við vaxandi aðsókn og vinsæld-
ir þegar þess er gætt hversu
aðstaða öll er slæm og óhentug.
Nokkrar vonir standa til að
úr rætist á þessu ári a. m. k.
hvað snertir verknám pilta.
Næsta haust verður væntanlega
tekin upp kennsla í hagnýtum
búfræðum þar sem aðstaða hef-
ur fengizt t.il slíkrar kennslu.
Um kvöldið var almenn sam-
koma í skólanum og skemmtu
nemendur með söng og sjón-
leik.
§ækja méi i
Iffelsingfors
Félag íslenzkra kirkjuorgan-
leikara hyggst senda fimm full-
trúa á norrænt mót kirkjuorgan-
leikara sem haldið verður í
Helsingfors 1.—3. júní n.k. Hef-
ur félagið sótt um styrk í þessu
skyni til bæjarráðs og mun þeg-
ar hafa fengið fyrirheit um
styrk frá ríkinu.
15 nemendur luku baraaprófi
og höfðu þessir hæstar aðal-
einkunnir: Elísabet Björk
Snorradóttir, 9,03, Þorgerður
Ingimarsdóttir, 8,43 og Snorri
Baldursson, 7,44. 26 nemendur
luku unglingaprófi. Þessir
fengu hæstar einkunnir: Jósef
Skaftason, 9,28, Kolbrún Gunn-
arsdóttir, 8,28 og Sæmundur
Bjarnason, 8,17. 9 nemendur
búa sig undir landspróf. Vor-
skóli verður starfræktur í
maímánuði fyrir 3 yngstu ald-
ursflokkana. Þangað sækja yf-
ir 30 nemendur, sem nú koma
í skólann í fyrsta sinn, svo að
alls verða nemendur á þriðja
hundrað þetta skólaár.
27. apríl gekkst skólinn fyrir
samkomu í tilefni af 100 ára
afmæli skólaleikfiminnar. Þar
sýndu nemendur skólans fim-
leika og hópdansa undir stjórn
íþróttakennara skólans. For-
maður skólanefndar og skóla-
stjóri fluttu þar ávörp, en að-
alræðuna hélt hinn þjóðkunni
áhugamaður og fimleikakennari
Lárus Rist, sem var heiðurs-
gestur skólans á samkomunni.
Lagði hann áherzlu á að greina
þyrfti skýrt milli hugtakanna
leikfimi og iþróttir. Andaði
kalt frá honum til þeirra öfga,
sem hann taldi keppniíþróttim-
ar komnar í níi á timum.
Greina þyrfti skýrar en gert
væri milli þeirra og uppeldis-
leikfimi, sem kenna bæri í
skólum. Taldi hann leikfimi og
vinnuvísindi tvær tgreinar á
sama stofni og bæri að kenna
nemendum að skilja leikfimi-
hugtakið og efla dómgreind
Hvítasunnuferð
Lúðrasveitar
Reykjavíkur
Lúðrasveit Reykjavíkur mun
standa fyrir þriggja daga
skemmtiferð til Isafjarðar og
Stykkishólms um hvítasunnuna
með m.s. Esju. Farið verður frá
Reykjavík eftir hádegi laugar-
daginn 8. júní og komið aftur
snemma morguns þriðjudaginn
11. júnír Þátttakendur búa um
borð í skipinu og er fyrsta
flokks fæði innifalið i fargjald-
inu.
Siglt verður héðan beint til
Isafjarðar og dvalið þar á
hvítasunnudag og er ráðgert að
fara skemmtisiglingu inn ísa-
fjarðardjúp þann dag. Á ann-
an í hvítasunnu verður farið til
Stykkishólms um Breiðafjörð,
er það mjög fögur sigling í
góðu veðri.
Hljómleikar, skemmtanir og
dansleikir verða um borð og á
Isafirði og Stykkishólmi, mun
verða vandað til þeirra eftir
föngum. Lúðrasveitin mun fyrst
og fremst leika og ennfremur
verður danshljómsveit og fleiri
skemmtikraftar með í ferðinni.
Nauðsynlegt er fyrir væntan-
lega þátttakendur að panta far
sem fyrst og eigi síðar en 18.
maí. Allar nánari upplýsingar
eru veittar í síma 5035 og á-
skriftalisti liggur frammi í
Hljómskálanum.
þeirra á því, hvernig þeim bæri
að rækta líkama sinn og stuðla
að fegrun hans og heilbrigði.
Talaði Lárus af eldmóði, og
var mikill rómur gerður að
máli hans.
Öllum félagsmönnum Norræna
félagsins er boðin þátttaka,
þannig að 20 piltar og stúlkur
á aldrinum 17—20 ára í hverri
félagsdeild geta valið einn þátt-
takanda, en hann verður i viku-
tíma gestur í dönskum vinabæ
þess byggðarlags í íslandi sem
hann er fulltrúi fyrir. Frá
Reykjavík er boðið 6—8 þátttak-
endum.
Lagt verður af stað frá
Reykjavík 22. júní með Heklu
og komið við í Færeyjum og
Bergen og komið til Kaup-
mannahafnar 27. júní. Dvalið
verður í Danmörku mánaðar-
tíma. Fyrst 3 daga í Kaup-
mannahöfn og skoðaðir ýmsir
staðir þar.
Þaðan verður farið 30. júní til
OtbreiSíS
Þ}óSviljann
Sá er síðastur'vhlaut réttindi
til flugstjórnar á Skymaster,
er Björn Guðmundsson frá
Grjótnesi á Melrakkasléttu.
Björn Guðmundsson
Hann er 30 ára að aldri og
stundaði flugnám hjá Air
Training Service í Englandi.
Eftir að hafa lokið prófi í flugi
og loftsiglingafræði árið 1948
gerðist hann starfsmaður flug-
málastjórnarinnar og starfaði
við flugumferðastjórn á Reykja
víkurflugvelli.
Vorið 1949 réðst Björn flug-
maður hjá Flugfélagi íslands
en fór til Englands ári síðar
og lauk blindflugsprófi við
sama skóla og áður. Björn fékk
réttindi til flugstjórnar á
Dougias D.C. 3 árið 1952 og
tveim árum síðar réttindi sem
aðstoðarflugmaður á Skymast-
erflugvélar.
Heiuúng Bjarnason hlaut ný-
lega réttindi sem flugstjóri á
Douglas D.C. 3 flugvélar fé-
Hindsgavlhallarinnar á Fjóni, en
hún er félagsheimili norrænu
félaganna í Danmörku. Þar verð-
ur dagana 30. júní til 7 júlí
norrænt æskulýðsmót með þátt-
takendum frá öllum Norður-
löndunum.
Eftir vikudvöl á Fjóni verður
farið til Sjálands og dvalið í
viku í Köbmandshvile—Lýðhá-
skólanum. Að því loknu dreif-
ast þátttakendur til vikudvalar
á einkaheimilum í vinabæjum
byggðarlaga sinna. að lokum
verður staldrað við 1—2 sólar-
hringa í Kaupmannahöfn áður
en haldið verður heimleiðis.
Þeir sem hafa hug á að fara
héðan frá Reykjavík þurfa að
senda Norræna félaginu um-
sóknir fyrir 20. þm og skulu
fylgja þeim meðmæli og upplýs-
ingar um kunnáttu í Norður-
landamálum. —r. Kostnaður hvers
þátttakanda í förinni er áætlað-
ur 3.700 kr.
lagsins. Hann er Siglfirðingur,
24 ára gamall og hefur starfað
sem flugmaður hjá F.I. síðan
árið 1954. Henning láuk flug-
prófi og prófi í blindflugi frá
flugskólanum Þyt og var að-
stoðarkennari í innanlandsflugi
unz hann varð flugstjóri á
Catalínaflugbát síðastliðið sum-
ar.
Framhald á 10. síðu.
Veggfóðrara-
meistarar stofna
félag
Meistarar og sveinar er sterf-
að hafa að veggfóðrun og verið
í einu og saina félagi um 12
j ára skeið hafa nú skilið að
skiptum.
Fyrir aðalfundi Félags vegg-
fóðrara í Reykjavík lá tillaga,
er áður hafði verið samþykkt,
um að meistarar stofnuðu sitt
eigið félag.
Að loknum aðalfundi Félags
veggfóðrara settu meistarar
fund, stofnuðu Félag vegg-
fóðrarameistara í Reykjavík. í
stjórn þess voru kjörnir: Sæ-
mundur Kr. Jónsson formaður,
Ólafur Ólafsson varaformaður,
Einar Þorvarðsson gjaldkeri,
Halldór Ó. Stefánsson ritari og
Friðrik Sigurðsson meðstjóra-
andi. Endurskoðendur: Guð-
mundur J. Kristjánsson og
Sveinbjöra Stefánsson.
Aðalfuitdifir |
i
Nemendasambands ;
Verzlunarskólans
Neniendasamband Verz) u nar-
skóla íslands hélt fyrir nokkrit
aðalfund sinn. Verzlunarskól-
inn hefur nú útskrifað um 20ÍHÍ
nemendur.
Formaður sambandsins Jó-
hann J. Ragnarsson fluttl
skýrslu fráfarandi stjórnar og
gat um ýmis mál, sem sam-
bandið hefur látið til sín taka
á liðnu starfsári. Þá minntist
hann sérstaklega Inga Þ. Gísla-
sonar íslenzku- og stærðfræðí-
kennara í Verzlunarskólanum,
er lézt s.l. vetur, og skýrði frá
því, að stjórn og fulltrúaráð
nemendasambandsins hefðu á-
kveðið að heiðra minningu hans
með því að gefa skólanum veg-
legan veggskjöld með mynd af
hinum látna. Lét formaður
þess getið, að undirtektir eldri
nemenda við þetta mál hefðU
verið mjög góðar svo sena
vænta mátti, og fjárframlög
væru þegar farin að berast.
Aðalfundurinn kaus eftir-
talda í stjórn: Jóhann J.
Ragnarsson, stúd jur. formað-
ur, Árni G. Finnsson stud,
jur„ Kristinn Hallsson ópera-
söngvari, Már Elíasson liag-
fræðingur, Njáll Þorsteinssorj
nemandi, Ólafur Egilsson st.ud,
jur., Sverrir Bergmann stuéU
med. Örn Valdimarsson skiif-t
stofumaður og Þorsteinn Guð-
laugsson stud. oecon.
170 nemendur í Hveragerðisskóla
Barna- og miðskólanum í Hveragerði var slitið 1. maí.
í skólanum voru alls yfir 170 nemendur og af þeim voru
58 í miöskólanum. Auk þess var starfræktur skóli í Þor-
lákshöfn á vegum Ölfusskólahéraðs og voru þar 9 nem-
endur.
Hópferð ungs fólks til Dcm-
merkur í sumar ó vegum NF
Dvalið verður í Danmörk mánaðartíma
Norræna félagið efnir til hópferöar ungs fólks til Dan-
merkur í sumar og verður dvaliö í Danmörku mánaðar-
tíma.