Þjóðviljinn - 15.05.1957, Side 4

Þjóðviljinn - 15.05.1957, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 15. mai 195? Taugaveiklun og geð- veila í Hollywood Susan Hayward hin rauðhærða hefur tvívegis gert tilraun til sjálfsmorðs með því að taka inn stóran skammt svefnlyfja. Lana Turner hefur einnig reynt tvisvar með stuttu millibili að svipta sig lífi. Judy Garland var um langt skeið forfallinn á- fengissjúklingur og eiturlyfjaneitandi öllum gleymd, og lengi var talið að hún myndi aldrei bera sitt barr aftur, jafnvel þótt lækning tækist að ein- hverju leyti. Frank Sinatra þjáðist í eina tíð af slæmum hiksta, sem átti rætur sínar að rekja til tauga- veiklunar og ekki tókst að vinna bug 'á fyrr en beitt var raflostsaðgerð. Ava Gardner varð þrisvar að fara í „afvötnun“ vegna ofdrykkju. Marlon Brando þjáðist af þunglyndi vegna þess að hann taldi sjálfum sér trú um að hann hefði tekið illkynjaðan og ólæknandi heilasjúkdóm. í ljós kom þó að hér var aðeins um taugaveiklun að ræða. Robert Mitchum og Ursula Thiess í myndinni Bandido Rita Hayworth gekk um tíma til geðlæto>- inga, en mjög var leynt með það farið; ekki mátti vitnast, að hin fræga leikkona hefði dvalizt í „vitlausraspít’ala". ★ Læknarnir streyma tii Hollywood Þetta er sönn lýsing á Hollywood! Leikarar stjórnendur, framleiðendur — mær allir hafa þeir verið rifnir upp úr eymd, ef svo má .segja, inn í Ijós frægðarinnar. Max-gir þeirra sjá í rauninni engan ávinning í þessum frama, heldur telja þetta heppni sem þeim hafi fallið í skaut fyrir tilshiðlan örlaga- valdsins mikla. Hjátrúin grefur um sig. Fyrir 10 árum voru í Hollywood starfandí aðeins 310 taugalæknar og 43 svokallaðir sál- greinendui'. Nú eru í þessari frægu boi-g kvik- myndanna um 1100 taugalæknar og nálægt 1400 geð- læknax. Áð- ur fyrr voru mánaðartekj- ur þessara gérfræðinga og lækna að jafnaði 400 til 600 doll- arax-. í dag geta þeir auðveldlega unnið sér inn tífalda þá upphæð og þeir þekktustu og eftir- sóttustu krefjast 100 til 200 dollara staðgreiðslu fyrir hvert einstakt við- tal eða ráðaleitan. Kunnustu kvik- myndastjörnurnar fylla biðstofur þess- ara sérfræðinga á viðtalstímum þeirra. Hetjumar, sem kvikmyndahúsagestir víðsvegar um heim hafa oftast fyx-ir augum á hvita léreftinu, sitja þar sig- inaxla og fölar yfirlitum, leikkonumar, sem millj- ónir manna dá og dýi'ka sem gyðjur, kreista vasa- klúta sína milli handanna og naga á sér neglurnar, Það þykir á sumum stöðum s+uttur biðtími, þó pantaður sé viðtalstími fjórum vikum fyrirfram. Og alltaf koma nýir og nýir læknar til Kalifomíu. Er það nokkur furða! Marlon Brando Hollywood og þeir, sem þar búa og starfa, hafa löngum verið umræðuefni blaða og tímarita víðs- vegar um heim. Sem eitt lítið sýnishorn þessara skrifa fer hér á eftir grein, sem birtist á síðast liðnu ári í vesturþýzka tímaritinu Bild. Fyrirsögn grejnarinnar var Læknaa- halda til Hollywood. Mario Lanza var um tveggja ára skeið til lækn- inga hjá geðlækni einum, þar eð hann gekk með þá grillu í höfðinu að hann værj Enrieo Caruso endurborinn. ★ „Hollywood—Disease“ Kvikmyndastjarnan í Hollywood skelfist umboðs- mann sinn, framleiðanda, gagnrýnendur, áhorfend- ur, öfund og undirferli samstarfsmanna sinna, aldurinn. Afleiðing þessa lýsir sér í sjúkdómi, sem geðlæknar nefna „Holly- wood-Disease“: Tauga- veiklun, sem getur á frumstigi valdið „mein- lausu“ bráðlyndi, en síð- ar snúizt í heiftarlega eiturlyfjanautn og jafn- vel leitt til sjálfsmorðs. Taugaveiklun — kokain- neyzla —: æxlunarfýsn — brennivínsþorsti — eiturlyfjanautn þjaka þá vansælu menn, sem skapa starfsskilyrði , þeim mörgu hálaunuðu Lana Turner taugalæknum, geðveikra- læknum og sálfræðing- um, sem nú starfa í hinni kunnu, bandarísku borg. Robert Mitchum sat tvo mánuði i fangelsi, af því að hann hafðj verið staðinn að nautn eitur- lyfja (marihuana) í íbúð vinkonu sinnar, leik- konu einnar. Vlnnuskáli Rvíkurbæjar — Sjóvinnunámskeið — Skólagarðarnir — Holl vinna íyrir börnin yfir sumarið — Góður útvarpsþáttur UM NÆSTU mánaðamót tekur vinnuskóli Reykjavíkur til starfa, og hefur þegar verið auglýst, að 13 til 15 ára unglingar geti sótt um skóla- viet hjá Ráðningarstofu R- víkurbæjar, en umsóknir þurfa að berast fyrir 20. maí. Jafnframt mun starfa sjó- vinnunámskeið fyrir drengi 13—15 ára á vegum vinnu- skólans, og þurfa umsóknir um þátttöku í því einnig að þerast Ráðningarstofunni fyr- ir 20. maí. Vinnuskólahug- myndin var tvímælalaust prýðileg, og þau fáu sumur, sem þessi skóli hefur starfað, hefur aðsókn verið mikil, og raunar færri komizt að en vildu. Þátttakendur hygg ég að hafi yfirleitt verið ánægð- ! ir, a. m. k. þekki ég drengi, sem þátt tóku í sjóvinnunám- skeiðinu og voru í sjöunda himni yfir lífinu á sjónum. Það hefur löngum verið mik- ið vandamál foreldra og ann- arra forsjármanna harna og unglinga að fá eitthvað ann- að handa þeim að gera að sumrinu; eitthvað annað en að eyða tímanum á rangli um göturnar hér. Vinnuskólinn er { vísir að lausn á þessu vanda- máli, svo og Skólagarðar R- víkur hérna við Lönguhlíð- ina. Pósturinn hefur nokkr- um sinnum komið þar undan- farin sumur og átt tal við krakkana, m.a. undir því yfir- skyni að fá að taka myndir af þeim í „görðunum sínum“, og þau hafa verið ósköp á- nægð og vinnuglöð að sjá. Enda veit ég ekki hvaða um- hverfi er unaðslegra fyrir börnin en að vera meðal blóma og annars gróðurs. Slíkt umhverfi hlýtur að vekja fegurðarsmekk þeirra, glæða áhuga þeirra fyrir snyrtilegri og góðri umgengni, ef það er á annað borð hægt. Margir reykvískir foreldrar hafa til þessa jafnan reynt að koma börnum sínum í sveit á sumrin, en mér er sagt, að það verði æ erfiðara; þeim sveitaheimilum fari fækkandi sem hafi þörf fyrir eða kæri sig um að taka börn á heim- ilið yfir sumarið. (Hér er auð- vitað átt við stálpaða krakka). Sé þetta rétt, liggur það e. t. v. að nokkru leyti í því, að með aukinni vélavinnu við heyskapinn verði minni not fyrir vikakrakka en áður var, að sínu leyti eins og véla- heyskapurinn útheimtir minni mannskap en heyskapur með orfum og hrífum út um alla flóa og mýrarsund, og heyið síðan flutt heim á klökkum, kannski meira en klukkutíma ferð aðra leiðina; heyskapur sem ég kannast við úr mínu ungdæmi. Það er áreiðanlega hollt fyrir börn og unglinga að fá að vinha að heilbrigð- um framleiðslustörfum yfir sumarið. Þau kynnast störf- unum og læra að skilja að verðmæti framleiðslunnar til „sjós og lands“ verði ekki til fyrirhafnarlaust. Eg held, að það sé ekki rétt að einblína of mikið á það, hve mikið börnin og unglingarnir beri úr býtum „fjárhagslega“. Þeir hlutir eru til sem ekki verða metnir á vog hins þétta leirs eina saman; — og víst er um það,’ að fátt er börnum og unglingum óhollai’a en að slæpast sumarlangt um ryk- ugar götur höfuðstaðarins. — EINN ER sá þáttur í dagskrá útvarpsins sem sjaldnar er minnzt á en efni standa til: Tómstundaþáttur barna og unglinga, undir stjórn Jóns Pálssonar. Þessi þáttur hef- ur verið fastur dagskrárliður einu sinni í viku nú um nokk- urra ára skeið. (Átti hann ekki fimm ára afmæli um daginn?) Hygg ég, að þátt- urinn hafi notið mikilla og sívaxandi vinsæida meðal barna og unglinga viðsvegar um landið, enda hefur slíkur þáttur tvímælalaust þýðingar- miklu hlutverki að gegna, bæði sem leiðbeiningaþáttur Framhald á 8. síðu. Beinakvarnir Höfum fyrirliggjandi nokkur stykkí af stórum. ! kvörnum til mölunar á kjöt- og fiskbeinum í fóöur j og áburö. Kvarnir þessar á aö nota í sambandi viö j reim frá dráttarvél eða jeppa og eru mjög af- j kastamiklar. Afar hagstætt verö. ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ G. Helgascn & Melsteð h.f. Hafnarstræti 19. Símar 1644 — 1647. I i TILKYNNING I til bátaútvegsmaima og vinnslu- stöðva Þeim, sem fi'amleiöa til útflutnings ómatsskyld- ar bátaafuröir, er hérmeð áskilið aö senda Fiski- félagi íslands ekki síöar en næstkomandi laug- ardag, 18. maí, nákvæma skýrslu um framleiöslu- magn sitt af þeim vara þessara, sem veröbætur eru á greiddar. Vanræksla jafngildir missi réttar til hækkaöra. verðbóta á bátaafuröir, framleiddar eftir 15. maí, Útllutningssfóður. j i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.