Þjóðviljinn - 30.07.1957, Síða 4
D ÞJOÐVILJINN — Þriðjudagur 30. júlí 1957
lUÓÐVlLJINN'
ÚTcafaadl: S&melntnKarflokkiir — Bósfaltitaflokkarinn. — Rttstjðnurt
Mannóo KJartanaaon. SlzurBar QuBmundsson (&!>.). — Préttarttstjórl: Jón
BJamaaon. - BlaBamenn: Ásmundur Slaurjónsson, QuBmundur TlKfúison.
Ivarr H. Jónsson, Magnús Torfl Ólafsson, SlKurJón Jóhannsson. — Augífa-
tniaaíjór!: QuBKelr MaKnúason. — Ritstjórn, afarelBsla, auelfslnK&r. nrent-
amíSti: SkólavörðustlK 19. — Slmt 17-500 (5 linur). — AskrlftarverB kr. 23 &
■Ua. i Rsvkjavlk ok nágrennl; kr. 22 annarsstaSar. — LausasöluverB kr. 1.90.
PrentsmlBJa WóBvilJana.
r ÚtsvarshneyksliÖ verður þeim dýrt
i Í7kki munu margir blaðales-
l M-4 endur finna til þess að
Morgunblaðið sé of hógvært í
skrifum sínum um þjóðmál.
Sízt mundi þessari ásökun
réttilega beint gegn blaðinu
síðan postuli hins glórulausa
ofstækis varð aðalritstjóri
blaðsins, og tók að setja mark
éróðurs síns á blaðið. Þeim
mun meiri athygli vekur sú
óvenjulega hógværð sem kem-
ur fram í skrifum Morgun-
blaðsins um útsvarsmálin í
1 IRej'kjavík, enda þótt ekki sé
! talað um annað meir í bæn-
1 iim. Fyrst eftir að uppvíst
! varð 7 milljóna hneykslið, of-
’ an á öll hin hneykslin, varð
: Morgunblaðið svo hógvært,
að það mátti ekki mæla. I
beilan sólarhring þurftu
fjórir ritstjórar að hugsa sig
vandlega um. Svo skolli
vandasamt var þetta mál, svo
illa kom það sér fyrir bæj-
arstjórnaríhaldið að farið var
að hreyfa við þessu, að ekk-
ert var hægt að segja til
varnar. Og Gunnar Thorodd-
sen kominn suður í lönd til
hressingardvalar og fegrunar-
blunda, svo hann gæti vel
hress og hvíldur togað fram
atkvæðin ihanda íhaldinu í vet-
ur, og það haldið áfram að
j ráðska með fé bæjarbúa enn
í fjögur ár.
Svo fékk Morgunblaðið mál-
ið, en hógværðina missti
] það ekki að heldur. Nú var
1 fólkið í Reykjavík beðið að
1 vera gott, þetta væri sama
sem engin lögbrot. Ef það
vildi bara bíða svolitla stund,
yrði búið að skila hinum
ranglega álögðu sjö milljónum
króna aftur, áður en nokkur
vissi af. Og hverjum átti svo
að skila þeim? Maður skyldi
setla að þurft hefði að skila
öllum útsvarsgjaldendum ein-
hverju aftur, því útsvar þeirra
ahra virðist hafa verið mið-
að við ólöglega heildarupphæð.
Nei, Sjálfstæðisflokkurinn ætl-
aði reyndar ekki að hafa þann
hátt á. Hann hafði hugsað
sér að skila sjö milljónum
aftur til þeirra, sem hefðu
dugnað í sér að kæra útsvör
sín. Hinir mega svo, að dómi
Sjálfstæðisflokksins, sitja á-
fram með hin ólöglega á-
lögðu útsvör sín og sveitast
við að borga þau þar til allt
er komið í sjóð íhaldsins, líka
sá hluti útsvarsins, sem lagð-
ur er á í trássi við lög. Þetta
var réttlætið sem Sjálfstæð-
isflokkurinn bauð Reykvíking-
um, svona átti að fara að
því að þvo hendur sínar af
hinni óheimilu útsvarsálagn-
ingu.
I ‘t/msum fannst, að hér væri
1- þó nokkuð boðið, að út
skyldu strikaðar sjö milljónir
ikróna af útsvörum þeirra, sem
ihefðu döngun í sér að kæra.
Várð allfjölmennt á skrifstof-
um niðurjöfnunarnefndar síð-
;ustu kærufrestsdagana, er í-
haldið hafði látið það boð út
ganga að þar lægju fyrir til
skipta sjö milljónir króna.
Vakti það athygli manna á
laugardaginn, að öflugur lög-
regtuvörður var settur í and-
dyri Alþýðuhússins við Hverf-
Isgötu, sennilega til að af-
stýra þvi að óhlutvandir menn
tækju að ganga í þessar sjö
milljónir, sem íhaldið ætlaði
að úthluta í útstrikunum á
útsvörum. I þrönginni skipt-
ust menn á gamanyrðum um
örlæti Sjálfstæðisflokksins og
spurðu þá sem út komu hvort
iþeir hefðu skilið nokkuð eftir
af milljónunum sjö, en þótt
gaman væri haft á yfirborð-
inu, var auðfundið að þungt
var í mörgum vegna útsvars-
byrðanna og útsvarshneykslis
í ofanálag. Og eftir hádegi
stöðvaði lögreglan alla kær-
endur, þeir sem síðar komu,
urðu ekki einu sinni aðnjót-
andi íhaldsréttlætisins!
Hvað þýðir hógværðin í
Morgunblaðinu ? Til hvers
beúdir það, að blaðið setur
nú daglega einhverjar smá-
klausur uni útsvarsmálið á
lítið áberandi stað? Hvers
vegna er efni allra þessara
lítið áberandi skrifa alltaf það
sama: Nú er þetta búið, góðu
Reykvíkingar, þetta er búið,
búið, búið! Nú skulum við
tala um eitthvað annað! Slík
hógværð í Morgunblaðinu og
allt að því grátbænir að láta
málið vera búið, þýðir; Að
Morgunblaðið veit upp á sig
skömmina, að Sjálfstæðis-
flokkurinn veit upp á sig
skömmina. Hógværðin þýðir
einnig að Morgunblaðið á
enga vörn í þessu máli, Sjálf-
stæðisflokkurinn á enga vörn
í þessu máli.
U' tsvarslögin tryggja gjald-
endum að þeir geti vitað
um hámarksupphæð, sem rétt
er að leggja á, og geti svo
með því að kynna sér álagn-
ingarstigann, reglumar um á-
lagninguna, reiknað sjálfir út
nokkurn veginn hvort á þá
sé lagt of hátt útsvar. Hin
hliðin snýr aftur að bæjarfé-
laginu, að því er heimilt að
bæta ofan á fjárhagsáætlunar-
upphæðina 5—10% fyrir van-
höldum, leiðréttingum og
kærum. Þessi hundraðshluti
er lögbundinn að hámarki, og
hefur hvorki Sjálfstæðisflokk-
urinn í Reykjavík né neinn
annar bæjárstjórnarmeirihluti
neina heimild til að leggja á
hærri hundraðshluta í þessu
skyni, hvort sem það er álitið
nægjanlegt eða ekki, — en
það hefur íhaldið gert nú.
Hér í Reykjavík var lögleyfð
hámarksupphæð útsvar-
anna 1957 199 milljónir
króna. Nú hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn hinsvegar, I algeru
heimildarleysi, miðað útsvar
ihvers einasta gjaldanda í bæn-
um við allt aðra heildarupp-
hæð, 206 milljónir króna.
Þetta ranglæti, sem bitnar á
hverjum einasta gjaldanda í
bænum, verður að sjálfsögðu
ekki lagfært með því að
strika út sjö milljónir króna
af útsvönim tiltekins hóps
gjaldenda, og nefna það leið-
réttingar. Svo auðveldlega
sleppur Sjálfstæðisflokkurinn
ekki frá þessu útsvars-
hneyksli. Svo þungur er hug-
ur bæjarbúa til íhaldsins fyrir
álögumar, að álitshnekkirinn
þeirra vegna getur orðið því
dýr.
1 e —_i SKÁEIN a
íííí Ritstjári: J 3
i-— Svví FREYSTEINN ÞORBERGSSON
Að loknu heimsmeisfaramóti
Stúdentaskákmótinu er lokið,
og keppendur flestir famir á-
leiðis heim. Lesendur þessa
þáttar hafa meðtekið úrslitin
og hver og einn gert upp við
sjálfan sig, hvort hann er á-
nægður með frammistöðu okk-
ar manna, hvers einstaks
þeirra og allra saman. Slíkt
getur verið álitamál og endan-
legur dómur oltið engu síður
á kröfuhörku og tilætlunar-
semi okkar sem um dæmum en
loka-vinningastöðunni. Um hitt
eru sjálfsagt flestir mér sam-
mála, að mótið — án tillits
til allra töfluútreikninga —
muni hafa örvandi og þrosk-
andi áhrif á íslenzkt skáklíf,
um leið og það markar þátta-
skil í sögu íslenzkrar skákí-
þróttar sem langmerkasti á-
fahginn á ferli hennar.
Eg er þess fullviss, að' mót-
ið hefur ekki einungis orðið
íslenzku keppendunum mikil
vizkuuppspretta og veitt
þeim dýrmæta keppnisþjálfun,
heldur hefur einnig seytlað inn
í vitund hinna fjölmörgu á-
hugasömu áhorfenda næmari
skilningur og dýpri þekking á
eðli hinnar þöglu, göfugu í-
þróttagreinar, er við nefnum
skák.
Hvað viðkemur framkvæmd
mótsins, þá held ég að segja
megi, að hún hafi farizt þeim
aðiljum, sem um hana sáU,
vel úr hendi og reynsluskortur
okkar í skipulagningu slíkra
stórmóta hafi hvergi valdið
verulegum misfellum.
Áhorfendum var gert auð-
velt að fylgjast með skákun-
um án þess að trufla keppend-
ur, og þær skákir, sem mest-
an spenning vöktu, voru skýrð-
ar á veggtöflum af færúm
meisturum. Var þannig flest
gert til þess, að menn þyrftu
ekki að sjá eftir því fimmtán
króna „skólagjaldi" er þeir
urðu að inna af hendi.
Hvað erlendu keppendunum
viðvíkur, þá virtust þeir una
hér vel sínum hag, og sjálfsagt
hefur hinn almenni áhugi á
mótinu og mikli áhorfenda-
fjöldi hvatt þá til dáða og gef-
ið mótinu meira inntak í
þeirra augum
Þama voru líka margar góð-
ar skákir tefldar, þótt þar
væri auðvjtað misjafn sauður í
mörgu fé og skákir af lakara
taginu fyrirfyndust einnig. Svo
er alltaf á stórum mótum.
Eg vona svo að ég tali fyrir
munn íslenzkra skákunnenda
almennt, er ég óska hinum er-
lendu keppendum góðrar heim-
ferðar, bæði þeim sem halda
vestur um haf og hinum, sem
farar austur fyrir tjald og öll-
um þar á milli. Við bíðum eft-
ir næsta alþjóðaskákmóti á
íslandi,
Skákir frá mótinu:
Hvítt; Andersen (Daiunörk).
Svart: Ingvar Ásmundsson.
Kóngs-tndversk vörn
1. c4 Rf6
2. Rc3 g6
3. d4 Bg7
4. e4 d6
5. Í3
Þessi leikur og það uppbygg-
ingarkerfi, sem hann mótar, er
mjög í . hávegum hafður af
ýmsum skákmeisturum nú til
dags og talinn af mörgum
bezta svarið við kóngs-ind-
verskri vöm.
5. --- e5
6. d5
6 dxe5; dxe5 7. Dxd8t; Kxd8
O. s. frv. leiðir til endatafls,
sem er síður en svo hagstætt
hvítum. Svarti kóngurinn fær
ákjósanlegt skjól á c7, eftir c6,
og auk þess fær svártur gjarn-
an færi á að staðsetja riddara
á d4.
6. Rf—d7!
Athyglisverður leikur. Hug-
myndin é’r sú að svara 7. Be3
með Bh6! 8. Bxh6 Dh4f og
vinnur biskupinn aftur. Reynsl-
an hefur nefnilega leitt í Ijós,
að drottningarbiskup hvíts
verður notadrýgri maður en
kóngsbiskup svarts í þessu
byrjunarafbrigði og eru því
biskupakaupin þeim siðartalda
í hag.
7. hl
Leikið til að hindra fyrrnefnd
áform svarts.
7. -------------- f5
8. exf5 gxf5
9. Be3 ' o—o
10. Bd3
Betra var að leika 10. Dd2 og
langhrókg sem fyrst
10. Rf6
11 Dc2 e4!
Ingvar er í vígahug og fóm-
ar nú peði til að opna mönnum
sínum sóknarsvið.
12. fxe4 Rg4
13. Bg5 De8
14. Rg—e2 Ra6
15. o—o
Andersen finnst ekki seinna
að reyna að koma kóngi sínum
í öruggara var. 15. o—o—o var
ekki möguleg vegna Rf2 o. s.
frv.
15. h6/
16. Bi4 Dh5
17. g3 Rb4
18. Ddl Rxd3
19. Dxd3 fxe4
20. Dxe4 Bf5
21. Df3 Dg6
Ingvar hefur nú yfirburða-
stöðu og öruggt vald á öllum
mikilvægustu reitunum á mið-
borðinu. Biskupapar hans hef-
ur lamaddi • áhrif á allar skipu-
legar vririnaraðgerðir af Dan-
ans hálfu;
22. c5 Rcá
23. De3 Rc4
24., Dcl Ha—e8
Þar með er allt Ul reiðu fyrir
lokasóknina.
25. cxd6 cxd6
26. b3 Re5
27. Dd2 Bh3
28. Hf2 Rg4
29. Hf3 Re5
30. Hf2 Rd3
31. h5
Örvæntingarkenrfd peðsfórn í
voniausri stöðu.
31, Df5
32. Hf3 Re5
33. He3 DxliÓ
34. Rd4 Dg«
35. Rc—e2 Rg4
36. Hxe8 Hxe8
37. Hdl
Meira viðnám veitti 31. Rc3,
til að verja reitinn e4 fyrir
drottningunni.
37. De4
Nú er hvítur overjandi mát
38. Rc3 Bxd4t
og hvítur gafst upp.
Hér kemur svo stutt en snagg-
araleg skák milli Rússans Ta!
og Búlgarans KoJaroffs.
Hvítt: Tal.
Svart: Kolaroff.
Sikileyjarvöm.
1. e4 c5
2. RfJ dtí
3. d4 cxd4
4. Rxd4 RíB
5. Rc3 a£
6. Bg5 Rb—d7
7. Bc4 Da5
8. Dd2 e€
9. o—o—o?!
Undirbúningur tvísýnnar
mannsfórnar, en í tvíeggjuðum
og flóknum stöðum hýtpr Tal
sín bezt. Öruggara var, 9'. f3.
9. ------------ b5
ABCDEFGH
ABCDEFQH
10. Bxe6
Þessi mannsfóm er nú raunar
þvingiið vegna hótunarinnar
b4 og Rxe4 o. s. frv.
10. ---- ftce6
11. RxeG Kf7
11 — Db6 Sýriist koma sterk-
lega til greina, þar sérii Tal
yrði þá að kaúþá: d-peðið því
verði að fara í dröttningakaup
og leggja í tvdsýnt endatafl
með þrjú péð á frióíi manni.
12. Rxf8 Hxf8~
13. Dxd6 b4
14. Rd5 Dxa2
15. Hh—el Kg8
16. Bxf6 gxffi
Ef 16. — Rxf6 j7. Re.7t Kh3
18. Rg6t o. s. frv. Og ef 17. —!
Kf7 gæti komið 18. Dc7 með
margvíslegum hótunum.
17. Hd3 Dalt
18. Kd2 Dxb2
19. f4
Eftir 19. Hg3t Kh8 20. De7j
kæmi Dd4t 21 Ke? Dc4t o,
s. frv. Tal byrjar því peðafram-
rás til að opna nýjar sóknar-
línur.
19. -------- b3
Tilgangur Kolaroffs með þess-
um leik er sennilega sá aS
koma drottningumri í vörnins.
eftir 20. Hxb3 Dd4t og síðaií
Dc5. En Tal a örlagaríkatt
millileik. -t.j’ .
20. Re7t! . -Kh8
21. Hxb3 ■ j•'
Nú hrekst svarta drottningin át
óheppilegan reit.
21. ------- Da2
22. Dd5 Ha7
Eftir 22. — Hb8 gæti komið
23. Rg6t Kg7 24. Rxf8 Rxb3 ,
25. Re6t Kf7 26 Rg5i Ke8 2T.
Df7t Kd8 28. Re6 mát.
23. Rg6t! Kg7
Auðvitað ekki hxg6 vegná
Hh3t og svarta drottningin
fellur. ^
24. Rxf8 Kxf8
25. e5 Rxe5
Örvæntingar leikur. SvartuiP
átti enga helda vöm lengur.
Riddarinn er nú að sönnu;frið-
helgur vegna fxe5; Hd7 o. s.
irv., en nú er allt svarta- liðið •
í upplausn og mennirnir falla .
hver um annan þveran. . :
26. Dc5f KgS
27. Dxc8t Kf7
28. fxe5 Dá5f V '
29. Dc3 Hd7t
30. Kcl
og Kolaroff gafst.upp ,
S veinp. JtrtetriJ^son,