Þjóðviljinn - 30.07.1957, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.07.1957, Blaðsíða 5
 Þriðjudagur 30. júlí 1957— ÞJÓÐYIUINrí (S Bæjarntgerð Akraness 10 ára Það var 29. júlí 1947 að B.v. Bjami Óláfsson kom hingað til Akraness, nýsmíð- aður• :i, Englandi. Þann dag má telja að nýtt timabil hefj- ist í útgerðarsögu Akraness. Heyndar var einn lítill togari stundtim gerður út frá Aki-a- nesi um nokkur ár þar áð- ur. En með komu hins nýja og glæsilega skips sem bærinn sjálfur átti og gerði út skap- aðist nýtt viðhorf. Enda varð brátt almennur áhugi í bæn- um fyrir því að eignast fleiri togara af sömu gerð eða svip- aðri. Þótt það reyndist ókleift áð ná í fleiri nýsmíðaða tog- ara var ekki horfið frá þeirri hiigsun að auka við útgerð- ina. Og fjórum árum siðar gafst Bæjarútgeró Akraness kostiir á kauputn togarans Akurey, þá eign samnefnds hlutafélags í Reykjavík. Af kaupum varð og kom Akur- eyl Mngað í nóvember 1951. Á þéssu 10 ára timabili er Bæjarútgerðin hefur starf- að ér aflamagn togaranna sem hét segir: Bjarni Ólafsson 46:718,616 kg alls. Þar af landað hér á landi 36.493.382 kg. Akurey 24.918.331 kg. alls. Þar af lagt á land inn- anlahös 22.552.030 kg. Verð- ' KiMjáiism fe, mæti alls afla togaranna upp úr skipi selt bíeði utanlands og innan er kr. 64.868.096.00. Greidd vinnulaun frá Bæjar- útgerðinni eru 33.5 milljón króna. Hér með eru ekki talin vinnulaun við viðgerð eða við- hald skipanna, er nema þó að sjálfsögðu allhárri upphæð. Þessar tölur tala sínu máli itm það að útgerð togaranna hefur eigi verið lítil lyftistöng í atvinnulífi Akranessbæjar, þegar þess er gætt að lang- mestur hluti alls afla þeirra ihefur verið seldur við skips- hlið til frystihúsanna hér á staðnum en aðens lítill hluti verkaður af Bæjarútgerðinni sem skreið eða verið lagður á land annarsstaðar. En því miður liggja ekki fyrir tölur er sýni vinnulaun frystihús- anna við afla togaranna. Bæjarútgerð Akraness hef- ur frá upphafi verið stjórnað af þriggja manna nefnd, kos- inni af bæjarstjóm. Fyrstu út- gerðarstjóm skipuðu Þorgeir Jósefsson formaður, og Jón Sigmundsson og Guðmundur Sveinbjörnsson, Núverandi útgerðarstjórn skipa þessir menn: Hallfreð- ur Guðmundsson fomiaður, Sigurður Guðmundsson og Ól- afur B. Björnsson. Fyrsti skipstjóri á Bjarna Ólafssyni var Jónmundur Gíslason sem hefur gegnt þvi starfi nær óslitið þar til 1955 en tók svo aftur við skip- stjórn þar snemma á þessu ári. Á Ákurey var fyrst skip- stjóri Kristján Kristjánsson sem þá liafði verið skipstjóri á. henni frá því hún kom til landsins. Núverandi skipstjóri á Ak- urey heitir einnig Kristján Kristjánsson. Þegar litið er til baka yfir þetta tíu ára tímabil í sögu Bæjarútgerðar Akraness þá verður manni fyrst fyrir að athuga hvað togaraútgerðin hefur ihaft að færa okkur liér á Akranesi. Því er auðsvarað að hinn mikli vöxtur bæjarins á und- anfömum ámm hefur að all- miklu, leyti byggzt á hinni miklu vinnu við verlcun tog- Jómnundur Gíslason araaflans. En hvernig hefur fjárhags- afkoma Bæjarútgerðarinnar verið? Þar er ekki fallega sögu að segja. Fjárhagur útgerðar- innar hefur lengst af verið mjög slæmur. Hefur þar verið Framhald á 7. síðu Spasskí og Lombardy vilja báðir koma bingað aftur lj Nú er stúdentaskákmótið á enda og skákmenn og skák- unnendur geta nú „slappað af“ og snúið sér aftur að veraldlegum hlutum um sinn. Kveðjuhóf, þar sem verðlaun- um var úthlutað og gjöfum rigndi yfir á alla vegu, var haldið í Sjálfstæðishúsinu s.l. laugardagskvöld og þótti þessi alþjóðlegi dansleikur takast með ágætum nema hvað nokkuð skyggði á gleði sumra að þeir, er héldu til liOmbardy Khafnar, þunftu á fætur á mínútunni kl. 5 á sunnu- dagsmorgun. Varð það til þess að flestir skákmannanna urðu að yfirgefa veizlusalinn fyrir fyllingu tímans, og þótti flestum miður. Fréttamanni gafst þó færi á að ræða nokk- ur orð við þá Spasskí og Lombardy áður en þeir hurfu heim í háttinn. Spasskí sem tefldi á 2. borði fyrir Sovét er geðugur ungur maður, háttvís í fram- komu og talar skýra ensku. Hann er búsettur í Leningrad og er þar við nám í blaða- mennsku. Hann sagði að þeir félagarnir væru mjög hrifnir af því, sem þeir hefðu séð hér og því fólki, sem þeir hefðu kynnzt og sjálfur myndi hann koma hingað aftur við fyrsta tækifæri. Þegar þeir hverfa nú heim áftur til síns heima, myndu þeir leggja skákina á hilluna um sinn og taka til við námið og önnur skyldu- störf sem biðu þeirra. Spasski sagði aþ lokum, að liann von- aðist eftir að hitta sem flesta skákfélága" sína aftur í Sofía, Búlgaríu, á sumri komanda, en þar er áætlað að næsta Heimsmeistaramót stúdenta í skák fari fram. Lombary er New York- búi, aðeins 19 ára að aldri, og stundar læknanám þar í feorg. Hann kvaðst hafa bvrjáO að tefla 14 ára en nú mætti hann ekki mikinn tíma missa frá náminu, sem væri tíma- frekt óg erfitt. Lombardy sagði, að það væri alltaf erfitt » að tefla, hvort sem andstæð- ingurinn væri harðsnúinn eða ekki, og hann tæki skákina alltaf alvarlega hver sem ætti í hlut. Honum fannsfi Reykjavík vera skemmtileg og snotur borg, en verðlagið hér sagði hann að væri eina og það væri verst í Ne\g York. Hann sagðist aðeina hafa ferðazt til Keflavíkur og þótti honum leiðin þangað vera sérkennileg þar sem ek- ið væri í gegnum hraunið, og langaði hann að sjá meira af landinu ef hann ætti þesa kost. Samtalið var ekki ölli* leijgra, því nú kom Spasskí að kveðja hann og óska hon- um gæfu og gengis í heims- meistarakeppni unglinga, sem háð verður í Kanada á næst- unni, en Spasskí fullj-rti aði þar hefði hann mikla mögu- leika að sigra. Þeir voru lengi að kveðjastj þeirri hugsun skaut upp hjá fréttamanni að þetta væru góðir fulltrúar þessara vold- ugu þjóða og vinátta þessara ungu manna væri vísir að Spasskl batnandi samkomulagi ogj auknum skilningi milli aust- urs og vesturs. HALLGRÍMSKIRKJA Framhald af 8. siðu. mundur Brynjólfsson oddvitl Hrafnabjörgum, Pétur Ottesen alþm., biskup íslands, Ásmund- ur Guðmundsson og Eysteinn Jónsson fjármálaráðberra Bjarni Ólafsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.