Þjóðviljinn - 13.09.1957, Blaðsíða 1
VILJINN
Þjóðviljann vantar nolckra •
Föstudagnr 13. september 1957 — 22. árgangur — 205. tölubl.
unglinga til blaðburðar á
næstnnni, bæði í ReybjavíK
og Kópavogi.
ÚrskurSur félagsmálaráSuneyfisins:
r
iungin
Brýtur í bág við lög vegna umframupphæðariimar og að ekki
var tekið nægilegt tillit til efna og ástæðna gjaldenda |
Ligt fyrir besjarstjérn að hEutast tií um, að Riðarjöfnnnarnefnd jafni niður ýtsvcrnm | 1
nýju og augfýsi síðan IramEagningu útsvarsskrár msð löglegum hætti 1
I gær kvað félagsmálaráðuneytið upp úrskurð sinn út af deilunni um útsvörin í
Reykjavík. Höfðu 5 bæjarfulltrúar vinstri flokkanna snúið sér til ráðuneytisins og
óskað eftir að það rannsakaði málið og úrskurðaði um lögmæti álagningarinnar,
en eins og kunnugt er var jafnað niður nœr 7 millj. kr. umfram fjárhagsáætlun
og heimild ráðuneytisins, og hafði íhaldsmeirihlutinn í bœjarráði og bœjarstjórn
algjörlega neitað að leiðrétta misferlin og naut til þess stuðnings fylgissveins síns,
Bárðar Daníelssonar.
Úrskurður félagsmálaráðuneytisins er efnislega á þá leið að niður-
jöfnun útsvara í Reykjavík frá 10. júlí s.l. er dæmd ólögmæt, þar sem
hún brjóti í bág við gildandi útsvarslög. í fyrsta lagi var ekki heimilt að
hækka útsvörin fram yfir samþykkt bæjarstjómar og heimild ráðuneytisins.
Og í öðru lagi tók niðurjöfnunamefnd ekki nægilegt tillit til efna og ástæðna
gjaldenda, svo sem gert er ráð fyrir í lögum.
Ráðuneytið leggur fyrir bæjarstjórn Reykjavíkur að hlutast til um, að
niðurjöfnunarnefnd jafni niður útsvörum þessa árs að nýju og auglýsi síðan
framiagningu útsvarsskrár með löglegum hætti.
Bréf félagsmálaráðuneytisins verði innan lögleyfðra og lieimii- útsvarsskráin kom út og gjald
til borgarstjórans í Reykjavík
um þetta efni fer orðrétt hér á
eftir: (leturbreytingar eru Þjóð-
viljans) s
„Ráðuneytinú hefur borizt
bréf frá fimm bæjarfulltrúum í
Reykjavík, dags. 2. f. m., um á-
lagningu útsvara í Reykjavík á
þessu ári. Segir í bréfi þessu,
að þegar aðalniðurjöfnun hafi
lokið og skrá um n'ðurjöfnunina
hafi verið lögð fram, hinn 10.
júlí s.L, hafi komið í ljós, að
jafnað hafi verið niður kr.
206.374.350,00 eða kr 6.938.850,00
umfram samþykkt bæjarstjórnar
og heimild ráðuneytisins. Að
lokum segir svo í bréfmu, orð-
rétt:
„Þar sem meiri liluti bæjar-
ráðs Reykjavíkur liefur ekki
viljað hlutast til um, að aðal-
niðurjöfnuninni frá 10. júli s.l.
verði breytt og hún ieiðrétt
þatmig, að heildarfjárhæð á-
lagðra útsvara í Reykjavík 1957
aðra marka, kr. 199.435.500,00,
endur höfðu haft tækifæri til
að bera fram kvartanir sínar í
kærum og munnlegum viðtölum
við nefndina.
Upplýsir nefndin, að hún hafi
af þessum ástæðum tal:ð nauð-
synlegt að ætla í upphafi nokkra
upphæð á ári hverju til að
mæta þeim lækkunum oc ’eg-
fænngum, sem óhjákvæmilegt
var að gera, vegjia þessara
nýju starfshátta. Upphæðir, sem
nefndin hafi lagt á umfram
10% álag á áætluð útsvör sam-
kvæmt fjárhagsáætlun hafi á
undanförnum árum verið þessar:
Árið 1954 kr. 1 725.300,00.
— 1955 — 2 112.040,00.
— 1956 — 3.380.570,00
og — 1957 — 6.938.850,00.
Um niðurjöfnunina á þessu
ári segir svo í fundargerðarbók
niðurjöfnunarnefndar 2. b. m.,
orðrétt:
„Eins og fram kemur í umsögn
nefndarinnar, dags. 26. júlí s L,
voru ætlaðar kr. 6.938.850,00 til
þess að mæta að nokkru þeim
lækkunum, sem óhjákvæmilega
varð að gera á einstökum út-
svörum vegna þess, að nefndin
hafði ekki haft aðstæður til að
meta efni og ástæður gjaldenda
á jafn víðtækan hátt og gert
var, áður en tekin var upp sú
aðferð, sem nú er höfð við á-
lagninguna og lýst er í áður-
nefndri umsögn nefndar'nnar
Eftir útkomu útsvarsskrárinnar
hefur mjög ýtarleg athugun far-
ið fram á útsvörunum með til-
liti t.il efna og ástæðna gjaldend-
anna, og er þeirri athugun nú
lokið."
Ráðuneytinu var ókunnugt um
þá nýbreytni, sem upp var tek-
Framhald á 8 síðu.
leyfum vér undirritaðir bæjar- ^
fulltrúar oss hér með að snúa
Pflnik efirn
vaim
f fyrstu umferð skákmótsins,
er tefld var í gærkvöldi, bar
það helzt til tíðinda, að Guð-
raundur Ágústsson lék af sér
drottningunni í síðasta leik sín-
um í skákinni við Pilnik, en
var þá með tvö peð yfir og
unna stöðu. Benkö og Stáhlberg
gerðu jafntefli í rólegri skák.
Guðmundur Pálmason og Ingvar
gerðu jafntefli eftir fjöruga og
tvísýna skák. Jafntefli varð
Framhald á 3. siðu.
oss til hins háa ráðuneytis með
þá beiðni, að ráðuneytið rann-
saki málið, úrskurði um lögmæti
greindrar umframálagningar og
komi fram leiðréttingu með lög-
mæltum aðgerðum.“
Með bréfi, dags. 6. f m., sendi
ráðuneyt ð yður, herra borgar-
stjóri, afrit af þessu bréfi bæjar-
fulltrúanna til umsagnar. Með
bréfi yðar, dags. 17. f. m., barst
ráðuneytinu umsögn niðurjöfn-
unarnefndar, dags. 26. júlí s.L,
um tillögu Inga R He’gasonar,
eftirr't af téðri tillögu Inga R.
I-Ielgasonar og ályktun bæjar-
ráðsfundar frá 26. júli s.l. af því
tilefni og með bréfi yðar, dags.
6. þ. m., fékk ráðuneytið um-
sögn niðurjöfnunarnefndar um
áðurnefnt bréf bæjarfulltrúanna,
dags. 2. f. m.
í umsögnum sínum upplýsir
niðurjöfnunarnefnd, að á árinu
1954 hafi verið tekin upp sú
nýbreytni við álagningu útsvara
í Reykjavík, að útsvör verulegs
hluta gjaldenda hafi verið reikn-
uð i sérstökum vélum nákvæm-
lega samkvæmt útsvarsstiga, og
hafi þær tekjur verið lagðar til
grundvallar, sem skattstofan
hafi ákvarðað að væru nettó-
tekjur gjaldendanna. Með þess-
ari vinnuaðferð hafi nefndin
ekki haft tök á að meta efni og
ástæður gjaldenda á jafn víð-
tækan bátt og áður. Hafi því
reynzt n^uðsynlegt að endur-
skoða útsvörin á miklu gagn-
gerðari hátt en áður, eftir að
Hvað gerðlst áður í málinu?
★ Bæjarstjóm Reykjavíkur
samþykkti f járliagsáætlun
bæjarins fyrir árið 1957 í
desembennánuði síðastliðn-
um. Var þar gert ráð fyrir
útsvörum að fjárhæð kr. 181,3
millj.
★ Hinn 1. júlí s.l. veitti fé-
lagsmálaráðuneytsð lögákveð-
ið samþykki sitt að jafna
þcirri fjárhæð á Reykvíkingá.
★ Þessi útsvarsfjárhæð er
sú hæsta í sögu borgarinnar
og er hækkun útsvaranna frá
í fyrra meiri í Reykjavík en
í nokkru öðru bæjarfélagi á
landinu.
★ Á bæjarráðsfundi hinn
23. júlí s.l. flutti Ingi R.
Ilelgason bæjarfulltrúi sósíal-
ista tillögu um það að niður-
jöfnunin yrði tafarlaust leið-
rétt, því að bersýnilegt væri,
að með henni væri ekki farið
að lögum. Gunnar Thoroddsen
borgarstjóri var erlendis en
Gunnlaugur Pétursson settur
borgarstjóri í hans stað. Til-
lögu Inga R. var frestað ineð
íhaldsatkvæðunum þremur
gegn atkv. Inga R. og Þórðar
Björnssonar bæjarfulltrúa
Framsóknarflokksins.
bæjarfulltrúar, þeir Guð-
mundur Vigfússon, Alfreð
Gíslason, Þórður Björnsson,
Petrína Jakobsson og Ingi R.
Ilelgason félagsmálaráðuneyt-
inu bréf og fara fram á, að
ráðuneytið kveði upp úr-
skurð um lögmæti niðurjöfn-
unarinnar frá 10. júlí 1957.
'k Samkvæmt útsvarslögun-
um ber niðurjöfnunarnefnd
að jafna niður áætlunarfjár-
hæðinni að viðbættum 5—
10% og rnáttu því útsvörin
eigi verða hærri en samtals
kr. 199,4 millj.
★ En íhaldið vildi meira og
þegar skrá um aðalniðurjöfn-
un útsvara var lögð fram og
undirrituð liinn 10. júlí s. I.
voru útsvörin komin upp í
206,3 millj. kr., eða tæpimi
7 mlllj. kr. meiri en lögleyft
er.
★ Á næsta bæjarráðsfundi
liggur tillaga Inga R. Ilelga-
sonar aftur fyrir og með
heiuii uinsiign niðurjöfminar-
nefndar, sem telur sig hafa
gert allt löglegt. Á þessurn
bæjarráðsfundi flytur Gunn-
laugur Pétursson frávísunar-
tiilögu og er sú tillaga Gunn-
laugs samþykkt með þremur
atkv. íhaldsins og atkv.
Bárðar Daníelssonar bæjar-
fulltrúa Þjóðvarnarflokksins
gegu atkv. Inga R. Helgason-
ar. — Þar með var afgreiðslu
málsins lokið á vettvangi
bæjarráðs.
★ Eftir bréf finunmenning-
anna fjallaði bæjarstjórn um
málið á tveimur fundum, hin-
um fyrri 22. ágúst og hinum
síðari 5. september. Þar bar
Ingi R. Helgason enn fram
tillögu sína um leiðréttingu
niðurjöfminarinnar, en úrslit-
in urðu þau samkvæmt
nafnakalli, að ílialdið sat hjá
um tillöguna nema Ólafur
Bjömsson, hann og Bárður
Daníelsson greiddu atkvæði
gegn henni, Magnús Ástmars-
son sat hjá en sósíalistar, AI-
freð Gíslason og Þórður
Björnsson greiddu tillögunni
atkvæði.
★ Hinn 2. ágúst rita fimm
★ Síðan hefur verið beðið
eftir úrskurði ráðuneytisins
og var hann kveðinn upp í
gær og er birtur hér á öðrrmi
stað i blaðinu.