Þjóðviljinn - 12.10.1957, Blaðsíða 9
:4
Laugardagur 10. október 1957 — 3. árgangur — 36. tölublað
FRtMERKJAÞÁTTUR
Lesendur okkar
hafa •'
óskað eftir því,
í blaðinu kæmu
stundum þættir
um frímerki. Það
er mjög skiljan-
legt, að þið ósk-
ið eftir slíkum L
þætti þar sem
mörg ykkar munu
safna frímerkj-'
um. Það er mjög
skemmtileg tóm-
stundaiðja, sem
gefur , mikla
möguleika, því að |L;,
það er um auð-
ugan garð að gresja.
Talið er að í allt séu
um 125 þúsund gerðir
frímerkja. Sannarlega er
á fárra færi að safna
þeim öllum, en það ger-
ir ekkert til, þið getið
eignast gott safn frí-
merkja fyrir því, eink-
um, ef þið gerið ykkur
ijóst að gildi íslenzkra
frímerkja er sízt mimra
en þeirra erlendu, þó
erlend frímerki virðist
sjaldgæfari í ykkar aug-
um. Þið getið líka betur
ráð.ið við að safna ein-
göngu frímerkjum frá
einhverju sérstöku landi.
Og því ekki ykkar eigin
landi? Nú er væntanlegt
nýtt íslenzkt frímerki.
Það er gefið út til að
heiðra minningu Jónas-
íir Hallgrímsso.nar skálds,'
en þann; 16. nóvember
næstkomandi eru liðin
150 ár frá fæðingu hans.
Þetta verðu.r 5 krónu frí-
merki, prentað í svörtum
og grænum lit.
SKEMMTÍLEGUR LEIKUR
Á iöngum vetr.arkvöld-
um . í 'Sveitinjii eða í
bænum er gaman að
fara í leiki. Hér er
skemmtiiegur leikur
handa ykkur. Það þarf
ekki annað en tvenn
spil og svo er hægt að
þyrjfl. Það eru ailir látn-
ir fara út úr herberg-
inu. nema.s.á, sem jeikn-
um stjórnar. Hann flýt-
ir sér að fela önnur sþil-
in hingað og þangað um
s.tofuna undir púðum,
bak við skápa, uppi í
ljósakrónunni og bak við
myndir. Sum spiiin reyn-
ir hann að fela mjög
Framhald á 3. síðu
SKRÍTLA
Gesturinn: —- Þér -eruð
mik.ill dýravinui', frú, Ég.
sé það á því, hve góðar
þér eruð við kettina
yðar.
Frúin: — Það borgar
sig; þeir hjálpa manni
því betur við uþpþvott-
inn.
Bréf
Framhald af 3. síðu.
ferilinn röktu inenn.
Sporin urðu að orðum
svo allt stóð -í skorðum.
Óskastundin ' þakkar
kærlega fyrir bréfið og
sendir lesendum sínum á
Norðfirði kveðju.
LITLA
KROSSGÁTAN
1 ungviði 4 skammstöfun
5 á líðandi stund 7 staka
Lóðrétt:
i hnýtti 2 sólguð 3 hús-
dýrið þf. 6 ekki.
Lausn á síðustu gátu:
Lárétt:
1 rétt 4 tó 5 ga 7 laga.
Lóðrétt:
1 rótt 2 tá 3 saga 6
ma.
Ráðning á gátunum er
hatturinn og strokkurinn.
Vilhrw^ 'P»tibi»»*tvthM,íi» - Útpgfandf? b<67lt/i)iSnn
Fyrír nokktum
áVum kom út
dálítið .kvæða-
kver fyrií börn.
Á kápUnni var
teikning af strák,
sem óþægðin
skein út úr. Þetta
var sem sé ó-
þekktarormurfnn
hann Gutti, sem
öll börn á íslandi
sungu um. Höf-
undur bókarinn-
ar, gekk um tímá
undir nafninu
pabbi lians Gutta,
þangað til hann
varð ennþá fræg-
ari fyrir annan
SKÁLDAÞÁTTURINN
Sögu vil ég segja stutta
strák og aðra bók, þá
hét hann pabbi hans-
Iijalta. Raunar heitir
hann bara Stefán og er
Jónsson og ættaður úr
Borgarfirði. Hann fædd-
ist á Háafellj í Hvítár-
síðu 22. desember 1905.
Snemma fékkst hann Við
áð yrkja vísur, en þær
vísur sem hann orti fyrst
kann enginn nema hann
sjálfur, hann 'segist
skammast sín fyrir þær
og vill engum. segja þær,
Hann sneri sér aðallega
að þvi að skrifa sögur
og varð b.rátt einn af
þekktustu rithöfundum
landsins. Og nú eru til
eftir hann rtjUli tuttugu
og þrjátíu bækur. Flest-
ar þeirra eru ætlaðar
börnum og unglingum,
samt ekkert síður
lesnar . af eidra fólki.
Helzt vildi ég líkja sög-
um hans við hina- sí-
gildu norsku sögu Kát-
ur piltur. Hjalti litli er
okkur það, sem Eyvmd-
ur er Norðmönnum.
Árið 1033 byrjaði Stef-
án að kenna við Austur-
bæjarskólann í Reykja-
vík 'og hefur síðan starf- •
að við þann skóla. í
slarfi' sínu kynnist Stef-
■án því miklum fjöldá
fbarnu og á hægt með-
:a% geta sér til um hvað
jítiu vilja helzt iesa, en
íiann lætur það aldrei
réða -efni' nokkurrar bók-
ar. að hún yrði seljan-
Segri ef hann slakað’i að-
eíns á listrænum kröf-
um og gerði bókina:
,,meira spennandi“. Hon--
um þykir vænt um börn
og hann skrifar sögur
fyrir þau og um þau af
listrsenni þörf.
f haust eigum við von
á nýju kvæðakveri eftir
Stefan. Þetta verða
kvæði fyrir börn. Óska-
stundin birtir á 3. síðu
eitt kvæði Stefáns en það
hefur ekki áður komið
á prenti.
:— Hvað er auðn og
tóm?
— Ég hef það í höfð-
inu,, en ég get ekki út-
skýrt. það fyrir þér.
Fjölbreyií starfsemi ÍR í vetur
Vetrarstarfsemi Iþróttafélags
Reylcjavíkur hófst í þessari
viku. Félagið hefur sex í-
þróttagreinar á stefnuskrá sinni
þ.e. fimleika, frjálsar íþróttir,
skíðaíþróttir, körfuknattleik,
handknattleik og sund. Kenn-
árar eru í hverri íþróttagrein,
én í mörgum íþróttagreinum er
félagið í fremstu röð, sérstak-
lega frjálsíþróttum, kcrfuknatt-
leik, skíðaíþróttum og sundi,
einnig á félagið mjög efnilega
handknattleiksflokka og úrvals-
fimleikaflokk kvenna.
Kennarar ÍR
Á þessu hausti byrjar nýr
þjálfaiá hjá félaginu, en það
ér Valdimar Örnólfsson, sem
kennir skíðamönnum og fim-
leikamönnum, en mjög erfio-
lega gengur ,að koma upp fim-
leikaflokkum karla, það er eins
og ung^.. fpikið, vilji ekki æfa
þ'essa fögru íþrótt. Stjórn ÍR
gerir sér vonir um aukinn á-
huga á fimleikum karla, þar
sem Valdimar er fyrsta flokks
kennari og mjög góður fim-
leikamaður sjálfur.
Guðmundur Þórarinsson þjálf-
«r frjálsíþróttamenn félagsins,
«n í þeirri íþróttagrein á iR
mjög sterka sveit. Félagið
vann í sumar titilinn „Bezta
frjálsíþróttafélag Reykjavikur"
átti flesta iiðsmenn í landslið-
inu, ÍR-ingar settu meira en
helming Islandsmeta, sem sett
voru á árinu o.s.frv.
Hinn gamli sundkappi Jónas
Halldórsson er sundþjálfari IR,
ea innan vébanda félagsins er
m.a. fjclhæfasti og einn bezti
sundmaður landsins, Guðmund-
ur Gíslason, auk fjölmargra
annarra góðra sundmanna og
kvenna.
Körfuknattleikur er vaxandi
íþrótt liér á landi og þar
stendur ÍR fremst, því að á
íslandsmótiau hlaut félagið sig-
ur í þrem flokkum af fjórum,
báðum meistarafiokkum og 3.
flokki. Hrefna Ingimarsdóttir
þjálfar kvennaflokk.
Frú Sigríður Valgeirsdóttir
tók að sér kvennaflokk í fim-
leikum fyrir tveim árum og
hefur nu komið upp úrvals-
flokki, sem fór í ágæta sýn-
ingarför til London í sumar.
Einnig er frúarflokkur, og nú
er ákveðið að stofna II. flokk
og telpnaflokk.
Hadknattieiksflokkar iR eru
í mikilli framför, sérstaklega
yngri flokkamir. Á Meistara-
I rnóti Islands var IR í úrslitum
bæði í 2. og 3. flokki og meist-
araflokkur í 3ja sæti.
Þeir, sem ætla að æfa hjá
IR í vetur, bæði þeir sem æft
hafa undanfarið og eins nýir
félagar, ættu að látá innrita
sig sem fyrst í skrifstofu IR í
ÍR-húsinu eða í æfingatímun-
um. (Frá ÍR)
Kacing Club tapaði
7:1 fyrir Torpedo
Rússneska knattspyrnuliðið
Torpedo frá Moskva er um
þessar mundir í knattspymu-
ferðalagi í Frakklandi. Keppti
það við hið kurina lið Frakka
Racing Club, Paris og fóru
leikar. þannig að Rússarnir
unnu 7:1, en fyrri hálfleikur
endaði 3:0.
Freddksfiad ©g Samde-
fiord i úrslitum Kersku
bikarkeppninuar
I bikarkeppninni norsku fóru
leikar þannig í undanúrslitum
að Sandefjord vann Strömmen
og kom sá sigur mjög á óvart.
Hinn leikurinn var aftur á
móti milli Fredrikstad og Sarps
borg og endaði 3:0 fyrir Fred-
rílistad. íírslitin- verða síðar í
þessum mánuði.
Laugardagur 12. októbar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Bandarískyr
þjálfari í
körfuknaftleik
Á morgun er væntanlegur frá
Þýzkalandi John A. Norlander,
bandarískur þjálfari í körfu-
knattleik. Kemur hann á vegum
Í.S.Í. og íþróttafélaga þeirra í
bænum, sem iðka körfuknatt-
leik, en einnig mun hann fara
til Keflavíkur og Laugarvatns
og veita þar tilsögn.
Auk þess að vera þjálfari er
Norlander mjög þekktur körfu-
knattleiksmaður í heimajandi
sínu, og er það von þeirra, sem
að komu hans standa, að hún
megi verða lyftistöng fyrir
íþróttina hér á landi.
Blák víSa vlnsæl
íþrótt' Búlgárar
lieliiísníeistarar
Fyrir stuttu síðan för fram
heimsmeistarakeppni í blaki og
urðu úrslit þau að Búlgaría
vann Tékkóslóvakíu í úrslita-
leik sem fór fram í Sofía.
Tékkar .urðu heimsmeistarar í
fyrra, og kom þessí sigur því
nokkuð á óvænt. Sovétríkin
komu í þriðja sæti, Rúmenía
í fjórða og Frakkar og Italir
í fimmta og sjötta sæti. Leik-
ur þessi nýtur mikilla vinsælda
í Austur-Evrópu og má sjá það
nokkuð á bví að á úrslitaleik
þennan komu 15.000 áhorfend-
ur.
Mancliester Unit-
ed og Vasas áfram
í E-bikarkeppni
Brezka liðið Manchester Un-
ited vann nýlega Shamrock
Rovers með 6:0, og það var
síðari leikur þessara félaga í
keppninni um Evrópubikarinn.
Fyrri leikinn vann M.U. 3:2,
svo nú heldur M.U. áfram í
keppninni.
Ungverska liðinu Vasas tókst
einnig að vinna og halda á-
fram í þessari st.mu keppni.
Vann það búlgarska liðið
CDNA með 6:1 heima í Búda-
pest. Fyrri leiknum töpuðu
Ungverjarnir með 2:1 en betri
samanlögð markatala ræður ef
stig eru jöfn.
Um fyrri helgi kepptu Ung-
verjar og Frakkar í knatt-
spyrnu og fóru leikar þannig
að Ungverjar unnu með 2 gegn
engu. Fór leikurinn fram á
Nep-leikvangihum í Búdapest,
Vinsti innherji Ungverjanna
skoraði bæði mörkin, sitt í
hvorum liálfleik. Ungverjarnir
liöfðu mikla yfirburði í öllum
leiknum, en það var mjög góð-
ur varnarleikur Frakkamia og
þó sérstaklega markmannsins
Colonna sem bjargaði því að
ekki voru sxoruð fleiri mörk.
Colonna var í marki er Is-
land lék við Frakkland í HM-
keppninni í sept. s.L