Þjóðviljinn - 18.10.1957, Side 12

Þjóðviljinn - 18.10.1957, Side 12
Að enduðum tveimur umíerðarvikum Aðeins 7. til 6. hver bifreið í Reykjavik rrteð rétt Ijós? Nœsta takmark að ekki verSi fleiri dauSa- slys af völdum umferSar á þessu ári Umferðarvikunum tveim sem umferðarnefnd og lög- reglan framkvæmdu hér í bæ, í samstarfi við ýmsa aöila, er nú lokið. Af 2726 bifreiðum sem komu til ljósaskoðunar voru aðeins 412, eða 15.11% með rétt ljós. Mætti því ætla að af þeim ca. 6000 bifreiöum sem ekki komu til skoöun- ar séu aðeins um 900 með rétt Ijós. Markmiðið með urnferðarvikunum var ekki það, að halda uppi fyrirmyndar umferð í aðeins tvær vikur, heldur stuðla að því að allir vegfarendur auki árvekni sína og umferðarmenningu framvegis. Nœsta markmið er að ekki verði fleiri dauðaslys hér af völdum umferðar á þessu ári. Eftirfarancli npplýsingar hef- ur bjóðviljinn fengið hjá um- ferðamefnd Reykjavíkur: Fyrri vikuna voru bifreiðaverk- stæðin 1 Reykjavík opin milli kl. 18 og 22 og stillt ljós bif- reiða. Stilling þessi fór fram ökumönnum að kostnaðarlausu, en bifreiðatryggingarfélögin í Reýkjavik ásamt Félagi ísl. bif- reiðaeigenda greiddu kostnað- utanbæjarbifreiðir komu, enda var þsim frjáls aðgangur að stillingum þessum. Enn þúsundir með röng ljós Gefi þessi tilraun rétta mynd af ástandinu í bænum almennt að því er snertir ljós bifreiða og reiknað er með að hér séu nær 9000 biíreiðir má ætla að af þeim nær 6000 sem ekki komu til skoðunar hafi aðeins um 900 rétt Ijós en rúmlega 5000 röng. Ef til vill eru þessar tölur rangar en niðurstaða ljósavikunnar bendir þó ein- Framhald á 3. síðu. Föstudagur 18. október 1957 — 22. árgangur — 234. tölublað. Samþykki bæjarstjórnar í gær: Byggingar verSi ekki hœkkaS- ar norSanmegin Tjarnarinnar Bæjarstjórn samþykkti í gær svohljóðandi ti'Jögu frá Guð- mundi Vigfússyni: „Bæjarstjómin ályktar aö' leyfa ekki hækkanir eöa meiri háttar breytingar á húsum við' norö'urenda Tjam- arinnar, meöán ekki hefur veriö gengið endanlega frá skipulagi þar“. Guðmundur gat þess í ræðu að hann hefði flutt tillögu þessa 19. sept. í umræðum um að leyfa ekki hækkun á Oddfellow- húsinu, en tillögu sinni hefði þá verið visað til umsagnar skipulagsnefndar. Hinsvegar hefði íhaldið leyft hækkun Oddfellowhússins. Nú væri umsögn skipulagsnefndar kom- in, og segði þar m.a.: „Síðan ráðhúsi var ætlaður staður við norðurenda Tjamarinnar hefur skipulagsnefnd haft það meg- insjónarmið að leyfa ekki hækkanir né verulegar breyt- ingar á húsum á þessu svæði og mun halda því“. Borgarstjóri kvað hækkun, Oddfellowhússins ekki hafa. verið leyfða heldur aðeins að setja ris á húsið — „sem að sjálfsögðu hækkar það nokk- uð“. Því næst kvaðst hann fyr- ir sitt leyti fallast á fyr- greinda tillögu Guðmundar, og var liún samþvkkt með sam- hljóða atkvæðum. Verkfall á Ceylon Hafnarverkamenn í Golombo, höfuðborg Ceylons, lögðu niður vinnu í gær til að fylgja eftir inn. 4> Albert Camus kaupkröfu og mótmæla banni ríkisstjórnarinnar við verkföll- 15,11% með rétt ljós Þau 5 kvöld, sem stillingin stóð yfir komu 2726 bifreiðir tii skoðunar á verkstæðin. Af þeim höfðu 412 biireiðir, eða 15,11%, rétt ljós. 1726 fengu ljós sin þegar stillt en 588 þurftu meiriháttar viðgerð. Flestir þeirra komu á verkstæðin í venjulegum vinnu- tima næsta dag 'og iétu gera það sem með þurfti. Allmargar Macmíllan fer til Washington Tilkynnt var í London í gær að Macmillan forsætisráðherra myndi fara til Washington á þriðjudaginn til viðræðna við Eisenhower forseta. Utanríkis- ráðherrarnir Lloyd og Dulles munu taka þátt i viðræðunum, en Lloyd er þegar kominn vest- ur í fylgdarliði Elísabetar drottningar. Víst þykir að viðræðurnar muni snúast um hvað sé til ráðs fyrir vesturveldin gagn- vart yfirburðum Sovétríkjanna í flugskeytasmíði og ennfremur um ástandið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Talið er að þessi sömu mál hafi verið á dagskrá fundar sem Öryggisráð Bandaríkjanna hélt í gær. Eisenliower forseti sat þann fund. Nixon varaforseti sem ætlaði 'i þriggja vikna ferðalag til Evrópu í lok þessa mánaðar hefur frestað för sinni til næsta árs vegna aðkallandi starfa heirpa fyrir. Siíkoff í Albaníu Súkoff marskálkur, landvarna- ráðherra Sovétríkjanna, hefur iokjð opinberri heimsókn sinni til Júgóslavíu. Hann kom í gær til Tirana, höfuðborgar Albaniu, í boði albönsku stjórnarinnar. Bókmenntaverðlaun Nóbels um. Verkfallið átti að standa í sólarhring. í ár voru veitt Albert Camus Togarasiilias* Sænska akademían veitti í gær bókmenntaverðlaun Nobels í ár franska rithóíundinum Albert Camus. VerÖ- launin nema í ár 208.628 660.000 íslenzkum krónum. í greinargerð akademíunnar segir að Carnus hafi hlotið verð- launin vegna þess að hann hafi með „þýðingarmiklum ritverk- um sínum af skarpskyggni og alvöru varpað ljósi á samvizku- mál manns okkar tima“. Yngstur í hálfa ökl Albert Camus fæddist i Mon- dovi í Alsír 7. nóvember 1913 og er því 43 ára. Hann er yngsti maðurinn sem hlýtur bókmenntaverðlaun Nobels sið- ustu hálfa öld. Rudyard Kipling var tveim árum yngri þegar hann hlaut bau árið 1907. Faðir hans var franskur, en móðir hans opænsk. Vegna fá- tæktar foreldranna varð hann sjálfur að brjótast til mennta. Hann Iagði stund á heimspeki við háskólann í Algeirsborg, en varð að hætta námi bæði sökum fjárskorts og heilsuleysis. Blaðamaður í Frakklandi Hann hóf snemma ritstörf og fyrstu þrjár bækur hans voru gefnar út af forlagi í Alsír. Fyrsta bókin kom út 1936 (Ré- volte dans les Asturies), 1938 hélt hann til Frakklands, gerð- ist þar blaðamaður og ferðað- ist víða um Evrópu. Þegar Frakkland var her- numið af Þjcðverjum 1940, gekk hann í andspyrnuhreyf- inguna og var stofnandi og rit- stjóri leymblaðsins Conibat (Barátta). „Aðkomumaðurinn", 1942 En hann lagði samt ekki skáldskapinn á hilluna og árið 1942 kom út skáldsaga hans Aðkomumaðurinn (L’Étranger), en með henni kemst hann í sænskum krónum, eöa um fremstu röð franskra rithöf- unda. Sú bók fjallar um skrif- stofumann í Algeirsborg sem óviðráðanlegar og tilviljunar- kenndar aðstæður leiða til að fremja morð. Verknaðurinn er honum óskiljanlegur, því að hann, aðkomumaðurinn, skilur ekkert í beiminum, honum stendur á sama um örlög sín, því að ekkert kemur honumvið; lifið er tilgangslaust, og lífláts- dómur megnar jafnvel ekki að vekja hann af dvala. En áður en lýkur hr'stir hann þó slenið af sér, og gerir uppreisn gegn örlögum sínum. Sama ár kom út Goðsögnin um Sisyfos (Le Mythe de Si- syphe), heimspekirit þar sem fjallað er um sama efni og í Aðkonnunanninmn. „Plágan", 1947 Fyrsta. bók Camus sem kom út eftir styrjöldina var Plágan (La Peste), en hún kom út 1947. Það er sú skáldsaga hans sem vakið hefur mesta athygli og gefin hefur verið út í flest- um löndum. Það er eina bók hans -sem gefin hefur verið út á Islandi, en hún kom í einum bókaflokki Ivíáls og menningar i þýðingu Jóns Óskars. Siðan hefur hann gefið út nokkrar bækur, leikrit, söfn smásagna og ritgerða, og skáld- sögur. Siðasía skáldsaga hans Fallið (La Chute) kom út fyrir nokkrum mánuðum. Leikrítaskáld Camus hefur skrifað mörg leikrit, enda var hann leikstjóri síðustu árin sem hann átti heima í Aisír og lék þá einnig sjálfur. Leikritin Misskilningurinn (Le Malentendu) og Caligula komu út 1944, Umsátursástand (L’État de Siege) 1948, Hinir réttlátu (Les Justes) 1950. Á síðasta vetri samdi hann og setti á svið leikrit eftir skáldsögu Faulkners Requiem for a Nun og er það enn sýnt Framhald á 11, síðu. Togarinn Jörundur seldi í Grimsby í gærmorgun 122.7 lestir fyrir 8.632 sterlingspund. Karlsefni selur þan í dag og Bjami Ólafsson og Surprise í Þj'zka- landi í byrjun næstu viku. Togarinn Kaldbakur landaði nýlega 260 lestum af fiski á Akureyri og Harðbakur 172 lestum. Reynir með öllum ráðum að íalsa opinberar tölur Það var eins og óumiæðileg harmafregn dyndi yfir ráðamenn íhaldsins þegai Hannibal Valdimarsson skýrði frá þeirri ánægjulegu þróun í ræðu sinni í fyrradag að bankainnlán hafa vaxið til muna í tíð núverandi stjórnar í samanburði við það sem var er ihaldið fór með völd; þegar þjóðin hefur ástæðu til að fagna hryggjast valdamenn Sjálfstæðisflokksins. Vísir reynir i gær að véfengja opinberar tölur um þetta efni, tekur aðeins spariinnlög ba.nkanna í sex mánuði og ber samaa, en reynir að fela staðreynd- irnar um innlögin í heild. Sama gerðu Jóhann Hafstein og Ingólfur Jónsson á þingi í gær og reyndu með öllum ráðum að fara í kringum þá staðreynd að ínnlög í banka og aðrar sparif járstofnanir hafa aukizt um nær 50% fyrstu sjó mánuði þessa árs í samanburði við sama tíma í fyrra. Lúövík Jósepsson viðskiptamála- ráðherra hrakti firrur þeirra og flutti ur opinberum gögnum eftirtaldar staðreyndir: Rankainnlög, jafnt sparifé sem hlaupareikningar, jukust um 98.9 miLijónir fyrstu sjö mánuði ársins 1956, meðan íhaldið fór með völd. Bankainnlög, jafnt sparifé sem lilaupareikningar, juk- ust um 141 milljón fyrstu sjö mánuði þessa árs. Sá vöxtur nemur nær 50%. Eysteinn Jónsson fjánnálaráðherra tók einnig til máls, staðfestí þessar tölur og skýrði frá því að þannig hefðu breytingar á sparifé landsmanna alltaf verið reiknaðar af bönkum og opinberum stofnunum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.