Þjóðviljinn - 02.11.1957, Page 5
Laugardagur 2. nóvembcr 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Hætta á heimskreppu að
dómi hrezkra hagfræðinga
KctupsýsluráS Bandarlkjanna spáir
þverrandi framleiSslu og viSskipfum
Viðskiptakreppa, sem skollin er á í hráefnaframleiðslu-
löndum, er vís til að breiðast út um allan auðvaldsheim-
inn, ef ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna breyta
ekki um stefnu í efnahagsmálum.
Hætt við að lesa Sexus upp
í rétti fyrir luktum dyrum
DómstóU i Osló tók á
mánudaginn fj’rir annað
stóra klámmálið á þessu
hausti, það sem höfðað var
út af innflutningi á danskri
þýðingu á Sexus eftir banda-
ríska skúldið Henry Miller.
Saksóknarinn er sá sami
og flutti málið gegn Mykle
fyrir Sangen om ilen röde
rubin, R. A. Riekeles mála-
o
el Lanfeldt, danski lektorinn
Erling Nielsen og Maren Sofie
Röstvig dósent.
Ákærðu, bóksalarnir Lyng
Nissen og Carsten Ervilt, eru
ákærðir fyrir að flytja inn og
selja „ósiðlegar bækur“. Krefst
ákæruvaldið þess að bækurnar
verði gerðar upptækar. Hins
vegar hefur sækjandi gefið i
skyn, að hann muni ekki halda
til streitu kröfu um refsingu
Þetta er samdóma álit margra
kunnustu hagfræðinga Bret-
lands. Þeir settu skoðanir sín-
ar fram í sameiginlegu bréfi,
Eeni birtist í stórblaðinu Times
á þriðjudaginn.
Verðfall
Hagfræðingamir benda á að
verðlag helztu fæðutegunda og
hráefna á heimsmarkaðnum
hefur farið lækkandi og er nú
orðið eins lágt og það var fyr-
jr sjö árum, það er að segja
fyrir 'Kóreustríðið.
Við þetta missa hráefnalönd-
in tekjur, sem nema mörgum
milljörðum dollara, og nejðast
því til að draga stórlega úr
vörukaupum í iðnaðarlöndun-
um.
StöSnuð frainleiðsla
Iðnaðarframleiðsla í Banda-
rikjunum og Bretlandi hefur
nú staðið í stað í tæp tvö ár,
svo að eftirspurn þessara
tveggja forusturíkja auðvalds-
heimsins eftir hráefnum hefur
ekki aukizt.
Hagfræðingarnir telja, að
stefna brezku og bandarísku
ríkisstjórnanna í efnahagsmál-
um sé likleg til að hafa í för
með sér minnkandi framleiðslu
á næstu mánuðum, svo að enn
dragi úr hráefnakaupum.
Leita til Sovétríkjanna
Hráefnalöndin hljóta að snúa
eér til Sovétríkjanna og leita
þar markaða fyrir afurðir sín-
ar, þegar þau sjá að framleiðsla
þar fer vaxandi á sama tíma
og hún dregst saman í vest-
rænum löndum.
Með þessum rökum skora
Bandaríkjamenn
báast við nýju
sovézku tungli
Ölliun bandarískum stjörnu-
athuganastöðvum hefur verið
skipað að búa sig undir athug-
anir á nýju sovézku gervitungli
frá og með næsta þriðjudegi.
Talið er sennilegt að nýju
gervitungli verði skotið upp í
háloftin fyrir byltingarafmælið
sem er á fimmtudaginn. Engin
opinber tilkynning hefur þó
verið gefin um það fyrir aust-
an.
hagfræðingamir á stjórnir Bret
lands og Bandaríkjanna að
endurskoða stefnu sína í efna-
hagsmálum, sem miðar að því
að valda lánsfjárskorti.
Undir bréfið skrifa próf-
essorarnir R. F. Kalih, E. A. G.
Robinson, Richard Stone, og
W. B. Reddaway frá háskólan-
um í Cambridge og sir Donaid
MacDougall, F. A. Burchardt,
Colin Clark, Roy Harrod, T.
Balogh, E. F. Jackson og G. D.
iN. Worswiek frá Oxford.
Horfurnar í Bandaríkjunum
Kaupsýsiuráð Bandaríkjanna,;
sem skipað er iðnrekendum og
kaupsýslumönnum úr fremstu
röð, er sammála brezku hag-
fræðingúhum um að iðnaðar-
framleiðsla og viðskipti í
Bandaríkjunum muni dragast
saman á næstunni.
Ráðið, sem er Bandaríkja-
stjóm til ráðuneytis, kemur
saman tvisvar á ári. Það hélt
fund um síðustu helgi.
I skýrslu til Sinclair Weeks,
viðskiptamálaráðherra Banda-
ríkjanna segir Kaupsýsluráðið
að fyrirsjáanlegt sé að fram-
leiðsla og viðskipti í Banda-
ríkjunum muni halda áfram að
dragast saman þangað til ,,ein-
hvemtíma á árinu 1958“.
Formaður Kaupsýsluráðsins
er Eugene Holman, aðalfram-
kvæmdastj. olíufélagsins Stand-
ard Oil og varaformaður Theo-
dore V. Houser frá Sears Roe-
buck vöruhúsaliringnum.
Ráðið hafnar þeirri skoðun
að kreppa sé í aðsigi, það
kveðst. sannfært um að upp-
gangstímar muni hefjast á ný
eftir timabundna „aðlogun".
Weeks í’áðherra er á sama máli,
hann telur að atvinnulífið þurfi
„að kasta mæðinni“ áður en
nýtt útþenslutímabil hefst.
Þrír möguleikar
I grein í brezka fjármála-
blaðinu Fínancial Times á
mánudaginn segir Paul A. Sam-
uelson, hagfræðiprófessor við
Massachusetts Institute of
Technology, kur.nasta tæknihá-
skóla Bandaríkjanna, að fram-
tíðarhorfur í bandarísku at-
vinnulífi séu sem stendur mjög
óljósar.
Álíka gild rök má færa fyrir
þrem framtíðarmöguleikum,
segir prófessor Samuelson.
Sumt bendir til að framleiðsl-
an haldi áfram að aukast, sumt
bendir til að hún staðni og
sumt bendir til að afturkippur
sé í vændum.
Hættumerki
í umræðu um efnahagsmál á
brezka þinginu á þriðjudaginn
sagði Harold Wilsou, fjár-
málaráðherraefni Verkamanna-
flokksins, að gagngerð breýt-
ing hefði á siðustu mánuðum
orðið í fjánnáhim hins vest-
ræna hehns. Eftir fimm ára. hlé
ríkir nú aftur tilfinnanlegur
dollaraskortur, sagði Wilson.
Þar að auki kvað hann ýmis
hættumerki benda til að verð-
bclga á heimsmælikvarðá væri
úr sögunni og verðhjöðnun
hafin. Vérðiag hráefna og mat-
væla og farmgjöld með skipum
hefðu stórlækkað.
Vert er að hafa í hugá, að
svo gott sem hver einasta við-
skiptakreppa síðan 1800 hefur
hafizt með verðfálli á hráefn-
um og matvælum, sagði Wilson.
færslumaður. Ákærðir eru
tveir bóksalar í Osló.
Gert hafði verið ráð fyrir að
bæði bindi Sexus yrðu lesin
upp í réttinum, en sakborningar
féllu frá þeirri kröfu, þegar
saksóknari lýsti yfir, að hann
myndi krefjast þess að sumir
kaflar bókarinnar yrðu lesnir
fyrir luktum dyrum. Látið verð-
ur nægja að afhenda hverjum
dómsmanni eitt eintak af bók-
i inni og ber þeim að lesa hana
spjaldanna á milli. Annar með-
dómandinn er kona.
Verjendur hafa kallað átta
vitni, þar á meðal danska bók-
menntafræðinginn Peter P.
Rohde, sem talinn er allra
Norðurlandabúa fróðastur um
skáldskap Millers.
Fjórir „sérfræðingar" hafa
verið kvaddir til að bera vitni,
sálfræðiprófessorinn Harald
Schelderup, geðlæknirinn Gabri-
til handa sakborningunum.
*
j Alheimsmál
I samiB handa
\ geimförum
■
■
! Hollenzkur prófessor hef-
i ur í fúlustu alvöru búið til
•
i alheimsmál — nokkurs kon-
■
5 ar geimesperanto. Fyrir hon-
5 um vakir að gera jarðarbúa
5 færa um að gera sig skilj-
5 anlega skyni gæddúm verum,
■ sem kunna að fyrirfinnast á
■ öðrum hnöttum.
« Nýja málið er m.yndað af
{mei’kjahljóðum. Höfundur
j þess heitir prófessor Hans
j Freudenthal.
Crslit stjóciia rkreppunnar í Svíþjóð urðu þau að fráfarandi forsætisráðherra, Tage Erlauder,
myndaði lireina flokksstjórn sósíaldeiuókrata. Við þessu haíði verið búizt, en ekki því að drag-
ast myndi í nokkra daga að Gústaf Adolf konungur fæli Erlander stjórnarniyndun. Þessir
dagar fóru í árangursiausar tilraunir foringja Þjóðflokksins og Hægriflokksins, þcirra Ohl-
ins og Hjalmarsons, að koma sér saman við Hedlund, fóringja Bændaflokksins, mn myndnrv
samstjórnar borgaraflokkanna. Brottför Bændallokksmanna úr ríkisstjórninni var tilefni stjórn-
arkrcþpunnar. Nokkuð bar á því í Svíþjóð, að mömiuin þyki konungur hafa dregið taum liægri
flokkamm, einkum er hann lagði að Erlander að láta að vilja þeirra og mynda samstjórn
allra flolcka nema kommúnista. Hér takast þeir i hendur konungur (t. h.) og forsæíisráðherr-
ann fyrrverandi og núverandi.
Bók Mykle er böniiuð fyrir bersösrli
* w <J