Þjóðviljinn - 28.11.1957, Side 5

Þjóðviljinn - 28.11.1957, Side 5
Fimmtudagur 28. nóvember 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5 MildL flóð hafa verið í Pódalnum að undanförnu og hafa þús- tmdir manna orðið að flýja heimili sín. Myndin sýnir ítalska bændur o.g fjölskyldur þeirra um borð í fljótapramma, sem flýtja á fólkið í örugga liöfn. Skyssa hjá Vesturveldum að hugsa alltaf um hernað Hættan af Sovétríkjunum ekki hernaðarleg heldur viðskiptaleg, segir fyrrverandi að- stoðarutanríkisráðherra Bretlands í bandaríska stórblaðinu New York Herald Tribune, hefur brezki stjórnmálamaðurinn Antony Nutting deilt á ríkjandi hugsunarhátt forustumanna Vesturveldanna. OEEC aðvarar Fraklcr. og V estur-Þj óðver j a Efnahagssamvinna Vesiur-Evrópu í voða ef ekki er að gert Framkvæmdastj órn Efnahagssamvinnustofnunar Vest- ur-Evrópu í París (OEEC) hefur beint strangri aðvörun til ríkisstiórna Frakklands og Vestur-Þýzkalands. Nutting er íhaldsmaður og var aðstoðarutanríkisráðherra í líkisstjórn Anthony Edens. Hann sagði af sér því embætti og einnig þingmennsku til að mótmæla árásinni á Egypta- land. Frtðsamleg samkeppni 1 greininni í New York Her- ald Tribune veitist Nutting gegn stefnu Eisenhowers Bandaríkjaforseta og annarra forustumanna A-bandalagsins. Hann sakar þá um að einblína á hemaðarhlið málanna en láta sér sjást yfir þýðingarmestu atriði alþjóðamálanna. Afleið- ingin hljóti að verða nýir sigr- ar Sovétríkjanna í þeirri frið- samlegu keppni, sem þau hafa tekið upp við Vesturveldin. í vamarstöðu : Nutting slær því föstu, að engir aðrir en sauðtryggustu bandamenn Baadarikjanna hafi lokið lofsorði á „hughreysting- arræðurnar", sem Eisenhower flutti eftir að sovézku gervi- tunglin komu á loft. Meðal for- ustmnanna óbundinna ríkja mælist ræðumar hinsvegar illa fyrir. „í mínum augum og þeirra (óbundnu ríkjanna) hefur for- setinn látið sér sjást yfiir merg málsins og ráunverulega þýð- ingu vísindasigra Sovétríkj- anna", segir Nutting. „Það var ekki nóg með að forsetinn væri í vamarstöðu, bæði hann og þeir sem höfðu krafizt að hann léti. til sín heyra virðast ekkert annað sjá en 'hernáðarhliðina á hverju máli". Viðskíptastríðið „Það sem ég hef einkum út á boðskap forsetans að setja, var að hann blés í herlúðra og kallaði menn til vopna til að heyja styrjöld, sem mun ekki dynja yfir, en vék ekki einu einasta orði að því, hvað við þyrftum að gei*i til að vinna styrjöld, sem nú þegar er skoll- in á. Þetta strið, viðskipta- stríðið, hófst fyrir þrem árum, þegar Krústjoff lýsti því yfir að stefna Sovétríkjanna væri friðsamleg samkeppni. Koma spútnikanna á loft þýðir í augum umheimsins, að Rússland hefur unnið fyrstu omstuna í þessu stríði en ekki að það búi sig undir árás með vopnavaldi, sem myndi kalla hrun og eyðingu jafnt yfir það og andstæðinginn". ’iaráttaii um markaðina og sálirnar „Við á vesturlöndum — og sér í Iagi í Bandarikjunum — emm haldnir slikum ótta við vopnaárás að okkur sést yfir hættuna sem í raun og veru er á ferðum, efnahagslegu og pólitísku baráttuna um mark- aðina og sálirnar i þeim hluta heimsins, sem ekki hefur bund- izt stórveldunum hernaðarleg- um b'indum". Nutting skorar loks á Banda- ríkjamenn að sjá að sér og breyta nm stefnu: „Við verðum að hugsa minna um að verja New York fyrir rússneskum eldflaugum en meira um að greiða Nýju Delhi atlögu með vestrænum rafstöðvum". I skýrslu um ástandið í efnahagsmálum aðildarríkjanna ?korar framkvæmdastjórnin á Frakka og Vestur-Þjóðverja að láta hendur standa fram úr ermum og gera ráðstafanir, sem komi í veg fyrir að kerfi efnahagssamvinnu, sem komið hefur verið upp í Vestur-Ev- rópu á undanförnum árum, hrynji til grunna. Óhagstæður viðskiptajöfnuður „Frakkland verður að koma iöfnuði á utanríkisverzlun jsína", segir í skýrslunni. „Ó- hagstæður viðskiptajöfnuður þess á yfirstandandi ári mun e.ð öllum líkindum komast yfir 1200 milljónir dollara". Frá miðju ári 1956 til miðs árs 1957 jókst innflutningur Frakka um 29% en útflutn- ingurmn jókst aðeins um 12% á sama tíma. Framkvæmdastjórn Efnahags- samvinnustofnunarinnar segir, að fr.önsk stjórnarvöld verði að draga úr neyzlu heimafyrir til að minnka hallann á utanrík- isviðskiptunum. Bent er á í skýrslunni, að hernaður Frakka i Alsír eigi drjúgan þátt í ó- hagstæðum viðskiptajöfnuði beirra. Of hagstæður riðskipta- jöfnuður Vaxandi skuld Frakka við gi-eiðslubandalagið er þó hvergi nærri eins hættuleg framtíð efnahagssamvinnunnar og hrað- vaxandi inneign Vestur-Þjóð- verja. Hvað Vestur-Þýzkaland snertir er vandinn sá að við- skiptajöfnuður þess er alltof hagstæður fyrir jafnvægi greiðslubandalagsins. Á fyrra misseri síðasta árs jókst inneign Vestur-Þýzka- lands um 67 milljónir dollara að meðaltali á mánuði. Á fyrra misseri yfirstandandi árs hækk- aði inneignin um 127 millj. dollara á mánuði. Á síðasta ári jókst útflutningur Vestur- Þýzkalands um 20% en inn- flutningurinn einungis um 14.6%. ■Forréttindaaðstaða Framkvæmdastjórn Efnahags- samvinnustofnunarinnar segir að hinn mikli, hagstæði við- skiptajöfnuður Vestur-Þýzka- lands ógni tilveru greiðslu- bandalagsins og torveldi frjálsa verzlun. 1 skýrslunni er vesturþýzkum stjórnarvöldum borið á brýn að bau hafi olnbogað sig áfram á heimsmarkaðnum á kostnað annarra Vestur-Evrópuríkja. Vestur-þýzkir útflytjendur hafi notfært sér út í yztu æsar for- réttindaaðstöðu, sem stafi af því að þýzkur iðnaður hafi að mjög lítlu leyti þurft að annast vopnaframleiðslu. Þetta hafi gert Vestur-Þýzkalandi fært að selja fjárfestmgarvörur með skemmri afgreiðslufresti og betri kjörum en önnur Vestur- Evrópulönd geta boðið. Tiltölulega lág hernaðarút- gjöld hafa einnig gert Vestur- Þjóðverjum fært að festa stærri hluta af þjóðartekjum sínum nýjum framleiðslutækjum en samstarfsþjóðir þeirra í Efna- liagssamvinaustofnuninni hafa efni á. Um 23% af þjóðarfram- leiðslunni hafa farið til fjár- f estingar. Bretar dragast aftur úr Skýrslur Efnahagssamvinnu- stofnunarinnar sýna, að á und- anförnum árum hefur Bi’etland dregizt aftur úr öðrum helztu Framh. á 10. síðu Happcrœíti Þjóðviljons 1957 Eignist Fíatbiíreið fyrir 10.00 kr. Kaupið miða stiax Auk þess eru 11 aðr- ir vinningar. Philips-útvarpsfónn 6 segulbönd 4 ferðaútvarpstæki Kaupið miða :.i strax í clag í i Verðlaunakrossgáta J fylgir hverri blokk. I Verðlaun fyrir ráðn- ingar eru kr. 2000. 00. Uppiýsingasími 17-500. Skriístoía happ- drættisins er á Skólavörðustíg 1.9 f Drætti ekki frestað Kona læst inni í 30 ár af foreldrum og bróður Var lokuð inni til að koma í veg fyrir að hún giftist manni sem þeim mislíkaði Stjórnarvöld í vesturþýzka smábænum Eizendorf hafa leyst 62 ára gamla konu úr haldi á ættaróöali hennar eftir meira en 30 ára innilokun. Fjölskylda hennar hafi lokað hana inni árið 1926 til að koma í veg fyrir að hún gengi að eiga mann sem þótti ekki nógu góður handa henni. Mál þetta kom á daginn fyrir tilviljun, þegar heilbrigðisjdir- völdin gerðu út menn til að athuga hreinlætisskilyrðin á bænum. Þeir rákust á aldraða mállausa konu, sem var læst inni í herbergi. Rannsókn málsins hefur leitt í ljós að foreldrar hennar lok- uðu hana inni fyrir rúmum þrjátíu árum, þegar hún hafði sagt þeim að hún ætlaði að ganga í hjónaband. Foreldrarn- ir læstu hana inni til að koma veg fyrir að hún hlyþi á brott og síðan hefur hún ekki komið út fyrir hússins dyr. Foreldrar bennar eru látnir fjTÍr mörgum árum og bróðir iiennar sem nú er 72 ára tók þá við búinu. Ákæruvaldið í Verden segist hafa í hyggju að höfða mál gegn bróðurimmi fyrir að hafa haldið systur sinni innilokaðri. Hún hefur nú verið lögð á spítala til rann- sóknar á geðheilsu hennar. Þegar hún fannst gat hún að- eins muldrað örfá óskiljanleg í orð.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.