Þjóðviljinn - 24.12.1957, Síða 11

Þjóðviljinn - 24.12.1957, Síða 11
Þriðjudagur 24. desember 1957 — ÞJÓilVILJINX -- (31 Krústjoff svarar B. Russell Framhald af 7. síðu. rikis hvorki í austri né vestri, stórs eða lítils, eða leiddi til verra sambands Bandaríkj- anna við nokkurt annað land. Við teljum jivert á móti að bætt sambúð Sovétríkjanna og Bandaríkjanna gæti aðeins orðið öðrum að gagni, en engum til tjóns. '17'ið erum hlynntir fundi ’ leiðtoga Bandaríívjanna og Sovétríkjanna. Það er því undir leiðtogum Bandaríkj- anna komið hvort s-líkur fund- ur á sér stað. Við vitum að i Bandarikjunum og utan þeirra eru öfl, sem óttast bætta sambúð Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og eru því andvíg sérhverju spori í þá átt. Þessi öfl miða stefnu sína við að notfæra sér þá tor- tryggni og þann ágréining, sem nú ríkir milli tveggja stærstu veld^anna, og þau gera allt sem þau geta til að auka á þennan ágreining og nota hann í eiginhagsmunaskyni. Er nokkur ástæða til að benda á, að þessi stefna er í and- stöðu við eflingu friðarins, í andstöðu við hagsmuni allra þjóða? Á því getur ekki leikið nokkur vafi að það er ekki aðeins undir Sovétríkjunum og Bandaríkjunum komið að dregið verði úr viðsjám á al- þjóðavettvangi. Önnur ríki, þ.á.m. auðvitað Bretland, verða einnig að leggja fram s-inn skerf. Því miður verður ekki sagt að núverandi stefna' brezku ríkisstjórnarinnar hafi auðveldað lausn þessa afar mikilvæga máls. Því verðu varla neitað að breyting Bret- lands í bandaríska kjarnorku- vopna- og flugskeytastöð mun hvorki bæta friðarhorfur né öryggi Bretlands sjálfs. Marg- ar bandarískar lierstöðvar, stöðvar þar sem geymdar eru birgðir af kjarnorku- og vetnissprengjum, eru þegar á hinu tiltölulega litla landi Bretlandseyja., og tillaga er nú uppi um að byggja þar skotstöðvar fyrir bandarísk flugskeyti. Allt bendir til þess að verið sé að gera Bretland að aðalstöð Bandaríkjanna í Evrópu fyrir meðaldræg flug- skeyti. Mér leyfíst kannske að spyrja — hvaða trygging er fyrir því, að þessi síðustu vopn, sem komið er fyrir í bandarískum stöðvum í Bret- landi, verði ekki notuð sam- kvæmt fyrirmælum banda- rísku herstjórnarinnar einnar, án vitundar brezku þjóðarinn- ar, þingsins eða jafnvel ríkis- stjórnarinnar ? 17r ekki verið að skapa slíkt ástand, þar sem Bretland getur orðið stökkpallur í á- rásarstyrjöld gegn Sovétríkj- unum og öðrum friðsömum þjóðum? Gerið yður bara í hugarlund að fyrir einskæra tilviljun — við skulum segja til dæmis vegna misskilinnar fyrirskipunar — verði dráps- vopnum frá bandarískum her- stöðvum í landi yðar beitt ge,gn hinum friðsömu ríkjum. Molandi endurgjaldshögg myhdi verða greitt þegar í stað. Ef til þessa liæmi, rrij'ndi brezka þjóðin skyndilega vera komin í kjarnorkustríð, sem ógna myndi sjálfri tilveru hennar. Þér megið trúa mér: Eg segi þetta ekki til að skjóta löndum yðar skelk í bringu. Við berum mikla virð- ingu fyrir þjóð yðar og við viljum treysta vináttubönd okkar við land yðar. Eg segi þetta af því að ég þekki mátt nútíma hernaðartækja. Það er ekki að furða þótt milljónir brezkra manna óg kvenna séu fullar kvíða og óróa vegna byggingar slikra stöðva í landi þeirra. Sovétríkin vilja að ríki taki höndum saman til að draga úr viðsjám á alþjóðavettvangi. Bæði fundur fulltrúa rikjanna tveggja, Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, og stærri fundur fulltrúa auðvaldsríkja og sósíalistískra ríkja myndi stuðla að þessu. 4 standið í heiminum í dag er svo alvarlegt að sér- hver sem eitthvað getur lagt af mörkum til að draga úr stríðshættunni, bægja henni al- veg frá dyrum, verður að gera það sem hann getur. Brezka þjóðin, sem barðist af slíku hugrekki í viðureigninni við sameiginlegan f jandmann okk- ar í annarri heimsstyrjöld- inni, gæti lagt fram mikinn skerf til varðveizlu og efling- ar friðarins. Því hærra sem raddir þjóðanna hljóma í bar- áttunni fyrir friði, því minni verða tækifæri þeirra, sem að- hyllast hernaðarævintýrí, til að hrinda af stað nýrri styrjöld. Eg er fullviss um að áskor- un yðar um sameiginlegt átak Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna til að efla friðinn á grundvelli friðsamlegrar sam- búðar mun fá góðar undir- tektir og stuðning allra þeirra sem friði unna. Bréf yðar er hvatning til starfa í þágu friðarins. Eg leyfi mér að láta í ljós þá von að þessi hvatning muni verða til að margfalda tölu þeirra sem berjast fyrir friðn- um í Bretlandi og öðrum löndum. Eg styð þessa hvatningu af heilum hug; félagar mínir og ég viljum láta í Ijós von um að heitar óskir yðar um bætta sambúð ríkja muni einnig verða studdar af leið- togum annarra rikja. I dag skiptir baráttan fyrir friði, fyrir endalokum kalda stríðsins, sem eykur viðsjár á alþjóðavettvangi og gæti leitt ógurlegar hörmung- ar yfir mannkynið, í dag skiptir baráttan fyrir frið- samlegri sambúð mestu fyrir allar þjóðir heims, fyrir alla velviljaða menn. Boðskapur okkar er sá, að yfirburðir einhvers ákveðins kerfis verði sannaðir, ekki á vígvellinum, heldur í friðsamlegri sam- keppni um framfarir, um bætt lífskjör almennings. Moskva, 7. desember 1957, N. Krústjoff. Gleðileg jól! Prentmyndagerðin Litróf Gleðileg jéU Byggingafélagið lírú h.f. Gleðiíeg jólt Ásgeir Ölafsson, Vonarstræti 12 Gleðileg jóí! I»vottahúsið Eimir, Bröttngöta 3a Gleðileg jól! Blikksmiðjan Vognr, Kópavogi Gleðileg jól! Prjóiiastofan Hlín Gleðileg jól! X Slippfélagið í Reykjavik Gleðileg jól! Nýja fasteignasalan Bankastræti 7 Gleðileg jól! Fossvogsbúðin, Kársnesbraut 1 Gleðileg jól! Á. Einarsson & Funk Nora magasín Gleðileg jól! Verzlunin Rín GleðUeg jóf! HANSA H.F. GleðUeg jól! Vélsmiðja Sigurðar Einarssonar Mjölnisliolti 14. Gleðileg jól! Verksmiðian Fram lt.t. Gleðiieg Skinl'axi li.f. Gleðiieg Védsmiðjan Hamar h.f. Gleðileg jói! Sunmjbúðin, Mávahlíð íiti og Sörlaskjóli 42. Gleðileg jól! Miimmabúð, Njálsgötu Í4.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.