Þjóðviljinn - 18.01.1958, Blaðsíða 1
Laugardagur 18. janóar 1958 — 23. árgangur — 14. tölublað.
Dagsbrúnarmeim! Kjósið strax í dag!
Kosið er í skrifstofu Dagsbrúnar — Kosning hefst
klukkan 2 e.h. og lýknr kl. 10 — X A
BorgaSi þrenn ár-
Stjórnarkjörið í Dagsbrún hefst kl. 2 e.h. Dagsbrún hefur nú með nokkurra brúnarmenn. Hver
j •ívL'i' v 11*+ , r j. , .■* , . . i • f j - verkamaður stendur
daga millibili haldio tvo íundi, hvom oorum betn og glæsilegn. I dag og a
morgun þurfa Dagsbrúnarmenn að halda þeirri sókn áfram með sömu reisn.
Geymið ekki til morguns að kjósa. Kjósið strax í dag. Verjið heiður og fram-
tíð Dagsbrúnar. Sameinizt allir um A-listaim.
Enn einu sinni hafa atvinnu-
rekendur og afturhald — það
afturhald sem ætíð hefur ver-
ið á móti hverri hagsbót til
handa vinnandi mönnum, þeir
sömu atvinnurekendur og ár
eftir ár hafa þvemeitað hverri
einustu kjarabót til handa
Dagsbrúnarmönnum, notað
hina aumustu allra — hægri
kratana — til að bera fram
lista atvinnurekenda í Dags-
brún.
Undir forustu þeirra manna
sem nú fara með stjóm
Dagsbrúnar, og sem enn
skipa A-listann, hafa Dags-
brúnarmenn unnið sína
stærstu sigra.
Undir forustu mannanna
á A-listanum brutu Dags-
brúnarmenn gerðardómslög-
in.
Undir forustu þeirra
styttu Dagsbrúnarmenn dag-
vinnu úr 10 stimdum í 8.
Undir forustu þeirra knúðu
Dagsbrúnarmenn atvinnu-
rekendur til samninga um
orlof, — sem Alþingi síðar
staðfesti sem orðinn hlut.
Undir forustu þeirra hafa
þeir hmndið hverri árás aft-
urhaldsins af annarri.
Undir forustu þeirra mmu
þeír verkfallið mikla 1955.
Undir forastu þeirra hafa
þeir nú síðasfc femgið ilufcfc
stjórnarfrumvarpið mn upp-
sagnarfrest verkamamta og
rétt þeirra til greiðslu kaups
í veikinda- og slysaforí&ll-
um. .
Hver heilvita maður veit að
B-listinn, sem skipaður er í-
haJdsmönnum og hægri krötum,
er borinn fram af atvinnurek-
endum, íhaldinu.
B-listinn — MorgunMaðs-
listinn — er listi ma.nttanna
sem settu þá er fremstir
stóðu í baráttu verkamaima
á svartan lista, og fyrirskip-
Reykvíkíngar!
Allir sem á einn eða
annán hátt geta unnið
að sem stærstum sigri
Dagsbrúnarmanna —
A-listans í Dagsbrún-
arkosningunum, eru
eindregið hvattir tii að
liggja ekki á liði sínu.
Allir til starfa fyrir
sigri Dagsbrúnar.
uðu öllum atrinnurekendum
landsins að sveita þá.
B-listinn er listi mannanna
sem komu gerðardómslögun-
um á.
B-listinn er Iistí mannanna
er tvívegis hafa skeilt á
gengislækkun og þannig
rænt úr vösum reykvískra
verkamanna milljónum á
milljónir ofan.
B-listinn er listi braskar-
anna, auðstéttarinnar, sem
dreymir um að komast til
áhrifa í Dagsbrún, sprengja
núverandi stjómarsamstarf
svo þeir geti láttð óska-
draum sinn um nýja geng-
islækkun rætast, og endur-
heimt ótakmörkuðu áiagn-
inguna á neyziuvömr al-
mennings.
Valið er því auðvelt, Dags-
ærlegur
vörð um
heiil og heiður félags síns og
eigið heimili, eigin framtíð,
með því að kjósa A-listann.
Við þessar kosningar þurfa
menn að greiða atkvæði í
tvennu lagi.
í fyrsta algi að kjósa stjórn.
Og í öðm lagi að greiða at-
kvæði um lagabreytingar.
Segið allir já við laga-
breytingunum og kjósið
A-listann.
Til starfa Dagsbrúnar-
menn. Gerið sigur A-list-
ans, sigur Dagsbrúnar
sem mestan.
og
fram lista!
í öílum félögum eiJ það lág-
markskrafa til þeirra er telj-
ast vilja góðir félagsmenn, a®
þeif borgi árgjöid sín.
Maður er nefndur Jón Hjálm-
arsson, að vísu betur* þekktur
undir nafninu sem Jón Sigurðs-
son gaf honum eitt sinn, senS
sé: litli klofningur. Jón þenna
Hjálmarsson hefur Alþýðuflokks-
forustan lengi talið efnilegastan
ungra Alþýðuflokksmanna :í
Dagsbrún, og bauð hann þá'
fram á atvinnurekendalistanum
1953. Hann kolféll. Svo varð
hljótt um Jón þenna i Ðags-
brún. Það varð verkfall, og
Dagsbrún þurfti á öllu liði sínut
að halda. Dagsbrúnarmenn stóðu
allir saman um þetta verkfall,
líka Alþýðuflokksmennirnir. í
verkfallinu 1955 spurðu verk-
fallsverðimir stundum: Hvar er
hann Jón Hjálmarsson? En það
kom fyrir ekki. Jón Hjálmarssom
sást hvergi. Og enn leið tím-
inn, og ekki sást til Jóns Hjálm-
arssonar í Dagsbrún.
Undir kvöld 10. þ. m. gekk
margnefndur Jón Hjálmarssom
loks inn í skrifstofu Dagsbrúnar,
borgaði þrenn árgjöld, og —:
lagði fram lista, — lista atvinnu-
rekenda!
Morgunblaðinu stefnf
fyrir róg um Dagsbrun
Blaðið staðið að því að ljúga upp
„viðtölum'' við verkamenn
í einu af ,,viðtölmn“ þeirn sem Morgunblaðið hefur
verið að birta við Dagsbrúnarmenn að undanförau er
því dróttað að stjórn Dagsbrúnar að hún liafi farið á-
heiðarlega með sjóði félagsins og eytt fé Da.gsbrúnar-
nianna „fyrir kommúnistaflokkinn“. Af þessu tilefni
hefur stjóm Dagsbrúnar þcgar gert ráðstafanir til þess
að stefna Mor.gunblaðinu fyrir ósannindi og róg. Ao
vísu er af miklu að taka a.f slíku tagi í Morgunblaðinu
þessa daga, en stjórn Dagsbrúnar er staðráðin í því að
Iáta engum haldast uppi að bera fram ásaknir um ó-
lieiðarlega meðferð á fjármunum félagsmanna.
í Morgunblaðinu eru þessi nmmæli höfð eftir nafn-
greinduni Dagsbrúnarmanni, Hann hefur nú lýst yttr
þvS að hann hafí aldrei látið sér neifcfc slíkt um mimn
fara; það er sem sé einhver af blaðamönnum Morgun-
blaðsins sem lýgur ummælunum upp og ber siðan
verkamanninn fyrir því. Væri fróðlegt að rita hversu
mikið af „viðtölunum“ er þannig tilkomið.
Hiilary flýgur til
fundar við Fuchs
Skýrt er frá því í Welling-
ton, höfuðborg Nýja Sjálands,
að Hillary, foringi nýsjálenzka
suðurskautsleiðangursins, muni
fljúga til Suðurskautsins í dag
eða á morgun til móts við dr.
Fuchs, foringja brezka leið-
angursins, sem er að reyna að
brjótast þvert yfir Suður-
skautslandið. Hillary á að
greiða honum leið sín megin
heimskautsins.
Boðskapur Kristlnusar Amdals:
Haldið þið kjafti
Dagsbrúnarmenn!
Kristínus gamli Arndal hef- verki hvemig hann hyggst
ur eftir 20 ára fjarvist frá siðbæta störf Dagsbrúnar.
störfum Dagsbrúnar skyndi- Einhverjum gömlum kunn-
lega fundið hjá sér hvöt til ingja hans varð á að kalla
að láta nú til sín taka. Hefur fram í ræðu Stinusar, er
hann á síðustu fundum fé- kunningjanum fannst Stínus
lagsins mælt fagurt um að ekki fara sem heiðarlegast
hann vildi bæta félagsstarf- með staðreyndir. Það stóð
ið oð þá einkum siðbæta það. ekki á svarinu hjá Stínusi:
Siðbótunum á starfi Ðags- „Þú átt að halda kjafti
brúnar hyggst Stínus koma á meðan á fuudinum stendur!“
með því að ganga undir ok
atvinnurekenda og var einn
þeirra þriggja er bám fram
atvinnurekendalistann í Dags-
brún, B-listann,
Á fundinum í Iðnó í fyrra-
kvöld sýndi Stínus gamli í
Fjmst slíkar eru kveðjur
Stínusar til Dagsbrúnarmanna
tveim nóttum fyrir kosningar,
hvað myndi þá verða eftir
að atvinnurekendalistinn væri
kominn þar tjl valda?!
Stefnumál B-listans í Dagsbrún ai kaup
máttur launanna verði skertur!
k að verða aftur „það sests hann var fyrir verkfallið 1955"
I Alþýðublaðinu í gær er birt
plagg sem nefnist „stefnumál
B-listans i Dagsbrúnarkosning-
unum“. Er það í 10 liðum, og i
sjöunda lið er það talið höfuð-
nauðsyn að kaupmáttur launa
verði aftur
„Það sem hann var
fyrir verkfallið 1955"
í verkfallinu 1955 tókst að
knýja fram 10—11% hækkun á
kaupi Dagsbrúnarmanna; B-
listamenn leggja þannig á-
herzlu á að sú kauphækkun
verði tekin aftur.
í verkfallinu 1955 tókst
verkamönnum að knýja fram
eitt stórfelldasta hagsmunamál
sitt, atvinnuleysistryggingarnar;
B-listamenn leggja að þær
verði lagðar niður og tugum
milljóna sem safnazt hafa í at-
vinnuleysistryggingarsjóð vænt-
anlega skilað aftur til atvinnu-
rekenda.
Fyrir verkfallið 1955 V9r
reiknað út að íhaldsstjómirnar
hefðu skert kaupmátt launa
um 20% á sjö árum. Með verk-
fallinu var þessi kjaraskerðing
bætt að nokkru leyti, og kaup-
máttur tímakaupsins er núl
talsvert betri en fyrir verk-
fallið, þrátt fyrir verðbólgu-
skriðu þá sem íhaldið skipu-
lagði á eftir. En B-listinn hefuí
það að opinberri stefnu ao taka
af verkamönnum þessar kjara-
bætur og tryggja að kaupmátt-
urinn verði „það sem hann vaf
fyrir verkfallið 1955." Hversul
margir verkamenn leggja þeirri
stefnu lið?