Þjóðviljinn - 25.01.1958, Síða 10

Þjóðviljinn - 25.01.1958, Síða 10
10) — ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 25. j'auúar 1958 Gula bókin Framhald af 7. síðu. svæðinu, einkum í Reykjavík, að ekkerfc hefur verið eins arðvænlegt á voru landi eins og fasteignabrask og útleiga húseigna á þvf svæði. Að dómi undirritaðra, á engin einstakur þáttur efna- hagslífsins eins mikinn þátt í verðbóigunni, eins og mis- notkun þess fjármagns, sem í fasteignum liggur í Reykja- vík og nágrenni hennar. Með heilsteyptri róttækri löggjöf verður að koma í veg fyrir, að ófyrirleitnir fésýslu- menn geti hagnazt á eftir- spum eftir húsnæði á þessu svæði. Að lokurn skal það tekið fram, að undirritaðir nefndar- menn eru sammála uin, að þær ráðstafanir, sem hér hafa veráð tilgreindar, geta komið l.arðara niður á vissum ein- staklingum og þá ef til vill þeim, er sízt skyldi, en til er ætlazt. Margur hefur í hús- næðisvandræðum undanfar- inna ára orðið að kaupa gam- alt liús liáu verði og skuldar mikið af kaupverðinu, sem hann á að greiða á tiitölulega skömmum tíma. Hann verður því að leigja frá sér fyrir all- hátt verð, miðað við aldur hússins, ef hann á ekki að tapa því, nema hann fengi lánstíina sinn lengdan og ef til vill vextina lækkaða með liigboði eða niðurgreiðslu. Til livaða ráðstafana sein verður gripið, er rétt að gæta þess, að taka tillit til ýmissa sér- stakra ástæðna þeirra, sein húsin eiga. T. d. þegar imi gamalt fólk er að ræða, sem lifir á því að leigja hluta af gömlit húsi sínu og hefur ekki aðrar telíjur sér til lífsfram- færis. T. d. þegar fyrirvinnan er fallin frá, og ekkjan fram- fleytir að meira eða minna leyti heimilinu á leigutekjum fyrir hluta af húsi sínu“. „í stuttu máli: Um leið og nauðsynlegar, róttækar ráð- stafanir eru gerðar í þessum málum, sé þess gætt, eftir því sem við verður komið, að þær bitni ekki á því fólki (smæl- ingjum og efnalitlu fólki), sem þeim er ætlað að vernda". Hér eru sýnishorn af því, sem Mogganum þótti ekki heppilegt að birta úr þessu voðaplaggi „Gulu bókinni“. Eg þykist ekkrsþurfa -að féla þær skoðanir mínar um þessí mál, sem hér koma fram þó kosn- ingar séu framundan. Hér er um að rSeða alvar- legra mál en svo að sæmandi sé að láta það afskiptalaust ef til eru ráð til úrbóta. En braskaralýður íhaldsins og gamlir og nýir .nazistar sjá auðvitað ekki ástæðu til að fárast yfir því að tekjulítil alþýða þurfi að svelta til að geta greitt húsaleigu sína, vexti af okurlánum eða verka- maður hafi orðið að kaupa tvö- földu verði fokheldar kjallara- íbúð af einhverjum flokks- gæðingi íhaldsins sem fékk lóð „í gegn um“ Bjarna Bene- diktsson. Nei það er meira af ■ þessu, sem þeir .v.ilja.i skulda- kóngarnir sem stjórna Sjálf- stæðisflokknum. Hærri húsa- leigu, meira brask, meiri dýr- tíð og verðbólgu, fleiri verkföll og mejri gengislækkun — og þá er um að gera að skulda svo um muni. milljónir og aft- ur mlljónir. — Eg skal játa það — nú þeg- ar fyrir kosningar — að ég hef lagt til að nú sé stungið við fæti og reynt að stöðva þessa þróun áður en hún leiðir giötunina yfir þjóðina. Hún verður ekki stöðvuð með á- framhaidandi húsbygginga- braski og fleiri iúxusvillubygg- ingum. Til þess þarf róttækar ráðstafanir, sem að vísu koma ilia við braskaralýðinn og hægt er að kalla „kommún- isma“. Hvað er ekki hægt að kalla „kommúnisma", ef á þarf að halda, til að hræða fólk, sem aldrei nennir að hugsa? Voru ekki tillögur um bæj- arútgerð, tóbakseinkasölu o. s. frv. kallaður „kommúnismi" á sínum tíma? Hafa ekki verð- lagsákvæði og verðlagseftirlit verið „kommúnismi" á ■ máli í- haldsins frá fyrstu tíð? — verolagseftiri.it — var mitt svar við fyrstu tveini spurningunum liér að framan. I»að er allt og sumt. Verðlagseftirlit og einfaldar ráðstafanir til þess að ekki væri hægt að fara í kringum það. ‘ Verðlagseftirlit' til verndar varnarlausri alþýðu manna, til verndar íslenzku efnahagslífi, til verndar gegn vaxandi verð- bólgu og hinu „frjálsa fram- taki“ braskaralýðsins. Vel á minnst: „Hið frjálsa framtak". — Ung hjón leituðu sér að leiguíbúð í rúmt ár, en fundu ekkert sem þau réðu við að borga. Fyrir einstaka tilviljun náðu þau loks í risíbúð í gömlu timburhúsi, 2 herbergis- kytrur og eldhúskompu með þakglugga. Húsaleiga „hins frjálsa framtaks" var 1500 kr. á mánuði, átti að greiðast fyrirfram fyrir árið, aðeins 18 þúsund krónur, þær varð að fá að láni. Súðin lak, leigjand- inn varð að byrja á því að gera við þakið. Húseigandinn átti fleiri slíka timburhjalla. Þeir borguðu sig niður nokkr- um sinnum á ári. Um kvittanir var ekki að ræða. — Þetta er ,,hið frjálsa framtak“ Sjálf- stæðisflokksins. Það er ekki að<?> furða þó Morgunbl. vari við „gulu hættunni“ Það er ekki að furða þó hægri kratar flýti sér að taka fram að þeir beri enga ábyrgð á þessum tilíög- um — enda hafi nefndin klofn- að og Tómas' Vigfússon skilað séráliti. Það er ekki að furða þó Hannes .Pálsson fái hjá hús- bændum sínum bágt fyrir að láta fleka sig til að undirskrifa slíkan „kommúnisma". — Hver veit hvað það getur kostað mörg atkvæði? En hér var of djarft spilað. — Nú hefur það slys orðið á örlagaríkri stund — á sjálfri hátíðasýningunni —- í kosn- ingabaráttunni um bæjar- stjórnina — að gríman datt af sjónhverfingameistaranum þeg- ar hæst stóð sýningin og fór allt í handaskolum. Áhorfendur sáu að Sjálf- stæðisflokkurinn er ekki og hefur aldrei verið flokkur allra stétta, heldur hefur braskaraklíkan notað hann ssm tæki til -að auka og efla aðstöðu sína til meira brasks, til að magná verðbólgu, tii að fella verðgildi peninganna, svo hægt væri að raka saman milljónum á skuldabraskinu, á kostnað þjóðarinnar — og síð- ast en ekki sízt til að sundra íslenzkrj verkalýðshreyfingu rneð aðstoð þjóna sinna í Al- þýðuflökknum. Áhorfendur séu þá líka að hér var ekki hinn rétti sjónhverf- ingameistari að leika listimar (formaður klíkunnar) heldur ,,dýratemjarinn“. Hans sérgrein er örinur svo ekki var von að betur færi ævintýrið, þrátt fyr- ir hinn „rökræna stíl“, Sigurður SigniuiMlsson. Frá skrifsloíu M- þýSubandaldgsins Þeir seui vilja aka fyrir G.-listaim á kjördag eða lána bíla siína eru vinsamlega beðnir að gefa sig frain á kosiiingaskrifstofu Alþýðu- bandalagsins að Tjanaargötu 20. G-listinn* STElMDÖRs] OHA^Í Trúlofunarhringir. Steinhringir. Hálsmea 14 og 18 Kt. gulL Sokkabuxur og drengjapeysur fást með hagstæðu verði, Önnur ullarföt eru prjón- uð eftir pöntun á LAIJGAVKGI 30 B. (gengið fram hjá Stúdíó). SðHll Brjóstahöld öll númer Undirfatnaður. A og B skálastærðir. Náttkjólar, Saumlausir netnylonsokk- ar Perlon- og nylon- sokk, sokkar með saum og saumlausir. Verzluniu HafMik, 1 Skólavörðustíg 17B. SKIPAUTGCRB RIKISINS HEKLA austur um land í hringferð hin® 29. þ.m. Tekið á móti flutningi til: Páskrúðsfjarðar, Reyðarf jarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Þórshafnar, Raufarhafnar, Kópaskers, og Húsavíkur. árdegis í dag. Farseðlar seldir á þriðju- dag. Litlu hvítu rúmin iriiigsins c? Foreidrar! Leyfið börnum yðar að hjálpa við að selja merki á morgun, sunnudag, sem afgreidd verða frá kl. 10 f.h. a eftirtöldum stöðum: Garöastræti 8, EUi- heimilinu (vesturálmu), Tónlistarskó lanum, Laufásveg 7, Barónsborg, Drafnarborg, Laugarnesskólanum (handavinnuhúsinu) og ungmennafélags- húsinu við Holtsapótek. Géð sölulaun. Með fyriríram þakklæti. RAFMYNDIR H.F. ÍÍMyndamótagerð) Lindargötu 9A Edduhúsinu Sími10295 Myndamót fljétt og vel af hsndi leyst

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.