Þjóðviljinn - 04.02.1958, Page 3
Þriðjudagur 4. febrúar 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Leitaði Guðsdýrðar á Hétel Berg —
Fain HSislukkaða fíveitikranðsdaga
Baha’u’ullah er hinn nýi spámaður vorra daga og
John Robarts er boðberi hans. Einum geisla af dýrSar-
ljóma guSs hefur veriS beint hingað norður í vetrar-
myrkrið — „on the damn’d rock“.
Öðru hvoru ber það við að
fórnfúsir menn frá heitari stöð-
um hætta sér hingað norður í
myrkrið og kuldann til þess að
boða hinni heiðnu norðursþjóð
trúarbrögð. Ekki er ýkjalangt
síðan einn kom sunnan frá
Afriku, ’kvaðst kominn af Agii
Skallagrímssyni á Borg —, og
vilja kristna íslendinga. Var sá
á vegum KFUK er greiddi fyrir
honum, en samt eru íslendmgar
hálfu heiðnari en fyrr.
Balia’u’llah
Nú er aftur kominn einn slík-
ur. Og í gær hugðist ég reyna
að venja mín syndugu augu
ofurlítið við dýrð guðs og rölti
niður á Hótel Borg, en þangað
hafði John Robarts, sendiboði
„guðsdýrðar“boðenda kvatt
blaðamenn á sinn fund. Hann
hafði verið svo forsjáll að koma
á framfæri við mig ofurlitlu
„handáti“, í hverju stendur
þessi setnrng: Balia-trúarmenn
trúa því að Baha’u’Ilali sé hinn
nýi spámaður vorra daga“
(„Baha’is believe that Ba-
ha’u’llah is the new prophet for
thís day“). Mig hungraði og
þyrsti eftir að heyra meira um
þennan nýja spámann, Baha’u’-
llah.
Jón Þórarinsson
En ég varð fyrir miklum von-
brigðum. Þjónarnir á Borginni
fullvissuðu mig um að þar hefði
enginn gert ráð fyrir neinu við-
tali við blaðamenn, nema Jón
Þórarinsson tónskáld, og satt
að segja bjóst ég ekki við neinni
sérstakri dýrð guðs þar, nema
að svo miklu leyti sem hún kann
að vera í tónlistinni og leynast
í athöfnum bæjarstjórnarminni-
hlutans í Kópavogi.
Leiklist á Suðurnesjum
í sölum Borgarinnar sátu
nokkrar sálir, en af þeim ljóm-
aði ekki venju fremur nein
guðs dýrð. En þegar ég hafði í
öngum mínum snúið baki við
Borginnji, hafandi hvergi séð
dýrð guðs, rakst ég á ungan
mann, Val Sigurðsson úr Njarð-'
vikum, og tók aftur synduga
gleði mína.
Ykkur rekur sennilega minni
til þess flest að sagt hefur ver-
ið fi'á því að þeir hafa komið
upp leiklistarskóla á- Suðurnésj-
um. Við tókum tal um leiklist
á Suðurnesjum. Val sagðist frá
á þessa leið:
Kvæðalestur —
Líkamsæfingar
Ungmennafélagið og kvenfé-
iagið í Ytri-Njarðvík höfðu áð-
ur nokkra leikstarfsemi, en svo
lá hún niðri um tíma undanfar-
ið þar til við tókum okkur til
í fyrra og fengum Heiga Skúla-
son suðureftir til að koma á fót
leiklistarskóla.
— Hvað gerði Helgi svo við
ykkur?
— Barnið þarf fyrst að læra
að ganga áður en það fer að
hiaupa. Helgi kom til okkar í
desember í fyrra og var" hjá
okkur beint af götunni, úr báí-
okkur í fjóra mánuði. Hann tók
unum og bílunum, — alla óvana.
Hann byrjaði á því að láta okk- Myndin s>,lir Val Sigurðsson og G.mnar Kristófersson i hlut-
ur iæra kvæði verkum sýnum í „Misheppnaðir hveitibrauðsdagar".
Fyrst komu allir voða smart
klæddir, í sínu bezta skrúði, og
með titrandi nervösitet. Þegar
fyrsta kvöldið kom var byrjun-
in erfið, en svo lágum við á
kvöldin yfir því sem átti að
læra.
Víð vorum settir í öndunar-
æfingar, framsagnaræfingar og
afslöppunaræfingar, vorum lát-
in leggjast á gólfið, og þá byfj-
uðu stelpumar að koma í bux-
um — síðbuxum.
Miklabæjar-Sólveig
Skólinn hélt svo áfram allan
veturinn, en við höfðum enga
leiksýningu, nema við tókum að
Janúaralii í Mifl
Tœpar 5 lestir
i I 0 1 i I vVi •
a bat i roon
Hellissandi. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Fimm bátar róa frá Rifi i
vetur og var afli þeirra í janú-
ar samtals 300 lestir, eða um
4.9 lestirJ á bát að meðaltali í
róðri.
Hæsti báturinn, Ármann, var
með 120 lestir í tuttugu róðr-
um. Næstur lionum er Hólkell
með 64 Iestir í 13 róðrum.
Lægsti báturinn hefur aðeins
23ja lesta afla í janúar, en hann
hcfur heldur ekki farið nema
5 róðra í mánuðinum.
okkur prógrömm á þorrablót-
inu og sumardaginn fyrsta. Ann-
ars vorum við látin æfa hlut-
verk úr Fjalla-Eyvindi og leik-
ritum eftir Tennessee Williams.
Já, við æfðum Miklabæjar-
Sólveigu. Einn las kvæðið, en
aðrir léku bakvið það sem gerð-
ist: prestinn ríðandi á hjarninu,
drauginn og allt það.
Fagnað á Suðumesjum
Á síðastliðnu hausti hófst svo
annað ár leikskólans, undir
stjórn Helga Skúlasonar. Við
létum þýða leikrit eftir Kenneth
Horn: Misheppnaðir hveitibrauðs-
dagar. (Mun það vera fyrsta
skipti að slík félög láta þýða
leikrit fyrir sig, í stað þess að
taka eitthvað margvelkt). Nú
höfum við sýnt það 10 sinnum,
og erum ánægð með undirtekt-
irnar.
— Hvar hafið þið sýnt það?
— í Njarðvík, Keflavík, Garði,
Sandgerði og Grindavík, og við
ætlum að halda áfram að sýna
það m.a. í Mosfellssveit, Borg-
arnesi, Akranesi og Hafnar-
firði.
— Og hvað hyggist þið svo
fyrir?
— Við höfum þegar látið
þýða annað leikrit, sem verður
verkefni okkar næsta vetur.
Þýðandi er Sverrir Haraldsson.
Það er leikritið Meet a Body,
eða í þýðingunni: -Lifandi lík.
Ein kanadisk saumakora
En hvað sem þessu nafni líð-
ur, þá eru ungu leikendurnir í
Njarðvíkum sannarlega lifandi,
bjartsýnir og áhugasamir. Eft-
ir spjallið við Val var ég því
fyllilega sáttur við guð og
menn, þótt ég hefði ekkert frétt
af hinum nýja spámanni Ba-
ha’u’llha. Seinna frétti ég að
Hendriki Ottóssy.ni hefði einum
íslenzkra blaðamanna tekizt að
sjá dýrð guðs í gær, eða sendi-
boða hans John Robarts. Hensi
kann ekki aðeins hin furðuleg-
ustu tungumál, heldur veit hann
og allt um alla trú og hjátrú
veraldar, og hann fræddi mig
á að baha væri arabiska og
þýddi ljómi, eða dýrðarljómi, og
siðari hluti nafnsins einnig arab-
iska er þýddi guð. f tilkynning-
unni frá Mr. Robarts segir að
Baha-trú hafi ekki aðeins náð
fótfestu í gervallri Ameriku,
sunnan frá Falklandseyjum norð-
ur til ísauðna Alaska, heldur og
„í hverju landi heims utan
járntjalds, í 254 ríkjum og
hjálendum" Og nú játaði ég
fyrir Hensa að ég hafði engan
slíkan hitt hérlendis. Jú, sagði
Ilendrik, það kom hingað sauma-
kona frá Kanada sem trúir
þessu. Það kom víst raunar
Baha-trúboði fyrir nokkrum ár-
um líka en — það tók enginn
trúna.
J. B.
feans hrakim
ÞjóðviljanUm barst í gær eft-
irfarandi:
f tiiefni af frásögn í Morgun-
blaðinu um lieimsókn fulitrúa
tveggja brezkra seðlaprentunar-
fyrirtækja hingað til lands skal
eftirfarandi upplýst:
1) Fulltrúar þessara fyrir-
tækja beggja hafa komið hing-
að til lands oft áður, annar
þeirra að minnsta kosti einu
sinni á ári mörg undanfarin ár,
enda prentar annað fyrirtækið
svo að segja öll frímerki póst-
stjórnarinnar.
2) Menn þessir hafa verið hér
í venjulegum viðskiptaerindum
nú sem endranær. Til athugunar
hefúr t.d. verið, hvort hentugt
mundi vera að gefa út nýjar
stærðir eða gerðir seðla. þegar
núverandi þirgðir þrjóta, t.d.
1000 króna seðil í sfað 500 króna
seðla, sem nú eru brátt á þrot-
um. Ekki mundi þó til þess
koma mjög fljótlega, þar sem
undirbúningur að útgáfu eins
nýs seðils tekur að minnsta
kosti eitt ár, Slikar breytingar
á stærð og gerð seðla eru að
sjálfsögðu algengar í heiminum
og á engan hátt fréttnæmar, og
eiga þær ekkert skylt við al-
menna innköllun peninga.
3) Bankinn hefur ekki haft
neitt samráð við ríkisstjómina
um þessi mál, og ríkisstjómin
hefur engin afskipti haft af
þeim.
Reykjavík 3. febrúar 1958,
Landsbanki íslands
Seðlabankinn.
Vilhjálmur Þór.
Jón G. Maríasson.
„Þeir kosta 12 kr. p
99
Útsala-útsala. — Áður kr
1387, nú kr. 567.50 — Aðeins
20 kr. — Stórkostleg verð-
lækknn o. s. frv.
Það var mikil ös um Skóla-
vörðustíginn í gær. Það var
fyrsti útsöludagur hjá Kron, og
það fór ekki fram hjá neinum,
sem hætti sér upp eða niður
Skólavörðustíginn, því yfir
þvera götuna lá borði í faileg-
um litum og á honum stóð
stórum skýrum stöfum Ú T -
S A L A . Borðiim var öðru
megin tengdur í Hegningar-
húsið.
Fréttamaður kikti inn seinni-
partinn í gær, réttara sagt
svindlaði sér inn bakdyrameg-
inn, því það var hleypt inn í
flokkum og lokað á milli til að
halda uppi röð og reglu.
ÞaíT var i mörgu að snúast
uppi á lofti. Konur á öllum
aldri gengu um, tóku upp peys-
ur, þreifuðu á efnum, skoðuðu
sokka — spurðu um verð. ,,Jú,
frú mín, nylonsokkarnir kosta
12 kr. parið“, segir stúlkan við
kassann og brosir dálítið þreytu
lega. „Það eru öll stærstu núm-
erin búin“, segir roskin kona
og rótar í peysum, gulum, hvít-
um og röndóttum.. „Það teyg-
ist nú anzi mikið á þeim“, seg-
ir afgreiðslumaðurinn og tekur
eina upp og teygir hana nærri
því armlengd. „Það er satt“,
segir konan. „Hvað er verðið?“
„Tuttugu og níu krónur."’
„Jesús minn, livar eru börn-
!in?“ Konan lítur allt í kring-
um sig skelkuð á svip. Tveir
undan stórum rekk, þar sem
er allskonar metravara. Hér
er upplagt að leika sér í felu-
leik á meðan mamma er að
gera góð kaup.
Hann virðist ekki vera í sér-
lega góðu skapi. Iíann sezt á
stól og dæsir. Augun eru sljó-
leg. Aumingja maðurinn! Hann
virðist ekki bera minnsta skyn-
bragð á, að konan hans er
að enda við að gera beztu kaup-
in sem hún hefur gert háa
herrans tíð. Þau labba niður
stigann; hann er afundinn, hún
leikur við hvern sinn fingur.
Og svona verður þetta alla
þessa viku. Á fimmtudaginn
geta svo karlmenn komið líka
og gert góð kaup, því þá verð
ur opnuð útsala alveg „privat*
glókollar koma í ljós, fram-;| fyrir þá!
S.J.
Sigurður Árnason
Verkalvðsfélags Hveia-
gesðis sl. simmid&g
Aðalfundur VerkalýðsféiagS
Hveragerðis var haldinn hér sl.
sunnudag, í stjórn félagsins
voru kosnir: Formaður Sigurður
Árnason, varaformaður Jóhann
Malmkvist, ritari Rögnvaldur
Guðjónsson, gjaidkeri Þorvaldur
Sæmundsson, fjármálaritari Eyj-
ólfur Egilsson og meðstjómend-
ur Magnús Hannesson og Stefán
Valdimarsson.
Vinsamlegast látið mig vita, sem íyrst um
málverk og aðra listmuni, sem þér ætlið
að selja á næsta listmunauppboði.
SigurSur Benediktsson.
Listmunauppboð
Sigurðar Benediktssonar,
Austurstræti 12, sími: 1-37-15.