Þjóðviljinn - 06.02.1958, Blaðsíða 10
10)
ÞJÓÐVIUINN — Fimmtudagur 6. febrúar 1958'
Það verðnr að þurrka ut áhrif
Fremhald, af 7. síðu.
ber að höndum, skrifast þeir
á reikning þeirra, sem gengu
brautina frá atvinnuofsóknum
og skoðanakúgunum til fas-
istísks einræðis.
Eg er þess fullviss, að yfir-
gnæfandi meirihluti íslend-
inga vill friðsamlega þróun á
vettvangi stjómmálanna, og
ég er þess einnig fullviss, að
meginþorri þeirra er andvígur
valdi þeirra auðmanna, sem
raunverulega stjórna landinu
eins og nú standa sakir. En
ég tel hins vegar mjög mikla
hættu á, að verulegur hluti
þjóðarinnar skilji ekki hvert
þessar auðklíkur eru að leiða
hana.
Með þessum greinum hef ég
viljað benda á þau óheillavæn-
legu áhrif, sem atvinnurek-
^ndavaldið, þ.e. auðklíkurnar
sjálfar, hafa náð innan verka-
lýðsfélaganna.
Eg teldi eina hina mestu
gæfu, ef allir þeir sem sjá
og skilja þá hættu, sem í
þessu felst, sýndu nú það vit
og þann manndóm að samein-
ast gegn þessari herferð auð-
kliknanna. Verkalýðurinn þarf
að þurrka út, innan sinna vé-
banda, áhrif þess ' flokks,
Sjálfstæðisflokksins, sem klík-
urnar beita fyrir sig, en eitt
veigamikið atriði í því sam-
banda er að veíta honum ekki
forýstuaðstöðu, hvorki að
meira né minna leyti, í verka-
lýðsfélögum eða sambandi
þeirra, þar sem hann ræður
ek'ki yfir meirihluta atkvæða,
en sennilega á flokkur þessi
ekki meirihluta í einu
einasta verkalýðsfélagi,
og fulltrúatala hans á
Brún — Rauð
Hlífðarshófatnaður
Fyrir karla, konur og börn.
0 R V A L — Sendism í pásikröfu.
H E C T 0 R( Laugaveg 11 — Laugaveg 81.
2.—11. marz 1958
KAUPSTEFNAN í LEIPZIG
VÖRU- OG VIILASÍNING.
10 000 sýningaraðilar frá 40 löndum. 55 vöruflokkar.
Innflytjendur frá 80 löndum.
Skírteini sem jafngilda vegabréfsáritun afhendir:
KAUPSTEFNAN, Lækjargötu 6A, Reykjavík,
Sírnar: 11576 og 32564.
LEIPZIGER MESSEAMT • LEIPZIG CI • HAINSTRASSE 18
Alþýðusambandsþingi er ekki
há.
Það er því staðreynd, að
með aðstoð manna, sem eru
andstæðingar Sjálfstæðis-
flokksins og þeirra klikna,
sem hann er fulltrúi fyrir,
eru gefin völd innan verka-
lýðshreyfingarinnar. Með
þessu framferði eru verka-
menn að gerast sjálfs sín böðl.
ar og böðlar stéttar sinnar.
Slíkt hefur áður gerzt, og
eru gleggstu dæmin frá
Þýzkalandi nazismans. Þau
spor hræða.
Eg gat þess áður, að tvennt
það dýrmætasta, sem auð-
valdsþjóðfélagið hefði fært
mannkyninu, væri tækniþróun-
in og almennur kosningarétt-
ur og kjörgengi, þ. e. hið
borgaralega lýðræði, en þetta
tvennt mundi verða naglar í
líkkistu þessa þjóðskipulags.
Tækniþróunin hefur gert
tvennt. Hún- hefur sknpað hin-
ar fámennu auðklíkur, sem
öllu ráða í auðvaldsheiminum,
og hún hefur skapað krepp-
urnar, hvort tveggja af því
að hún er í höndum stétta,
sem misnota hin dásamlegu
tækifæri sem hún gefur. Allir
sem skilja það þjóðfélag, sem
þeir búa í, og ekki tilheyra
auðstéttinni, eru andvígir
þessari misnotkun tækninnar
og vilja að hún verði skilvrð-
islaust tekin í þjónustu fjöld-
ans. Hjá sérhverri vel unp-
lýstri og gáfaðri þjóð hlýtur
því hinn almenni kosninga-
réttur að leiða til ósigurs fyr-
ir auðklíkurnar, ef hann fær
að njóta sín, en takist þeim
að hindra, að þjóðarviljinn fái
notið sín við almennar kosn-
ingar, ef þær afnema hið borg-
aralega lýðræði, að meira eða
minna leyti, til að tryggja
sér aðstöðu um sinn, fer
e'kki hjá því, að þjóðarviljinn
brýzt fram, fyrr eða seinna,
eftir þeim leiðum, sem tiltæk-
astar eru. I báðum tilfellum
er ósigur auðklíknanna óuum-
flýjanlegur, vilji fjöldans mun
sigra þær, raunhæft lýðræði
mun binda endi á skipulag
atvinnukúgunar, kreppna og
stríða, en það er undir skiln-
ingi og þroska þjóðarinnar
komið, hvort hún þarf að
ganga í gegnum eldraun fas-
ismans áður en því marki er
náð. Sú hætta er bráð, og
henni verður ekki afstýrt
nema ofsóknarherferð Sjálf-
stæðisflokksins verði stöðvuð,
og völd hans og áhrif í verka-
lýðshreyfingunni þurrkuð út.
Auglýsið
í Þjóðviljanum
Erleud tíðindi
Framhald af 6. síðu.
til endurgjaldsárásar, en þessi
viðbúnaður er í því fólginn, að
stytta frestinn sem vélarnar
þurfa til að komast á loft með
sprengjufarm sinn. Á hættu-
tímum, þegar viðsjár eru mikl-
ar milli ríkja, getur skaðinn
verið skeður á svipstundu.
'O'ættan á s’ysi, sem hlotizt
•“■■^ getur af ofreyndum taug-
um, margfaldast auðvit-
að þegar fyrirliðar og áhafn-
ir á þessum flugvélum verða
sífellt að vera til taks. Áhöfn
einnar einustu vélar á varð-
flugi, sem setur sprengju sína
saman og sendir hana að skot-
marki innan rússneska áhrifa-
svæðisins, eða öfugt, getur
hrundið af stað keðjuverkun,
sem kann að eyða heimsbyggð-
ina á nokkrum klukkutímum.
Það er afar erfitt að girða fyr-
ir að dulmálsorð séu misnot-
uð eða misskilin, og tryggja
jafnframt snögg viðbrögð. Því
skjótari sem viðbrögðin þurfa
að vera, þeim mun torveldara
er að gæta nauðsynlegrar var-
úðar. . . . Það er nógu óhugn-
anlegt að lifa í skugga yalds,
sem gerir einræðisherra er-
lends ríkis fært að ógna okkur
með vetnisárás, en margfalt
hættulegra er að búa við það
að urmull vetnisstríðsmanna á
báða bóga er þjálfaður til hinn-
ar ýtrustu árvekni, svo að ein-
hver hluti þeirra kann að vera
haldinn áköfu gikksæði og
stríðslosta. Víð hættuna á að
dulmálsmerki sé í raun og
veru misskilið bætist hættan
á að misskilningurinn stafi af
æsingi. Óþolinmóðir undirfor-
ingjar hafa oft haft sama hátt-
inn og Nelson, að bera kíkirinn
að blinda auganu, þegar skip-
un barst um að bíða átekta,
þetta hefur gerzt miklu oftar
en sagan greinir."
¥ iddell Hart ræðir síðan um
yfirlýsingu Macmillans, for-
sætisráðherra Bretlands, um
að það sé fastmælum bundið
milli ríkisstjórna Bretlands og
Bandaríkjanna að kjarnorku-
vopnum frá stöðvum í Bret-
landi verði ekki beitt nema
með samþykki þeirra beggja.<
Herfræðingnum þykir lítil
huggun í henni: „Því miður
er ekkert þess háttar neitunar-
vaid æðstu yfirvalda fullnægj-
andi trygging og getur ekki
verið það, úr því að áhöfn
flugvélar er fær um að setja
sprengjuna saman og engin ó-
brigðul tækniráð eru til að
hindra hana í að hleypa
sprengjunni af og varpa henni.
„Tafarlaus viðbúnaður“ er því
aðeins framkvæmanlegur, að
sprengjunum sé dreift sem
mest má verða og valdinu til
að beita þeim dreift að sama
skapi. En því lengra sem geng-
ið er í þessu, af hernaðarlegri
nauðsyn, því meiri er hættan
á að afdrífarík misnotkun eigi
sér stað „af slysni“. Á hættu-
stund, þegar ástríðurnar hafa
blossað upp, geta foringjar
nokkurra sprengjuflugvéla- »
sveita, já, meira að segja á-
höfn einnar vélar, tendrað
heimsbál, ef þeim finnst að
ríkisstjórn sín eða banda-
menn hennar séu að „svíkja
málstaðinn", af heigulsiegri
sáttfýsi. Einnig er voðinn vís,
ef ranglega er ályktað, að ó-
vinaflugvélar, hlaðnar vetnis-
sprengjum, séu á leiðjnni að
gera skyndiárás á eina eða
fleiri stöðvar Bandaríkja-
manna. Þessi hætta verður enn
meiri, þegar komnar eru til
sögunnar eldflaugar, sem
stytta fyrirvarann niður í
nokkrar mínútur. Frá því hef-
ur verið skýrt í Washington,
að óttinn við slíka „Pearl Har-
bor árás“ hafi komið Bancla-
ríkjastjórn til að heimila ein-
stökum hershöfðingjum að
grípa til kjarnorkuvopna, ef
þeir telja að stöðvar þeirra
séu í bráðum voða. Svona víð-
tækar „skilorðsbundnar fyrir-
framheimildir" hafa svo gott
sem útilokað að ríkisstjórnirn-
ar fái haft hemil á því sem
skeður“.
A ðvaranjr bandaríska loft-
steinafræðingsins og ’enska
herfræðingsins ber að sama
brunni. Meðan kalda stríðið er
háð, meðan sprengjuflugvélar
standa á flugbrautarendum eða
sveima í loftinu hlaðnar vetn-
issprengjum, meðan menn bíða
í ofvæni með fingurna á tökk-
um, sem ræst geta eldflaugar
til æðisgengins og óstöðvandi
flugs á skotmörk í mörg þús-
und kílómetra fjarlægð, ligg-
ur farg ótta.og kvíða á mann-
kyninu af slíkum þunga, að ó-
þolandí verður til lengdar. Víg-
búnaðarkapphlaupið er komið
á það stig, að tortíming er á
næsta leiti verði það ekki
stöðvað.
M. T. Ó.
Skákþing
Framhald af 3. síðu.
leyfðar. Þess má geta að mjög
greinargóðar töflur hanga uppi
á skákstað, og gera þær áhorf-
endum auðvelt um vik að fylgj-
ast með keppninni í heild sínni,
auk þess sem viðstaddir geta
gengið milli borða og virt fyrir
sér þær skákir, sem þeir kjósa,
Aðgangseyri er í hóf stillt.
HASKOLANS
Happdrætíi Háskóla Isíands
í 2. —12. flokki eru 10980 vinningar á sasntals 14 milljén og 228
þnsnnd krénur. —Enn er hægt aðfá hella og hálfa nsiða.
Aðeins þrir sölndagar eru eftir í 2 flokki. — Dregið á mánndag.