Þjóðviljinn - 10.04.1958, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 10. apríl 1958
. !!>h)iiu: m‘ mií! J
0(11 .... Ihljlj tif
ÞJÍ»VILJINN — (3
Núverandí síjórn Félags róttækra stúdenta tallð frá hægri:
Stefán Sigurmundsson stud. pharm., gjaldkeri; Hörður Berg-
mann stud. mag., form.; Eyvindur Eiríksson stud. med, ritari.
25 ára aímælisfagnaður
Félags róttækra stúdenta
verður í Tjarnarkaffi laugar-
daginn 12. april n.k. og hefst
kl. 9 síðdegis. Meðal dagskrár-
atriða verða:
Ræða- Skúli Tlioroddsen,
læknir.
Gluntasöngur.
Helgi Skúlason Ieikari les
upp.
Dans.
Stúdentar, eldri seni yngri eru
hvattir til að koma og taka
með sér gesti. Aðgöngumiðar
verða við innganginn frá kl. 5
og eru teknir frá fimmtudag og
föstudag milli kl. 4—1 1 síma
16285.
I”zta stiórnoiálafélag Háskól-
ans —- Féiag rótiækra stúdenta
verður 25 ára n.k. sunnudag. Fé-
lagið var stofnað 13. apríl 1933
af 17 háskólastúdentum. í fyrstu
stjórn voru kosnir Benedikt
Tómasson formaður, Björn Sig-
urðsson ritari og Sölvi Blöndal
gjaldkeri. í fyrstu lögum félags-
ins segir að það sé tilgangur
þess ,,að styðja og efla hina rót-
tæku hreyfingu í háskólanum og
þjóðfélaginu og vinna að samein-
. ingu hinna róttæku afla í bar-
áttunni gegn íhaldi og fasisma
fyrir atvinnu. lýðræði og menn-
ingu þjóðarinnar“.
Innan F.R.S. störfuðu fyrstu
. árin stúdentar sem höfðu mis-
munandi skilning og skoðun á
hinum pólitísku málum þjóðfé-
lagsins, kölluðu sig samvinnu-
menn, sósíaldemókrata eða
kommúnÍKta. Hið sögulega bak-
svið samstarfs þeirra innan eins
félags var einræðis- og aftur-
haldslilhneygingar íhaldsins í
Evrópu og á íslandi jafnt innan
• Háskólans sem utan. Þessir stúd-
entar vildu ekki.una lengur yfir-
ráðum ihaldsaflnnna yfir félags-
málum og blaðakosti stúdenta,
og, nauðsyn samheldni róttækra
. og fi jáls vndra sfla gegn fasist-
ískum tilhneygingum íhaldsins
hefur verið þessum stúdentum
vel ljós.
Beztan ávöxt bar samfylking-
. arbarátta róttækra stúdenta
tímabilið 1935—’36 þegar félagið
réði meirihluta í stúdentaráði.
Við hátíðahöld stúdenta 1. des.
1935 flutti Halldór Kiljan Lax-
ness' aðalræðuna og talaði um
samfylkinguna, sem málstað
fólksins.
Á umrótatímunum við upphaf
síðustu heimsstyrjaldar komst
nokkurt Iqs á Félag róttækra
stúdenta. í gjörningaveðri Finna-
galdursins sögðú margir hægfara
vinstri mé'íin skilið við féiagið
og stofnuðu ný félög og síðan
hafa sl jórnmálafélögin innan Há-
skólans verið jafnmörg og stjórn-
málaflokkarnir í landinu.
Einn meginþátturinn í starfi
F R.S. hefur þó stöðugt verið að
fylkja stúdeptum saman gegn
íhaldsöfJunum, sérstaklega svik-
ráðum þeirra í sjálfstæðismálun-
um.
Það var F. R. S. sém fyrst
pólitísku félaganna í Háskólan-
um krafðist þess, að bandaríski
herinn hyrfi á brott af íslandi
og það var fyrir ötult starf full-
trúa félagsins í Síúdentaráði, að
útifundir voru haldnir gegn her-
stöðvabeiðni Bandaríkjamanna
og að ráðið réðist í útgáfu blaðs-
ins ,,Vér mótmælum allir“.
25 ára
í moldviðri Marshalláranna
riðluðust svo fylkingar stúdenta
í þessu máli.
Merkasti áfanginn í baráttu
síðustu ára er tvímælaíaust tíma-
bilið 1953—’56 þegar vinstri fé-
lögin höfðu meirihluta í Stúd-
entaráði og hátíðahöldin 1. des.
voru helguð baráttunni fyrir
brottflutningi bandaríska hers-
ins.
f síðustu kosningum til Stúd-
entaráðs varð F,R.S. fyrir
nokkru áfalli og missti annan
fulltrúa sinn í ráðinu.
Starfið í vetur hefur því beinzt
að því að treysta innviði félags-
ins og efla áhrif þess. Félagið
hefur haldið uppi fræðslustarf-
semi í vetur þar sem fjallað var
um pólitísk vandamál sem efst
eru á baugi og haldnir hafa ver-
ið fleiri félagsfundir en undan-
farin ár. Nýlega kom út nýtt
tölublað af málgagni félagsins,
Nýja stúdentablaðinu. Er það
einkum helgað baráttunni fyrir
frjálsu landi.
Ölafsvíkurbátar fengu
ágætan afla um páskana
Ólafsvík. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Ellefu bátar róa með' net. Á laugardaginn lögðu þeir
hér á land 212 lestir eftir tveggja nátta lögn. Aflahæst-
ur var Glaður með 24 lestir 290 kg. Hraðfrystihús Kaup-
félagsins Dagsbrúnar tók þá móti 116 lestum af 5 bát-
um er leggja upp hjá því.
Afli Ólafsvíkurbáta í marz-
mánuði var sem hér segir:
Jökull 222.800 kg. 21 róðrar
Þorsteinn 216.300 kg. 19 r.
Bjarni Ólafss. 207.920 kg. 25 r.
Glaður 206.050 kg. 25 r.
Víkingur 168.110 kg. 22 r.
Hrönn 166.450 kg. 21 r.
Bjargþór 149.260 kg. 21 r.
Fróði 144.270 kg. 18 r.
Egill 93.810 'kg. 19 r.
Mummi 84.840 kg. 20 r.
Týr 78.570 kg. Í2 rf'“ ’
Þórður Ólafss. 44.270 kg. 9 r.
Aflahæstu bátarnir á vertíð-
inni allri eru Jökull með 645.
090 kg. í 62 róðrum, Bjarni
Ólafsson með 518.680 kg. í 65
róðrum og Þorsteinn með 513.
520 kg. í 48 róðrum.
‘im
re
sorpnta
ora vegiia
Miimingarsjóður
um
ffiNSK VfSSNDAKONA
MI.ÁTUIS ISL. STYRK
Ungfrú Ursula Brown, lektor við Sommerville College
í Oxford, Englandi, hefur hlotið styrk Kvenstúdentafél.
íslands, sem kenndur er við dr. phil. Björgu C. Þoriáks-
son.
Þjóðleikhúskórinu hefur
stofnað minningarsjóð um
söngstjóra sinn, Dr. Victor
Urbancic hijómsveitarstjóra
Þjóðleikhússips, sem lézt 4. þ.
m. Sjóður þessi heitir: Minn-
ingarsjóður Dr. Vic.tors IJr-
bancic, og er ætla.ð að vera í
framtíðinni til styrktar íslenzk-
um læknanemum sa.mkvæmt
síðari ákvörðun í stofnskrá.
Með því að uppfylla þessa ósk
Dr. Victors Urbancic vill Þjóð-
leikhúskórinn heiðra minningu
hans og þalcka honum hans ó-
metanlegu störf. Framlögum til
sjóðsins er fyrst um sinn veitt
móttaká hjá dyraverði Þjóð-
leikhússins1.
Hingað til lands er nýkomin
ungfrú Ursula Brown lektor
við Somerville CoIIege, og
hyggst hún dveljast hér næstu
sex mánuði við heimildarrann-
sóknir í sambandi við útgáfu
þá á Eddu, sem hún nú vinnur
að.
Kvenstúdentafélag Islands
safnaði fyrir nokkrum árum
fjárhæð kr. 12.500,— til styrkj-
ar, sem veita skyldi erlendri
menntakonu, sem legði stund á
íslenzk fræði og óskaði eftir
að dveljast hér á landi sum-
part til náms og sumpart til
sjálfstæðra rannsókna. Ákveðið
var að styrkurinn skyldi kennd-
ur við dr. phil. Björgu C. Þor-
láksson, sem á sínum tíma og
fyrst norrænna kvenna varði
doktorsritgerð við Sorbonne
háskóla.
Félagið afhenti styrk þennan
Alþjcða sambandi háskóla-
kvenna til ráðstöfunar handa
hæfri konu innan vébanda
sinna.
Ýmsar umsóknir hafa borizt
um styrk þennan á liðnum ár-
um, en ungfrú Ursula Brown
hefur þótt hæfust umsækjenda
og hefur því hlotið stvrkinn.
Ungfrú Brown er hámennt-
Uð kona og starfar sem lektor
Framhald á 11. síðu.
Ingi R. og Ingimar
efstir í lanetsiiðs-
ílokki
Biðskákir tefldar í fyrra-
kvöld úr 4.-5. og 6. umferð.
tJrelit úr 4. umferð: Kári
Sólmundsson vann Kristján
Theódórsson. Jón Kristjánsson
vann Eggert Gilfer.
Urslit úr 5. umferð: Kári
Sólmundsson gerði jafntefli við
Ingimar Jónsson. Skák Hauks
Sveinssonar og Inga R. er enn
óútkljáð.
Úrslit úr 6. umferð: Kári
Sólmundsson gerði jafntefli við
Jón Kristjánsson. Skák Páls G.
Jónssonar og Eggerts Gilfer er
óútkljáð.
Staðan i Landsliðsflokki:
Ingi R. Jóhannsson 5 vinningar
og biðskák.
Ingimar Jónsson 5 vinningar
Kári Sólmundsson 3ý2 v.
Halldór Jónsson 3y2 v.
Páll G. Jónsson 3 vinningar og
biðskák.
7. umferð var tefld í gær-
kvöldi.
Staðan í meistaraflokki eft-
ir 6 umferðir:
Jón M. Guðmundsson 5 v.
Hermann Jónsson 4 v.
Á fundi sem haldinn var í
Mæðrafélaginu 31. f.m. var eft-
irfarandi tillaga samþykkt:
„Fundur í Mæðrafélaginu,
haldinn 31. marz 1958, beinir
þeirri áskorun tií Iögreglu-
stjórans í Reykjavík, að hann
geri allt sem í Iiaras valdl
stendur til að hsmlra útgáfu og
sölu sorprita þeirra, sem ber-
sýnilega eru skaðleg til iest-
urs börnum og unglingum, en
fjöldi slíkra rita eru nú til
sölu í veitingálcrám og sæl-
gætissölum bæjarins.“
Sænski sendikennarinn, Bo
Almipwist, fil. mag., flytur
fyririestur, er hann nefnir
Ormur Rauði og ísiendinga-
sögurnar, í háskólarmm föstu-
daginn 11. apríl.
Bókmenntir Svía hafa frá
fornu fari orðið fyrir miklum
álirifum frá íslenzkum fom-
bókmenntum, sem Friðþjófs
saga Tegnérs og Fólkungatréð
eftir Heidenstam bera ljósan
vott um. Sú bók um víMnga-
aldarefni, sem að vinsældum
jafnast við fyrri vinsældir Frið-
þjófs sögu, er Ormur Rauði
eftir Frans G. Bengtsson. Húni
hefur verið þýdd á mcrg mál,
þar á meðal íslenzku. Fran.s G.
Bengtsson var manua fróðastur
um norræn efni. Um meðferð
hans á forníslenzkum fyrir-
myndurn verður fjallað í fyrir-
lestri sendikennarans.
Fyxirlesturinn, sem verður
fluttur á sænsku, hefst kl, 8.30
e.h. í I. kennslustofu háskól-
ans. Öllum er heimiil aðgangur.
Vilskipfðsanmingur við Dani
2. apríl sl. var undirritaö' í Reykjavík samkomulag um
viðskipti milli íslands og Danmerkur fyrir tímabiliö 15.
marz 1958 til 14. marz 1959.
Heildarafi
Isafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Afli Isafjaxðarbátanna í marzmánuði, svo og heildarafli
þeirra frá veti'arvortíðarbyrjun er þessi:
Samkomulagið undiiritaði
fyrir Islands hönd Guðmundur
I. Guðmundsson utanríkisráð-
herra og fyrir hönd Danmerk-
ur E.A. Knuth greifi, ambassa-
dor Dana á Islandi.
Samkomulagið er í aðalatrið-
um sama efnis og fyrra sam-
komulag, en skapar þó mögxi-
leika fyrir auknum útflutningi
niðursoðinna fiskafurða frá Is-
landi til Danmericur, svo og
fyrir útflutningi frá Islandi til
Danmerkur á frystum rækjum
og frystum fiskflaka afskurði.
Róðrar heildafli róðra-
Bátur Iestir í marz lestir fjöldi
Guöbjörg 198 21 445 60
Gunnvör 163 21 394 58
Gunnhildur 162 20 387 59
Ásbjörn 142 20 348 58
Ásúlfur 110 279
Már 120 20 275 55
Sæbjörn 132 20 195 40
Auöhjörn 73 12 179 41
Víkingur 42 11 97 32
Víkingur1 er aðeins 13 lestir að stærð. Auðbjöm varð fyrir
vélarbilun og tafðist af þeim sökum. Sæbjöm varð eirmig fyrir
töfum og er róðrafjöldi þeirm því lægri en hinna bátanna. >