Þjóðviljinn - 07.11.1958, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.11.1958, Blaðsíða 1
Föstudagur 7, nóvember 1958 — 23. árgangur — 254. tölublað Inni í blaðinu Stökkbreytingar í efnahagslífinu - 7. síöa. Gerviknapinn, leikdómur 4. síðai Fræðileg rök og flóttamenn - 6. síða. Geislavirkni yfir íslandi hefur um það bil tífaldazt fró októberbyrjun Mælinaar ekki enn hafnar á strontímn 90 Undanfarinn hálfan mánuð hefur geislavirkni farið mjög vaxandi hér á landi, og sýna mælingar aö hún hef- ur tífaldazt síöan x byrjun október. Er það afleiðing af tilraunum stórveldanna með kjarnorkusprengjur. Hættu- legasta geislavirka efnið er strontíum 90, en magn þess hefur ekki verið mælt sérstaklega hér á landi enn sem komið er. Prá þessu skýrði Þorbjöm Sigurgeirsson prófessor Þjóð- viijajium í gær. Eins og áður hefur verið skýrt frá hér i blaðinu hafa slíkar mælingar verið undirbiinar í sumar og tæki til þeirra var smíðað í tíanmörku. Sogar tækið ryk úr andrúmsloftinu og síðan er mælt hversu geislavirkt það það bil tífalt meiri en hún var I byrjun októbermánaðar. Nokkrar sveiflur eru dag frá degi, en þetta er heildarniður- staðan á þessu tímabili. Ekki er nokkrum vafa bundið að þessi stórfellda aukning er af- leiðing af kjarnorkusprenging- unum. Afleiðing af kjarnorku- sprengingum Þorbjörn skýrði svo frá að mælingar hefðu hafizt í byrj- un októbermánaðar, og reynd- ist þá geislavirkni lítil. Hélzt hún mjög lág allan fyrrihluta október en fór að vaxa laust eftir miðjan mánuð, og er nú svo komið að geislavirkni í ryki í andrúmsloftinu er um Pasternak birtir yfirlýsingn <i Sovézka skáldið Boris Past- femak, sem sænska akademían atæmdi bókmenntaverðlaunum Nobels, birti í gær yfirlýsingu í Pravda. Þar gerir hann grein fyrir því hvernig á því stóð að hann fagnaði fyrst þessum sóma, en hafnaði honum síðar. Hann segist ekki hafa gert sér ljóst í fyrstu að verðlaunaveit- ingin væri af pólitískum toga spunnin, það hefði hann fyrst séð þegar tekið var að þyrla upp pólitísku moldviðri um | nafn hans. Þá hafi hann ein í, án samráðs við nokkurn ann- | an og ekki að undirlagi neins ! ákveðið að hafna verðiaunun- um. Pasternak segist bundinn órjúfanlegum tengslum við föð- urland sitt, fortíð þess, heill-! andi nútíð og framtíð þess. i Enn ekki mælingar í vatni og beinum Þorbjörn skýrði einnig svo frá að geislavirkni í vatni Timgleídflaiig send á loft í dag Tilkynnt var í gær að i tdag klukkan sex fyrir hádegi sam- kvæmt Lslenzkum tíma, yrði þriðja tilraunin gerð til að skjóta eldflaug til tung'sins frá Canaveralliöfða í Bandaríkjun- um. hefði ekki verið mæld enn. Hins vegar hefur verið safnað sýnishorn af rigningar\'atni allt frá ársbyrjun og verður senn farið að mæla geislavirkni f þeim. Ekki eru heldur hafn- ar mælingar á geislavirku strontíum 90 í beinum manna hérlendis enn sem komið er. Hver eru áhrifin Þorbjörn sagði að geisla- virknin hér væri enn talsvert fyrir neðan það sem vísinda- menn telja hættulegt stig, þ.e. að geislunaráhrif yllu ekki tjóni á fólki. Hins vegar væru erfðafræðingar mjög ósammála um hver áhrif geislaverkanir geti haft á erfðaeiginleika hjá óbornum kynslóðum, og hvert hættustigið væri þar, enda rannsóknir um það efni á byrj- unarstigi. Strontíum 90 ekki enn mælt j Eins og Þjóðviljiim hefur áður sagt frá mælti Hannibal Valdimarsson félagsmálaráð- herra fyrir um það í sumar að sérstaklega skyldi mælt magnið af strontíum 90 hér á landi. Geislunaráhrifin af því efni em hættulegust, það sezt í vatn og jarðargróður, þaðan í dýr og berst síðan einkum í mjólk í fólk og sezt að í beinunum. Þorbjörn kvað sérmælingar á strontíum 90 ekki enn vera hafnar, til þeirra þyrfti að framkvæma éfnagreiningar í samvinnu við Atvinnudeild há- skólans. Myndi það verk þó bráðlega hafið. -<S> Anastas Miko.jan Ankiti framleiðsla, betri • lífskjör með hverjo ári ■ Anastas Mikojan varaíorsætisráðherra flutti ræðu á byltingarhátíð í Moskvu í gær 41 árs afmælis októberbyltingarinnar var rninnzt í hinní miklu íþróttahöll í Moskvu í gær. Þúsundir verkamanna irá vinnustöðum höfuðborgarinnar, innlendir og erlend- ir gestir, hlýddu þar á ræöu Anastasar Mikojans, vara- forsætisráöherra Sovétríkjanna. Borgarstjóri Moskvu bauð gesti velkomna og ávarpaði sérstaklega gestina frá Pól- landi, Gomulka og félaga hans. Var þeim vel fagnað. 1 ræðu sinni sagði Mikojan að saga sovétþjóðanna eftir byltinguna væri vörðuð mikl- um sigrum í baráttunni fyrir uppbyggingu sameignarþjóðfl. lagsins. Hann nefndi fjölda dæma um þá öru þróun sem orðið hefði í atvinnu- og menn- Framhald á 5. síðu. Áskorun miSsfjórhar brezka Verkamannaflokksins: Gangið að tillögu Sovétríkjanna og hætfið strax ölSum kjarnatilraunum! Miðstjórn brezka Verka- mannaflokksins skcraði i gær á brezku ríkisstjóraina að ganga til sanininga um stöðvun til- rauna með kjarnavopn á gruntl- velli þeirrar tillugu sem fulltrúi Sovétríkjanna á ráðsteí'minnj i Genf um það mál hefur borið fra*n Mi 'sfjórnin mirnir á að F.evé’.ki fulltrúinn hafi sagt að Scvé’.'ikin séu fús l’l að gtra f>>’ kii'i’nlag um að tilraunum mej kjamavc>rii verði hætt fyrir fuilt og a!It og að kcin- ið verii upp eftirlitskerfi sam- kvænit tillögu færustu manna. Ráðstefnan í Genf hefur nú staðið í viku 02 enn hefur ekk- ert samkomulag náðst um dag,- skrá liennar, hvernig og í hvaða röð málin skuli rædd. Tillaga sovétstjórnarinnar sem lögð var fram þesar fyrsta dag ráðstefnunnar var á bá ’.eið að kjarnorkuveldin skyldu skuld- binda sig til að hætta kjárna- sprengingum um alia eilífð. Vest- urvéldin hal'a ekki viljað faliasl á slíka skuidbindingu, hsldur aðeins að slíkum liiraimum verði frestað í tiitekinn, tak- markaðan tíma, aðeins eitt ár. Franski mannviimrinn Albert Sclnveitzer liefur sent þýzka lækninum dr. Beck bréf þar seni ham>, þakkar honum fyrir að hafa sýn', fram á samheng- ið n’illi fæðinga vanskapaðra barna og kjarnsprenginga. Dr. Beck sem var yfirlæknir við fæðingarspítala í Bayreuth í Vestur-Þýzkalandi hefur komizt að -þeirri riðuístöðu að á síð- asta áratug h.afi þeim börnum sem eru vansköpuð að ein- hverju leyti við fæðingu fjölg- að úr 0.8 í 2,5 af hundraði, og sé ovsökin aukin geislaverkun. Dr. Schweitzer segir í bréfj sínu til hins þýzka lseknjs að hann hafi fylgzt af mikilli at- hygij með rannsóknum hans. Um heim allan hljóti menp að taka eftir niðurstöðum þeirra. Schweitzer segist vera sann- færður um að hægt verði aðf' knýja kjarnorkuveldin tii acf hætta þessum sprengingum sem stofni framtíð mannkynsins i hættu. Við megum atdrei víkja frá því að tilraunirnar . með kjarnavopn eru í hrópandi mói- sögn við rétt okkar til lifsins, -.segir dr. Schweitzer i bréfinu* Gerið strax skil fyrir seWa miða í Happdrætti Þjóðviljans • i Afgreiðsla happdrættisins er á Skólavörðustíg 19 — Sími 17500

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.