Þjóðviljinn - 29.11.1958, Page 1
Laugardagur 29. nóvember 19o8
árgangur — 273. tbl.
MUNIÐ
afmælisfagnað Sósíalista-
flokksins að Ilótel Borg'
nk. miðvikudag 3. des.
Þing Alþýðusambands íslands samþykkir tillögu forystumanna verkalýðsflokkanna:
iljayfirlýsing um stöðvun verðbólgunnar
Hermann Jónasson bað þing A.S.Í. um samþykki við frestun á greiðslu
fullrar vísitölu í desembermánuði - Svar þingsins var viljayfirlysingin
Forsætisráðherra Hermann Jónasson, sendi Alþýðu-
sambandinu bréf í gær með tilmælum um að þingið
féllist á að verðlagsuppbætur á laun í desember yrðu
greiddar samkvæmt 185 stiga vísitölu, og frestað greiðslu
fullrar vísitölu.
Bréfi þessu fylgdi forsætisráðherra eftir með ávarpi
er hann flutti þingheimi.
Forustumenn Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins
á þinginu svöruðu tilmælum forsætisráðherra með sam-
eiginlegri viljayfirlýsingu um að stöðva vísitöluna 1 185
stigum, en töldu jafnframt óhjákvæmilegt að greiða
vísitölu á laun í desembermánuði samkvæmt gildandi
samningum.
Viljayfirlýsing. þessi kom í
tillögu fyrrnefndra manna til
þingsins og er hún þannig:
„I tilefni af bréfi hæstvirts
forsætisráðherra, vill 26. þing
Alþýðusambandsins lýsa yfir
þeun vilja sínum, að ráðstaf-
anir þær í efnahagsmálum,
sem fyrir dyrum stendur að
gera, verði á þann veg, að
dýrtíðín verði stöðvuð miðað
ræðir liafi ekki áhrif á verð-
lag vöru og þjónustu í des-
embermánuði.
Um leiðir til lausnar málinu
tekur þingið á þessu stigi
enga afstöðu, en vísar til
væntanlegra tillagna sinna í
efnaliagsmálum“.
Fiutningsmenn tillögunnar eru:
Eðvarð Sigurðsson, Björgvin Sig-
hvatsson, Tryggvi Helgason,
Torfi Vilhjálmsson, Snorri Jóns-
son, Óskar Hallgrímsson, Jón
Sigurðsson, Sig. Stefánsson,
Ragnar Guðleifsson, Björn Jóns-
son, Eggert G. Þorsteinsson,
Gunnar Jóhannsson.
Forsætisráðherra kom á þing-
ið síðdegis og með honum Jónas
Haralz hagfræðingur, er unnið
hefur fyrir ríkisstjórnina að
hagfræðilegum útreikningum
varðandi efnahagsmálin. Jónas
flutti erindi um efnahagsvanda-
málin.
Kvað hann velmegun þjóðar-
innar nú vera miklu meiri,. ailt
að helmingi meiri en fyrir stríð.
Hinsvegar væru kröfur um fram-
kvæmdir of miklar, menn vildu
byggja fleiri skóla, fá meiri raf-
væðingu o.s.frv. en þjóðin' hefði
efni á að framkvæma samtímis.
Framkvæmdir þjóðarinnar tak-
markast af því sem hún fram-
leiðir og því fjármagni sem hún
fær erlendis frá. Við höfum í
mörg ár eytt meira en við höf-
um aflað, jafnframt fengið mik-
ið fé erlendis frá. Umframeyðsl-
an, fram yfir þjóðartekjur, hef-
ur verið um 5% af framleiðslu
þjóðarinnar á ári. Við skulduð-
um um 100 millj. kr. við síðustu
áramót.
Þá ræddi hann hinar sífelldu
víxlhækkanir verðlags og kaup-
gjalds, sem hefur verið 10% á
ári 1946—1957, og væri þetta
helmingi meira en á hinum Norð-
urlöndunum, en miklu minna en
í ýmsum löndum Asíu.
Hann kvað þjóðartekjurnar
ekki aukast í hiutfalli við hækk-
un vísitölunnar. Búast mætti við
að með öllu óbreyttu yrði fram-
færsluvísitalan komin upp í 270
stig 1. nóv. næsta ár og kaup-
gjaldsvísitalan í 253 stig, — þó
Framhald á 2. síðu.
Frá Alþýðusambþndsþingi: Tveir af þingfulltrúum, Jón Kafns-
son o.g Jón Sigurðsson, ræðast við. — (Ljóm. Þjóðviljinn.)
293 með - 39 móti
Samslarf - ekki réttindaafsal
Umræður um tillögu forystumanna verka-
lýðsflokkanna stóðu fram yfir kl. 3 sl. nótt.
Tiliagan var samþykkt að viðhöfðu nafnakalli
með 293 atkvæðum gegn 39. Fjarstaddir
voru 10, 5 greiddu ekki atkvæði.
Atkvæðagreiðsla þessi er því eindregin
viljayfirlýsing þingsins um samstarf við nú-
verandi ríkisstjórn og jafnframt að þingið
vilji ekki afsala neinum rétti verkalýðsins.
Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra kemur til Afþýðu-
sambandsþings
við kaupgjaldsvísitöluno. 185
stig, en telur liins vegar ó-
hjákvæmilegt, að þar til sam-
komulag hefur tekizt um
lausn málsins, fari um kaup-
greiðslur samkvæmt gildandi
lögum og samningum stéttar-
félaga.
Jafnframt telur þingið æski.
legt að gerðar verði ráðstaf-
anir ef þiirfa þykir til þess
að þau 17 stig, sem liér um
FuSífryar á þingi SP furða sig á því
að IsKendingar skuli ekks kæra Breta
Enn fleiri riki lýsa yfir sfuSningi viS íslendinga, margir
fulltrúar felja mótmœli Islands furSu vœgileg
Frá fréttaritara Þjóðviljans í a&al-
stöðvum SÞ í New York, 28. nóv.
Enn fleiri fulltrúar í laganefnd allsherjarþings Sam-
einuSu þjóö'anna hafa lýst yfir fullum stuöningi viö ís-
lendinga og fordæmt ofbeldisaögeröir Breta; margir full-
trúar hafa í einkaviötölum látiö í ljós undrun yfir því
livers vegna íslendingar kæra ekki Breta fyrir Samein-
uöu þjóöunum.
Fulltrúi Hvíta-Rússlands, Ab-
úskevitsj, ræddi í dag um inn-
rás Breta í íslenzka landhelgi
og kallaði hana opinskátt hern-
aðarofbeldi og brot á alþjóða-
lögum.
SÞ skyldar til að stöðva
ofbeldið
Hann sagði að ástandið væri
algerlega óþolandi og Bietar
yrðu án tafar að binda endi á
hernaðaraðgerðir sínar. Hætti
þeir þeim ekki af sjálfsdáðum
hefðu Sameinuðu þjóðirnar vald
til að stöðva innrás þeirra og
væru raunar skyidar til þess
samkvæmt stofnskrá sinni.
Bretar notuðu árás sína á ís-
land til að torvelda lausn land-
helgismálsins, og koma á ring-
ulreið sem þeir síðan nota sem
tylliástæðu fyrir því að haldin
verði önnur alþjóðaráðstefna.
Bretar eiga sökina
Á slíkri ráðstefnu væri það
ætiun þeirra að neyða afstöðu
sína upp á aðra. Abúskevitjs
sýndi fram á að Bretar bæru
einir ábyrgð á því í hverjar ó-
göngur landhelgismálin væru
komin, og hægt myndi að leysa
þau án verulegra vandkvæða, ef
Bretar hættu hernaðaraðgerð-
um sinum.
Arabar styðija íslendinga
Fulltrúi Sambandsiýðveldis
Araba, Abdullah el Erian, kvað
stjórn sína hafa fullan skilning
á aðgerðum Islendinga og vott-
aði þeim samúð hennar.
Fulltrúi Úkraínu, Rússin,
-lýsti áhyggjum sínum yfir á-
standinu við strendur íslands og
studdi mótmæli íslenzku ríkis-
stjórnarinnar. Hann sagði að
ekki væri hægt að halda áfram
arðráni undir yfirskyni sögulegs
réttar.
Mótmælin þykja vægjleg
Sem áður segir hafa margir
fulltrúar í einkaviðtölum látið í
ljós undrun yfir Því hvers vegna
ísiendingar kæra ekki ofbeldis-
árás Breta fyrir Sameinuðu þjóð-
unum og telja þeir mótmæli is-
lenzkra stjórnarvalda furðu
vægiieg.
Ræða Hans G. Andersens
Hans G. Andersen flutti ræðu
á síðdegisfundi í landheigis-
nefndinni. Lýsti hann stuðningi
Framhald á 9. siðu.