Þjóðviljinn - 29.11.1958, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 29.11.1958, Blaðsíða 9
41 «-> ÓSKASTUNDIN Á Eeikvellinmn eftir Böövar Guðlaugsson Oft ég geng jað gamni minu glaður inn á þennan \öll, heiisa upp á káta krakka: Komið ]>ið sæl og blessuð öll. Hér er leikið, hér er unnið, hérna rílsir líf og fjör; ótal raddir glaðar gjalla, gleðibros á hverri vör. 'r' En sá en þau læti, en þeir sprettir til og frá. Hvílíkt fjör og heilbrigð kæti. hvíljk blésSuð sffirfaþrá. YngstÚ' börnin byggja úr sandi bíla, hús og langan veg. Þarhá 'ét: böllin "hennar 'Stínu, liún er alveg dásamleg. Bifreiðin hans Begga litla brunar þárna á geysiferð. Hún er stór og hraðskreið „rúta“, heldur bétur umtalsverð. nvh- ■■ Úti í liorni dundar Dóri, drengnum þeim er býsna heitt; þessi litli naggur nuggar nefið stutta löðursveitt. f3xo eru liérna hreyknir strákar, sem halda víst þeir geti allt; þeim finnst heilijaráð að reyna að róla sér og vega salt. Þeir látast vera voða „kaldir“, en vont er að gorta ofmikið. Og þeir steypast, strákagreyin, stundum beint á höfuðið. Tve.ggja ára kátur kútur kemur hér með spaðann sinn, , hjalar dátt og hlær af gleði heldur svoná kotroskinn. Út á völlinn völt í sporí vappar glóliærð lipurtá, hættan ögrar ungu þori, augun ljóma af viltri þrá. Ijaugardagurinn 29. nóvember 1958 — 4. árgangur — 39. tbl. Ritstjóri Vilborq Dagbjartsdóttir — Útgefandi ÞjóSviIjinn Ös’ áufíhó'k Eg var vakin eld- snemma í morgun, veðrið ' var milt og gott en hálf- gerð súld. Nú átti að halda á grasafjall. Fólkið frá Skógum var þegar komið. Það voru þau Sig- rún, Bensi og Guðmar, eins og ráðgert hafði ver- ið. En. ekkert sást til Óla gamla enn. „Nú hefur karlinn sofið yfir sig“, drundi í Bensa úti á hlað- inu. Hann getur komið enn, við erum ekki al- deilis tilbúin," heyrði ég að Siggi sagði. Nú kom pabbi inn dl mín. „Ertu ekki að verða tilbúin, góða, hift fólkið er komið nema Öli.“ ,,Jú pabbi, ég er að koma. Ætlið þið að bíða eftir Óla?“ „Eg veit ekki hvað hin verða þolinmóð, en drífðu þig nú.“ Þetta sagði pabbi og svo var hann þotinn. Ekki sást enn til Óla, þegar ég kom út á hlaðið. Nú var fólkið farið að ó- kyrrast, allir voru nú tilbúnir. Tjaldið og nest- ið og prímusinn var allt komið upp á Grána, sem stóð og lygndi aftur aug- unumi. Hainn var víst syfjaður 'blessaður. Eg átti að sitja á Silfra, hann var þægur og stillt- ur, þó ekki mjög latur. „Við skiljum karlinn, eftir, ef hann kemur ekki fljótlega," sagði Guðmar eftir langa þögn, þegar við öll höfðum nærri því mænt úr okkur augun suður eftir melunum. Við biðum samt lengur, þangað til pabbi kvað upp úr með það að hald- ið yrði af stað án Óla, en þá var þolinmæði okkar hinna iöngu þrotin. Það var farið hægt af stað og oft litið aftur en ekkert sást til Óla. Við smágreikkuðum spor- ið. Það var ekki áð fyrr en upp hjá á, sem er um kílómetersreið heiman að. Ekki höfðum við staðið lengi við þegar sást til manns korna ríðandi sunnan holtin og fór geyst. Við sáum fljótt að þetta var Óli á Mósa. Hann barði ákaft fóta- stokkinn og lét öllum illum 4átum til að keyra hestinn sporurn. Við tók- um brosandi á móti Óla og hann var líka bros- andi, en þó hálf vand- rséðalegur. Hann var húfulaus og jakkinn hans sem var nýlegur hafði rifnað, en var rimpaður saman með grófu ullar- bandi. Hann var allur. í slettum frá hvirfli til ilja. Og Óli tók að skýr.a frá óförum sínum. Hann hafði keypt sér nýja húfu og nýjan jakka til að tjalda í þessari ferð. Nú, hann hafði vaknað tím- anlega og klætt sig í snatri. Göngin voru dimm og hann hafði ekki varað sig á nagla ófétinu, sem stóð út úr einum hurðar- karminum og vmsí út i göngin.r.í flýtinúm íeddi hann beint á nagla ólán- ið og jakkinn rifnaði. Nú, svo varð hann að smeygja sér úr og fara inn til kerlu sinnar. Hún var nú kannski ekki vakin á stundinni, en hann hafði það með þolinmæðinni og þrautseigjunni. Og þar sem hún var hálfsof- andi að gera þetta fann hún ekkert nema ullar- Framhald á 2. síðu. ---------——------------------------------------------------------------—----------------Laugardagur 29. nóvember 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Kæst síðasta helgi Reykf avíkurmótsins Selfoss kom til landsins í gær Þetta er næstsíðasta helgin eem Reykjavíkurmótið stendur yfir og fara fram 7 leikir hvort kvöld, laugandag og sunnudag. I meistaraflokki kvenna fer fram leikur milli Ármanns og Þróttar, og virðist allt benda til að það verði auðveldur leik- ur fyrir Ármann. Leikurinn í öðrum flokki milli Þróttar og KR getur orðið nokkuð jafn og spennandi, sennilega eru tróttarar ekki búnir að gleyma jafnteflinu við Víking og vafa- laust munu þeir ekki draga af 6ér í þetta sinn. í fyrsta flokki verður baráttan hörð milli Fram og Ármanns. Auk þeirra leikja sem nefnd- ir hafa verið fara fram leikir í 2. fl. kvenna Valur — Vík- ingur. í öðrum flokki karla B heppa Ármann — Fram; IR — Víkingur A og Vikingur — KR í fyrsta flokki. Á morgun fara fram þrír leikir í meistaraflokki karla. Er það í fyrsta lagi KR og Þróttur, og er KR þar öruggt með sigur. Fram -—• Ármann gæti orðið jafnari. Þó eru meiri líkur til þess að Fram fái bæði stigin í þeim leik. Takist Ár- manni hinsvegar upp geta þeir orðið Fram erfiðir. Leikur Vals og Víkings get- ur líka orðið nokkuð jafn, en eftir frammistöðu Vals við Fram um daginn ætti Valur að vera nær því að sigra. Aðrir leikir á morgun verða: Annar flokkur kvenna: A.: KR —• Ámann, Þróttur — Fram. Þriðji fl. karla A. B.: IR—Vík- ingur og Ármann — Þróttur A.A. Formaður Þróttar Framhald af 6. siðu. sjálfsögðu vinnubrögð að stjórnarmeðlimir allir séu hafðir með í ráðum þegar samningar félaganna eru til meðferðar. Það er áð vísu ekki neitt nýtt fyrir félagsmenn Þrótt- ar þótt miður sæmileg vinnu- brögð séu viðhöfð af þeim mönnum sem stjórna þessu félagi og hafa gert undanfar- in ár, og þá sérstaklegá for- manni þess, en að hann væri farinn svo mjög að óttast sina eigin menn, og þá sérstaklega þá sem standa honum næstir, að hann grípi til hreinna of- beldisverka til að þjóna hús- bændum sinum, því hefðu jafnvel hans tryggustu fylgis- menn veigrað sér við að trúa. Félagsmaður Þrótti. Framhald af 12. síðu. og er mjög fullkomið. Siglinga- tæki öll eru af fullkomnustu gerð og af öryggistækjum má nefna tæki, sem gefur til kynna hvort nokkursstaðar hafi kviknað í lestum, og fullkomið slökkvikerfi sem leitt er um allar lestar og vélarrúm með tilheyrandi viðvörunarkerfi, kallara, talsíma o.fl. Tveir björgunarbátar eru á skipinu og getur hver um sig rúmað 39 manns. Skipið mun kosta rúmlega 14 milljónir danskar krónur með öllum útbúnaði og verður það í islenzkum krónum um 33.5 milljónir og að viðbættu 55% yfirfæslugjaldi, verður heildar- verð skipsins um 52 milljónir króna. Allt andvirði skipsins varð Eimskipafélagið að taka að láni. Af því lánaði The First National City Bank of New York félaginu rúmlega helming andvirðisins, 1 millj. dollara, með miög hagstæðum vaxtakjörum, 4%% á ári, en helminginn af byggingarverð- inu lánaði skipasmíðast”ðin og vextir af því láni 1% hærri en þjóðbankavextir í Dan- mörku, en minnst 6% á ári og eru þeir það nú. Bæði lánin eiga að greiðast á næstu fimm árum. Landsbanki íslands greiddi mjög fyrir því, að þessi lán fengjust, með því að taka að sér ábyrgð á yfirfærslu af- borgana og vaxta af báðum lánunum. Skipstjóri á m.s. Selfossi er Jónas Böðvarsson, fyrsti stýri- maður Magnús Þorsteinson, fyrsti vélstjóri Jón Aðalsteinn 1 Sveinsson, loftskeytamaður Haukur Hólm Kristjánsson og bryti Jón Bjarnason. Eftirlit með smíði skipsins af hendi Eimskipafélagsins undanfarna 6—7 mánuði hafa haft þeir Jón Eiríksson skip- stjóri og Jón Aðalsteinn Sveins- son með smíði vélariimar. Enn- fremur hefur Viggó E. Maack skipaverkfræðingur félagsins haft eftirlit með skipssmíðinni. ____________1________________ Hækkun Eífsyris Framhald af 12. siðu. gjaldaaukning Tryggingastofnun- ar ríkisins miðað við fjárlaga- vísitöluna 185 stig verða samtals 11.0 millj. króna, þar af koma 33% í hlut ríkissjóðs, eða ca. 3,6 millj. króna. Hækkun á bótum samkvæmt 37. og 38. gr. hefur ekki áhrif á útgjöld ríkissjóðs, þar eð hér er um að ræða slysabætur, sem atvinnurekendur greiða að fullu með iðgjöldum sínum. Að sjálf- sögðu kemur það einnig á ríkis- sjóð að því leyti, sem ríkið er atvinnurekandi. Bótagreiðslur þær, sem hér eru undanskildar, eru: Fjöl- skyldubætur, fæðingarstyrkur, þriggja- og níu 'mánaða bætur til ekkna, slysadagpeningar sam- kvæmt 36. gr., viðbóiardánar- bætur samkvæmt ;39. gr., sjúkra- dagpeningar . samkvæmt 53. gr., svo og hámark þriggja* mánaða fæðingastyrks samkvæmt 84. gt laganna. lv AHg um kjörfund í Keflavík. y siii Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnarinnar hinn 21. okt. 1958 fer fram atkvæðagreiðsla um hvort heimila skuli að opna útsölu frá Áfengisverzlun ríkisins hér í Keflavík. Kjörfundur er ákveðinn sunnudaginn 30. nóv. n. k. og hefst hann kl. 10 árdegis í barnaskólanum í Keflavík. Keflavík í nóv. 1958. Kjörstjórn: Þorgrímur St. Eyjólfsson, Ásgrimur Einarsson og Þórarinn Ólafsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.