Þjóðviljinn - 29.11.1958, Page 10

Þjóðviljinn - 29.11.1958, Page 10
2) ÓSKASTUNDiN Úr dagbók Grasa-Guddu Framhald af 1. síðu. bandið. Jæja, þetta var svo sem ágætt, en svo þurfti þá að sækja Mósa, en Mósi var fyrir sunnan læk. Þegar Óli kom að læknum kom til hvoru tveggja, árans gigt í lær- ið og smásteinn og hann hnaut og húfan fór í læk- inn, og hann náði ekki húfunni hvernig sem hann reyndi. Svo var Mósi óvenju látur í dag, en hann gat samt með engu móti setið á sér að stríða Óla gamla ofurlítið og láta hann ekki ná sér alveg strax. Loks þegar Óli komst af stað var klukkan langt fram yfir þann tíma, er við vorum búin að á- kveða að hittast. Leirslett- urnar stöfuðu af því hve blaut mýrin var, en yfir hana þurfti hann að fara til að ná okkur sem fyrst, Við vorum nú öll létt í skapi. Óli var í farar- broddi þegar lagt var <’ f stað aftur og sá var nú reglulega í essinu sínu. Hann ýmist söng hástöf- urri danslög frá því um 1800 eða sagði hrikalegar hetjusögur af sjálfum sér þegar hann var ungur og glæsilegur. Auðvitað höfðum við heyrt sögurn- ar oft og mörgum s-inn- um, en hann bætti nú ailtaf ofuriitlu við þær. Við sungum með Óla og það var reglulega gaman hann söng alltaf hæst. Þegar komið var á á- fangastað vorum við öll svöng og þreytt. Tjöldum var slegið upp og matur etinn. Við hvíldum okkur ögn áður en við byrjuð- um að tína, en svo var ekki til setunnar boðið. Ailt gekk vel fram að kvöldmat, þá áttum við öll að koma saman við tjöldin og borða. Við át't- uðum okkur fljótt á að einhvern vantaði í hóp- inn. Það var Óli. Það var komin dimm þoka og iít- ið hægt að sjá frá sér. En ekki var um gott að gera, karlinn varð að finna. Við vorum búin að leita í fullan klukkutíma, þégar blístur heyrðist frá Bénsa. Hann hlaut að vera búinn að finna Óla. Það var hann líka en ekki alveg brösulaust. Óli hafði sofnað milii tveggja stórra steina Hann var svo fast skorð- aður að ógerlegt var að ná honum nema velta öðrum steininum frá. Annar steinninn var minni, hann var á lækj- arbarminum og þann valdi Bensi til að velta frá. Eftir mikið strit tókst honum að hreyfa steininn en þá vaknaði Óli og vildi ólmur velta steinófétinu alveg í læk- inn svo hann yrði ekki fleirum að meini. Þeir gerðu þetta en ekki slysalaust. Óli fór sjálf- ur í lækinn á eftir beint á haustinn. Hann var nú svo aumur og renn- andi blautur að ómögu- legt var fyrir hann að vera lengur svo til reika inn á reginfjölium. Bensi var því sendur heim með karlinn og ég fékk að fara með líka, mér til lít- illar ánægju. Heimferðin gekk slysa- laust, auk lítillar veltu af hestbaki hjá Óla, sem honum varð ekki meint af. Lýkur svo þessum skemmtilega dqgi, Kæra Óskastund! Eg sá að þið skrifuouð um samkeppni, sem htjóð- ar upp á bezta dagb’ðkar- kaflann svo ég fór að hugsð mig um og loks á- kvað ég að senda þenn- an kafla. Eg er búin að halda dagbók í þrjú ár og mér finnst það reglu- lega gaman ...... Grasa-Gudda. af húsinu henmr Soffíu, sem sagt var frá í síð- asta blaði, en ekki var hægt að birta þá. Um leið og hann kom niður í vélina — heyrði hann einhvern stökkva um borð, — hvar átti hann að fela sig — í ein- hverju ráðleysi opnaði hann áhaldabekkinn stjórnborðsmegin og hringaði sig niður á miili lykla og koppafeitisdósa sem lágu þar — og lagði svo lokið yfir. Um leið heyrði hann einhvern um. Honum lá við að æpa. — Skyldi faðir hans aldrei ætla að standa upp — hann varð þó að standa upp til þess að setja vélina í gang. Allt í einu heyrði hann hvæs- ið í mótorlampanum <.,g um leið lyftist lokið upp. Föður hans vantaði lykil í bekknum og þegar hann lyfti lokinu biasti við honum í rauðfölu skini Pétur Sumarliðason; Stolizt í róður Þriðji dagur. koma inn í rórhúsið og niður í vél — Faðir hans var kominn um borð. Það fór skelfilega um drenginn. Hann lá í hnipri og áhöldin meiddu hann, loks varð vanliðan- in svo m(ikil að hann gat ekki annað en hreyft sig, en þó fann hann um leið að til þess yrði hann að lyfta lokinu. — því það þrykkti honum s,aman. Hann reyndi að réttas rúi sér — skeytingarlaus um afleiðingarnar en nei — það- var ekki hægt, lokið , var .fast — þabbf hánS hafði sezt á bekkinn. Drengurinn þorði ekki að( ýká ' fast á lokiðr og ,þó hann kenndi svo til í öll- um líkamanum, honum fannst allsstaðar ein- hverjir oddar og brúriir þrýstast gegnum holdið og inn í bein. Og allt i einu varð hann hræddur við myrkrið — og föður sinn og áhöldin í bekkn- lampans, höfuð og herð- ar drengsins. Föður hans brá, hvaða náungi er þetta — hvað ert þú að gera hér? Drengurinn þorði ekki að líta upp. Faðir hans setti lampann í grindina sneri sér svo aftur að bekknum. Heyrðu vinurinr, — hver á þig — líttu upp. Dreng- urinn sat enn í sömu kryppunni eins og iokið l®gi enn á herðum hans. Svo kom allt- ,í eínu hlý hönd undir þbku hans og lyfti höfði hans upp. — Nú kæmi það — nú ferigi hann löðrung. Þégar . faðir hans þékkti áhdjjt drengsins, sém. pó var í sjálfu sér óþekkjan- legt, þá var eins og ,and- lit hans yrði svo skrítið svona hafði drengur- inn aldrei séð andlit föð- ur síns. — Brúnaskúfarn- ir iyftust og augun urðu svo stór og björt og allt andlitið svo hlýtt ’og - ÓSKASTUNDIN — [(3 “ ‘SÍkrílið. Langar þig á sjóinn drengur minn? sagði faðir hans — ág veit nú ekki hvað for- maðurinn segir um það að hafa svona patta um boð. — Á ég að biðja hann að lofa þér með? Já, pabbi — sagði dreng- urinn — svo lágt að varla heyrðist. Hann var ringl- aður, vissi ekki. hvort hann væri vakandi eða kannski var þetta bara draumur. — Nei, ekki draumur. Því nú lyfti faðir hans horium upp úr bekknum —- lokaði og setti drenginn svo við hlið sína á bekkinn. Jæja — vinurinn, þú færð sjálfsagt að fara með núna — en þetta máttu samt aldrei gera aftur. Þú lofar því — ekki satt? Kæra Óskastund. Mig Iangar til ad kom- ast í bréfasambaiul við stelpu á altlriiium 10— 12 ára. Ilelga Þórarinsdóttir, Mararbraut 11, Húsavík, S-Þing. útpy ;jd Kæra Óskastund. Mig Iangar til að kom- ast í bréfasamband við strák eða stelþu á aldr- inuni 10—12 ára. Ólöf Friðfinnsdóttir, Mararbraut 3,. Ilúsavík, S-Þing. SKRÍTLA Gestur: Er þetta te eða kaffi, það er á bragðið eins og steinolía? Þjónn: Þá ‘er það te. Kaffið er eins og terpen- tína. 10) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 29. nóvember 1958 I leit að höfundum Framhald af 7. síðu ur sönnuð nema með samsafni líka, sem allar stefna á einn veg. Og þannig koma persón- ur Njálu hver af annarri: Höskuldur Hvítanesgoði er Cddur Þórarinsson. Vitringur- inn og friðboðandinn Njáll er Hálfdan að Keldum, kvenvarg- urinn kona hans er Steinvör Sighvatsdóttir, er ljá vildi bónda sínum búrlyklana, svo að hún sjálf mætti taka vopn í hönd til þeirra stórræða, er hann vildi eigi drýgja. Mörður Valgarðsson er Þorvarður í Saurbæ í Eyjafirði, sá er laun- málin átti við Þorvarð Þórar- insson, áður en hann drap Þorgils skarða. Sjálfur er Þor- varður í klæðum Flosa, sem er hrakinn út í ófrið áf brennhcitum frýjunarorðum skjólstæðings, sem er hann- þrungin, skapheit kona. Höfundurinn fer frjálslega með fyrirmyndir sínar. Barði færir fjölmörg dæmi-um hlið- stæður Þorgiis sögu skarða 'og Njálu, og koma aðalsöguper- sónur Þorgils sögu fram í Njálu í fleiri en einni mynd. Oddur Þórarinsson er ekki að- eins Höskuldur Hvítanesgoði, sem Þorvarður verður að hefna gegn vilja sínum sem Flosi í Svínafelli. Hann er einnig Gunnar á Hlíðarenda, hinn vígfimi kappi, sem varð- ist einn aðsókn margra á víð- um velli af frábærum frækn- leik, þar til hann féll af mæði. Og hrafnarnir, eem í Þorgils sögu skarða flugu sem sigur- boðar með þeim Hrafni og Eyjólfi, er þeir fóru að Oddi, koma aftur í Njálu í sambandi við víg Gunnars á Hlíðarenda. En þá fljúga þeir ekki með banamönnum Gunnars, heldur með þeifn Högna'syni hans og Skarphéðni, er þeir fóru til hefmia eftir hann. Og í gervi Höskulds Hvítanesgoða kemur einnig Þorgils ekarði, þegar hann er drepinn af frænda sínum og samherja Þorvarði Þórarinssyni fyrir áeggjan rógberans Þorvarðar í Saur- bæ og í tilefni af átökum um mannaforræði. Barði telur, að frásögn Þorgils sögu, þar sem Þorgils er gerður að hálfgerð- um dýrlingi, hafi verið Þor- varði megindriffjöðrin til að skrifa Njálu sem varnarrit fyrir aðgerðum eínum, er hann tók Þorgils af lífi, og rógur Þorvarðs, sem Mörður er látinn flytja, dreginn fram sem skýring og afsökun. Það er ekki einu. sinni og ekki fyrst og fremst svo, að hliðstæðir atburðir Njálu og Þorgils sögu skarða eða ís- lendinga sögu séu sannfær- andi um það, að sagt sé frá sömu atburðum, heldur eru það miklu fremur hliðstæðar setningar, hliðstæð tilsvör og ótal mörg 'smáatriði, sem benda enn skýrar á náin tengsl. Barði telur Flugumýr- arbrennu fyrirmynd Njáls- brennu. Hliðstæðurnar koma hver af annarri. „Nú taka öll húsin að loga“, segir bæði í Njálu og Þorgils sögu. I báð- um sögum er brennunni stefnt gegn föður og þrem sonum. I báðum brenna tveir synir inni, en hinn þriðji höggvinn fyrir dyrum, er hann vildi komast undan. Bergþóra vill ekki þiggja grið og yfirgefa mann sinn. Unga brúðurin á Flugu- mýri, Ingibjörg Sturludóttir, vill kjósa mann með sér, þeg- ar henni eru boðinn grið, og vill ekki ganga úr eldinum þegar þess er synjað, en einn brennumannanna, Kolbeinn grön frændi hennar, veður inn í eldinn og ber hana út. Ingj- aldur á Keldum lét segja Njáli að hann skyldi vera var um sig. Hrafn Oddsson mælti „varúðarmálum til Gissurar, bað hann gæta sín vel“. Hér skal staðar numið að telja upp hliðstæður þær, sem Barði bendir á í Njálu við samtíðarsögu Þorvarðar og þó einkum Þorgils sögu skarða. Þeirra verður ekki notið nema með nákvæmum lestri rök- semda Barða. Röksemdir hans eru vissulega misjafnar að gæðum, og sumar virðast manni veigalitlar, en allar stefna þær til einnar áttar, og fjöldi óljósra bendinga veitir nokkurn þunga, þegar allar leggjast á eitt. En sterk- ust þykja mér þau rök Barða, sem koma fram í áður óprent- aðri ritgerð, sem heitir: „Mál- far Þorvarðar Þórarinssonar". Ef maður ætlaði Snorra Sturlusyni eða Sturlu Þórðar- syni að hafa skrifað Njálu, þá ættu að vera miklir mögu- leikar á því að sanna það eða afsanna, þar sem til saman- burðar eru rit, sem talið er öruggt að þeir hafi skrifað. Öðru máli gegnir með Þor- varð Þórarinsson. Eftir hann liggur ekkert skrifað, svo vit- að sé, nema bréfstúfar í emb- ættisnafni, sem höfundur Árna sögu biskups hefur tek- ið upp í sögu sína. En Barði bendir á, hve málfar þessara bréfstúfa stingur í stúf við umhverfið, og fullyrðir, að „þess mun nú enginn kostur að benda á nokkurt atriði í framanskráðu bréfi, sem ekki samrýmist Njálustílnum“. í einum einustu sjö lesmáls- greinum bréfstúfanna bendir Barði á sjö atriði, sem hafa greinileg tengsl við Njálustíl, og hið áttunda er talsháttur, sem ekki er annars staðar að finna, en er svo sérkennilegur og sterkur, að hann ber ljóst vitni sérkennilegu og mynd- ríku málfæri. Og Barði leit- ar víðar fanga um málfar Þorvarðar, en í bréfstúfum þessum einum saman. Hann fer í tvær ræður Þor- varðar, sem Þorgils saga flytur. Annarri þeirrá hlýddi höfundur sjálfur, en hinni ekki. Barði bendir á, að Þórð- ur Hvítnesingur, sem talinn er höfundur Þorgils sögu, muni hafa verið snillingur í að ná málfari og málblæ manna, og bendir á ræður Hrafns Oddssonar í því sam- bandi. Ræður þeirra Þorvarð- ar og Hrafns hafa hvorar um sig sterkan persónusvip, sem stingur í stúf við stíl og mál- blæ eögunnar að öðru leyti. Er það álit Barða, að' Þórði Hítnesingi hafi verið vel til þess treystandi að ná per- sónulegum málblæ Þorvarðar á ræðu, sem hann hafði fréttir af, þótt ekki hefði hann hlýtt sjálfur. Og í þessum ræðum Þorvarðar koma orð, sem ekki eru annars staðar í sögunni og fágæt í þátíðarmáli. Eitt hinna sjaldgæfu orða annarr- ar ræðunnar kemur fyrir í bréfstúf Þorvarðar, sem áður er getið, önnur er að finna í Njálu. Og það er ekki of sagt, þótt sagt sé, að skýrari skyldleiki í stíl og málfari hefur enn ekki verið sýndur með Heimskringlu Snorra og Egils sögu en Barði sýnir í þessari ritgerð sinni með Njálu annars vegar og bréf- um og ræðum Þorvarðar Þór- arinssonar hins vegar. Þetta er um röksemdir Barða fvrir því, að Þorvarð- ur Þórarinsson sé höfundur Njálu. En fjarri fer, að þá sé tæmt efni bókarinnar. Stærsta ritgerðin er „Ljósvetninga- saga og Saurbæingar". Mitt í viðfangsefninu um höfund Njálu bregður Barði sér í leit að höfundum annarra íslend- ingasagna með sömu rann- sóknaraðferð. Hann leitar að atburðum og örlögum sagn- anna í atburðum og örlögum samtiðar þess, er söguna rit- ar. Og aftur finnur hann sama efnið og er í Njálu í annarri sögu, ritaðri frá and- stæðu sjónarmiði. Sú eaga er Ljósvetningasaga. Barði dreg- Framhald á 11. síðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.