Þjóðviljinn - 29.11.1958, Blaðsíða 12
þJÓÐVIUINN
Laugardagur 29. nóvember 1958 — 23. árgangur — 273. tbl.
Vesturveldin og V-Þýzkaland
hafaa
í reynsluförinni gekls ms. Selfoss rúmar 15 sjómílur.
Selfoss, nýjasfa flutni
skip Islendinga, kom í
AnnaS sfœrsfa skipiS, sem smiSaS hefur
veriS fyrir Eimskipafélag íslands h.f.
Laust eftir hádegi í gær kom hi'ð nýja og glæsilega
skip Eimskipafélags íslands, m.s. Selfoss, til Reykja-
víkur. Kom það hingað frá Kaupmannahöfn og Ham-
borg, fullfermt vörum. Skipið er 2340 brúttótonn að stærð
og heildarverð þess um 52 milljónir króna.
Eimskipafélagið samdi um
smíði Selfoss í júlí 1956 við
skipasmíðastöðina Aalborg
Værft í Álaborg, en kjölur
skipsins var lagður í ágúst
1957. Skipið var svo afhent
E. f. 4. nóvember s.l. að lok-
inni reynsluferð, en hraði þess
reyndist þá 15.38 sjómílur.
N.y.jungar í tækjum við
fermingu og affermingu
M.s. Selfoss er smíðaður
eamkvæmt ströngustu kröfum
Lloyds og alþjóðasamþykktar
frá 1948 og styrktur til siglinga
í ís. Skipið er smíðað úr stáli
með tveim þilförum, er ná eftir
því endilöngu. I því eru 4 vöru-
lestir, 3 framan við yfirbygg-
ingu en ein fyrir aftan. Tvær
miðlestirnar eru einangraðar til
flutnings á frystum vörum, en
samtals er rúmmál lestanna
194 þús. rúmfet, og af því eru
frystilestirnar um 100 þús.
rúmfet. Allur útbúnaður til
fermingar og affermingar á
vörum er mjög fullkominn. Auk
venjulegra vinda eru á þilfari
tveir vökvakranar, sem lyft
geta tveggja lesta þunga hvor
og eru alger nýlunda á íslenzk-
um skipum, en ryðja sér nú
mjög til rúms úti um heim.
Aðalvél skipsins er 3500
Vöruskiptahall-
inn 16,8 millj.
minni nú en 1957
I oktobermanuði var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
um tæpar 10 millj. kr. Út voru
þá fluttar vörur fyrir nær 106
millj. en inn fyrir tæpl 116 millj.
í október í fyrra var jöfnuðurinn
óhagstæður um 31,3 millj. kr.
Fyrstu 10 mánuði þessa árs
hefur vöruskiptajöfnuðurinn orð-
ið óhagstæður um samtals 229,4
millj. kr. Er það um 16,8 millj.
kr. minni halli en á sama tíma-
bili í fyrra.
hestafla dísilvél og er gert ráð
fyrir að ganghraði skipsine,
fullhlaðins, verði 15 sjómílur.
Skipshöfnin er 30 manns og
búa allir skipsmenn í eins-
mannsherbergjum, stórum og
vel búnum. Herbergi eru fyrir
tvo farþega og sjúkraherbergi
fyrir tvo. Veggir í íbúðarher-
bergjum eru víðast klæddir
plastþiljum, en öll húsgögn eru
úr lakkbornum harðviði,
mahogni í herbergjum yfir-
manna, en eik í herbergjum
undirmanna. Áklæði er víðast
úr óeldfimu plastefni.
Upphitunar- og loftræstingar-
kerfi skipsins telst til nýjunga
Framhald á 9. síðu.
ígunum um Berlín
Eins qg skýrt var frá í gær, hefur sovétstjórnin sagt
upp samningum um hernám Berlínar og leggur til að’
Vestur-Berlín verði gerð að sérstöku borgríki, en að
öll hernámsveldin fjögur verði á brott með heri sína
úr báðum hlutum Berlínar.
Þessu hefur stjórn Adenauers í Vestur-Þýzkalandi
hafnaö og telur að ekki komi til mála að erlendir herir
hverfi frá Berlín.
Ríkisstjórnir bæði Bretlands Adenauer lýsti yfir því í
og Bandaríkjanna hafa hafnað Bonn í gær, að Berlín yrði að
tillögu sovétstjórnarinnar og halda áfram að vera hernumin
segjast hvergi munu gefa eftir af vesturveldunum, og kvaðst
ítök sín og áhrif . í Berlín. | vona að þau yrðu kyrr. Hann
Talsmaður brezku stjórnar- kvað þó mikilvægt að sovét-
innar kvað ekki útilokað, að stjórnin hefði stungið upp á
stjórn sín myndi geta samið sex mánaða óbreyttum rétti
við sovétstjórnina um Berlín,' hernámsliðanna í Vestúr-Berlín.
sem og Þýzkalandsvandamálið Sá tími væri mikilvægur til
allt þegar tímar líði, en að
svo komnu máli kæmi ekki til
greina að kalla brezka herinn
frá Berlín.
Bræðsla stöðvuð í bili í ofni
sementsverksmiðju ríkisins
Akranesi. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Um hádegi í dag var lokið brennslu í hinum mikla
ofni sementsverksmiðju ríkisins hér. Brennslu er hætt
í bili vegna þess að efnisgeymslan er orðin full af sem-
entsgjalli.
Gjallbirgðirnar eru nú orðnar
um 20.000 lestir.
116 fulltrúar sitja þing
BSRB, sem sett var í gær
7 ©
Maríus Helgason kjörinn forseti þingsins
Nítjánda þing Bandalags stai’fsmanna ríkis og bæja
var sett í Melaskólanum hér í Reykjavík síðdegis í gær.
Voru þá mættir 116 fulltrúar af 118 sem rétt eiga til
setu á þinginu.
Formaður bandalagsins, Sig-
urður Ingimundarson efnafræð-
ingur, setti þingið með ræðu.
Minntist hann í upphafi ræðu
sinnar Þorvaldar Árnasonar frá
Hafnarfirði, en hann var einn
af stofnendum BSRB og átti
sæti í fyrstu stjórn bandalagsins.
Ræddi hann síðan um verkefni
er lægju fyrir þinginu, en það
eru einkum kaupgjalds- og efna-
hagsmál.
Að lokinni ræðu formanns
fluttu fulltrúar nokkurra félaga-
samtaka þinginu kveðjur og árn-
aðaróskir: Sverrir Hermannsson
af hálfu Landssambands verzl-
unarmanna, Egill Hjörvar fyrir
hönd Farmanna. og fiskimanna-
sambands íslands, Adolf Björns-
son fyrir samband bankastarfs-
manna, Sæmundur Friðriksson
fyrir Stéttarsamband bænda og
Sigurjón Pétursson af hálfu Iðn-
nemasambands íslands. Einnig
var lesin upp kveðja frá Alþýðu-
sambandi íslands.
Á fundinum í gær var Starfs-
mannafélag Kefiavíkur tekið í
bandalagið, kjörbréf samþykkt
og starfsmenn þingsins kosnir.
Fyrsti forseti þingsins var kjör-
inn Maríus Helgason, en 2. for-
seti Júlíus Björnsson.
Þetta þýðir þó engan veginn að
framleiðsla sementsverksmiðj-
unnar hafi stöðvazt, þar sem
kvörn verksmiðjunnar mun verða
starfrækt áfram.
Starfræksla verksmiðjunnar
hefur gengið mjög vel og ofn
hennar, sem er gefinn upp fyrir
250 lesta afköst af gjalli á sól-
arhring hefur framleitt 300 lest-
ir á sólarhring að meðaltali,
siðan verksmiðjan tók til starfa.
Rykeyðingartæki verksmiðj-
unnar hafa einnig reynzt mjög
vel og ekki nein ástæða til að
óttast óþægindi af ryki frá
henni.
umhugsunar.
Talsmaður sovézka sendiráðs-
ins í Berlín hefur skýrt frá
-JV-
því að sovétstjórnin hafi til-
búnar tillögur sem skilgreini
nánar tillögurnar frá i fyrra-
dag. Hann áréttaði ennfremur,
að sovétstjórnin væri því
hlynnt að Sameinuðu þjóðirnar
hefðu eftirlit með þessari ný-
skipan mála í Berlín.
Otto Grotewohl, forsætisráð-
herra Austur-Þýzkalands, sagði
í ræðu í Berlín í gær, að til-
lögur sovétstjórnarinnar væru
merkilegt framlag til eflingar
friði í heiminum, þar sem ör-
yggisleysið sem stafar af nú-
verandi ástandi Berlínar, yki
mjög á styrjaldarhættuna.
SÆKIR UM EINKALEYFI
Eins og skýrt var frá í
blaðinu 12. nóv. s.l. hefur
Baldvin Jónsson fundið upp og
smíðað nýtt tæki til dúnhreins-
unar, en hann hafði áður fund-
ið upp og smíðað dúnlireinsun-
arvél sem kunnugt er. Bald-
vin hefur nú sótt til stjórn-
arráðsins um einkaleyfi til
framleiðslu á dúnþurrkunarvél
sinni
Hækkun elli- og örorkulífeyris, barna-
lifeyris og fleiri bóia um 9 V% prósent
Stjórnarfrumvurp íagt fram á Aiþingi
Ríkisstjórnin lagði fram á Alþingi í gær frumvarp
um breytingar á lögunum um almannatryggingar. Sam-
kvæmt því skulu hækka frá 1. september 1958 tiltekn-
ar bótagreiðslur trygginganna um 914%; Ellilífeyrir, ör-
orkulífeyrir og barnalífeyrir og að’rar þær bætur sem
miðaðar eru við elli- og örorkulífeyri, en þær eru: Maka-
bætur, mæöralaun, ekkjulífeyrir, uppbót á elli- og ör-
orkulífeyri allt að 100%, svo og slysabætur, þegar um
er að ræða varanlega örorku eöa dauða.
Eins og' rtú er fær einstakling-
ur í elli- eða örorkulífeyri 721.50
kr. (á 1. verðlagssvæði, miðað
við vísitöluna 185) á mánuöi.
Miðað við sömu vísitölu fær hann
frá 1. september 791.00 kr.
Hjón hafa fengið 1154.00 kr.,
miðað við það sama, en fá nú
með viðbótinni 1266.00 kr.
Þessar athugasemdir fylgja
frumvarpinu:
Með frumvarpi þessu er lagt
til, að helztu bótagreinar al-
mannatrygginganna verði frá 1.
september 1958 hækkaðar um
9 Vz % til samræmis við þá hækk-
un, sem varð á dagkaupi verka-
manna i almennri dagyinnu í
síðastliðnum septembermánuði.
Bótagreinar þær, sem hér er
um að ræða, eru ellilífeyrir, ör-
orkulífeyrir og barnalífeyrir svo
og aðrar þær bætur,'sem miðað-
ar eru við elli- og örorkulífeyri,
en þær eru þessar: Makabætur,
mæðralaun, ekkjulífeyrir, upp-
bót á elli- og örorkulífeyri allt
að 100%, sbr. 23. gr„ svo og
slysabætur, þegar um er að
ræða varanlega örorku eða
dauða, sbr. 37. og 38. gr. —
Útgjaldaáukning sú, sem frum-
varp þetta hefur í fÖr með sér,
ef að lögum verður, á tímabil-
inu 1. september til 31. desember
miðað við 185 stiga vísitölu,
mun verða ca. 40 mi’Ij. króna
en af þeirri fjárhæð koma 33%
í hlut rikissjóðs samkvæmt 24.
gr. laganna, eða ca. 1.3 millj.
króna.
Á árinu 1959 mun þessi út-
Framhald á 9. síðu.