Þjóðviljinn - 20.12.1958, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 20.12.1958, Blaðsíða 13
4) — Óskasíundin SIGRÍÐUR EINARS frá Munaðarnesi: njor Jólasnjór, hvítur eins og marmari glitrandi í silfurhrími í gulu mánaskini eftir frostnótt. Jólasnjór, skœrir kristallar og demantar glóa eins og stjörnur á hvítri mœbreiðu. Litlir móbrúnir fuglar trítla mjófœttir á gimsteinum í fölri dagsbirtu, tína korn úr mold við fjárhúsin * og brauð. sem barnslófar strá á snjóinn. A jólasnjó trítla snjótittlingar tína bygg og korn, sem góður barnshugur gaf. Svo fennir meir og fuglarnir fljúga burt undan veðrinu. Þeir voru sólskríkjur í sumar. IiEIMSPEKINGUR Stunduni er ég alvarlegur og segi lítið, l>á er ég að hugsa um hvað allt er skrítið Sannaðu kraftana Langar þig' ekki iil að láta alla halda að bú sért kraftakarl? Hér er gott ráð til að sanna það. Hrifsaðu epli nreð báðum höndum, kreistu það svolítið, og eplið hrekkur í tvennt! Eng- inn mun leika þetta eft- ir þér Galdurinn er svona; Þú skalt fyrst í laumi rista hring um eplið með nöglinni á þumalfingri, svo að hýðið fer í sundur. Nú tekur þú um sitt hvorn helming og togar í andstæðar áttir. Epl- ið klofnar í sundur! Laugardagur 20. des. 1958 — 4. árg. — 42. tbl. Pitstjóri: Vilborg Dagbjartsdóttir - Utaefandi: ÞjóSviljinn Tíkin i Auðsholti fyrri hluta þessarar aldar bjó á Árbæ í Ölfusi rnaður sem hét Ól- afur Gíslason. Kona hans hét Sigríður Finnboga- dóttir, systir Ólafs Finn- bogasonar, sem þá bjó í Auðsholti í sömu sveit. Á fyrstu árunum eftir 1930 var í Auðsholti tík ein, sem mun hafa verið sérstaklega sk.ynsöm, og ber eftirfarandi frásögn vott um sérstakt hyggju- vit og hugkvæmni af dýri að vera. Þegar tík þessi var far- in nokkuð að eldast, var það eitt árið að einmg var til á heimilinu hálf- vaxinn hvolpur, sem tík- in hafði átt, Var honum ekkert lofað því mein- ing bóndans var að hafa hvolpinn sjálfur en lóga tíkinni áður en langir tímar Hðu. Góður kunn- ingsskapur var á milli fólksins á Árbæ og í Auðsholti, og samgangur töluverður, þó að drjúg langt sé á milli. Einhverju sinni var það í Auðsholti að verið var eitthvað að ræða um hundana og hafði bónd- inn orð á því að nú færi að Hða að því að endur- nýja tikina, hún væri farin að eldast, farin að tapa sjón og heyrn og hvolpurinn bráðlega orð- inn það vaxinn að hann gæti farið að taka við af henni. Nokkuð var rætt um þetta meðal heimilisfólksins og veitti enginn því neina eftir- tekt að hundarnir væru neinsstaðar nálægir. Féll þetta tal svo niður. Seinna um daginn veitti heimilisfólkið því eftirtekt að bæði tíkin og hvolpurinn voru horf- in, og fundust þau hvergi og gegndu ekki þó að kallað væri til þeirra. Var því ekki meira sinnt þá um kvöldið. Morguninn eftir þegar komið var á fætur var tíkin komin heim, en hvolpurinn sást hvergi. Þótti það mjög undarlegt og var nú farið að leita hans hvar sem hugsazt gat. Sú leit bar þó eng- an árangur, hvolpurinn fannst hvergi hvernig sem leitað var að honum. Einkennilegt þótti einnig að tíkin var hin róleg- asta þó að hvolpurinn Framhald á 2. síðu Hver er þetta? Sjá 2. síðu Laugardagur 20. desember 1958 -— ÞJÓÐVILJINN — (13 LEIKFÖNG á efri hœð DEENGIAFÖT BEZTA ÚRVAL I BÆNUM Ú

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.