Þjóðviljinn - 31.12.1958, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 31. desember 1958
þJÓÐVILIINN
ÚtKefandi: Samelnlngarflokkur alhÝBu — Sóslallstaflokkurlnn. - Rltstjórar:
Maenús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.). — Fréttaritstjóri: Jón
BJarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Guðmundur Vigíússon.
Ivar H Jónsson. Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson, Sigurður V.
FriðbJófsson. — AuglýsingastJóri: Guðgeir Magnússon. - Ritstjórn, af-
srelðsla. auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (5
iinur'. — Áskriftarverð kr. 30 á mán. í Reykjavík og nágrenni; kr. 27 ann-
orsstaðar. — Lausasöluverð kr. 2.00. — Prentsmiðja ÞjóðvilJanfl.
r
Ar einingar og alþýðusigra
1 ^llar líkur eru til að árið
1 sem í hönd fer, árið 1959,
verði ár mikilla þjóðfélag-s-
legra átaka á íslandi. Veltur
á miklu um úrslit þeirra
átaka að alþýða landsins geri
sér ljóst, hve öflugur þáttur
þjóðlífsins alþýðusamtökin
eru orðin, að þau samtök
geta með samstilltu átá"ki unn-
ið afdrifaríka sigra og ráðið
mestu um þróun þjóðrriálanna.
Öll l'kindi eru til, að lögfest
verði á þessu ári stjómar-
skrárbreyting er miði að stór-
auknu réttlæti í skipun Alþing-
is, og ætti að gefa alþýðu
landsins au'kna möguleika til
að láta að sér kveða um
stjórnmál þjóðarinnar. Verði
slík breyting á stjórnar-
skránnj samþykkt, er senni-
legt að miklar breytingar
verði á styrkleikahlutföllum
stjórn.málaflokkanna á AÞ
þingi, og verði með því rof-
ið það óeðlilega hreyfingar-
leysi, er verið hefur á inn-
byrðis styrk íslenzkra stiórn-
málaflokka allt frá árinu
1942.
17'inmitt þess vegna er vert
" að st.aldra við árið 1942,
eitt stórkostlegasta umbreyt-
ingaár, ár stórsigra alþýðunn-
ar. Þegar það ár hófst, var
við völd á íslandi ein óþokka-
sælasta afturhaldsstjórn, sem
verið hefur á Islandi frá því
að stjórn varð innlend. Hún
hafði sjálf valið sér heitið
„Þjóðstjórn" og átti svo yfir-
þyrmandi þingfylgi, að hana
studdu hvorki meira né minna
en 46 af 49 þingmönnum
landsins! Stuðningsfokkar
hennar, Sjálfstæðisflokkurinn,
Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn, höfðu sumar-
ið áður frestað Alþingiskosn-
ingum, og framlengdu þing-
menn þessara flokka umboð
sín í algeru trássi við lög
og stjórnarskrá landsins. (Sið-
ar kom fram, er flokkar þess-
ir urðu ósáttir, að þeir höfðu
gert samsæri sín á milli um
að fresta Alþingiskosningum
til stríðsloka). Einungis einn
þingflokkanna, Sósíalista-
flokkurinn, með sína þrjá
þingmenn, barðist gegn þessu
stjómarskrárbroti. 1 ársbvrj-
un 1942 reiddi svo aftur-
haldið hátt til höggs, réðst
gegn verkalýðshreyfingunni
með bráðabirgðalögum er af-
nam verkfallsrétt og samn-
ingsrétt verkalýðsfélaganna
og batt kaupið með lögum.
Gegn þessum þrælalögum
skipulagði Sósíalistaflokkur-
inn og hin nýkjöma verka-
mannastjóm Sigurðar Guð-
nasonar í Dagsbrún
skæmhemaðinn svonefnda, er
braut á bak aftur þrælalögin,
og stórbætti kjör verkalýðs-
ins. Af ótta við óvinsældir
gerðardómslaganna frestaði
rikisstjómin samkvæmt kröfu
Sjálfetæðósflokksins bæjar-
stjórnarkosningum í Reykja-
vik fram til 15. marz. En
þegar í þeim bæjarstjórnar-
kosningum sem fram fóru i
janúar sást að alþýðan ætlaði
að taka til sinna ráða. Sósíal-
ista.flokkurinn stórvann á. Og
í bæjarstjómarkosningunum í
Reykjavík í marz vann Sósíal-
istaflokkurinn einn sinn
stærsta sigur, fékk fjóra bæj-
arfulltrúa kjörna. Tvennar
þingkosningar ársins urðu
óslitin sigurganga Sósíalista-
flokksins, eftir þær síðari átti
hanu tíu manna þingflokk.
Sterk einingarstjóm var
mynduð í Alþýðusambandinu.
Sigrar Sósíalistaflokksins og
verklýðshreyfingarinnar þetta
eftirminnilega ár gerbreytti
stjórnmálaástandinu í land-
inu; myndun nýsköpunar-
stjómarinnar 1944 var viður-
kenning á styrk alþýðu lands-
ins. Sósíalistaflokkurinn gat
knúið fram nýsköpun fiski-
skipaflotans, og með því lagt
grunn að þeim lífskjörum sem
Íslendingar hafa búið við.
Síðar mun það verða enn
skýrar fyrir mönnum en nú,
að á stórsigrum Sósialista-
flokksins og verkalýðshreyf-
ingarinnar 1942 hefur verið
reist. hin árangursríka sókn
alþýðunnar til stórbættra lífs-
kjara.
Áramót
Bidstrup teiknaði
Það er svo harmsaga þessa
16 ára timabils, að aft-
urhaldinu tókst að verulegu
leyti að stöðva sókn alþýðunn-
ar til aukins stjórnmálavalds,
að ekki tókst að sameina
krafta alþýðunnar til átaka.
Það mun verða sagnfræðing-
um undrunarefni hve mikil á-
hrif hin sósíalistíska verka-
lýðshreyfing hefur haft á þró-
un ís'enzkrar sögu þessa ára-
tugi; án þess að hafa til þess
meira stjórnmálavald. En al-
þýða einskis lands getur til
lengdar fagnað og búið við
árangur af stórsigrum verka-
lýðshreyfingarinnar og gengið
iafnframt að kjörborði og lagt
aukin pólítísk völd í hendur
ósvífnasta afturhaldsflokki og
auðvaldsflokki landsins. Vilji
alþýða landsins að lifskjör
hennar haldist og batni, að^
's'tW.
VIKAH
trvggð verði full atvinna, að efnahagslega sjálfstæða, losa
hverjum alþýðumanni sé búið hana við hættu og smán
algert öryggi i elli og þegar bandarísku herstöðvanna og
hann er óvinnufær, að stefnt ieiðin stytt til alþýðuvalda á
sé til efnahagslegs sjálfstæðis Islandi. Reynslan ætti að vera
landsins og herinn rekinn orðin nægileg til að kenna ís-
heim verður sagan frá 1942 lenzkri alþýðu hve það ánd-
að endurtaka sig. Það sást varaleysi er dýrt að efla aft-
hvað gerðist eftir kosninga- urhaldsflokka til stjórnmála-
sigur Alþýðubandalagsins valda. Reynslan af sundrung-
1956. Lúðvík Jósepsson rekur unni í röðum alþýðunnar ætti
hér blaðinu í dag merkasta að vera orðin nógu eár til þess
þátt þeirrar sóknar eem sá ^ð alþýðufólk þjappi áér ' nú
kosningasigur gerði möguleg- fcþámah tllj samstilltrá átaka.-
an. Með tilsvarandi sigrum ‘Verði það, getur alþýða lands-
hinnar róttæku . verkalýðs- ins 'ffhbféýtt stj‘Ófrimálaá-
hreyfingar í tvennum kosning- standinu í lándinu á komandi
um komandi árs ög. unnust ári, lagt nýjan og traustan
1942, væri stefnt tíl stórsigra grunn að stórfelldri sókn á
á þeirri braut að gera þjóðina næstu áratugum.
Úthhitun skömmtun-
arseðla í Reykjavík
Úthlutun skömmtunarseðla fyrir 1. ársfjórðung fer
fram í G.T.-húsinu (uppi) næstkomandi mánudag,
þriðjudag og miðvikudag 5., 6. og 7. janúar kl. 9
til 6 alla dagana.
Seðlarnir verða afhentir gegn stofnum af fyrri
ekömmtunarseðlum greinilega árituðum.
'78(3
ÚTHLUTUNARSKRIFSTOFA IlEVKJAVlKUR rír
TM
'•'u. i'lafifij. i'«
Sendum viðskiptavinum okkar til lands og sjáyar.;,,,.,.:
beztu óskir um farsælt nýtt ár — ; i<s r-rW
þökkum það sem er að líða.
Vélaverkstœðl
Björns og Halldórs
Ingólfsstrœti 11
;;V.; .j.;'"ú-Kpr’l