Þjóðviljinn - 22.05.1959, Blaðsíða 1
INNI f BLAÐINU:
„Frelsisstríð“ í Tíbet —
7. síða
Málverkasýning Gunn-
laugs Schevings —
6. síða.
Föstudagur 22. maí 1959 — 24. árgangur — 111. tölublað.
VonSr glæðast um samkomulag í Genf
vegna fyrsta óformlega fundarins
Lloyd telur góðan grimdvöll undir
samkomulag um Þýzkalandsmálið
í gær var haldinn 9. formlegi fundurinn á ráöstefnu
utanríkisráöherra stórveldanna í CJenf. Selwyn Lloyd,
utaiiríkisráöherra Bretlands, hélt ræöu á fundinum, og
sagöi aö nú væru góðar aðstæöur til þess að' nú sam-
komulagi við Sovétríkin um lausn Þýzkalandsvahda-
málsins.
Lloyd sagði að báðir aðilar
væru sammála um nauðsynina
á sameiningu Þýzkalands og um
það, að nauðsynlegt væri að
yfirvöld beggja hluta Þýzka-
lands raeddu saman um vanda-
málin og þá einkum um lög fyr-
ir vænfanlegar kosningar í
landinu, sem nauðsynlegt væri(
að færu fram.
í gærkvöldi var fyrsti óform-
Iegi fundurinn á ráðsfefnunni,
Yfirkjör-
stjórn kos-
In í gær
Á fundi bæjarstjórnar í gær
voru kosnir í yfirkjörstjórn
þeir Þorvaldur Þórarinsson og
Páll Líndal.
Til vara voru kosnir Agnar
Gústavsson og Guðmundur
Vignir Jósefsson.
þar sem allir utanríkisráðherr-
arnir fiórir ræddust við. Hófst
fundurinn með sameiginlegum
kvöldverði, en ekki hafði frétzt
um árangur viðræðnanna seint
í gærkvöldi.
Stjórnmálafréttaritarar gerðu
sér í gær miklar vonir um að
þessar óformlegu viðræður
myndu verða árangursríkar, og
jafnvel marka algjöra stefnu-
breytingu á ráðstefnunni. Tal-
ið var líklegt að ráðherrarnir
myndu við þessa breyttu fund-
artilhögun taka að ræða ein-
sfök atriði ágreiningsmálanna
og samkomulag myndi þannig
nást smámsaman um atriðin.
Fundurinn fór fram fyrir lukt-
um . dyrum og voru áheyrnar-
fulltrúar Austur- og Vestur-
Þýzkalands ekki viðstaddir.
Lloyd sagði við brezka blaða-
menn í Genf í gær, að ef til
þess kæmi að fleiri rikjum yrði
boðið að senda fulltrúa á fund
utanríkisráðherranna> kæmi
mjög til greina að Júgóslafía
yrði eitt þeirra. Sovétríkin hafa
krafizt þess að utanríkisráð-
herrum Póllands og Tékkó-
slóvakíu verði boðið að sitja
fundinn.
Mæta Islendingar á
áróðursþingi NATO?
Hafnsögumenn á
Saezskurði kæra
120 hafnsögumenn á Súez-
skurðinum hafa farið í mál
við yfirvöld skurðsins. Flest-
ir hafnsögumannanna eru út-
lendingar og segja þeir, að sú
ráðstöfun yfirvaldanna, að
lækka kaup þeirra um 20%
sé lagabrot.
í byrjun júní verður hald-
in í Lundúnum mjkil ráð-
stefna á vegum Atlanzhafs-
bandalagsins í þeim tilgangi
að lofa og vegsama það
bandalag og forusturíki þess
í Evrópu, Bretland. Er gert
ráð fyrir að 650 manns sæki
ráðstefnuna, þriðjungur
þeirra þingmenn. Forustu-
menn ráðstefnunnar hafa
skýrt svo frá að frá fslandi
hafi verið boðið 10 þátttak-
endum.
Almenningi er nú spurn:
Getur það verið að tíu ís-
lendingar, þar á meðal
nokkrir alþingismenn hafi
geð í sér til þess að þiggja
boð um að fara til höfuð-
borgar Bretlands og taka
þátt í að vegsama það banda-
lag, sem hefur látið hluta
af herskipaflota sínum
brjóta fullveldi og friðhelgi
íslands um nær niu mánaða
skeið? Er það hugsanlegt að
nokkrir fslendingar lúti svo
lágt einmitt nú að votta trú
og hollustu því bandalagi,
sem hefur svikið á okkur
alla samninga, og cinkanlega
því ríki sem hefur beitt okk-
ur freklegasta ofbeldi?
Að óreyndu skal því ekki
trúað. Því yrði veitt sérstök
athygli ef enginn íslendingur
mætti á ráðstefnunni, í því
fælust mótmæli sem yrðu
gerð að umtalsefni. Mæti
hins vegar einhverjir íslend-
ingar á ráðstefnunni er það
vísbending til Breta og
Atlanzhafsbandalagsins um
það að hér á landj séu til
aðilar sem láti bjóða sér tilt,
að Bretum og Atlanzhafs-
bandalaginu sé óhætt að
halda áfram að beita okkur
ofbeldi.
Endurktur hafnar við höfnina
samkvæmt kröfum sósíalista í bæjarstjórn
Reykjavíkur
Sósíalistum hefur nú tekizt aö reka bæjarstjórnar-
íhaldiö til þess aö hefjast handa um aö byrja á sjálf-
sögöum framkvæmdum til aukins öryggis viö höfnina.
Bæjarstjórxiaríhaldið vill ráða
hverjir séu teknir í Þrótt
og vera einrátt um hvaSa bilstjórum þaS
réttir 14 millj. krónur af fé bœjarbúa
Bœjarfulltrúar íhaldsins upplýstu á bœjarstjórnarfundi
í gœr að bœrinn gxeiddi 14 millj. kr. á ári í vinnu-
laun til vörubílstjóra.
Fyrrv,erandi formaöur Þróttar ,,hefur lýst því yfir,
aö vissar stofnanir og ráöamenn Reykjavíkurbœjar hafi
lagt á þaö mikla áherzlu og jafnvel krafizt þess aö
ákveönir menn væru teknir í félagiö, og tilskiliö sam-
þykki bæjarstjórnar fyrir hámarkstölunni dregizt þar
til oröiö hefur veriö viö nefndum kröfum.“
Við afgreiðslu fjárhagsáætlun-
arjnnar í byrjun ársins 1958
fluttu sósíalistar tillögu um
ráðstafanir til aukins öryggis
við höfnina, m.a. um lagningu
síma, og stiga á bryggjur.
í vetur endurtóku þeir þessar
kröfur sínar og beitti Guðm.
J. Guðmundsson sér einkum
fyrir málinu í vetur.
Tillögum og kröfum sósíalista
í máli þessu var vísað til hafn-
arstjórnar, sem m.a. bar það
fyrir sig að símj væri ófáan-
legur rneð öllu. Urðu um þetta
allharðar umræður i vetur.
Á bæjarstjórnarfundi í gær
skýrði Einar Thoroddsen frá því
að íhaldið hefði nú séð sitt ó-
vænna í máli þessu (vitanlega
notaði Einar ekki þessi orð!)
og væri nú byrjað að setja upp
stiga á verbúðabryggjunum
(hafnarstjórí óttaðist í vetur
Framhald á 2. síðu.
Frá fjáröflunamefnd
Alþýðubandalagsins
★ Uin þessar mundir er
verið að dreit'a fjársöfnunjar-
gögnum til Alþýðubanda-
lagsfólks.
Við viljum heita á alla að
bregðast fljótt og vel við
og senda okkur framlög í
'kosningasjóðinn.
★ Alþýðubandalagið vantar
peninga og það fljótt.
Alþýðunni er það Ijfsspurs-
mái að efla stjórnmálasam-
tök sín til þcss að geta
verndað og bætt kjör sín.
Þetta er jafn nauðsynlegt
og að tryggja hús sitt gegn
eldi. Bresti samtök alþýð-
unnar, er eldur auðmánna-
stéttarinnar laus og ógnar
lífskjörum hennar.
★ Verum öll samtaka í
þeirri örlagaríku baráttu
sem nú er háð.
Takið söfnunargögn strax —
komið með framlög ykkar
í kosningasjóðinn!
•k Sameinumst um að fyrir-
byggja að fjárskortur hamli
kosningabaráttu Alþýðu-
bandalagsins!
VINNUM Al) SIGRI AL-
ÞÝÐUBANDALAGSINS!
Fjáröflunarnefndin.
Framanskráð er að finna í
greinargerð Vörubílstjórafé-
lagsins Þróttar, er félagið
sendi bæjarstjórn Reykjavíkur
með samþykkt framhaldsaðal-
fundar félagsins um skiptingu
bæjarvinnunnar milli vörubíl-
stjóra.
Samþykkt framhaldsaðal-
fundarins er svohljóðandi:
„Framhaldsaðalfundur Vöru-
bílstjórafélagsins Þróttar, hald-
inn sunnudaginn 15. febrúar
1959, samþykkir að setja fram
þá áskorun til bæjarráðs og
bæjarstjórnar Reykjavíkurbæj-
ar, að nú þegar verði allri
vörubílavinnu sem bærinn og
bæjarfyyrirtæki kaupa út,
skipt ja.fnt milli þeirra félags-
manna Þróttar, sem skráðir
eru atvinnulausir hverju sinni.
Jafnframt setur félagið fram
þá ósk, að því verði veitt að-
staða til að fylgjast með fram-
kvæmd vinnuskiptingarinnar."
Ef einhverjum skyldi detta
í hug að samþykkt þessi hafi
verið knúin fram af litlum
hópi félagsmanna á fámennum
fundi, er rétt að taka frarn
að framanskráð samþykkt var
gerð með 102 atkv. gegn 48.
Áskorun Þróttar um skipt-
ingu bæjarvinnunnar var til
umræðu og afgreiðslu í bæjar-
stjóm Reykjavíkur fyrst í gær,
21. maí enda þótt bæjarstjórn
væri send samþykkt félagsins
og skrifað um málið þegar 17.
febr. Það hefur þannig stað-
íð í bæjarstjórnarmeirihlutan-<
Framhald á 2. síðu
KOSNINGASKRIfSTOFA
ALÞVOUBANDAIAGSINS
Stuðningsmenn Alþýðubanda-
lagsins! Hafið samband viðl
kosningaskrifstofu Alþýðu-
bandalagsins í Tjarnargötu
20.
Skrifstofan veitir allar upp-
lýsingar um kjörskrár og að-
stoðar við kæmr o.fl. — Gef-
ið upplýsingar um kjósendur
sem kunna að verða fjarver-
andi á kjördag. — Skrifstofan
er í Tjarnargöu 20. Opin alla
virka daga frá kl. 9 árdcgis
til 6 síðdegis.
Alþýðubandalagsmenn! Efliðkosningasjóðinn!