Þjóðviljinn - 30.05.1959, Page 3
Laugardagur 30. maí 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Frumsýning á óperettunni
í Þjóðleikhúsinu í kvöld
Þar koma íram um 110 leikarar
og söngvarar
Framsýning Þjóðleikhússins á óperettunni Betlistúd-
entínum eftir Karl Millöcker er í kvöld.
Leikstjóri er prófessor Adolf
Rott, aðalleikstjóri við Burg-
tjieater í Vín, en hann hefur
margsinnis áður sett þessa óper-
ettu á svið og allsstaðar hlotið
miklar vinsaeldir fyrir.
Hans Antolitsch er hljóm-
sveitarstjóri, en hann hefur sem
Hagrannsókna-
nefnd skipuð
Samkvæmt ályktun Alþingis
20. íebrúar 1959 hefur fjár-
málaráðherra skipað eftirtalda
menn í nefnd til að gera til-
lö^ir um skipulagningu hag-
rafmsókna á veguni hiiis opin-
bera:
Dr. Benjamín Eiríksson, eftir
tilnefningn Framkvæmdabanka
Islands, dr. Jóhannes Nordal,
eftir tilnefningu Landsbanka
Islands, Klemens Tryggvason
hagstofustjóra, eftir tilnefningu
Hagstofu íslands, Ólaf Björns-
son prófessor, eftir tilnefningu
laga- og viðskiptaídeildar Há-
skóla Islands og Sigtrygg
Klemensson ráðuneytisstjóra,
án tilnefningar.
Börnin dansa á
þjóðhátíðinni
Við vígslu nýja íþróttaleik-
vangsins í Laugardal 17. júní
tnucu dansflokkar barna sýna
þjóðdansa á vegum Þjóðdansa-
félags Reykjavíkur. Óskar
Þjóðdansafélagið eftir fleiri
börnum til þátttöku og er nú
verið að æfa fyrir sýninguna.
Næsta æfing verður þriðjudag-
inn 2. júní í iSkátaheimilinu
við Snorrabraut og ættu for-
eldrar að hvetja börn sín til
að mæta og vera með í þjóð-
dönsunum á þjóðhátíðardaginn.
kunnugt er stjórnað útvarps-
hljómsveitinni að undanförnu.
Egill Bjarnason hefur þýtt óper-
ettuna, en hann er orðinn kunn-
ur fyrir þýðingar sínar á óper-
ettum.
Svend Bunch ballettmeistari
hefur æft dansana og dansar
hann einnig sjálfur.
U,iti 110 leikarar og söngvarar
koma fram í sýningunni og er
óhætt að fullyrða að þetta verði
ein glæsilegháta s'ýlning, s-em
sett hefur verið á svið hér á
landi,
Þessir leikarar og söngvarar
koma fram í sýningunni: .
Guðmundur Jónsson, Þuríður
PáJsdóttir, Sigurveig Hjaltested,
Guðmundur Guðjónsson, Nanna
Egils Björnsson, Sverrir Kjaij;-
ansson, Ævar Kvaran, Kristinn
IJallsson, Dóra Reyndal, Bessi
Bjarnason, Rúrik Haraldsson,
Klemenz Jónsson, Baldvin Hall-
dórsson, Helgi Skúlason og Ró-
bert Arnfinnsson.
,,Betlistúdentinn“ e.r síðasta
verkefnið, sem Þjóðleikhúsið
sýnir á þessu leikári.
Það er orðin föst venja að
Þjóðleikhúsið sýni léttan söng-
leik á vorin og hefur það orðið
mjög vinsælt hjá leikhúsgestum.
Ekki er ,að efa að þessi létta
og bráðskemmtilega óperetta nái
hylli almennings.
Rafmagn og
nofkun þess
Út er kominn 14. leiðbein-
ingabæklingur Neytendasamtak-
anna, og fjallar hann um raf-
magn og notkun þess. Fyrsti
kaflinn nefnist: „Hvemig hægt
er að spara rafmagnið". Þar er
að finna upplýsingar, sem mörg-
um mun þykja fróðlegar. Vita
menn, hvað það kostar að láta
loga á 100 W. peru í klukku-
stund? Eða að hafa útvarpstæk-
ið í gangi háifan sólarhringinn?
Eða að nota þvottapottinn í 5
klst? En þannig er skýrt frá
því upp á eyri, hvað rafmagnið
kosti við notkun hinna ýmsu
rafmagnstækja á heimilum. Þá
er vakin athygli almennings, að
óheimilt er að hafa á boðstólum
rafmagnstæki, sem <eigi hafa
hlotið viðurkenningu rafmagns-
eftirlits ríkisins. Ytarleg grein
er í bæklingnum um raflýs-
ingu eftir Aðalstein Guðjohn-
sen rafmagnsverkfræ.ðing og
loks varnaðarorð frá rafmagns-
eftirliti ríkisins um rafmagns-
heimilistæki og aðtaugar
þeirra.
Bæklingurinn er sendur með-
limum Neytendasamtakanna, en
skrifstofa þeirra er opin dag-
lega kl. 5—7, en tekið er á móti
nýjum meðlimum í síma 19722
frá kl. 1 e. h. Árgjald meðlima
er kr. 25, en hægt er að fá
bæklinga fyrri ára fyrir eitt
auka-árgjald.
Hafffræðimenntaðir menn
stofna með sér samtök
Jónas H. Haraldz kjörinn íormaður Hag-
íræðingaíélags íslands á stoíníundi
Þriðjudaginn 26. mai s.l. var
á sameiginlegum fundi í Hag-
fræðingafélagi Islands og Fé-
ilagi viðskiptafræðinga gengið
frá stofnun Hagfræðafélags Is-
lands, og höfðu stjórnir áður-
nefndra félaga unnið að und-
irbúningi þess máls um nokk-
urt skeið.
Söngmót að
Hlégarði
Á síðastliðnu vori var stofnað
Kirkjukórasamband Kjósarsýslu.
að tilhlufun söngmálastjóra
þjóðkirkjúnnar. Strax eftir
stofnun sambandsins vaknaði á-
hugi fyrir að efna td söngmóts
-á sambandssvæðinu,-'ög Vaii dð'-
'
alhvatámaður á'öngmáíastjórinri.
Eftir áramót hófust söngæfing-
ar hjá þremur kórum, sem hafa
æft að staðaldri, og nú síðast
með aðstoð söngkennara Kjart-
ans Jóhannssonar, sem mun
ar.nast undirleik á væntanlegri
söngskemmtun.
Samsöngurinn verður í Illé-
garði sunnudaginn 31. maí kl.
9. Ferðii- verða frá Bjfreiða-
stöð íslands kl. 8,30.
Casadesús sýnir í Keflavík
^ ">-v ••’••> -•
Prófpredikanir
í háskólanum
Kandidatar í guðfræði, Skarp-
héðinn Pétursson og Ingþór
Indriðason, flytja prófpredikan-
ir í kapellu háskólans í dag,
laugardag, kl. 5 síðdegis. Öllum
heimjll .aðgangur.
(Frá Háskóla íslands).
KOSNINGflSKRIFSTOFA
ALÞYOUBANDAIAGSINS
er í Tjarnargötu 20.
Opin daglega frá kl. 9 f.h. til 10 e.h. Sínrar:
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla: 2 35 15.
Kjörskrár af öllu landinu: 2 35 09.
Kosningasióður: 2 37 63
Almennar upplýsingar: 1 75 11 og
2 34 95
Framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins:
1 75 12
KÆRUFRESTUR er til 6. júní n.k. Athugið í tíma hvort
þið eða kunningjar ykkar eru á kjörskrá.
UTANKJÖRSTABÐAATKVÆÐAGREIÐSLA hefst n.k. sunnu-
dlag. Kosið verður í Melaskólanum, 1. hæð, gengið inn úr
portinu. Kosning fer fram alla virka daga frá kl. 10—12
f.h. og 2—6 og 8-—10 e.h. Á sunnudögum kl. 2—4 e.h.
TILKYNNIÐ skrifstofunni um þá stuðningsmenn Alþýðu-
foandalagsins, sem dvelja erlendis eða kunna að vera fjar-
verandi á kjördegi.
HAFIÐ samband við skrifstofuna, sem veitir allar upplýs-
imgar varðandi kosningarnar.
Spánski listamaðurinn Juan Cassadesús sýnir mýndir sinar í
húsi U.M.F.K. í Keflavík í dag og á morgun, laugardag og
i sunnudag. Með|il myndanna eru allmargar frá Keflavík, og
er hér mynd af einnj þeirra.
I lögum félagsins segir m.a.,
að tilgangur þess sé að éf!a
íslenzka hagfræði og vinna að
sameiginlegum hagsmunum
hagfræðimenntaðra manna.
Inngöngu í félagið getur hver
sá fengið, er lokið hefur burt-
fararprófi frá háskóla í hag-
fræði, viðskiptafræði, tölfræði
eða tryggingarfræði. Ennfrem-
ur geta þeir fengið inngöngu
'I félagið sem vinna að hag-
fræðilegum störfum eða sýnt
hafa sérstakan áhuga á efna-
hagsmálum að fengnu sam-
þykki félagsfundar. Þetta á-
kvæði gildir hinsvegar ekki um
féjaga í hinum tveimur stofn-
félögum Hagfræðafélagsins.
1 stjórn hins nýstofnaða fé-
lags voru kjörnir:
Formaður Jónas H. Haralz,
varaformaður Svavar Pýlsson
og meðstjórnendur Már Elías-
son, Ragnar Borg og Bergur
Sigurbjörnsson.
Samþykkt var að Hagfræða-
félagið gerðist aðili að sam-
tökum háskólamenntaðra
manna og voru fulltrúar fé-
lagsins kjörnir þeir dr. Jó-
hannes Nordal og Valdimar
Kristinsson.
Ingimarsmálið
Framhald af 1. síðu.
sfafað af öðru en pólitískum á-
hrifum Alþýðuflokksins á vini
sína í Hræðsiubandalaginu. Það
var ófrávíkjanleg skylda dóms-
málaráðherra að fyrjrskipfa
r.annsókn á sambandi Ingimars
vjð Alþýðublaðið og Alþýðu-
flokkinn. Skipti þar engu máli
hvort hann persónulega taldj að
samverkamenn Ingimars vissu
hvar fjárhirzíu hans var að
finna eða ekki — málið varð
að komast á hreint. Enda mun
fáum koma til hugar að félagar
Ingimars hafi ekkert vitað um
atferli hans; menn taka ekki við
rúmri milljón króna án þess að
spyrja hvaðan hún sé komin
— ekki sízt þar sem meirihluti
upphæðarinnar er greiddur með
! ávísunum á Byggingarsjóð og
I Rskstrarsjóð Gagnfræðaskóla
' Austurbæjar!
Arsþing ísl.
ungtemplara
seff í dog
Fyrsta ársþing Islenzkra ung-
templara verður sett í Góð-
templarahúsinu í Ilafnarfirði
kl. 2 síðdegis í dag, en í kvöld
verður almenn skemmtun ung-
templara í sama húsi. Um
skemmtunina sjá ungmenna-
stúkufélagar.
Kl. 2 síðdegis á morgun verð-
ur æskulýðsguðsþjónusta í Frí-
: kirkjunni í Hafnarfirði og pré-
dikar séra Árelíus Níelsson. Kl.
4 verður störfum ársþingsins
haldið áfram, en annað kvöld
verður kvöldvaka með dansi í
GT-húsinu í Hafnarfirði. Ann-
ast þær félagar ungmenna-
stúkna í Reykjavík og Hafnar-
firði ýmis skemmtiatriði.
Vefnaðarvöruverzlun í Laogarásnum
Toledo opnar í dag nýja vefnaðarvöruverzlun að Laug-
arásvegi 1. Þar veröur seldur léttari skófatnaöur, smá-
vörur og snyrtivörur auk margskonar vefnaöarvöru.
Gísli Wium er verzlunarstjóri.
Hin nýja vefnaðarvöruverzl-
un verður sú fyrsta sinnar teg •
undar í Laugaráshverfi, en
vöntun á ýmsjim sérverzlunum
hefur verið bagaleg fyrir íbúa
margra nýju bæjarhverfanna.
Verzlunin er á fyrstu hæð í
nýju húsi og eiga að verða
alis fimm verzlanir á þessari
hæð sömu byggingar þar á
meðal matvöruverzlun, fiskbúð
og mjólkurbúð, en á efri hæð-
unum eru íbúðir. I Toledoverzl-
uninni sem opnar nú sú fyrsta
! í þessari nýju byggingu, verða
í einkum seldar framleiðsluvör-
ur fyrirtækisins og má þar
nefna hinar kunnu ,,Toledo“-
barnaúlpur úr íslenzkri ull, sem
fyrirtækið hefur nú framleitt
í 15 ár.
Verzlunin að Laugarásvegi
1 verður þriðja smásöluverzl-
unin sem Toledo rekur í
Reykjavík, en fyrirtækið var
stofnað 1940 og verður því 20
ára á næsta ári. Innréttingu
nýju verzlunarinnar annaðist
Karl Þorvaldsson trésmíða-
meistari og er öllu nýtízkulega
fýrir komið. Ljósaútbúnaður er
frá Stálumbúðum h.f., en raf-
lagnir annaðist Baldvin Stein-
dórsson rafvirkjameistari.