Þjóðviljinn - 05.11.1959, Side 9

Þjóðviljinn - 05.11.1959, Side 9
Fimmtudagur 5. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (9 1 jjj' ^ 9 R 6 TT 1 R RITSTJÓRI:^' ''xrrtsrv* Um 80 drengir á fundi með Unglinganefnd KSÍ í Hlégarði Fyrir nokkru fór Unglinga- nefnd KSÍ í heimsókn að Hlé- garði í Mosfellssveit til fundar við hina ungu knattspyrnumenn Aftureldingar, sem þar voru sam- an komnir ekki færri en 80, og var það stærri hópur en menn höfðu gert ráð fyrir. Hafði nefnd- in með sér kvikmyndir um knatt- spyrnu, og var þar bæði keppni þiálfun og eins mynd af knatt- þrautum KSÍ. Var mikill áhugi fyrir kvikmyndunum og eins því sern nefndarmenn höfðu að segja um knattspyrnuna, og þá ekki sizt því sem „gulldrengirnir" höfðu að skýra þeim frá. Að lokum þakkaði formaður Aftureldingar, Guðjón Hjartar- son, nefndinni fyrir komuna og kvaðst vona að hún mundi vekja aukinn áhuga fyrir knatt- spyrnunni í sveitinni og félaginu. Á eftir fundinn ræddu nefnd- armenn við forráðamenn Aftur- eldingar um knattspyrnumálin meðal drengjanna í félaginu. Jón Guðmundsson á Reykjum hefur um árabil verið aðal driffjöðrin. Það kom fram eins og allsstaðar annars staðar að erfitt er að fá leiðbeinendur til þess að kenna og til að halda drengjunum sam- an bæði á æfingum og eins á félagsfundi. Afturelding hefur búið vel að félögum sínum, þann- ig að það á ágætan knattspyrnu- völl, miðsvæðis í héraðinu; það á myndarlegt félagsheimili, þar sem hægt er að safna drengjun- um saman til funda og fræðslu. Það sem þar stendur á er að- eins að fá leiðbeinendur. Þar eru margir áhugasamir drengir og sjálfsagt góð efni, eins og allsstaðar, þar sem þeim er ein- hver kennsla veitt. Viking Noregs- meistari 1959 Um fyrri helgi fór fram í Ullevall í Oslo úrslitaleikurinn í bikarkeppninni norsku. Átt- ust þar við til úrslita Víking- frá Stavanger og Sandefjord. Var leikurinn jafn og tví- eýnn allan tímann og varð að framlengja hann til þess að fá úrslit. Eftir 90 mínútur stóðu leikar 1:1, en Viking tókst að ekora sigurmarkið á 7 mín. framlengingarinnar. Blöð segja að úrslitin hafi verið réttlát þannig að Viking hafi átt meira í leiknum, og sérstak- lega í byrjun og í framleng- ingunni. Sandefjord átti þó tækifæri sem hefðu líka getað gefið sigur, en þau voru mis- notuð. í heild var leikurinn talinn fremur slakur og ekki vel leikinn. Virðist mikiil áhugi meðal for- ustumanna að leysa þessi mál og það sem fyrst. Afturelding hefur sýnt á mörgum sviðum dugnað í störfum og ætti því ekki að verða skotaskuld úr því að leysa þetta mál líka. Þéttbýlt er að verða í Mos- fellssveit og það svo að Jón Guð- mundsson sagði að það væri á mörkum þess að vera þorp og sveit, og hefði það sína kosti og ókosti, hvað það snerti að halda drengjunum saman. Drengjahópurinn, sem kom á fundinn í Hlégarði, sýnir að í Mosfellssveitinni er mikill efni- viður og margir mjög áhugasam- ir. Það er því aðeins undir því komið að Aftureldingu takist að ná til þessara efnilegu drengja. Félagið er á margan hátt vel í sveit sett til þess að hafa sam- starf við önnur félög hér suð- vestanlands, og hefur fyrir það líka mikla vaxtarmöguleika. Ætti í framtíðinni að geta þar þróazt sterkt knattspyrnu- lið, sem gæti náð langt, ef að- eins er byrjað á byrjuninni og sýnd þrautseigja og starfsvilji, og hinir eldri vilja hjáipa svolít- ið til; það er skemmtilegra verk en menn ef til vill halda. Eftir þennan fund var ákveð- ið að heimsækja knattspyrnu- félagið í Kjalarnesþingi; UMF Breiðablik í Kópavogi. Um níutíu drengir á fundi með Unglinganefnd KSÍ í Kópavogi Til liggui leiðii Á mánudagskvöldið fór Ung- linganefnd KSÍ í heirftsókn til Breiðabliks í Kópavogi, og hafði meðferðis kvikmyndir frá knatt- spyrnuleikjum, svo og myndina frá Danmörku, þar sem drengir frá KR tóku þátt í námskeiði sem danska knattspyrnusam- bandið gekkst fyrir og bauð KR að taka þátt í. Einnig var þeim sýnd myndin þar sem sænskir drengir leysa knattþrautir og hljóta gullmerki fyrir. Var sýnilega mikill áhugi fyrir fundi þessum, því að um 00 drengir komu til fundarins í hinu vistlega félag'sheimili Kópa- vogs. Fornjaður nefndarinnar ræddi við drengina og kvað það erindið við þá að hvetja þá til að iðka knattspyrnu og taka þátt í hollu félagslífi. Benti hann þeim á að stunda æfingar vel því allir vildu þeir vera góðir knattspyrnumenn, og tóku þeir undir það. Sigurgeir Guðnason ræddi við þrjá „gulldrengi", þá Ásgeir Sig- urðsson, IJlfar Guðmundsson og Örn Steinsen, og höfðu þeir frá ýmsu að segja varðandi þann árangur sem þeir höfðu náð í knattspyrnunni og gáfu drengj- unum góð ráð til að ná sama marki. Hlýddu drengirnir á með mikilli athygli, og klöppuðu þeim lof í lófa. Slæm skilyrði hindra eðlileg- an þroska knattspyrnunnar Eftir fundinn ræddu nefnd- armenn við formann Breiðabliks, en hann var sá eini af forustu- mönnum félagsins sem kom til fundarins. Sagði Björgvin að þeir ættu við nokkra erfiðleika að etja þar í bæ, því erfitt væri að fá menn til að sinna leiðbein- enddstörfum meðal drengjanna, en kvaðst vona að úr þesssu rættist. Hann sagði líka að' vall- arskilyrðin væru þannig að eini völlurinn sem í bænum væri sé aðeins 75x45 m og er sú stærð aðeins fyrir fimmta og fjórða flokk. Þegar eldri flokkar ættu að vera þar og leika nytu þeir sín ekki og færi ekki fram. Hann sagði að til væru ágætar flatir ekki alllangt frá gamla sandnáminu við Fífuhvamm. en til þessa hefði ekki verið hægt að fá þær til afnota, þar sem þær væru í einkaeign. Framtíð- arleikvöllur kaupstaðarins væri ákveðinn fyrir austan Kópavogs- lækinn, austan Hafnarfjarðarveg- ar^ en það væri langt í land að sá völlur væri tiltækur til æf- inga. Þetta var í aðalatriðum það sem Björgvin hafði að segja, og er það ekki efnilegt, ef ekki verð- ur úr bætt hið bráðasta. Virðist allt mæla með því að bæjar- stjórn geri allt það sem í hennar valdi stendur að ná samkomu- lagi við eigendur flatanna í Fífuhvammslandi og nota þær til bráðabirgða, meðan verið er að undirbúa og byggja framtíð- arvöllinn. Hinn mikli f jöldi ungra efnilegra drengja þarfnast að- stöðu til að iðka íþróttir sínar, og svo vaxandi bær sem Kópa- vogur, þarf að geta leyst það mál, a.m.k. í bili, án þess að í- þyngja bæjarsjóðnum alvarlega. Það á að koma aftur óbeint ef rétt er að staðið. Húsið sem fundurinn var haldinn í ber vott um stórhug og myndarskap, og bví skyldi ekki vera hægt að brúa bilið þangað til að nýr völlur rís af grunni til þess að drengir í Kópavogi verði ekki eftirbátar jafnaldra sinna í öðr- um svipuðum byggðarlögum? Vissulega hvílir iíka sú kvöð á Breiðabliki að sinna hinu fé- lagslega, og að leggja á ráðin um hvað gera skuli til úrbóta; leggja til leiðbeinendur, hinum fiölmenna og myndarlega drengjahóo sem þar býr. Það barf að tilnefna unglinganefndir og leiðtoga og gefa þeim verk- efni. Hafði Björg'vin mikinn áhuga fyrir því að fá Karl Guðmunds- son til að efna til smánámskeiðs fyrir lgiðbeinendur, og kvað hann að stjórn Breiðabliks mundi vinna að því eftir því sem hægt væri. f Kópavogi ætti að geta dafnað mjög blómlegt íþróttalíf, og þar ætti að geta risið upp eitt öflug- asta íþróttafélag landsins, ef tek- ið er tillit til þess að Kópavog- ur er að verða fjórði stærsti bær landsins. Nýtt heimsmet 1 síðasta mánuði setti kínverski sundkappinn Mu Hsiang-hsiung nýtt heimsmet í 100 metra bringusundi; tími hans var 1.11,3 mín. 1/10 sek. betri en fyrra met hans. Myndin var tekin, er heimsmetið var sett í Taojanting-sundlauginni í Peking. Sjö Rússar yfir 161 í þrístökki Á keppnistímahilinu sem er að líða hafa hvorki meira né minna en 7 Rússar stokkið yfir 16 m í þrístökki, en það eru: Fedosséff 16.70, Gorjajoff 16.51, Kreer 16.48, Rjaeovskí 16.38, Karputénko 16.20 Mik- hailoff 16.01 og Kobeléff 16.01. Manfred Germer sem undan- farið hefur verið á keppnis- ferðalagi um Japan hefur náð 10.4 sek. og 10.5 á 100 m og á 200 m 20.8 sek. Rúmeninn Strzelbisei setti hýlega rúmenskt met í hindr- unarhlaupi á 8.50.8. Tveir Rú- menar hafa stokkið 2.03 m í hástökki nýlega, á stúdenta- móti; heita þeir Cornel Por- ump og Xenofonte Bodoe. Júgóslavneski spretthlaupar- inn Stanko Lorger hljóp ný- lega 110 m grindahlaup á 13.9 og 100 m á 10.5. Á sama móti setti Dako Radosevic nýtt júgóslavneskt met í kringlu- kasti 54.11 m. Þá hefur rússnesk stúlka kastað kringlu 54.61 m og er það 5. bezti árangur kvenna í ár. ÞIÖÐVILJANN vanlar unglinga til blaSburðar um Kársnes TaliS viS afgreiSsluna sími 17-500

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.