Þjóðviljinn - 05.11.1959, Side 12

Þjóðviljinn - 05.11.1959, Side 12
regiuvaldl og hungursvlpu €in dönskum verkfa HörcS áfök tvo daga i röð útifyrir verksmiSju i Kaupmannahöfn Hundrað manna lögregluliði var beitt í gær til aö vernda verkfallsbrot í skrúfuverksmiðju Henzes á Amag- er í Kaupmannahöfn. Hálfur mánuður er liðinn eiðan verkamenn hjá Henzes, á annað hundrað talsins, lögðu niður vinnu til að mótmæla brottrekstri eins starfsbróður síns og margskonar öðrum yf- irgangi atvinnurekandans. Handalögmál Eftir að vinnudómstóll hafði dæmt verkfallið ólöglegt tók atvinnurekandinn að auglýea eftir verkfallsbrjótum. Nokkrir g.áfu sig fram, en verkfalls- menn stóðu verkfallsvörð úti- fyrir verksmiðjuhliðinu. • 1 fyrrakvöld kom til hörku- áfloga milli verkfallsbrjóta og verkfallsmanna útifyrir verk- smiðjunni. Síðdegis í gær var hundrað manna lögreglulið sett á vörð umhverfie verksmiðjuna. Engu að síður kom enn til átaka milli verkfallsmanna og verk- fallsbrjóta. Svartur listi Atvinnurekendasamband . Danmerkur hefur sett alla verkfallsmenn hjá Henzes á Maðurinn ófundinn enn Maðurinn, sem lögreglan í Hafnarfirði lýsti eftir í fyrra- dag, var ófundinn í gærkvöld, er blaðið átti tal við iögregluna þar. Einu frekari upplýsingarn- ar, sem lögreglan hafði fengið um ferðir mannsins siðan hann hvarf, eru þær, að í fyrradag segíst kona, sem þekkir hann vel, hafa séð hann á gangi á _ < j U : Eangholtsyegi í Reykjavík. svartan lista, og fá þeir ekki vinnu hjá neinum félagsmanni. Ekki hefur þó tekizt að evelta þá til hlýðni, því að verkamenn á vinnustöðum viða um Dan- mörku hafa safnað fé handa þeim. Alþýðusamband Dan- merkur hefur fordæmt verk- fallið og neitar að veita verk- fallsmönnum nokkurn stuðn- ing. I gær tilkynnti atvinnurek- endasambandið, að það myndi Brautskráðir 15 nemar hjúkrunar- kvennaskólans í lok októbermánaðar braut- skráðust eftirtaldir 15 nemendur frá Hjúkrunarkvennaskóla ís- lands: Anna Sigurbjörg Hafsteins- dóttir . frá - Gunnsteinsstöðum, Langadal, A-Hún. Auður Hauks- dóttir frá Hafnarfirði, Bergljót Edda Aléxandersdóttir frá Reykjavík, Dóra Sigmundsdóttir frá Reykjavík, Geir Friðbergs- son frá Reykjavík, Guðrún Bjarriadóttir frá Reykjavík, Hall- dóra Guðmundsdóttir frá Stóru- Drageyri, Skorradal, Borg. Hrefna Maren Ólafsdóttir frá Reykjavík; Ingibjörg Marinós- dóttir. frá Akureyri, María Guð- rún Sigurðardóttir frá Reykja- vík; ÓHna Guðmundsdóttir frá Patreksfirði, Rannveig Sigur- björnsdóttir frá Reykjavík, Rögn- valdur Skagfjörð Stefánsson frá Reykjavík, Svala Bjarnadóttir frá Siglufirði og Uriá Óddbjörg Guð- mundsdóttir frá Reykjavík. Eisenhower gisflr níu Könd i þrem heimsálfum Fjóröa desember leggur Eisenhower Bandaríkjaforseti af stað í hálfrar þriðju viku ferðalag og ætlar að heim- sækja níu þjóðlönd. afturkalla svarta listann, þeg- ar verkfallsvörzlu væri hætt hjá Henzes og framleiðsla þar væri orðin eðlileg. I ' Nu dellt 11111 verksviðið Fulltrúar Bretlands og Banda- ríkjanna á ráðstefnunni í Genf um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn höfnuðu í gær tillögu sovézka fulltrúans um verksvið og starfstíma sérfræð- inganefndar, sem ákveðið hefur verið að fela að kanna nýja vitneskju um eftirlit með sprenginum í jörðu niðri. Segja þeir að starfssviðið sé of þröngt og starfstíminn of stuttur. Eisenhower Bandaríkjaforseti sagði í gær, að Bandaríkjamenn myndu ekki hefja kjarnorku- sprengingar á ný eftir áramótin, ef Sovétríkin gerðu sh'kt hið sama. Sovétstjórnin hefur til- kynnt, að hún muni engar til- raunir ge.ra með kjarnorkuvopn, meðan önnur ríki láti þær liggja niðri. lÓÐVIUINN Fimmtudagur 5. nóvember 1959 ■— 24. árg. — 242. tölublað. Bv. Ingólfur Arnarson; myndin var tekin, er togarinn sigldi inn á Reykjavíkurhöfn ií fyrsta sinn. Dieselvél sett í elzta ný- sköpunartogarann Gagngerar endurbætur gerðar á b.v. Ingólfi Arnarsyni Á fundi bæjarráðs Reykjavík- ur í fyrradag var samþykkt að mæla með eftirfarandi tillögu, sem útgerðarráð hafði samþykkt á fundi sínum 19. október sl. • „Útgerðarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn Reyhja- víkur að fela framkvæmdastjór- Ágœtur G-listafagnaður s LÍDÓ í fyrrakvöld Mikill sóknarhugur ríkti á samkomunni sem var mjög fjölsótt og ánægjuleg ' í fyrrakvöld efndi Alþýðubandaiagið til fagnaðar í Lido fyrir starfsmenn og stuðningsfólk sitt í nýafstaðinni kosningabaráttu. Skemmtunin var mjög fjölsótt. Flutt voru ávörp, sungnar gamanvísur og að lokum dansað. Skemmtu menn sér hið bezta. Eieenhower sagði frétta- mönnum í gær, að hann hygð- ist koma við í höfuðborgum Italíu, Tyrklands, Indlands, Pakistans, Afganistans, Irans.. Bezta aflasala erlendri höfn Togarinn Fylkir seldi afla sinn í gærmorgun í Grimsby, 3088 kit eða 19414 lest fyrir 17.895 sterlingspund. Mun þetta vera bezta aflasala ís- lenzks skips erlendis, ef mið- að er við aflamagn. Grikklands, Marokkó og Frakk lands. Hann ætlar að ræða við æðstu menn þessara rikja og auk þess páfann í Róm. Þetta verður í fyrsta skipti sem bandarískur forseti heim- sækir lönd í Asíu. Að ferðalaginu loknu 19. deeember hefst í-París fundur Eisenhowers, de Gaulle, Mac- millans og Adenauers. Þeir ætla að reyna að samrýma af- etöðu Vesturveldanna til fyrir- ætlana um fund æðstu manna Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands og Sovétríkjanna. Eisenhower og Macmillan vilja, að sá fundur verði haldinn í febrúar eða marz. de Gaulle og Adenauer vilja fresta horium fram í maí eða júní. Auk þess er talið að ágreiningur sé milli stjórna Vesturveldanna um málemeðferð á fundi æðstu manna. í upphafi samkomunnar fluttu stutt ávörp alþingis- mennirnir Einar Olgeirsson og Alfreð Gíslason. Þökkuðu þeir stuðningsmönnum Alþýðu- bandalagsins gott starf í kosn- ingunum, ræddu þann mikil- væga sigur er unnizt hefði, þrátt fyrir hrakspár andstæð- inganna, og þá þýðingu er hann hefði í baráttunni fyrir bættum kjörum vinnandi stétta og fyrir sjálfstæði þjóðarinnar. Hvöttu þeir eindregið til þess að fylgja sigrinum vel eftir með nýrri og öflugri sókn. Samkomugestir fögnuðu mjög máli ræðumanna og mátti glöggt finrta, að allir voru ein- huga um að fylgja s’:grinum eftir með öflugri baráttu fyr- ir hag alþýðunnar í landinu og fyrir rétti íslenzku þjóðarinnar til lands síns og fisk:miða. Að loknum ávörpunum söng Ómar Ragnarsson gamanvísur við ágætar .undir.tektir áheyr- enda og síðan var stiginn dans af miklu fjöri til kl. 2 um nóttina. Var skemmtunin í alla staði hin ánægju'egasta. um bæjarútgerðarinnar að láta gera ráðgerðar breytingar á bv. Ingólfi Arnarsyni, þ. e. að setja í skipið dieselvélar með tilheyr- andi útbúnaði og endurbyggja það, sem nauðsynlegt er í því sámbándi: sámhiiða 12 ára flokk- uriarviðgerð. Jafnframt samþykki bæjarstjórn að ábyrgjast í þessu skyni allt að 10 milljón króna 'án,. sem tekið yrði í erlendri mynt með hæfilegum kjörum að dómi útgerðarráðs“. Ingólfur Arnarson er sem kunnugt er elzti nýsköpunartog- arinn, kom hingað til lands á árinu 1947. Eldor í vélbáti Síðdegis í gær var slökkvi- liðið kvatt að vélbátnum. Svani RE-88, sem liggur hér í Reykjav'kurhöfn Hafði kvikn- að í oliu í vélarrúmi út -frá logsuðutæ'kjum, sem verið var að vinna með. Eldurinn var fljótlega slökktur og urðu skemmdir litlar. Frakkar standa einir með kj arnorkutilraimir sínar Enginn kom til liðs við Prakka, þegar fyrirhugaöar tilraunir þeirra með kjarnorkuvopn komu til umræðu á þingi SÞ í gær. Allsherjarþingið tók í gær að ræða tillögu Marokkó og fleiri ríkja í Afríku og Asíu, sem leggja ,til að þingið skori á Frakka að hætta við að sprengja kjarnorkusprengjur í Sahara á næstunni. ' Fulltrúi Marokkó sagði, að KÓ^A^G^UR Alþýðubandalagið í Kópavogi býður starfs- mönnum og stuðningsfólki til skemmtunar í félagsheimilinu n.k. laugardag kl. 9. Finnbogi Rútur Valdimarsson flytur ræðu, danssýning og dans. Boðsmiðar verða afhentir að Hlíðar- vegi 3 á föstudag kl. 5—7 og laugardag klukk- an 1—3. Þeir sem hafa haft happdrættismiða til sölu eru beðnir um að gera skil sem fyrst. öll riki sem ættu lönd að Sahara hefðu mótmælt íyrirætlunum Frakka, vegna þess að stjórnir þeirra teídu þegnurn sínum stafa háska af helryki írá kjarnorku-, sprengingurium. Utanríkisráðhérra Sambands- lýðveldis araba kvað fyrirætlan- ir Frakka um kjarnorkuspreng- ingar til þess fallnar að spilla hagstæðri þróun alþjóðamála. Fulltrúi Frakka, _ sósíaldemó- kratinn Moch, kvaðst geta fuil- vissað menn um að engum staf- aði hætta af kjarnorkuspreng- ingunum sém gera ætti í Sa- hara. Kvað hann enga þétta byggð vera nær tilraunastöðvum en í 1000 km fjarlægð. Bæði í Bandaríkjunum og Sovétríkjun- um hefðu verið gerðar kjarn- orkusprengingar langtum nær mannabyggðum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.