Þjóðviljinn - 12.11.1959, Síða 10

Þjóðviljinn - 12.11.1959, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 12. nóvember 1959 —<-< Hverjir hafa séð lengst Framhald af 7. síðu. En eitthvað verður nú að láta það heita til að gera hosur sínar grænar fyrir kjósendum. Því hef ég orðið allfjölorð- Ur um þetta mál, að mér virðist nauðsyn bera til að j staldra aðeins við, líta yfir farinn veg og láta Ijós þeirr- ar athugunar lýsa sér næsta áfangann. Slíkt er skylt og sjálfsagt hugsandi fólki, sem vill læra af reynslunni og koma fram af ábyrgðartil- finningu gagnvart sér og sín- um, minnugt þess að flokkar eiga eingöngu að dæmast eft- ir verkum sínum. HVERJIR HAFA SÉD LENGST OG DUGAÐ 1 BEZT? Hverjir sáu þá lengst ? Kom hrunið, sem afturhaidið söng sætlegast um undir stjórn hrunmeistara sinna? Nei, það kom aldrei. Þakkað veri flokki alþýðunnar, sem var svo fram- sýnn að sjá, að hægt var að afstýra því með viðreisn at- vinnulífsins, nýsköpuninni. Hverjir hafa dugað dreif- býlinu bezt? Þegar við lítum yfir sögu síðustu 15 ára, kemur í Ijós, að þegar Sósíalistaflokkurinn og Alþýðubandalagið hafa verið í stjórn með einhverjum hinna flokkanna, hefur verið unnið ósleitilega að atvinnu- legri viðreisn um allt land. En hafi hinir flokkarnir stjórnað, hver með öðrum án Alþýðubandalagsins, hafa þeir á einn og annan hátt unnið gegn nýsköpun at- vinnulífsins, en fyrir einka- gróða, hringagróða og her- mang. Það er engu líkara en þessir flokkar hafi batnað um tíma ’í stjórn með Alþýðu- bandalaginu, en sýnt sitt rétta andlit, þegar þeir voru einir í stjórn. SAMEINUMST UM AL- ÞÝÐUBANDALAGIÐ. Hvers vegna dugar Alþýðu- bandalagið dreifbýlinu bezt, og þar með öllum landslýð? Stafar það af því, að það sé svo miklu meira mannkosta- fólk í því, en þorparar í hin- um flokkunum? Nei, hér er um engan slik- an persónulegan mannjöfnuð að ræða. En andstöðuflokk- ar okkar eru fésýlsuflokkar. Þeir meta öll mál með tilliti til gróða, einkagróða, einok- unaraðstöðu og hringavalds. Nei, þetta stafar af því, að Alþýðubandlagið hefur engra hagsmuna að gæta nema al- þýðunnar Þess gengi er gengi hennar, hennar gengi er gengi þess. — Það er mjög mikil- vægt að allir geri sér vel Ijósan þennan mismun flokk- anna. Hagsmunir fólksins og flokks þess, Alþýðubandalags- ins fara algerlega saman. Þess vegna dugar það alþýð- unni bezt. Og hver er þessi alþýða? Það er hin vinnandi þjóð, til sjávar og sveita, sjómenn, bændur, verkamenn, útvegs- menn, iðnaðarfólk, opinberir starfsmenn, skrifstofumenn, verzlunarfólk o. fl., meira en þrír f jórðu hlutar þjóðarinnar, fólkið, sem byggir þetta land, erjar jörðina, aflar brauðs úr skauti sjávar, byggir upp bæina, í fáum orðum sagt, starfandj þjóð anda og hand- ar, sem leitast við að skapa sér sómasamlegt líf og veita sér andleg verðmæti. Þetta fólk á allt sameigin- legra hagsmuna að gæta. Það er aðeins skynvilla, ef ein- hverjum sýnist annað Það á sameiginlega hagsmuni með Alþýðubandalaginu. Ef þetta er haft í huga er þcð ekkj lítið undrunarefni, begar úrslit kosninga sýna, að þetta sama fólk kýs 4—5 stjórnmálaflokka, þegar öll rök hníga að því að það ætti að vera í einum flokki vegna sameiginlegra hagsmuna. Þetta þarf að breytast. Ef hér á að verða vaxandi vel- megun í landi, þarf þetta fólk allt að sameina sig um einn flokk, flokk, sem hefur sýnt sig viijugan til að berjast fyr- ir hagsmunum þess, flokk þar sem fólkið sjálft getur bar- izt fyrir hagsmunum sínum. Þessi vinnandi þjóð þarf að eflp sér sinn eigin flokk, efla Alþýðubandalagið sem bar- áttutæki sitt og skapa sjálf þann flokk eftir þörfum sín- um á hverjum tíma. Alþýðu- bandalagið býður upp á mikla möguleika í þessu efni. Það stendur opið allri vinnandi þjóð. • (jTBREIÐIÐ ÞJÓÐVILJANN Cha —s Cha — Cha í Kennslubók í Cha — Cha — Cha eftir HEI5AR ASTVALDSSON danskennara er með orðum og myndum geínar nákvæmar skýringar á öllum helztu sporunum í þess- um vinsæla dansi. Bókin er komin í bókaverzlanir í Reykjavík. Verð kr. 40,00. Sendi í póstkröíu hvert á land sem er Heiðar Ástvaldsson, Box 665 Reykjavík FORD varahlutir Nýkomið mjög mikið úrval varahluta í eftirtalda 1 enska Ford bíla: Anglia, Prefect, Fordson og Thames (’37—’59), Consul, Zephyr og Zodiac (’53—’56), FORD-umboðið Kr. Iíristjánsson h.f. Suðurlandsbraut 2 — Sími 3-53-00. UPPBOÐ annað og síðasta, fer fram á rishæð húseignarinnar nr. 71 við Njálsgötu, hér í bænum, eign dánarbús Jóhönnu Einarsdóttur, mánudaginn 16. nóvember 1959, kl. 2.30 síðdegis. Borgarfógetinn í Reykjavík. að gæðum og glæsileik VEB Feinstrumpfwerke Oberlungwitz Oberlungwitz / Saxony German Democratic Republic. Upplýsingar um útflutning veitir ■ ** /m. T E '3*21.' Exportgesellschaft fur Wirkwaren und Raumtextilen m.b.H. 15 Resenstrasse, Berlin C 2. Sjáltsævisaga Kristmaims GuSmimdssonar ÍSOLD HIN SVARTA Út er komin sjálfsævisaga Kristmanns Guðmunds- sonar. ísold hin svarta er fjörleg frásögn af viðburðaríkri ævi manns, sem þorir að segja hispurslaust frá því, sem á dagana hefur drifið. Bókfellsútgáfan

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.