Þjóðviljinn - 14.11.1959, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 14.11.1959, Qupperneq 1
1 Kosningum er lokið - og nú er mætt I NÁTO-fundi! Hingað og ekki lengra! Allir hernámsílokkarnir senda fulltrúa á A-bandalagsfund í Washington Þrír íslenzkir alþingismenn sækja þingmannafund Atlanzhafsbandalagsins sem er að hefjast í Washington. Það eru þeir Þórarinn Þórarinsson, Benedikt Gröndál og Jóhann Hafstein. För : þeirra þremenninga er enn eitt dæmi um tvískinnung og óhreinlyndi hernámsflokk- anna í sambandi við landhelg- ismálið. Eins og menn muna var haldin Atlanzhafsbanda- Jagsráðstefna í Lundúnum fyrir 'kosningar í sumar. Emil Jónsson forsætisráðherra var verndari ráðstefnunnar og her- námsflokkarnir höfðu undir- búið að senda þangað hóp full- trúa. Þjóðviljinn vakti þá at- hygli á málinu og taldi alger- lega ósæmilegt að nokkrir ís- lenzkir fultrúar kæmu á þá ráðstefnu eftir framferð; Breta og Atlanzhafsbandalagsins i iandhelgismálinu. Vegna þess að kosningar voru framundan guggnuðu hernámsmenn á öllu saman og hættu við að senda fulltrúa á síðustu stundu. Og síðan reyndu þeir óspart að hæla sér af því að þessi af- staða sýndi glöggt hversu ein- : örð og afdráttarlaus væri af- staða þeirra í landhelgismálinu! En nú eru kosningar af- staðnar og hernámsflokkarnir hafa ekki lengur hitann í hald- inu. Og þá er það þeirra fyrsta verk að mæta á vinafundi með fulltrúum Breta og annarra þeirra þjóða sem hafa sýnt ok'kur mestan fjandskap í land- helgismálinu. Munu óbreyttir kjósendur Framsóknarflokks- ins veita því sérstaka athygli að Þórarin Þórarinsson er að finna í hópi þeirra þingmanna sem nú votta Atlanzhafsbanda- laginu hollustu sína. Ýmsar sögur ganga um það í bænum hvers vegna samn- ingar Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins ganga eins dræmt og raun sannar. Ein er þessi: Alþýðuflokkurinn heimtaði að fá jafnmarga ráðherra og Sjálfstæðisflokkurinn. íhaldið samþykkti það. Alþýðuflokkurinn heimtaði að fá að velja ráðherrasæti handa sér. Ihaldið samþykkti það. Alþýðuflo'kkurinn heimtaði að fá að ráða því hverj- ir yrðu ráðherrar úr Sjálf- stæðisflokknum. Ihaldið sam- þykkti það. Alþýðuflokkurinn heimtaði að stjórnin framkvæmdi stefnu Sjálfstæðisflokksins. En þá sagði íhaldið: hingað og ekki lengra, og á því stendur. Enn miðar í áttina í Genf varð andi bann á kjarnavopnum Svar ríkisstjórna kjarnorkuveldanna á mánudag Lloyd kominn úr Frakklandsför í gærkvöld var frumsýning í Þjððlcikhúsinu á atriðum þeim úr Peking-óperunni sem kínverski leikflokkurinn kynnir okkur. Áhorfendur hrifust mjög af list hinna austurlenzku gesta, og ætlaði fagnaðarlátum aldrei að linna. Meðal leikliúsggsta voru forsetahjónin, ráðherrar og sendimenn erlendra níkja. Myndin hér að ofan gefur hugmynd um eitt þeirra atriða sem hrifningu valda: hina skrautlegu og fögru búninga. — Önnur sýning er í kvöld, tvær á morgun og lokasýning á mánudag. Selwyn Lloyd, utanríkisráð- herra 'Bretlands, kom í gær til London úr Frakklandsferð, en þangað fór hann til að reyna að sætta brezk og frönsk stjórn- arvöld, sem hafa verið tals- vert á öndverðum meiði í skoð- unum á heimsmálunum að und- anfömu. Lloyd sagði við heimkomuna, að náðst hefði mikil eining við franska ráðamenn, og de Gaulle hefði fullvissað sig um, að það væri misskilningur að Frakkar væru andvigir fundi æðstu manna. Slíkur fundur yrði áreið- anlega haldinn skömmu eftir heimsókn Krústjoffs til Frakk- lands í marzmánuði n.k. Lloyd sagðist vera þeirrar skoðunar að ráðamenn í Sovétríkjunum ósk- uðu eftir því að sambúð þjóða ] í austri og vestri batnaði. ,,Svik við þjóðina“ ef Emil verður ekki for- sætisráðherra!! Sjá 7. síðu, Fulltrúar kjarnorkuveldanna þriggja á Genfarráöstefn- unni um bann viö tilraunum með kjarnorkuvopn, hafa mikilvægt atriöi varöandi enn náö samkomulagi um bann viö múgmorösvopnum. Samkomulag náðist um starfs- svið sérfræðinganefndar, sem koma á saman til fundar á næstunni til þess að kynna sér Vakti mikla hrifningu upplýsingar, sem kjarnorku veldin hafa aflað um leiðir til að fylgjast með kjarnorku- vopnatilraunum sem kynnu að verða gerðar neðanjarðar. Samningarnir um þetta sam- komulag hafa verið sendir rík- isstjórnum Sovétríkjanna, Bandaríkjanna og Bretlands til staðfestingar. Framhald á 12. síðu. Mláðherra snœðir höiuðiai Á miðvikudagsmorgun át James Mitchell, verkalýðsmálaráð- herra Bandaríkjanna, liattinu sinn á tröppum verkalýðsmála- ráðuneytisins í Washington að viðstöddum fjölda áhorfenda. Hann uppfyllti þar með lieitstrengingu frá í apríl í vor, en þá kvaðst hann skyldi éta liattinn sinn, ef tala atvinnuleys- ingja í Bandaríkjunum væri ekki komin niður fyrir þrjár millj- ónir í október. Hagskýrslur um mánaðamótin sýndu að yfir fjórar milljónir manna eru atvinnulausar í Bandaríkjunum. Einhverjir góðlijartaðir menn máttu ekki til þess hugsa að Mitchell fengi illt í magann af hattátinu, svo þeir gáfu hon- um sætabrauðshatt, og liér á myndinni sést liann snæða það liöfuðfat. Finnar ekki með í fríverzlunar bandalagi Evrópuríkjanna sjö Finnska stjórnin lýsti yfir því li dag, að Finnar hyggðust ekki gerast beinir aðilar að fyrirhu.guðu fríverzlunarbanda- lagi sjö Evrópuríkja. Hinsvegar vildi Finnska stjórnin ekki vera að fullu og öllu fyrir utan þetta banda- lag, og sagði verzlunarmála- ráðherrann í þingræðu í gær. að Finnar myndu bráðlega hefja viðræður um hugsanlega lausleg tengsl við bandalagið án þess að vera meðlimur þess. Nokkrar af ríkisstjórnum aðildarríkja Efnahagssamvinnu- stofnunarinnar í París hafá farið þess á leit að stofnunin gangist fyrir ráðherrafundi í næsta mánuði til að ræða á- ■ hrif þau. er fríverzlunarbanda- i lag ríkjanna sjö kunnj að hafa á efnahagsmál, þeirra 18 rikja, sem eru aðilar að Efnahags- samvinnustofnuninni. Algert borgara- stríð í Ruanda- . 1 Urundi Fréttastofuíregnir herma, að landstjórnarmenn í Ruanda- Urundi hafi lýst yfir því, að al- ger borgarastyrjöld geysi nú í nýlendunni og fái yfirvöldin ekki við neitt ráðið. Matvælaskortur sé yfirvofandi vegna þess að bændur hafi flúið býli sín.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.