Þjóðviljinn - 14.11.1959, Síða 3
Laugardagur 14. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Nær öfll Yerkalýðsf élög í íandinu hafa
niisagt upp kaup og kjara-samningum
Vinnuve'ifendasGmbandsd kallar saman
fund fil að rceSo viShorf til samninga
Sex persónur leita höfundar
Fyrir skömmu var haldinn fundur í stjórn Vinnuveit-
endasambands íslands til aö ræöa viðhorf það, sem skap-
azt hefur í kaupgjaldsmálum viö, að nær öll verkalyös-
félög í landinu hafa nú sagt upp kaup- og kjarasamning-
um sínum við vinnuveitendur.
Formaður Vinnuveitendasam- að mikið af útivinnu, sem hag-
bandsins, Kjartan Thors, rseddi kvæmast og seskilegast er að
mál þessi í framsöguræðu. Yfir-
leitt hafa enn ekki borizt kröfur
um breytingar á samningum og
kvað formaður ekki líkur á, að
þær bærust fyrr en í desember.
Björgvin Sigurðsson, frkv.stj.
Vinnuveitendasambandsins skýrði
frá fastanefndafundi norrænu
vinnuveitendasamtakanna, er
haldinn var í Kaupmannahöfn 27.
—29. ágúst s.l. og hann og for-
maður Vinnuveitendasambands-
ins sóttu af hálfu þess.
. Þá flutti Björgvin erindi um
samninga og viðskipti vinnuveit-
endasambandanna í Noregþ Dan-
mörku, Finnlandi og Svíþjóð við
systurfélög Stefs hér.
íslenzka Stef leitar nú eftir
samningum við vinnuveitendur
um greiðslu fyrir útvarpstónlist á
vinnustöðum.
Hefir Vinnuveitendasambandið
kjörið þá Kjartan Thors, Bene-
dikt Gröndal og Björgvin Sig-
urðsson til viðræðna við for-
svarsmenn Stefs.
Það skal þó' tekið fram að
Vinnuveitendasamband íslands
hefur ekki viðurkennt greiðsiu-
skyidu vegna tónlistarflutnings á
vinnustað.
*
Veírarorlof
Árni Brynjólfsson, rafvirkja-
meistari kvaddi sér hljóðs óg bar
fram tillögu um það, að Vinnu-
veilendasambandið beitti sér fyr-
ír því, að fram færi athugun á,
livort ekki væri framkvæmanlegt
að koma á skipulögðum orlofs-
ierðum til suðlægari landa, t. d.
Miðjarðarhafslanda, mánuðina
desember, janúar og febrúar.
Tihögunni fyigdi greinargerð á
þessa leið:
Oriof er með lögum ákveðið
minnst þrjár vikur pg gert ráð
fyrir, að það sé notað yfir, sum-
armánuðina. Þetta hefur í för
með sér, að allt atvinnulíf lamast
að meira eða minna leyti frá
miðjum júní til ágústloka. Af-
Jpiðing af þessu fyrirkomulagi er,
Áðalfimdur
Prestafélags Suð-
urlands
vinna á sumrin flyzt yfir á vetr-
armánuðina, til tjóns fyrir alla
þá aðila, sem hlut eiga að máli.
Augljóst er, að þjóð, sem býr
við jafn árstíðabundið veðurfar
og íslendingar, hefur tæplega
efni á, að binda orlof eingöngu
við þann tíma árs, sem hag-
kvæmastur er til flestra fram-
kvæmda og þvi er full ástæða
Verðlaunaritgerð
Herald Tribune
Dagblaðið New York Herald
Tribune hefur árlega um nokkurt
skeið boðið framhaldsskólanem-
endum frá ýmsum löndum til
þriggja mánaða kynnisdvalar í
Bandaríkjunum. Gestirnir eru
þannig valdir, að stofnað er til
ritgerðasamkeppni meðal skóla-
fólks í þeim löndum, sem gefa á
kost ,á þátttöku, og fær sá, er
hlutskarpastur verður í hverju
landi, förina að launum. Hafa
allmargir íslenzkir framhalds-
skólanemendur notið góðs af
þessari starfsemi á undanförnum
árum.
í apríllok í vor var enn boðið
til ritgerðasamkeppni hérlendis á
á vegum blaðsins, og skyldi rit-
gerðarefnið að þessu sinni vera:
„Að hvaða leyti eru vandamál
æskufólks nú á tímum frábrugð-
in þeim vandamálum, sem eldri
kynslóðin átti við að glíma?“
Úrslit keppninnar urðu þau, að
Jóna E. Burgess, nemandi í 4.
bekk Menntaskólans á Akureyri,
varð hlutskörpust. Mun hún
væntanlega fara vestur um ára-
mót og dveljast þar til marzloka.
(Frá menntamálaráðuneytinu;.
til athugunar á hvort ekki sé til
leið til úrbóta, sem allir geti vel
við unað.
Með tillögunni er gert ráð fyr-
ir, að orlof verði tekið að vetri
til. þann tíma, sem erfiðast og ó-
hagkvæmast er að vinna alla úti-
vinnu, en þá jafnframt séð fyrir
ódýrum og hagkvæmum ferðum
til sólarmeiri landa. Full ástæða
er til að ætla, að gera megi ferð-
ir þessar svo ódýrar, að þeir,
sem á annað borð hafa efni á því
að fara í orlofsferðir innanlands,
hafi einnig efni á að fara í þær.
Líklegt má telja að unnt sé að fá
leigð hótel með mjög góðum
kjörum, þar sem ferðamanna-
straumur er minnstur til þessara
landa á þeim tíma. sem um er
að ræða. Þá ætti að vera mögu-
legt með góðu skipulagi að
tryggja fyllstu nýtingu hótelher-
bergja yfir timabilið. Sama er
að segja um ferðir. Vegna minni
anna yfir vetrarmánuðina og
þess, að farkostir í ferðum þess-
um yrðu ávallt fullskipaðir far-
þegum, er fullvíst, að hægt er
að færa þann kostnað verulega
niður.
Ef tekst að koma ferðum þess-
um á, vinnst það tvennt að fleiri
verða til taks að vinna nauðsyn-
lega útivinnu þann tíma, sem
hagkvæmast er að vinna hana og
verkamenn þeir, sem færu í ferð-
irnar nytu sólar og sumars á
þeim tíma, sem verst og erfiðast
er að stunda útivinnu.
Ljóst er að nokkur gjaldeyris-
kostnaður hlýtur að fylgja ferð-
um þessum en einnig hann yrði
í algeru lágmarki og sennilega
ekki mikið meiri en sá sparnaður
sem það hefur í för með sér,
að verkin eru unnin ódýrar við
hagstæðustu skilyrði.
Málið var rætt á fundinum og
vísað til framkvæmdanefndar
Vinnuveitendasambandsins til
nánari athugunar.
(Frá Vinnuveitendasam-
bandi fslands).
Gísli Halldórsson og Guðniundur Pálsson í hlutverkuin sínum,
sem faðirinn og leikstjórinn. — Næsta sýnin.g verður annað
kvöld klukkan 8.
Vestur-Þjóðverjar bjóða
fslndmgum námsstyrki
; Aðalfundur Prestafélags
Suðurlands var haldinn að
Selfossi á sunnudag og mánu-
dag sl. Á sunnudag þjónuðu
aðkomuprestar við nærliggjandi
kirkjur. Á mánudaginn fóru
fundarstörf fram. Aðalum-
ræðuefni fundarins var: „Sam-
starf presta“. Biskup landsins
sat fundinn. Stjórn félagsins
•var öll endurkjörin, en hana
skipa: Séra Sigurður Pálsson,
Selfossi, séra Sveinn Ögmunds-
son, Þykkvabæ og séra Garðar! Hefði
Svavarsson, Reykjavík. koma
Námskeið fyrir afgreiðslufólk við
Verzlunarskóla íslands
Verzlunarráð íslands hefur ákveöiö aö efná til nám-
skeiðs fyrir afgreiðslufólk á vegum Verzlunarskóla ís-
lands. Formaður skólanefndar, Magnús Brynjólfsson og
dr. Jón Gíslason, skólastjóri skýrðu fréttamönnum frá
þessu á fundi í gær.
Magnús Brynjólfsson drap í
upnhafj máls síns á nauðsyn
þess, að verzlunarskólanemend-
ur fengju á námsárum sínum
starfsreynslu á því sviði, sem
beir hyggjast leggja fyrir sig.
Undanfarið hefði Verzlunar-
skólinn gefið nemendum sínum
jólafrí snemma í desember til
þess að gefa þeim tækifæri til
að starfa við verzlunarstörf
þennan mesta annatíma ársins.
Öllum væri þó ljóst að þetta
væri allsendis ófullnægjandi og
væri stöðugt mikill skortur á
hæfu afgreiðslufólki til starfa.
þvi verið ákveðið, að
á fót námskeiðum við
Verzlunarskólann, þar sem
fólki gæfist kostur á að þjálfa
sig i þessum störfum. Fyrsta
námskeiðið hefst í byrjun jan-
úar og stendur til 14. maí.
Dr. Jón Gíslason, skólastjóri
rakti starfsferil skólans og
skýrði nánar frá hinu fyrirhug-
aða námskeiði. Fer hér á eft-
Framhald á 2. síðu
Ríkisstjórn Sambandslýðveldis-
ins Þýzkalands býður fram náms-
styrki skólaárið 1960—61. Er um
tvennskonar styrki að ræða:
1. Almennir styrkir til háskóla-
náms.
Tveir slíkir styrkir eru ætl-
aðir íslenzkum námsmönnum til
tólf mánaða námsdvalar við
þýzka háskóla, tækniháskóla eða
listaháskóla. Styrkirnir nema 350
þýzkum mörkum á mánuði, og
hefst styrktímabilið 1. október
1960, en lýkur 30. september
1961.
Umsækjendur skulu eigi vera
eldri en 30 ára. Þeir skulu annað
hvort hafa lokið fullnaðarprófi
frá háskóla eða a. m. k. tveggja
ára háskólanámi. Umsækjendur
um styrk til náms við tæknihá-
skóla skulu hafa lokið sex mán-
aða verklegu námi. Nægileg
þýzkukunnátta er áskilin.
Eyðublöð íyrir styrkumsóknir
verða aíhent í menntamálaráðu-
neytinu. Umsóknir skulu hafa
borizt ráðuneytinu fyrir 30. sept-
ember næstkomaiidi.
2. Styrkir til iðnfræðináms
og kenuaranáms
Eigi er vitað, hve margir slíkir
styrkir koma í hlut íslenzkra
umsækjenda, þar sem valið verð-
ur úr umsóknum írá mörgum
iöndum. Styrkirnir eru að fjár-
hæð 350 þýzk mörk á rnánuði og
eru'ætlaðir til tólf mán&ða dval-
ar við iðnfræðaskóla eða kenn-
araskóla. Styrktímabilið er frá 1.
marz 1961 til 28. febrúar 1962.
Umsækjendur skulu vera eldrí
en 26 ára. Þeir skulu leggja fram
prófskírteini og önnur vottorð
um menntun. Iðnfræðinemar
skulu hafa lokið sveinsprófi eða
a. m. k. tveggja ára verklegu
námi. Umsækjendur um kennara-
styrki skulu hafa stúdentspróf
eða kennarapróf. Styrkirnir eru
ætlaðir kennurum við sérskóla,
svo sem iðnskóla, verzlunarskóla,
landbúnaðarskóla, garðyrkju-
skóla eða húsmæðraskóla. Nægi-
leg þýzkukunnátta er áskilin.
Umsóknareyðuþlöð fást I
menntamálaráðuneytinu. Um-
sóknir skulu hafa borizt ráðu-
neytinu fyrir 15.' maí 1960.
Frá menntamálaráðuneytinu.)’
Mí r
í dag kl. 3:
barnasýning
Kl. 5:
Bandaríkjaför
Krústjoffs o. fl.
8TEIHP08',s)
Trúlofunarhringir, Steln-
hringir, Hálsmen, 14 og
18 kt. gull.
N.XNXXNXVCvX\NXXNN^N%XXXN.NX'XNXN.XN'^NSNNX'í>S^N\XvS^,SNX\XSNSÍCCCC>WCCCCC'N
• •
BEZT